Morgunblaðið - 20.01.1980, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.01.1980, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980 Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Mikil tíðindi hafa borizt af Grænlandi. Landi því, er þar- lendir kalla ýmist Kalaallit Nun- aat, sem er opinbert nafn lands- ins, eða INUIT NUNAAT, land manna. Heimastjórn er fengin og ráðin komin í hendur heima- manna. Allt gekk þetta rólega fyrir sig, engin bylting, ekkert mannfall, enda Grænlendingar gæðafólk og fráhverfir slagsmál- um og illindum nema áfengi sé með i spilinu, eir það er önnur saga og á ekki erindi í þessar línur. I tilefni af því, sem hér er á minnzt, hefur verið efnt til sýningar á menningu þeirrar þjóðar, sem byggt hefur eitt harðbýlasta land heims um þús- undir ára. Sumir kalla þetta listsýningu, en mér er nær að kalla þá sýningu, sem nú stendur í Norræna húsinu, menningar- sýningu, þar eð sú var tíð, að hugtakið list var ekki til í grænlenzku máli. Svo samrunn- in var listræn tjáning hvers- dagslífi þessa fólks, að orð um þau efni voru óþörf og ástæðu- laus. Það var ekki fyrr en Evrópumaðurinn kom til skjal- anna, að farið var að tala um list á Grænlandi. Við, sem erum orðin margþreytt á alls konar þvaðri og skrípalátum í nafni listar, hljótum að öfunda það fólk, sem svo vel er af náttúr- unni gert að hafa ekki þurft að eiga hugtakið list í máli sínu. Og ef við svo berum nafnið Land manna saman við nafnið Græn- land? Hvílíkur munur á póesíu! Þúsundir dæma á þessa leið mætti nefr.a, en ætlunin er einungis sú, að minnast ofurlítið á grænlenzku sýninguna, sem gistir höfuðstað okkar fyrstan áfangastaða á langri ferð um Norðurlönd. Þórshöfn í Færeyj- um er næst á ferðaáætlun og síðan hvert Norðurlandanna eft- ir annað. Fyrir um það bil þremur árum var hér á ferð sýning á list Grænlendinga. Var sú sýning aðallega á þeirri list, sem nú er stunduð meðal þeirra, en sýning- in, sem nú stendur í Norræna húsinu, er henni frábrugðin að því leyti, að þar er sýnd gömul hefð, jafnt þeirri endurnýjun, sem nú á sér stað í listsköpun á Grænlandi. Á sýningunni eru um tvö hundruð munir, og eru J>eir svo fjölbreyttir að náttúru og allri gerð, að ekki verður farið nánar út í þá sálma hér. Þarna er skorið í bein, telgt í tré og stein, saumað í þjóðbúninga og skreytt með perlum, dansgrímur anda frá sér galdri og seiðmagni; þarna eru tréskurðarmyndir, krítarmyndir og olíumálverk. Af þessari upptalningu má sjá, að sitthvað er að finna á þessari sýningu. Þó mun ég engan veg- inn hafa allt talið og gríp því til þess ráðs að segja sjón sögu ríkari. Grænlenzk list er töfrandi á margan hátt. Hún er upprunaleg og eðlileg, gegnir ákveðnu hlut- verki í mannlífinu, er göldrótt og þjónar margvíslegum tilgangi Hópmynd, skorin í hvalbein af Simon Kristoffersen 1972. Inuit Nunaat við hversdagsleg störf og á áhrifaríkari augnablikum. Þegar talað er um gildi listar fyrir daglegt líf á Grænlandi má nefna sem dæmi þá fjölmörgu verndargripi (amulettur), sem enn í dag eru snar þáttur í lífi þjóðarinnar. Túpilakkar eiga sér merka sögu og hafa löngum verið mjög virkur þáttur í hug- myndaheimi Grænlendinga. Túpilakkar eru nú yfirleitt skornir í hvaltennur, en voru áður fyrr gerðir úr alls konar forgengilegu efni. Á sýningunni gefur að líta elzta túpilakk, sem varðveittur er, og er hann tó ekki ýkja gamall. Vonandi fylgir mynd af honum með þessuin línum. Túpilakkurinn er oft gerður í líkingu manns og dýrs og jafnvel sjálfrar náttúrunnar. Hann er svo merkilegur galdra- gripur, að hann getur tortímt þeim, sem ekki eru þess verðugir að varðveita hann. Ég hef til dæmis orðið fyrir því, að Græn- lendingur hefur ekki viljað láta túpilakk af hendi við kaupanda, á þeim forsendum að sá, er eignast vildi, væri ekki þess verður, að honum væri trúandi fyrir þeim krafti, sem fylgdi gripnum. Þetta er enn trúa sumra manna á Grænlandi, enda þótt kristin trú hafi verið þar alls ráðandi í meira en tvö hundruð ár. Á sýningunni eru ágætir maskar eða