Morgunblaðið - 20.01.1980, Side 32

Morgunblaðið - 20.01.1980, Side 32
wvn QUARTZ — úr Þessi heimsþekktu úr fást hjá flestum úrsmiöum. Síminn á afgreiöslunm er 83033 }fl«r()nnHnbit> SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980 Framleið- endur voru í góðri trú Nefnd til Þýzkalands í dag til viðræðna um rækjuna frá Akureyri KRISTJÁN Jónsson fram- kvæmdastjóri K. Jónsson og co á Akureyri heldur til V-Þýzkalands í dag ásamt þremur starfsmönnum Sölustofnunar lagmetis til viðræðna við þarlenda kaupendur rækju frá Akureyri. Fram hefur komið í fréttum, að hið þýzka fyrirtæki hefur kvartað yfir rækjusend- ingu frá K. Jónsson og telur að framleiðslan hafi ekki verið eins og um var beðið. Forráðamenn K. Jónssonar telja sig hins vegar hafa farið að öllu leyti eftir óskum Þjóðverjanna og m.a. sleppt sítrónusýru úr leginum að beiðni umboðsmanns þeirra. Um þetta verður fjallað í viðræð- um fjórmenninganna við Þjóð- verja, en útflutningsverð rækj- unnar er fór í haust var yfir 200 milljónir króna. Miklar hræringar hafa verið í lagmetisiðnaði að undanförnu. Norðurstjarnan í Hafnarfirði hef- ur sagt sig úr Sölustofnun lagmet- is, K. Jónsson og KEA á Akureyri eiga í viðræðum um hugsanlega aðild KEA að fyrirtækinu, for- maður stjórnar Sölustofnunar er í leyfi til vors og framkvæmdar- stjórinn hefur sagt starfi sínu lausu. Þá er ný reglugerð um eftirlit með lagmetisframleiðslu væntanleg á næstunni og loks má geta þess að samninganefnd fer í dag til Moskvu, þar sem viðræður hefjast á þriðjudag um sölu á gaffalbitum héðan til Rússlands. Siá nánar bls. 17: Uppskrift- inni breytt að beiðni kaupenda? LjA«m. Mbl. RAX. Tían leigð fyrir 4,5 milljarða kr. Áframhaldandi eignaraðild tryggð og tekjuafgangur að auki í SAMTALI í blaðinu í day, við Sigurð Helgason for- stjóra Flugleiða kemur fram að Flugleiðir hafa leigt DC-10 breiðþotuna til tveggja ára fyrir 11 millj- ónir dollara eða um 4,5 milljarða króna, en leigan Bjartur NK fékk á sig brotsjó: Rak stjórnlaust að landi þegar aðalvél stöðvaðist Komst af eigin rammleik til Isafjarðar Isafirfli. 19. jan. SKUTTOGARINN Bjartur NK 121 frá Neskaupstað fékk á sig brotsjó sl. nótt 5,5 mílur norður af Hælavíkurbjargi. Engin slys urðu á mönnum, en bakborðs- stokkur bognaði inn, björgunar- bátur flaut upp og bjarghringir og annað lauslegt sópaðist fyrir borð. Aðalvéi stöðvaðist og rak togarann stjórniausan í átt að landi í um það bil tvær klukku- stundir. Bjartur var á heimleið af Vest- fjarðamiðum sl. nótt er óhappið varð. Skipstjórinn, Sveinn Bene- diktsson, var í brúnni ásamt öðrum stýrimanni og háseta. Veð- ur var NA 10—12 vindstig, stór- sjór og bylur. Brotsjórinn kom á bakborðssíðu togarans og var aflið svo mikið að togarinn lagðist á stjórnborðshlið, svo mikið að björgunarbátur, sem geymdur var á stjórnborðsbrúarvængnum slitnaði úr festingum og blés sig upp. A.m.k. 5 bjarghringir kurluð- ust í sundur, björgunarbátur á bakborðsbrúarvæng færðist til í sæti sínu og munaði minnstu að hann færi líka. Loftventill rifnaði, lausir bobbingar