Morgunblaðið - 30.03.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980
19
á austurlandi. Þar gekk á ýmsu, en
meðal keppenda mátti sjá margan
manninn. Þar á meðal Tómas
viðskiptaráðherra, Brynjólf ráðu-
neytisstjóra, Harald heitinn á
Einarsstöðum og Hermóð heitinn
frá Sandi, svo einhverjir séu
nefndir.
Vegna áhrifa frá Jónasi Geir
varð iðkun skíðaíþróttarinnar
mjög vinsæl hér fljótlega eftir
komu hans hingað til Húsavíkur.
Farnar voru skíðaferðir, sem
menn fjölmenntu í og um eina
slíka segir Jónas Geir:
„Margir eldri Völsungar eiga
góðar minningar frá lengri og
skemmri skíðaferðum. Eitt sinn
fórum við 12 félagar austur í
Kelduhverfi. Þetta voru flest pilt-
ar úr unglingaskólanum. Sumir
áttu fíændfólk austur þar, eins og
t.d. Guðmundur ráðuneytisstjóri
og Ingvar bóksali og jafnvel fleiri.
Ég fékk mér til fulltingis lipran
skíðamann, Guðmund Aðalsteins-
son. Farin var sem beinust leið
norðan við Búrfell og komið niður
hina frægu Gerðibrekku. Allur
hópurinn gisti í Lóni og naut þar
einstakrar gestrisni. Daginn eftir
var haldið heim og komið við á
Fjöllum. Síðan var haldið áfram,
klifin hæstu fjöll og nú komið
niður sunnan við Búrfell. Veður
var fallegt, snjór yfir öllu og
þriggja stjörnu færi. Þá gengum
við einu sinni, allstór hópur, upp
að Þeistareykjum og gistum þar í
gangnakofanum. Þaðan var haldið
heim, vestur yfir Lambafjöll og
niður að Hveravöllum. Eftir gott
bað þar í sundlauginni var Venni
Bjarna kvaddur. Hann hélt fram
að Grenjaðarstað en við hinir
héldum heim.“
Fjöldinn allur af Húsvíkingum
á minningar úr ferðalögum með
Jónasi Geir, á skíðum, við hand-
boltakeppnir og aðrar keppnir í
íþróttum. Kvennaliðið hans, sem
áður er getið, var mjög sigursælt
þegar það var uppá sitt besta, og
varð m.a. norðurlandsmeistarar.
Árið 1936 fór Jónas Geir á
Ólympíuleikana í Berlín í boði
Þjóðverja, ásamt 30 öðrum kenn-
urum og íþróttafrömuðum. Þetta
varð honum mikil og góð reynsla,
sem við Húsvíkingar nutum góðs
af lengi á eftir. Þegar frá leið tók
hann að sér meiri og meiri
kennslu við Barnaskólann. Hann
var á tímabili samkennari hins
fræga kennaraliðs hér við skól-
ann, þeirra Benedikts Björnsson-
ar, skólastjóra, Egils Þorláksson-
ar, kennara og Jóhannesar Guð-
mundssonar, kennara. Árið 1942
tók hann kennarapróf við
Kennaraskólann í Reykjavík.
Hann er nú hættur kennslu, en
seinustu árin sem kennari, starf-
aði hann við Gagnfræðaskóla
Húsavíkur.
Jónas Geir hefur í gegnum árin
verið ágætur liðsmaður í félags-
málum hér á Húsavík. Hann var
formaður í.f. Völsungs 1938—41. í
Rotary klúbbi Húsavíkur hefur
hann starfað lengi og gegnt þar
trúnaðarstörfum, m.a. verið for-
seti hans. Hann er nú formaður
deildar Norræna félagsins á
Húsavík, góður liðsmaður í Leik-
félagi Húsavíkur og skógrækt hef-
ur hann látið til sín taka, og er
garðurinn þeirra hjóna að Álfhóli
6 einn sá fallegasti og ræktar-
legasti á Húsavík. Jónas Geir
kvæntist árið 1943, Friðnýju
Steingrímsdóttur frá Hóli á Mel-
rakkasléttu. Þau eiga tvær mynd-
arlegar dætur, kjörson og Jónas
Geir á son sem hann eignaðist
áður en hann giftist.
