Morgunblaðið - 20.01.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
3
í ræðu sinni ræddi Jón Oddsson
um framburð þriggja pilta, sem
voru saman í bifreið í Hafnarfirði
nóttina sem Guðmundur hvarf og
töldu sig hafa séð til ferða hans.
Mikið ósamræmi hefði komið
fram í máli þeirra og sýndist
honum á öllu að þarna hafi verið
góður grundvöllur fyrir umferð-
arslysi. Þá nefndi Jón að Hamars-
braut 11 hefði ekki verið dvalar-
staður Sævars á þessum tíma
heldur starfsmannabústaður
Kópavogshælis og væri því ekki
hægt að sjá að félagar Sævars
hefðu átt þangað erindi umrædda
nótt. Hann tók undir það sem kom
fram hjá Páli A. Pálssyni, að svo
virtist sem rannsóknarmenn
hefðu lagt meiri áherslu á rann-
sókn þeirra atriða sem væru
ákærðu í óhag en að rannsaka
atriði, sem væru þeim í hag.
Rifrildi
Sævars og Erlu
Nefndi Jón því til sönnunar að í
apríl 1977 hefði Sævar gert boð
fyrir Gísla Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumann og skýrt frá
því að hann gæti sannað fjarveru
sína frá Hamarsbraut 11 um-
rædda nótt. Kvaðst Sævar hafa
komið til Erlu daginn eftir, þ.e. á
sunnudag. Hefði hún rifist mjög
yfir þvi hve lengi hann hefði verið
burtu og að hann væri farinn að
halda framhjá henni. Sævar sagð-
ist þá hafa reynt að ljúga því að
hann væri að koma beint úr
flugvél frá útlöndum en Erla hefði
þá sagt að ekkert þýddi fyrir hann
að ljúga því, vinkona hennar hefði
nefnilega séð til hans í Hafnar-
stræti daginn áður. Tók Gísli því
næst skýrslu af Erlu, þar sem hún
skýrði sjálfstætt frá því, að Sævar
hefði komið til hennar þennan
sunnudag og reynt að ljúga því að
hann væri að koma beint frá
útlöndum en hún hefði getað rekið
þetta ofan í hann. Skýrði Jón frá
því að í skýrslu Gísla hefði komið
fram, að hann ræddi um það við
tvo sakadómara, sem með málið
fóru, þá Gunnlaug Briem og Har-
ald Henrysson, hvort rannsaka
ætti þetta atriði nánar en þeir
ekki talið þörf á því. — Hér er
komið að því sama, tregðu á því að
rannsaka þau atriði, sem gætu
orðið sakborningi til góða, sagði
Jón.
Þá vakti Jón athygli á skýrslu,
sem tekin var af Erlu 7. febrúar
1974, nokkrum dögum eftir hvarf
Guðmundar Einarssonar, en um
mánaðamótin janúar/febrúar var
Sævar handtekinn vegna gruns
um fíkniefnamisferli. Þá sagði
Erla: Ég hef heyrt að Sævar hafi
nýlega farið til útlanda en sjálf
veit ég ekkert um það. Ég veit þó
að hann hefur ekki farið til
útlanda eftir 27. janúar (sunnu-
dagur), því að þá kom hann til mín
en hafði þá ekki komið lengi.
Sævar handtekinn
af tollverði
Jón Oddsson ræddi nánar
fyrrgreinda handtöku Sævars og
atriði, sem hann taldi renna stoð-
um undir þá frásögn Sævars að
hann hefði ekki verið staddur að
Hamarsbraut 11 umrædda nótt.
Hafi orðið þar átök, hafi Sævar
ekki komið þar nærri.
Jón gagnrýndi mjög yfirheyrsl-
urnar yfir vitninu Gunnari Jóns-
syni, sem sóttur var til Spánar.
