Morgunblaðið - 30.03.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980
Ingólfur Guðbrandsson stjórnar Pólýfónkórnum á æfingu í fyrrakvöld.
Pólýfónkórinn:
Síðustu æfingarnar
fyrir páskatónleikana
PÁSKATÓNLEIKAR Pólý-
fónkórsins verða haldnir á
föstudaginn langa og laugar-
dag fyrir páska í Háskólabiói
og hefjast þeir kl. 14 báða
dagana. Flutt verður verk
Rossinis, Helgimessa, en það
hefur ekki verið flutt áður
hérlendis.
Æfingar standa nú yfir bæði
í Vörðuskóla, þar sem kórinn
hefur í vetur haft æfingaað-
stöðu, og nú um helgina hefjast
æfingar í Háskólabíói. Flytj-
endur ásamt Pólýfónkórnum
eru einsöngvararnir Janet
Price, sópran, Ruth Magnússon,
alt, Jón Þorsteinsson, tenór,
David Wilson, bassi, píanóleik-
ararnir Agnes Löve og Anna
Málfríður Sigurðardóttir og
Hörður Áskelsson organleikari,
er spilar á harmóníum. Stjórn-
andi er Ingólfur Guðbrandsson.
Miðasala er hafin, en hún fer
fram hjá Ferðaskrifstofunni
Útsýn, Hljóðfærahúsi Reykja-
víkur og Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
Maður og tré:
Er áhugi á mann-
eskjulegu umhverfi
á undanhaldi?
— sagði Jón Óttar Ragnarsson við setn-
ingu borgarafundar Lífs og lands
LÍF OG LAND standa um helgina fyrir borgarafundi að Kjarvalsstöðum
um efnið maður og tré. Er þar fjallað um hin ýmsu atriði skógræktar og
var i gær fjallað um ytri aðstæður og skipulag skógræktar, en í dag fyrir
hádegi er fjallað um framkvæmd og síðdegis verða pallborðsumræður.
Jón Óttar Ragnarsson setti borg-
arafundinn í gærmorgun og sagði
m.a. að erfitt væri að verjast þeirri
hugsun þegar skoðuð væru mann-
virki er risið hefðu á undanförnum
árum, að áhugi íslendinga á að
skapa fallegt og manneskjulegt
umhverfi væri á undanhaldi. Sagði
hann að á ári trésins mætti ekki
gleymast að tré þurfi ekki að vera
að skógi. Eitt og eitt tré við götu,
gangstíg eða þjóðveg, fáein tré í
garði, við íbúðarhús eða stofnun,
einn lundur eða trjábelti væri oft
allt, sem þyrfti til að glæða um-
hverfið lífi, en vandinn væri sá að
fáir hefðu tíma til að njóta lífsins.
Kvaðst hann vonast til að þingið
gæti átt þátt í að kollvarpa þeirri
úreltu hugmynd að þéttbýli á
Islandi eigi að vera gróðursnautt.
Þá tók til máls Hákon Bjarnason
fyrrum skógræktarstjóri og fjallaði
um ágrip af sögu gróðurs og
trjáræktar. Kvað hann þá er rann-
sakað hafa gróðursögu landsins og
jarðvegseyðingu síðustu alda vera
sammála í öllum atriðum nema því
hver hafi verið víðátta skóglendis
við upphaf landnáms. Erfitt væri
þó að segja með vissu hvernig
ástandið hafi verið vegna skorts á
heimildum og rannsóknum, en ljóst
væri að skógarhögg hafi verið
gegndarlaust frá landnámi og síðar
hafi jarðvegseyðing ríkt í kjölfar
eyðingar birkiskóga. Þá sagði hann
menn oft hafa bent á gróður- og
landeyðinguna fyrr á tímum og
rætt um viðnám, en viðnám hafi þó
ekki byrjað fyrir alvöru fyrr en á
fyrstu árum þessarar aldar. Sagði
hann að lokum að skógar og einstök
tré væru bæði til ómetanlegra nytja
og yndisauka og góð og skynsamleg
skógrækt væri fólgin í því að hirða
og nýta það er félli af nægtaborði
náttúrunnar á þann hátt að skóg-
arnir endurnýjuðust af sjálfsdáð-
um.