I.S.I. hefur heiðrað hann með
gullmerki sínu, fyrir störf hans að
íþróttamálum á Húsavík.
Þótt afmælisbarnið sé nú 70 ára
þessa dagana sér aldurinn lítt á
honum. Hann er einn okkar
sprækasti golfspilari og lætur sig
aldrei vanta á völlinn þegar veður
leyfir. Á vetrardögum, þegar snjór
er yfir öllu, má alveg eins búast
við að rekast á hann norðan og
austan við Húsavíkurfjall á
gönguskíðunum sínum. I allri um-
gengni sinni við menn og málleys-
ingja er Jónas Geir einstakt prúð-
menni, sem mikið má læra af enn
í dag.
Ég leyfi mér að senda honum
með þessum línum kveðju okkar,
sem stunduðum og stundum enn,
íþróttir undir hans handleiðslu.
Og persónulega vona ég að sjá
þann dag sem allra fyrst, er ég fer
að hafa í fullu tré við hann á
golfvellinum.
Ásmundur Bjarnason.
Fimmtugir:
Sigurjón og Sólmund-
ur Jóhannessynir
Hvert augnablik sem við lifum
á, eru í raun og veru tímamót, en
þau eru misjafnlega skýr og mis-
jafnlega mikilsverð. Sum — og oft
þau mikilverðustu lærum við ekki
að þekkja fyrr en eftir á.
Ég vil minnast, og minna aðra í
minni stóru fjölskyldu á að minn-
ast, tímamótanna, tvíburabræð-
urnir Sigurjón og Sólmundur Jó-
hannessynir verða fimmtugir á
morgun 31. marz.
Mér eru enn í minni hinir gömlu
góðu dagar, er Jóhannes föðurfað-
ir minn kom í heimsókn á heimili
foreldra minna á Laugaveg 79, og
með yngstu drengina sína með sér.
En síðast en ekki sízt eru mér
minnisstæð hin kærleiksríku
áhrif, er hann hafði á mig. Áður
hef ég hér í Mbl. minnst föðurföð-
ur míns á aldarafmæli hans, og
Lögreglan auglýsir eft-
ir vitnum að ákeyrslum
SLYSARANNSÓKNADEILD lögreglunnar í
Reykjavik hefur beðið Morgunblaðið að
auglýsa eftir vitnum að eftirtöldum ákeyrsl-
um í borginni. Þeir, sem veitt geta upplýs-
ingar um þessar ákeyrslur, eru beðnir að
hafa samband við lögregluna í síma 10200:
Laugardaginn 15.3. sl. var ekið á bifreið-
ina R-63797. sem er Renault fólksbifreið.
rauð að lit. þar sem hún var á Otrateig
skammt norðan Sundlaugavegs. Átti sér
stað frá kl. 22.30 þann 14.3. og fram til 13.30
þann 15. marz. Skemmd á bifreiðinni er á
vinstra framaurbretti og vinstri hurð.
Þriðjudaginn 18. marz sl. var ekið á
bifreiðina R-3158, sem er Mazda fólksbifreið
svört að lit. að Skipholti 17. Átti áer stað um
kl. 14.25. Skemmd á bifr. er á hægra
afturhöggvarahorni. Tjónvaldur er orange-
gul Bronco jeppabifr. og byrjar skrán-
ingarnúmerið á 47....
.Þriðjudaginn 18.3. s.l. var ekið á bifreið-
ina A-7351, sem er Mazda fólksbifreið
Ijósgræn að lit. Var bifreiðin í Einholti við
Ofnasmiðjuna. Gerðist frá kl. 08.30 til 1T.Ó0.
Tjónvaldur er blá-græn sanseruð bifreið.
Þriðjudaginn 18.3. var tilkynnt að ekið
hefði verið á bifreiðina G-1602, sem er
Vauxhali Viva, blá að lit. Átti sér stað
föstudaginn 14. marz. við Kjötbúðina Borg á
Laugavegi. Tjónvaldur er hvít Fíatbifreið.
Þetta átti sér stað um kl. 14.30. Skemmd á
G-1602, er á hægri hurð.