Kvað hann yfirheyrslurnar hafa
farið fram án vitundar réttar-
gæzlumanna ákærðu. í fyrsta lagi
hefði í kvaðningu til hans verið
lýst því sem gerðist að mati
rannsóknaraðila og fullyrt að átök
hefðu átt sér stað og Guðmundur
látist. Við fyrstu yfirheyrslu var
Hafi orðið átök, kom
Sævar þar ekki nærri
— sagði Jón Oddsson hrl., verjandi Sævars, í Hæstarétti
sagði að það vekti nokkra undrun
að Kristján Pétursson deildar-
stjóri í tollinum á Keflavíkur-
flugvelli hefði staðið fyrir henni
og sömuleiðis hefði hann tekið
skýrslu af Sævari. Kvaðst Jón ekki
vita í umboði hvers Kristján hefði
verið. Sagði Jón að Kristján hefði
engin merki séð um það í íbúðinni
að þarna hafi eitthvað óvenjulegt
gerst, en Kristján framkvæmdi
húsleit um leið og handtakan fór
fram. Jón Oddsson nefndi fleiri
Jón Oddsson hrl., verjandi Sævars Marínós Ciesielsk-
is, gerði þær kröfur í upphafi varnarræðu sinnar fyrir
Hæstarétti á föstudag að Sævar yrði sýknaður af ákæru
um að hafa orðið þeim Guðmundi Einarssyni og
Geirfinni Einarssyni að bana.
svo bókað að málið hefði verið
reifað en síðan hefði Gunnar skýrt
ýmsa þætti þess sjálfstætt. Hafði
Jón margt við þessi vinnubrögð að
athuga. Sagði Jón að Gunnar hefði
lítið munað en honum hefði verið
hjálpað af rannsóknaraðilum, m.a.
með því að sýna honum mynd af
Guðmundi, sem birtist í Morgun-
blaðinu. Hann hefði verið látinn
lýsa húsakynnum, en áður en það
var gert fékk hann að skoða
íbúðina. Taldi Jón vinnubrögðin
slík, að vitnisburður Gunnars væri
ekki marktækur.
30 atriði órannsökuð
Ennfremur fann Jón margt að
rannsókn málsins hjá lögreglu og
sagði að aðeins tveir lögreglu-
menn og einn dómarafulltrúi
hefðu annast málið þrátt fyrir
umfang þess og þá staðreynd, að 8
manns voru um tíma í gæzluvarð-
haldi í sambandi við rannsóknina.
Sagði Jón að það hefði líka komið
í ljós að mikilvæg atriði hefðu alls
ekkert verið athuguð og hefði einn
dómari sakadóms, Ármann Krist-
insson, fundið að þessu í skýrslu
sem hann ritaði í febrúar 1977.
Taldi Ármann þar upp 30 atriði,
sem hann, að sögn Jóns, áleit að
látið hefði verið undir höfuð
leggjast að rannsaka. Að ósk Jóns
mun saksóknari leggja skýrslu
Ármanns fram í réttinum.
Jón Oddsson heldur áfram varn-
arræðu sinni klukkan 10 í fyrra-
málið.
Helgar- og kaupstefnuferðir
til Kaupmannahafnar
Verð frá kr. 208.200
Innifalid: flugfargjald, flugvallarskattur,
gisting og morgunverður.
Látið fagmenn sjá um ferðalagið
Brottför:
31. janúar — 5. febrúar
22. febrúar — 25. febrúar
13. marz — 18. marz
3. apríl — 8. apríl
8. maí — 11. maí.
MUNIÐ NYARSFAGNAÐ UTSYNAR AD HOTEL SOGU I KVOLD
Costa del Sol
Kanaríeyjar
BROTTFÖR 27. JANÚAR
Púskaferð 2. apríl, 12 dagar.
TRYGGIÐ YKKUR BEZTU GISTISTAÐINA
Florida- Miami
BROTTFÖR 24. JANÚAR
Ferðaskrifstofan