og trollið flutu yfir í stjórnborðssíðu og 70 tonn af fiski í lest færðust til. Talstöðvar slitnuðu úr sætum sínum og varð langbylgjustöðin óvirk. Ljóskast- arar efst í afturmastri skemmdust og virðist að þetta eina ólag hafi fært mest allan togarann í kaf. Skipstjóranum tókst að snúa upp í veðrið, en þá stöðvaðist aðalvélin. Kallað var út í VHF stöð og beðið um aðstoð og lögðu togararnir Kaldbakur og Arnar af stað til hjálpar. Vélstjóranum, Guðmundi Sigmarssyni, og mönnum hans tókst að finna bilunina, sem varð þegar sjór komst í rafmagnstöflu undir neta- lest. Við það stöðvuðust dælur fyrir smurolíu og vatn að vélinni og stöðvast hún þá sjálfkrafa. Eftir tveggja tíma rek tókst að koma aðalvélinni aftur í gang og átti skipið þá eftir 3 mílur í Hælavíkurbjargið. Togarinn kom til ísafjarðar um 10 leytið í morgun. Hér verður gert við rafmagn og annað sem nauðsynlegt er en skipstjórinn reiknaði með að halda af stað heim seinni partinn í dag og fara þá suður fyrir land. Hann hafði orð á því, að veðurspáin fyrir þetta svæði þegar óhappið varð hafi verið suðvestan gola. Togarinn Bjartur er af minni gerð skuttogara, smíðaður í Japan 1973. A honum er 16 manna áhöfn. Úlfar greiðir öll útgjöld Flug- leiða vegna þotunnar og greiðsluskuldbindingar í áíramhaldandi eignarað- ild og er þá nokkur tekju- afgangur af leigunni að auki. Reiknað er með að breiðþotan komi aftur til starfa hjá Flugleiðum að loknum leigutíma. Þá kemur einnig fram í viðtalinu að Sigurður telur fargjöld á Atlantshafsleið- inni 10—15% of lág miðað við tilkostnað, en ákveðin merki um þróun í átt til hærri fargjalda þrátt fyrir mikla samkeppni hafa komið fram að undanförnu. Þrátt fyrir samdrátt vegna aðstæðna og ástands á mörkuðum í flugheim- inum munu Flugleiðir stefna að því að halda fyrst og fremst í horfinu með það fyrir augum að rétta rekst- urinn við og hefja síðan áframhaldandi uppbygg- ingu þegar aðstæður leyfa. Sjá á bls. 14 og 15: „Þá verður auðveldara að fikra sig áfram á ný.“ Vinstri viðræður: Fjallað um umsögn Þjóðhagsstofnunar VIÐRÆÐUR um myndun vinstri stjórnar undir forystu Svavars Gestssonar, alþingismanns héldu áfram i gær og hófust fundir forystumanna vinstri flokkanna klukkan 14. í gærmorgun fóru fram óformlegar viðræður for- ystumanna flokkanna í Þórs- hamri og í gærmorgun klukkan 11 var þingflokksfundur alþýðu- flokksmanna í Alþingishúsinu. Dagskrá þingflokksfundar al- þýðuflokksmanna var umfjöllun tillagna Alþýðubandalagsins um hjöðnun verðbólgu. Þegar fundur- inn hófst lágu hvorki fyrir álits- gerðir Þjóðhagsstofnunar um til- lögurnar né verðlagsskrifstofunn- ar um niðurfærslu verðlags, en viðræðuaðilar Alþýðubandalags- ins höfðu óskað eftir þeim á fundi á fimmtudag. Þess var vænzt, að umsögn Þjóðhagsstofnunar yrði tilbúin um klukkan 15 í gær. Á fundinum í gær var búizt við, að Framsóknarflokkur og Alþýðu- flokkur segðu álit sitt á tillögun- um, en opinber umsögn forystu- manna þeirra er, eins og kunnugt er af fréttum, mjög neikvæð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.