Morgunblaðið - 30.03.1980, Page 1
64 SÍÐUR
76. tbl. 67. árg.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Afganistan:
Yíða blóðug-
ir bardagar
Islamabad, 29. marz. AP.
STJÓRNARHERMENN í Afganist-
an hafa orðið fyrir miklu mann-
tjóni í bardögum við afganska
uppreisnarmenn í héraðinu Kunar í
norðausturhluta landsins nólægt
pakistönsku landamærunum að
sögn talsmanns uppreisnarmanna í
Islamabad í dag.
Eitt hundrað stjórnarhermenn
féllu í tólf tima bardögum við
upprcisnarmenn í Ganjal í Kunar-
héraði að sögn talsmannsins. Bar-
dagarnir hófust með því að stjórn-
arhermenn réðust með stuðningi
skriðdreka og flugvéla ó stöðvar
uppreisnarmanna, en skæruliðar
veittu harðvituga mótspyrnu að
sögn talsmannsins.
Uppreisnarmenn stöðvuðu fjóra
herbíla nólægt Basawol í Nangra-
haíhéraði og felldu fjóra sovézka
ráðunauta. Uppreisnarmenn kveiktu
einnig í átta herflutningabifreiðum í
bænum Sarkundo. Allir búðareig-
endur í Kandahar-héraði hafa lokað
verzlunum sínum.
Stjórnarbyggingar hafa verið
brenndar í Kunduz-héraði nálægt
sovézku landamærunum, en hins
vegar er kyrrt í höfuðborginni Kabul
þótt loft sé lævi blandið. Rússneska
herliðið hefur reynt að einangra
höfuðborgina síðan mótmælaaðgerð-
irnar gegn hernáminu fóru fram í
síðasta mánuði.
Sex til sjö þúsund manna lið
uppreisnarmanna hafði höfuðborg-
ina í Kunduz-héraði nánast á valdi
Miltað skor-
ið úr Phalevi
Kairó, 29. marz. AP.
LÆKNAR íranskeisara sögðu i
dag, laugardag, að honum iiði
„eftir atvikum“ eftir að uppskurð-
ur var gerður á honum í dag og
miltað numið brott, en krabbamein
var komið í það.
Uppskurðurinn var gerður án þess
að tilkynning væri birt fyrirfram,
undir stjórn frægs bandarísks
hjartaskurðlæknis Michael Debakey
og ásamt honum voru við aðgerðina
egypzkir og bandarískir læknar.
Takist aðgerðin vel mun starfsemi
rauðu og hvítu blóðkornanna ganga
eðlilegar fyrir sig. Aftur á móti hafa
sérfræðingar látið í ljós þann grun
að krabbameinið kunni að hafa
breiðzt út í beinmerginn.
sínu um tíma fyrir tíu dögum þegar
kveikt hafði verið í nokkrum skólum,
skrifstofum stjórnarinnar, fata-
verksmiðjum og fleiri mikilvægum
byggingum. Uppreisnarmenn frels-
uðu rúmlega 500 fanga og kveiktu í
fangelsum.
Um 50 Rússar hafa fallið og
margra er saknað eftir árásir upp-
reisnarmanna í Kunduz og Baghlan
síðustu tvær vikur og rúmlega 100
afganskir hermenn og lögreglumenn
hafa verið felldir.
Saudi-Arabía:
Brezk
kona dæmd
til hýðingar
London, 29. marz. AP.
BREZK eiginkona skurð-
læknis hefur verið dæmd
til opinberrar hýðingar í
Saudi-Arabiu fyrir að
brjóta hina ströngu áfeng-
islöggjöf landsins, að því
er embættismaður brezka
utanríkisráðuneytisins
greindi frá í dag.
Hann sagði að Penelope
Arnot hefði verið dæmd til
að þola 80 vandarhögg í
Jidda fyrir að bera fram
áfenga drykki í samkvæmi
sem hún og maður hennar
Richard Arnot héldu.
I þessu samkvæmi létust
tveir gestir, hollenzkur
verkamaður og brezk
hjúkrunarkona, er þau féllu
út um glugga á fimmtu
hæð, að því er talið er
vegna þess hve ofurölvi þau
sem aðrir gestir voru.
Læknirinn hefur verið í
fangelsi sl. fimm mánuði
fyrir sama brot, og á eftir
að afplána sjö mánuði.
Hann kom til starfa í
Saudi-Arabiu fyrir hálfu
öðru ári síðan ásamt Pene-
lope konu sinni. Brezka
utanríkisráðuneytið reynir
nú að beita sér í málinu.
SJÓR AF SÚKKULAÐI — I>að er víðar handagangur í öskjunni um þossar mundir en í
fiskvinnslustöðvunum. Með stundarfriðnum, sem stjórnvöld hafa nú veitt þorskinum, sýnist páskahrotan
okkar íslendinga í ár raunar cinkanlega ætla að vcrða úr súkkulaði.
(Ljósm: Emilía)
Enn leitað af
sio
„LEIT var haldið áfram eins og
ráð var fyrir gert i nótt og
morgun, með skipum. flugvélum
og þyrlum, en það hefur ekkert
nýtt fundizt. sagði Auður Rúts-
dóttir, sendiráðsstarfsmaður i
Ólsó, i samtali við Mbl. um hádcg-
isbilið i gærdag.