Þriðjudaginn 18.3. var ekið á bifreiðina
G-11688, sem er Austin Mini rauð að lit, þar
skal það ekki endurtekið, en hann
hafði óblandað drengskapareðli,
var talinn sérstaklega göfuglynd-
ur mannkostamaður.
Ungir misstu þeir Sigurjón og
Sólmundur föður sinn, en móðir
þeirra, Kristín Jónsdóttir, átti
viljann, vonina, iðjusemina. Hún
var framúrskarandi móðir sona
sinna. Kristín andaðist á liðnu ári
hnigin mjög á efri aldur.
Þeir bræður Sigurjón og Sól-
mundur eru atorkumenn, vandað-
ir og sérstaklega vel kynntir af
öllum er þeim kynnast. Þeir eiga
báðir frábærar eiginkonur og fal-
leg heimili.
Ég óska þeim bræðrum allra
heilla á merkum tímamótum.
Helgi Vigfússon.
sem bifreiðin var við Mcnntaskólann í Rvík.
Átti sér stað kl. 13.40 til 17.30. Vinstra
afturaurbretti er skemmt á bifr.
Miðvikudaginn 19.3. s.l. var ekið á bifreið-
ina R-3408. sem er Galant fólksbifreið blá að
lit. þar sem bifreiðin var við Verslunarbank-
ann í Bankastræti, frá kl. 10.35 til 10.50. í
skemmdinni sem er á vinstra afturaurbretti
er rauð málning.
Rowenta
hárliöunarjárn
með og án gufu.
Auðveld í notkun.
Tilvalin fermingargjöf.
Fæst í næstu raftækja
verzlun.
Al'tíLÝSINGASÍMÍNN ER:
't'
Fuglakjöt
Páska unghænur
Páskakjúklingar
Kjúklingalari
Kjúklingabringur
Kr. 1.290.- kg.
Kr. 2.250.- kg.
Kr. 2.450.- kg.
Kr. 2.450.- kg.
Folaldakjöt
páska-
matinn
Saltaó folaldakjöt
Reykt folaldakjöt
Folalda hakk
Folalda anitchel
Folalda gullach
1.150.- kr. kg.
1.550.- kr. kg.
1.400.- kr. kg.
3.470.- kr. kg.
3.180.- kr. kg.
Lamba góögæti
Lamba anitchaf
Lamba gullasch
Lamba karbonaöi
Lamba innanlærvöövi
4.875.- kr. kg.
4.800.- kr. kg.
4.970,- kr. kg.
4.850.- kr. kg.
Svínakjöt
Hangikjöt á gamla verðinu | Nautakjöt
Skráö verö Okkar tilboö
Skráö varö Okkar tilboö
Svínahamborgarhryggir 6523 4690
Svínahryggir nýr 1/1 og 1/2 5330 4390
Svínakótelettur 5390 4950
Svínalæri 1/1 og 1/2 atk. 3070 2760
Svínabógar 3072 2762
Svína útbeinaöir nýir kambar 4462 3600
Svínahamborgarar reyktir útb. hnakki 5462 4250
Svína hakk 4300 2960
Hangikjötslæri
Hangikjötaframpartar
Hangikjötsskrokkar
Útb. hangikjötslæri
Útb. hangikjötsframpartar
Lamba hamborgarhryggur
3186 2970 Nautaenitchell 8754
2104 1960 Nautagullasch 6733
2520 2300 Nauta rost-beef 7455
5589 3450 Nauta-bone 4626
4170 3450 Nauta innanlæri 8700
3690 2950 Nautahakk 4309
Nautahamborgari 270
Nauta bógsteikur 2796
Neuta grill steikur 2796
Skráð verö Póskatilboö
6370
5330
5950
3717
6400
2*80
235
2390
2390
aegg frá Nóa
Stærð No. 1.
Stærð No. 2.
Stærð No. 3.
Stærö No. 4.
Stærö No. 5.
Stærö No. 6.
Almennt verö
Kr. 499.-
Kr. 748.-
Kr. 1.499.-
Kr. 2.699.-
Kr. 3.500.-
Kr. 6.399.-
Kr. 454.
Kr. 680.
Kr. 1.362.
Kr. 2.434.-
Kr. 3.182.
Kr. 5.817.-
CS=D^TT0M]O{E)®TI®[l)0R£]
Laugalæk 2, simi 3 50 20