Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 36

Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 36
:Sími á ritstjórn og skrifsiofu: 10100 |M«rgunbbibib Síminn á afgreiðslunni er 83033 JM*r0iinblnbtb LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980 Haukur Angantýsson Haukur náði alþjóðlegum meistaratitli IIAUKUR Angantýsson skák- maður trygííði sér í gær þriðja og síðasta áfanga alþjóðlogs meistaratitils í skák á Rilton- cup skákmótinu í Stokkhólmi. Haukur hlaut 7 vinninga í 9 skákum og varð í 2.-5. sæti. Hann tefldi í gær við Svíann Wedberg og tapaði skákinni eftir mikla baráttu. Jafntefli í skákinni hefði tryggt Hauki efsta sætið því sigurvegarinn Kaiszauri hlaut Vk vinning. Fyrir síðustu umferðina var Haukur efstur ásamt Kaiszauri með 7 vinninga. Hins vegar mátti hann tapa fyrir Wedberg og verða samt alþjóðlegur meistari. Lagði því Haukur allt í sölurnar til að vinna mótið einn en spennti bogann of hátt. Geir Hallgríms- son ræddi við formenn hinna f lokkanna í gær GEIR Hallgrímsson. formaður Sjálfstæðisflokksins, átti í gær við- ræður við formenn hinna þriggja stjórnmálaflokkanna, og ýmsa aðra áhrifamenn. Viðræður Geirs eru enn á könnunarstigi og er öilum möguleikum enn haldið opnum, þ.e. a.s. samstarfi allra flokka. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu, stefnir Geir Hallgrímsson að því, að línur hafi skýrzt í tilraun hans til stjórnarmyndunar, þegar Alþingi kemur saman. Kratar ókyrrast í ráðherrastólunum: Fer stjórnin frá um miðj- an mánuðinn? SUMIR ráðamenn Alþýðuflokksins munu vera þeirrar skoðunar, að minnihlutastjórn flokksins sem set- ið hefur sem starfsstjórn um skeið eigi að hætta störfum og ráðherrar að yfirgcfa ráðuncytin eftir miðjan janúar, ef rikisstjórnin fái ekki meira svigrúm tii starfa en' hún hcfur nú. Vcrði skattafrumvarpið ekki afgreitt strax er þing kemur saman og rikisstjórninni ekki veitt heimild til þess að gera ráðstafanir samhliða fiskverðsákvörðun. mun það skoðun þessara manna að Rene- dikt Gróndal eigi að tilkynna for- seta íslands, að ríkisstjórnin láti af störfum. Þessi viðhorf voru til umræðu í Flugleið- ir segja upp samn- ingum við flugmenn FLUGLEIÐIR h/f hafa nú sagt upp kjarasamningum við flugmenn félagsins. Samning- arnir falla úr gildi 1. febrúar n.k. Formaður Félags Loftleiða- flugmanna Baldur Oddsson, upplýsti á blaðamannafundi i gær, að þetta væri í fyrsta sinn sem atvinnurekandinn segði upp samningum við flugmenn. Venjan væri sú, að flugmenn hefðu sagt upp samningunum. Hann bætti því við, að flug- menn mættu reikna með því að Flugleiðir settu fram einhverj- ar kröfur. Það væri a.m.k. venjan, að sá aðili sem segði upp samningum gerði það á þeim grundvelli að ná fram betri samningum til handa uppsagnaraðilum. fyrradag á þingflokksfundi í Alþýðu- flokknum, þar sem þingmenn flokks- ins ræddu stjórnmálaviðhorfið al- mennt. Verði skattalagafrumvarpið með innheimtuákvæðum ekki að lög- um, mun ekki unnt að innheimta skatta og miklir erfiðleikar eru á fiskverðsákvörðun, sem lögum sam- kvæmt átti að taka gildi 1. janúar, en ríkisstjórnin veitti yfirnefnd Verð- lagsráðsins heimild til frestunar fram á mánudag, 7. janúar. Þessa stöðu telja alþýðuflokksmenn algjör- lega óviðunandi og telja sumir þeirra að þeim sé ekki sætt við slíkar aðstæður í valdalausri starfsstjórn, sem ekkert umboð hafi til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir. Þegar eftir alþingiskosningarnar í desember, baðst ríkisstjórnin lausn- ar og veitti forseti Islands henni þá lausn. Samkvæmt venju fór forsetinn fram á það við stjórnina, að hún sæti áfram, unz ný ríkisstjórn hefði verið mynduð og samþykkti stjórnin það. Nú telja sumir alþýðuflokksmenn hins vegar forsendur gjörbreyttar og svo miklar blikur á lofti í þjóðmálun- um, að eigi sé ríkisstjórninni sætt, fái hún ekki rýmra umboð til stjórn- unar en hún hefur. Einn alþýðu- flokksmanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að með því að sitja algjörlega áhrifalaus, væri ekki