„Það verður svo tekin ókvörðun
um það seinna í dag hvort leit
verður haldið áfram á morgun eða
ekki, þar sem menn eru orðnir
frekar vondaufir um að fleiri
kunni að finnast á lifi. Eigendur
pallsins hafa þó ennþá neitað að
gefa upp alla von og ákveðið hefur
verið að kafarar haldi áfram að
banka byggingarnar að utan til
þess að freista þess að fá einhvcr
svör. Listinn yfir þá sem um borð
voru fór niður með pallinum.
þannig að ekki hefur fengizt
uppgefið nákvæmlega hverjir
voru þarna um borð,“ sagði Auður
ennfremur.
úr lof ti
Bróðir hengdi syst-
ur sína í Teheran
Var vanfær eftir gísl í sendiráðinu
AP, 29. mars.
ÍRÖNSK námskona var að þvi er
fréttir herma hengd vegna þess
að hún mun hafa verið þunguð af
völdum eins bandarisku gislanna
i sendiráðinu i Teheran. Bróðir
stúlkunnar framdi verknaðinn.
Talsmaður námsmannanna sem
halda sendiráðinu staðfesti að
vitað væri um málið og Banda-
ríkjamaðurinn yrði afhentur höf-
uðstöðvum byltingarmanna til yf-
irheyrslu.
Stúlkan var ekki nafngreind né
heldur Bandaríkjamaðurinn, en
sagt er að hann hafi verið ráðgjafi
um hermál og stúlkan hafi verið '
23ja ára gömul og stundað mála-
nám við háskólann í Teheran.
Bróðir stúlkunnar gaf sig fram við
lögregluna eftir að hann hafði
banað systur sinni.
Það var óljóst hvort hið um-
rædda mál gerðist fyrir eða eftir
að bandaríska sendiráðið var tekið
hinn 4. nóv. en vitað að stúlkan var
meðal gæzlumanna gíslanna.
Þá kom fram hjá Auði að
dráttarskip væru á leið inn til
Stafangurs með fótinn sem gaf sig
á pallinum, og væru þau væntanleg
til hafnar seinna í dag. Þá ætti
jafnvel að skýrast hverjar væru
orsakir þessa mikla harmleiks, en
tvær skýringar hafa aðallega verið
á lofti eins og kunnugt er, þ.e. að
málmþreyta hafi valdið eða þá að
jafnvel slæmt veður með miklum
straumum.
í morgun var loks hægt að segja
með vissu um fjölda týndra, lát-
inna og þeirra sem hefur verið
bjargað eftir slysið. Tilkynntu
björgunaraðilar að 213 hefðu verið
á pallinum þegar honum hvolfdi, 89
þeirra heföi verið bjargað, 85 væri
enn saknað, en lík 39 hefðu fundist.
Aðilar björgunarinnar voru um
hádegisbilið úrkula vonar um að
fleiri fyndust á lífi, þar sem rúmur
sólarhringur var liðinn frá síðustu
mannbjörguninni. Þá bönkuðu kaf-
arar veggi íbúðarpallsins að utan í
nótt og morgun í þeirri von að
bankinu yrði svarað ef enn væri
lífsmark með fólki sem lokað væri
inni í pallinum. Höfðu þeir ekki
erindi sem erfiði.
Talsmaður Phillips Petroleum
Co. sagði í dag að enn væri með öllu
óljóst af hvaða orsökum íbúðar-
pallinum Alexander Kielland
hvolfdi. Embættismenn sögðu að
91 hefði bjargast, þ.e. tveimur fleiri
en fyrri fregnir hermdu. Af þeim
lægju 20 á sjúkrahúsum.
Leiðtogar tveggja brezkra verka-
lýðssamtaka kröfðust þess í dag, í
framhaldi af slysinu í Norðursjón-
um, að hafin yrði rannsókn á
öryggi allra olíuborpalla og íbúð-
arpalla til að ganga úr skugga um
hvort þeir geti staðið af sér fár-
viðri. Hermdu báðir leiðtogarnir að
strangari öryggiskröfur giltu um
norsku pallana en þá brezku.
Blaðið Financial Times skýrði
frá því í dag að íbúðarpallurinn
hefði verið tryggður fyrir 51,25
milljónir Bandaríkjadala. Að
miklu leyti koma norsk trygginga-
félög til með að bera skaðann, en
þó höfðu þau endurtryggt hjá
Lloyds í London fyrir 13 milljón
dollara tjóni, og hjá öðrum trygg-
ingafélögum í London fyrir 19
milljón dollara tjóni.
Einvígi
Spasskys og
Portisch
hefst í dag
Moxieo-borg. 29. marz. AP.
SKÁKEINVÍGI þeirra Boris
Spasskys og Lajos Portisch
um réttinn til að skora á
heimsmeistarann Anatoli
Karpov hefst í Mexico-borg á
morgun. sunnudag. Þetta
verður í annað sinn sem þeir
Spassky og Portisch lciða
saman skákmcnn sína í slíku
einvígi. Hið fyrra var í Genf
1977. og vann þá Spassky með
8,5 vinningum gegn 6.5 v.
Portisch.
Samkvæmt alþjóðlegum
skákstiga er styrkleiki þeirra
mjög áþekkur, Portisch 2.665
Elostig og Spassky 2.615, og
sérfræðingar hallast að því að
Portisch muni sigra Spassky
að þessu sinni.
Spassky hefur hvítt í fyrstu
skákinni.