dansgrímur, sem vöktu mikla aðdáun mína. Það er sjaldgæft, að maður reki sig á jafn góða gripi og þarna eru saman komnir, enda munu þeir fengnir víða að. — Þarna eru einnig mjög fallegar vatnslita- myndir í póstkortastærð eftir Jakob Danielsen, sem ef til vill mætti nefna Kjarval þeirra Grænlendinga, en hann var mjög sérkennilegur og skemmti- legur maður, sem margar sögur eru sagðar af, einkum þó um viðhorf hans til listar. Þá má nefna Aron frá Kangeq, sem einnig er afburða listamaður, ólíkur Danielsen, en af sama uppruna. Þá eru þarna tréskurð- armyndir eftir Egon Paulsen í Kulusuk og ekki má gleyma bjarndýri Vilhelms Kuitse, hins kunna trommudansmeistara og stórveiðimanns, en margir íslendingar munu kannast við ekkju hans í Kulusuk, Milke, sem enn skemmtir ferðamönn- um með hefðbundnum dansi, klæðist þjóðbúningi og greiðir hár sitt á gamla vísu. Benda mætti á marga aðra listamenn, t.d. Aron Kleist, Simon Kristoff- ersen, Rosing, Aka Höegh, Jens Kreutzmann og Karl Kristoffer- sen, en hér verður að stikla á stóru, og vísa ég því til ágætrar sýningarskrár, sem gerð hefur verið á grænlenzku, dönsku og finnsku, en af þeim málum mun aðeins eitt koma okkur að nokkru gagni. í riti þessu eru formálar og greinar, vel þess virði, að lesið sé. Óhugsandi er að minnast á þessa sýningu án þess að geta starfa Bodil Kaalund, sem átt hefur hvað drýgstan þátt í að hleypa sýningunni af stokkun- um. Bodil Kaalund hefur að vísu ekki skapað neinn af þeim grip- um, sem á sýningunni eru, en hún hefur sett svipmót sitt á hana, enda er hún mjög vel að sér um grænlenzka list og hefur nýverið gefið út ágæta bók, þá fyrstu, sem gefin hefur verið út um gamla og þróaða list á Grænlandi. Hún átti einnig mik- inn þátt í þeirri sýningu, sem var hér á ferð fyrir nokkrum árum, og nú hélt hún fyrirlestur hér í Norræna húsinu. Var hann mjög vel sóttur og vitnaði um þann áhuga, sem virðist ríkja hér á landi, fyrir list granna okkar í vestri. Fyrir nokkrum árum var svo komið fyrir þeim, er þessar línur ritar, að menningarvíma sú, er hann hafði í sig drukkið í Evrópu og víðar, var farin að valda þreytu, eins konar menn- ingarlegum timburmönnum. Þá var það, að leiðir mínar lágu til grænlenzkrar listar. Ekki þarf að orðlengja það, að sú snerting varð fljót að lækna þá timbur- menn. Líf mitt fékk bókstaflega nýtt innihald, og trú mín á listina og hlutverk hennar í daglegu amstri endurnærðist svo, að hún hefur ekki haggast síðan. Ég veit ekki, í hve mikilli þakkarskuld ég stend við græn- lenzka list, en ég veit þó, að það er ekkert lítilræði. Heppinn hef ég verið og lánsamur að geta veitt mér þá ánægju og lífsfyll- ingu að hafa á heimili mínu svolítið af þessum hlutum. Fyrir það eitt væri mér skylt að þakka því fólki, sem næstir eru grann- ar okkar í vestri, því fólki, sem lifað hefur af allar hörmungar þess undurfagra lands, sem það elskar svo, að búseta í öðrum og blíðari löndum kemur vart til mála. Á Grænlandi býr fólk, sem umgengst list á svo sjálfsagðan hátt, að það tekur ekki eftir því, að um listaverk er að ræða, fólk, sem trúir svo á mátt listarinnar, að það fer varlega í að láta hana af hendi. Eins og öllum er kunnugt, er okkur íslendingum gjarnt að meta verðugleika okkar í saman- burði við aðrar þjóðir eftir höfðatölu. Hver kannast ekki við gáfuðustu þjóð í heimi og annað þess háttar? En hvað gerist nú, er við kynnumst við menningu þjóðar, sem ekki nær einum fjórða höfðatölu okkar sjálfra. Ætli Grænlendingar hafi ekki víða vinninginn, er höfðatölu- reglunni er beitt. Varasöm vísindi, höfðatölureglan! Víst mætti margt um þá sýningu rita, sem nú er að hefja för um Norðurlönd, en ég læt þessar línur nægja. Þær gera hvorki einu né neinu skil, en eru aðeins ætlaðar sem kveðja með góðum óskum um farsæla reisu, og í lokin vonast ég til, að enginn, sem áhuga hefur á menningu og myndlist, láti þetta tækifæri ónotað til að hafa nokkur kynni af því fólki, er kallar land sitt INUIT NUN- AAT.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.