Síðar var rætt um veður óg tré,
jarðveg, innflutning, runnaræktun
og um skipulagsmál m.a. tré í
vistkerfinu, notagildi trjáa, trjá-
gróður sem byggingarefni o.fl. og
endaði ráðstefnan í gær á umræð-
um. í dag kl. 10 verður ráðstefnunni
haldið áfram og fjallað um sölu og
framleiðslu trjáa og runna, gróður-
setningu, hirðingu og kl. 13:30
hefjast pallborðsumræður með hléi
kl. 15 þegar Halldór Haraldsson
leikur á píanó, en ráðstefnan endar
á leik íslenzka blásarakvintettsins.
Allt á sama stað Laugavegi 118 - Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HF
VICONCORD
Amerískur lúxusbíll
meðöllu
6 cyl 258 cid vél. Sjálfskipting,
vökvastýri, aflhemlar, hiti í aftur-
rúöu, hallanleg sætabök, pluss-
áklæöi, viöarklætt mælaborö, vinyl-
toppur, teppalögö geymsla, hliöar-
listar, krómlistar á brettaköntum,
síls og kringum glugga, klukka D/L
hjólkoppar, D78x14 hjólbarðar með
hvítum kanti, gúmmíræmur á
höggvörum og vönduö hljóöein-
angrun.
CONCORDINN er meðal sparneytnustu bíla, um og
undir 12 I. á 100 km.
Nokkrir bílar
til afhendingar strax.
Frá borgarafundi samtakanna Líf og land, en hann heldur áfram á
Kjarvalsstöðum í dag. Ljósm. Emiiia.
Athugasemd frá
Ólafi Ragnari
ÓLAFUR Ragnar Grimsson al-
þingismaður hafði i gær samband
við Morgunblaðið og gerði athuga-
semd við baksíðufrétt Morgun-
blaðsins í gær. Ólafur kvað ekki
um skattahækkun að ræða i heild-
ina. þar sem forsendur væru hinar
sömu miðað við þann skattstiga,
sem lagður hefði verið fram og þá
skattstiga, sem nú er verið að ræða
um og fréttin fjallaði um. Komið
hefði f Ijós að framlagður tekju-
skattstigi hefði reynzt ófullnægj-
andi til þess að ná þessu marki, að
tekjuskattar yrðu þeir sömu í nýju
skattkerfi eins og gamla skatt-
kerfið hefði gefið.
Ólafur sagði, að reiknistofnun
hefðu verið settar þær forsendur,
að skattbyrði tekjuskattsins ætti
ekki að aukast. Þessi skattstigi, sem
lagður hafi verið fram samrýmdist
ekki þessari forsendu og gefur ekki
það sem ætlazt var til. Því kvað
hann þær tillögur, sem hann hafi
kynnt í fjárhags- og viðskiptanefnd
og væru vinnutillögur, allar miðað-
ar við leiðréttan grunn frá reikni-
stofnun en sömu forsendur og áður,
þ.e. að nýja kerfið gæfi hið sama og
gamla kerfið. Hins vegar kvað
Ólafur það rétt vera að miðað við
framlagðan stiga og hina nýju væri
um 5% skattahækkun að ræða, en
þá bæri að geta þess, að þessi
skekkja hafi verið inni í forritinu í
3 til 4 mánuði, þannig að öll
frumvörp og allar hugmyndir að
skattstigum væru með þessari
skekkju.
Ólafur Ragnar líkti þessu við bíl,
sem hefði vitlausan hraðamæli,
sem ávallt sýndi 50 km hraða á
klukkustund, þótt menn ækju á 70
km hraða. Síðan léti bifreiðaeig-
andinn laga hraðamælinn og æki
áfram á 70 km hraða og héldi því
svo fram að hann hefði aukið
hraðann um 20 km. Hér væri um
sams konar dæmi að ræða.
Páskatónleikar
Passíukórsins
Akureyri. 29. marz.
PASSÍUKÓRINN heldur páskatón-
leika í Akureyrarkirkju á pálma-
sunnudag klukkan 21.
Flutt verður tónverkið Via Crucis
eftir Liszt, samið um 14 helgimyndir
um páskagöngu Krists. Jafnframt
verða sýndar litskyggnur af frægum
listaverkum og sr. Bolli Gústavsson
mun lesa ritningarorð.
Einsöngvarar verða Þuríður Bald-
ursdóttir, Haraldur Hauksson og Jón
Hlöðver Askelsson, . orgelleikari
Gígja Kjartansdóttir og stjórnandi
Roar Kvam. Sv.P.