Morgunblaðið - 30.03.1980, Side 17

Morgunblaðið - 30.03.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980 17 Birgir ísl. Gunnarsson: Benzínið Benzínið hækkar nú í 423 krónur. Af því tekur ríkið til sín 232.65. — Þessi hækkun ein mun færa ríkissjóði 3.5 milljarða í auknar tekjur. S.l. þriðjudag kynnti ríkis- stjórnin reglur sínar um verð- hækkanir næstu mánuði og af því tilefni kom viðskiptaráð- herra í fjölmiðla til að skýra út þessar nýju reglur. Þegar frétta- maður sjónvarps hafði fengið skýringar ráðherrans spurði fréttamaðurinn: „En samt ætlið þið að fara að hækka benzínið mun meira." Þá svaraði ráðherr- ann: „Ja, það er ekki gaman að þessum erlendu verðhækkun- um.“ Þar með var málið afgreitt af hans hálfu. Stærsti hluti bensínverðs er skattar ríkisins Nú er þetta ekki eins einfalt og ráðherrann vill vera láta. Víst er það að verð á benzíni og olíum hefur hækkað erlendis og ekkert við því að segja að slíkar hækk- anir komi fram á verði hérlend- is. Hitt vildi ráðherrann greini- lega ekki minnast á, að stærsti hluti benzínverðsins er innlendir skattar og tollar. Ríkið hefur nefnilega leikið þann leik að notfæra sér olíu- kreppuna og hækkandi olíu- og benzínverð til að auka tekjur ríkissjóðs. Vinstri stjórnin sál- uga fékkst aldrei til þess að breyta reglum um álagningu tolla og söluskatts á benzíni. Við hverja benzínhækkun freistaðist hún til að hrifsa til sín í ríkissjóð eins mikið fé og frekast var mögulegt. Svo er að sjá sem núverandi ríkisstjórn hyggist gera það sama. Vegagjald, tollar og söluskattur Eftir að benzín hækkaði síðast, þ.e. í 370 krónur pr. lítra þann 20. desember sl. sundurlið- ast verðið í stórum dráttum eins og hér segir: Líf-verð 34.53% Opinber gjöld 55.58% Álagning/dreifing 5.74% Verðjöfnunargjald 0.96% Sölulaun 3.19% Þessi upptalning sýnir, að stærsti hlutinn í verðmyndun benzíns eru hin opinberu gjöld ríkisins. Hin opinberu gjöld eru aðallega vegagjald, sem rennur til vegagerðar í landinu, tollar og söluskattur. Eykur tekjur ríkisins um 3.5 miiljarða I janúar 1979 kostaði benzínlítrinn 181 krónur og af því tók ríkið til sín 106.52 krónur. Nú er um það rætt að hækka benzínið í 423 krónur og af því ætlar ríkið að taka til sín 232.65 krónur. Þessi eina hækk- un mun færa ríkissjóði í auknar tekjur það sem eftir er ársins 3.5 milljarða króna. Á sl. ári urðu miklar umræður um þá ósvinnu að ríkissjóður gæfi ekkert eftir af sínum benzíntekjum. Var þetta mál mikið rætt innan vinstri stjórn- arinnar. Var helzt um það talað að festa tolla og söluskatt í ákveðinni krónutölu. Allir ráð- herrar virtust vera þeirrar skoð- unar nema fjármálaráðherrann, Tómas Árnason, sem stöðvaði málið. Breyta þarf reglunum Þá gáfu ráðherrar út yfirlýs- ingu um það, að þessar reglur yrðu endurskoðaðar um áramót. Margir sömu ráðherrarnir eiga sæti í núverandi rfkisstjórn. Menn höfðu því vissulega ástæðu til að ætla að breyting yrði á nú, þegar ný hækkun kemst í fram- kvæmd. Svo er ekki. Fjármálaráðherr- ann, Ragnar Arnalds, lýsti því yfir á Alþingi í vikunni að ekki stæði til að breyta þessum regl- um að neinu leyti. Auðvitað er það algjör óhæfa að ríkissjóður skuli haga sér á þann hátt að notfæra sér benzínhækkanir erl- endis til að auk tekjur ríkissjóðs. Sú krafa verður nú æ háværari meðal almennings að þessu verði að breyta. Ríkisstjórnin verður að koma til móts við fólkið í þessu máli. fjármálaráðherra að ári og breytt- ist úr „fagráðherra" með henti- stefnupólitík í „fjármálaráðherra með ábyrgð". Og það þarf raunar ekki að fara svo langt aftur í tímann. Mönnum er í fersku minni sjónvarpsþáttur, þar sem Ragnar var þráspurður af Ellert B. Schram ritstjóra einmitt um þetta atriði, vegamálin, og þar lýsti Ragnar Arnalds, nýorðinn fjár- málaráðherra því yfir, að vega- áætlun yrði endurskoðuð „til hækkunar". Nú er komið í ljós, að með þessum orðum var fjármála- ráðherrann að villa um fyrir almenningi. Hann var að gefa í skyn, að framkvæmdamátturinn yrði aukinn með því að skýla sér á bak við orðin „til hækkunar", en átti einungis við krónutöluna, — að þeim tölum yrði að einhverju leyti breytt til hækkunar en engan veginn sem svaraði verðbólgunni. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins reyndu við 2. umræðu fjárlaga að fá einhverju þokað í þessum efn- um, en „handjárnin" héldu. Þó fannst og sást á ýmsum þing- mönnum að þeim var þvert um geð, en létu þetta yfir sig ganga. Þær verðbólguforsendur, sem vegaáætlun var byggð á, eru hálfbroslegar í dag með hliðsjón af þróuninni. Það var sem sagt gengið út frá því, að kostnaður við veglagningu hækkaði ekki „nema“ 35% milli áranna 1978 og 1979 og 25% milli 1979 og 1980. Rauntöl- urnar urðu 45% og a.m.k. 50%. Á þessum tveim árum hefur kostn- aður við veglagningu með öðrum orðum hækkað um a.m.k. 118% í staðinn fyrir 69%. Með óbreyttri krónutölu hefði verið stefnt að neyðarástandi í vegaframkvæmd- um og viðhaldi. Það var því óhjákvæmilegt að gera því skóna að einhver hækkun fengist fram við afgreiðslu vegaáætlunar síðar á þessu þingi og í því skjóli standa stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar á móti allri leiðréttingu við gerð fjárlaga nú. — Málið verður af- greitt síðar á þinginu, segja þeir. Þegar vegaáætlun hefur verið lögð fram. Kannski er hægt að skjóta sér á bak við þvílíkt, þegar fjárlög eru afgreidd fyrir jól. En nú er komið fram undir páska. Og Ólafslög, — sem 6 ráðherrar af 10 beittu sér fyrir að Alþingi samþykkti fyrir ári, — kveða skýrt á um það, að lánsfjáráætlun skuli lögð fram með fjárlögum, svo að heildar- myndin í þessum efnum ljúkist upp fyrir mönnum. Ekki er að sjá, að ríkisstjórnin beri virðingu fyrir þessari lagasetningu. Og maður- inn á götunni segir: Við hverju er að búast af mönnum, sem ekki halda þær leikreglur, sem þeir hafa sett sjálfir og ætlast til að aðrir haldi? Allt á eina bókina lært Minni framlög til vegamála en ákveðið hafði verið í vegaáætlun komu engum á óvart. Hugsunar- gangur ríkisstjórnarinnar er þessi að horfa á verklegar framkvæmd- ir sem einhvern „afgangslið" fjár- laga, sem einvörðungu ráðist af því hvað yrði eftir, þegar búið yrði að fylla upp í ginnungagap eyðsl- unnar. Því að þar er ekkert lát á og ekkert hóf á. Lýsandi fyrir þennan hugsunarhátt eru þær mótbárur, að sjálfstæðismenn hefðu sýnt „ábyrgðarleysi" og „eyðslusemi" með tillögum sínum um, að vegaáætlunin yrði verð- bætt að hálfu. Fram.á meira var nú ekki farið. Þetta voru litlir 3,5 milljarðar af þessum milljarða hundruðum, sem lagðir eru á þjóðina. Þetta var innan við 10% af þeirri auknu skattheimtu, sem við verðum að þola eftir að Geir Hallgrímsson vék úr stól forsætis- ráðherra. En meðal annarra orða: Hver sýnir „ábyrgð" við afgreiðslu fjár- laga? Ríkisstjórnin hafði gefið sína línu um það, hvernig öllum sköttunum yrði eytt. Ef þingmað- ur var annarrar skoðunar í þeim efnum, sýndi hann þá ábyrgðar- leysi af því að hann vildi verja peningunum öðru vísi? Nei, — og allra sízt getur það átt við núna undir ríkisstjórn sem mynduð var með þeirri formúlu, að sérhver þingmaður skyldi bundinn við „sannfæringu sína“ og annað ekki. Þannig átti t.d. sérhver þingmað- ur að gera það upp við sig „prívat og persónulega" hvort hann vildi heldur aukna skriffinnsku í stjórnarráðinu eða betri vegi. Um þetta stóð valið í stórum dráttum, eins og Lárus Jónsson sýndi fram á: Við hrepptum eyðslusemi með hærri sköttum og minni fram- kvæmdum, en höfnuðum aðhaldi, meiri framkvæmdum og lægri sköttum! Hvað er framundan? Það er ástæða til þess að horfa kvíðinn fram á veginn. Vorið 1978 verður lengi munað. Við það bundu margir vonir, sem gengu í fyrsta skipti að kjörborðinu og treystu ekki stóru flokkunum lengur, Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki. Síðan hefur aftur verið kosið. A-flokkarnir höfðu brugðizt og Sjálfstæðisflokkurinn hafði sundraða forystu. Af þeim sökum vann Framsóknarflokkur- inn kosningasigur og nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa síðan lokið upp dyrum stjórnarráðsins fyrir einum sjö ráðherrum úr röðum Framsóknar- flokks og Alþýðubandalags. Frammistaða ríkisstjórnarinnar hefur ekki verið góð. Menn binda ekki vonir við hana lengur. Hver veit nema Eyjólfur hress- ist! var einu sinni sagt. Við skulum með öðrum orðum ekki gefa allt upp á bátinn. Af því drögum við þá ályktun, að rétt sé að gera kröfur til ríkisstjórnar. Þeir, sem í henni sitja, eiga ekki þá afsökun, að öðrum hafi gengið illa áður. Þeir eru búnir að taka á sig mikla ábyrgð og hafa drjúg- góðar tekjur til þess að þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur út af framfærslunni. Þeir eiga með öðr- um orðum að láta hendur standa fram úr ermum og verða síðan dæmdir af verkum sínum eða verkleysi. Eftir allt, sem á undan er gengið, er þetta kannski kjarni málsins, að menn hugi að getu ríkisstjórnarinnar eða getuleysi og hagi sér samkvæmt því. Nú er mál, að efnisleg afstaða sé tekin af hverjum og einum. Línurnar hafa skýrzt við afgreiðslu fjárlaga og ríkisstjórnin sýnt eðli sitt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.