aðeins Alþýðuflokknum gerður óleik- ur, heldur og landsmönnum öllum, því að óbreytt ástand leiddi aðeins til stöðvunar og atvinnuleysis. Ljðsm. Mbl. Krlstinn. íþróttamaður ársins 1979 Hreinn Halldórsson var i gær kjörinn íþróttamaður ársins og er það i þriðja skiptið á siðustu fjórum árum sem Hreinn hlýtur þetta sæmdarheiti. Hreinn hlaut nú 64 stig af 70 mögulegum. Á iþróttasiðunum er nánar greint írá kjörinu, auk viðtals við kempuna. Áhugi á nýsköpun hjá Alþýðuflokki Áþreifingar framsóknarmanna við Sjálfstæðisflokk ÞINGMENN Alþýðuflokksins sátu þingflokksfund í fyrradag og var stjórnmáiaviðhorfið til umræðu. Meirihluta þingflokksins leizt þar mjög vel á myndun nýsköpunar- stjórnar, sem menn líta á sem „vopnah!ésstjórn“ og myndi lang- lífi hennar byggjast á Alþýðu- bandalaginu. Innan þingflokks Al- þýðubandalagsins mun hins vegar sú skoðun vera uppi, að gangi Alþýðubandalagið til stjórnarsam- starfs við Sjálfstæðisflokkinn, verði Alþýðuflokkurinn að vera þar einnig. Svipuð afstaða gagn- vart Alþýðubandalagi mun rikja innan Alþýðuflokks. þessi öfl vilji koma í veg fyrir aðrar stjórnarmyndanir og muni síðan taka málin í sínar hendur í febrúarmánuði og standa að mynd- un slíkrar stjórnar. Er talið, að Tómas Árnason muni þar fremur eiga hlut að en Steingrímur Her- mannsson. Varðskipið flytur hrútinn til LANDHELGISGÆZLAN vinn- ur mikilvæg þjónustustörf fyrir landsmenn eins og allir vita og verkefnin, sem gæzlu- mönnum eru falin eru hin margbreytilegustu eins og dæmin sanna. Um helgina munu varð- skipsmenn sinna mjög óvenju- legu verkefni, nefnilega að flytja hrút milli staða í Arnar- firði. Þannig er, að aðstoðar- beiðni hefur komið frá Aðal- steini Guðmundssyni bónda að Laugabóli í Arnarfirði. Aðal- steinn á ær, sem ganga sjálfala í skóglendi í Geirþjófsfirði, en þangað er illfært landleiðina. Nú er fengitíminn nýbyrjaður og því brýn nauðsyn fyrir Aðal- stein að koma hrút sínum þang- ánna að og hleypa til ánna. Voru nú góð ráð dýr en Aðalsteinn fann lausnina. Hún er sú að flytja hrútinn frá Laugabóli til Geir- þjófsfjarðar með varðskipi. Kom hann beiðni til Landhelg- isgæzlunnar sem brá skjótt við og mun flytja hrútinn í dag eða á morgun. Það er mikið í húfi fyrir Aðalstein. I fyrra kom hann ekki hrútnum til Geirþjófs- fjarðar í tæka tíð. Fengitíminn leið hjá og ær Aðalsteins báru því ekki lömbum og hann varð því fyrir stórtjóni Alþýðubandalagið er í raun klofið í afstöðu sinni til nýsköpunarstjórn- ar og vill t.d. meirihluti verkalýðs- arms flokksins í Reykjavík eindreg- ið reyna þetta stjórnarmynstur og hefur þar gætt óþolinmæði gagn- vart því, hve seint stjórnarmyndun- arkönnun Geirs Hallgrímssonar gengur. Hinr. armur flokksins mun reyna að koma í veg fyrir stjórnar- samstarf við Sjálfstæðisflokkinn í lengstu lög og vill hann, að stjórn- armyndunartilraun Geirs mistakist. Ber hann þá von í brjósti, að Lúðvík Jósepssyni muni síðan takast það sem Steingrími Hermannssyni mis- tókst — að mynda vinstri stjórn. Takist ekki að koma á slíkri stjórn, vill þessi armur helzt, að Alþýðu- bandalagið sé utan stjórnar. Þá hefur Morgunblaðið haft af því spurnir, að öfl innan Framsóknar- flokksins hafi hafið áþreifingar gagnvart Sjálfstæðisflokki um sam- stjórn þessara tveggja flokka. Þess- um öflum finnst Steingrímur Her- mannsson hafa verið einum of fljótur á sér að útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokk, sem hafi verið misráðið. Er uppi kenning um, að Loðnunótin kostar um 60-70 mffli LOÐNUVEIÐAR mega hefjast þriðjudaginn 8. janúar n.k. Sam- kvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk í gær, er unnið að því af fullum krafti að gera bátana klára fyrir vertiðina og taka næturnar um borð. Kostar það drjúgan skilding fyrir útgerðirnar að fá nýjar nætur, því að stórar loðnunætur kosta nú 60—70 milljónir króna. Almennt er búist við því að loðnubátar leggi úr höfn um helgina. Einn bátur er þegar farinn til loðnuleitar, Gígjan frá Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.