Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 7

Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980 7 Hvað var að í ráðuneytis- bréfinu fræga sem birt var í síðasta þætti? Hyggjum bet- ur að því. í fyrsta lagi stóð að bréfið væri „til allra ráðuneyta er málið varða“, ekki varðar, eins og rétt væri. Ruglað er saman persónulegu sögninni að varða = hlaða vörur og ópersónulegu sögninni varða = skipta, snerta, koma við. Varðar mest til allra orða undirstaðan sé réttlig íundin, eigri kIökk þó eddu regla undan hljóti að víkja stundum, segir í Lilju Eysteins Ásgríms- sonar. Ópersónuleg sögn breytist ekki eftir þeim fallorðum sem kunna að standa með henni í setningu, hún er sjálf alltaf í þriðju persónu ein- tölu. Eftir ráðuneytisbréfinu hlóðu ráðuneytin vörður um málið. Merkingin mun þó hafa átt að vera sú, að málið skipti ráðuneytin einhverju. I annan stað stóð: „Mis- neyti aðstöðu var gert skil.“ Látum það vera, þó orðið misneyti sé ekki á hvers manns vörum. Góðra gjalda vert er að búa til nýyrði. Hitt er verra, þegar þolmynd er mynduð svo, að hún verður geld, kynlaus, eða kannski réttara sagt viðrini, alltaf í hvorugkyni eintölu. Skil er fleirtöluorð í þessu sam; bandi. Skilin eru gerð. 1 bréfinu hefði því átt að standa: „voru gerð skil.“ ' í þriðja lagi var meðferð orðsins dýrleiki ámælisverð. Reyndar hefði farið best á að sleppa því og nota heldur orðið kostnaður. En dýrleiki er hugmyndarheiti. Það fer illa í fleirtölu. Samt sem áður stóð í ráðuneytisboð- skapnum: „en dýrleikar mat- fanga er enn ágreiningsefni." Þrátt fyrir fleirtöluáráttuna hefur höfundur sig ekki upp í að hafa tölu sagnarinnar í samræmi við tölu nafnorðs- ins. Sögnin að vera er ekki ópersónuleg. Enn stóð: „Niðurstaða launþegarannsókna er sú ...“ Hvað eru launþegarann- sóknir? Eru það rannsóknir sem gerðar eru á launþegum, sbr. loðnurannsóknir? Eru það rannsóknir sem eru gerðar af launþegum? Eru það rannsóknir sem eru gerðar í þágu launþega, sbr, vísindarannsóknir, eða eru það rannsóknir sem eru gerðar með launþegum, sbr. smásjárrannsóknir? Og að lokum vegna þessa ráðuneytisbréfs. Hvað þýðir, á mannamáli sagt, misneyti aðstöðu og aðstaða til neyslu matarins? Fréttamál af kosninga- úrslitum hefur bjagast mikið upp á síðkastið. Tekið er nota sögnina að vinna um þing- sæti í staðinn fyrir að fá eða hljóta, hvort sem um ávinn- ing eða tap er að ræða, og tíðartengingin meðan veður uppi í stað gagnstæðisteng- ingarinnar en. Heimatilbúið dæmi: Framfaraflokkurinn vann 118 sæti, meðan Hóf- semdarflokkurinn vann að- eins 18. Eftir sem áður vita menn ékki, hvort flokkarnir hafa tapað eða unnið á, aðeins hvað þeir hafa fengið mörg þingsæti. Rétt væri að segja: Framfaraflokkurinn fékk (hlaut) 118 sæti, en Hófsemdarflokkurinn hlaut (fékk) aðeins 18, eða kom 18 mönnum að. Síðan þurfa menn að fá fréttir af því líka, hvort um tap eða vinning hafi verið að ræða, sé hægt að gera einhverja slíka við- miðun. Ónefndur maður biður mig enn að reyna að kveða niður „erlendis" drauginn sem honum finnst „gífurlega hvimleiður og hættulega al- gengur". Ég þykist vita að hann eigi við það, þegar orðið erlendis er ekki aðeins notað um dvölina á, heldur líka hreyf- inguna til og talað er um að fara erlendis. Menn geta verið erlendis eftir að hafa farið utan, út eða til útlanda. En það er rangt mál að segjast fara erlendis í merkingunni að fara til ann- arra landa. í síðasta þætti féll niður eitt atkvæði úr sálmaversi eftir Hallgrím Pétursson, og raskast þá hrynjandinn til spillis. Þetta er svo við- kvæmt, sem betur fer. Ekki sakar að prenta versið allt, sbr. fyrri hluta þessa þáttar: Yfirmönnunum er því vant, undirsátarnir hnýsa grannt eftir því, sem fyrir augun ber, auðnæmast þó hið vonda er. Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það. innskDtsborÖ Borðplatan er úr harðplasti í tveimur litum hvitu og svörtu, henni má snúa við með einu handtaki. Glæsileg borð. Sendum gegn póstkröfu. LITIR: svart, hvítt, dökk- brúnt og Ijóst beiki Sérverslun meft listraena húsmuni Borgartun 29 Simi 20640 ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl AI GI.YSIR l’.M ALLT LAND ÞEGAR Þl Al GLYSIR I MORGUNBLAÐINl ADRAR NYJAR Styx - Cornerstone Kenny Rogers — Kenni Linda Ronstadt — Mad Love McGuinn Clark og Hilimann — City Anne Murrey — I will always love you Anne Murrey — Country Collection Last Dance El Disco de Oro Rush — Permanet Waves Bobe Seeger — Against the wind svo eitthvað sé nefnt. Sveiflan er einnig á fullu Peterson, Henning og Pass, Miles Davis, Charles Mingus, Chuck Manioni að ógleymd- um Arna Egils og fleirum og fleirum. Fyrir hina þjóðlegu Sannar Dægurvísur með Brimkjó, Spilverk þjóöanna, Glámur og Skrámur, Álfar og yfir höfuð allar íslensku plöturnar og síðast en ekki síst. Ampex kasettur sem vio norum umboð fyrir hér á landi. Strandgötu Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.