Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980 HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. Vökvamótorar = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260 LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. F:T«N Lokuð vökvakerfi = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. AÓstoÓum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. ITUROLU Tannhjóladælur = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRRANTANIR-ÞUÓNUSTA FERMINGARDAGURINN HÁTÍÐISDAGUR ÆSKUNNAR ★ Fátt gleður meira ungu kynslóðina en góð tæki frá BLACK & DECKER. ★ Þrjár stærðir FÖNDURSETTA og fjölbreytt úrval fylgihluta, uppfylla óskir flestra. ★ ( 20-30 ár hafa íslensk ungmenni notið ánægjunnar af að fá Black & Decker verkfæri á FERMINGARDAGINN ÚTSÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND ★ Lítið inn og skoðið úrvalið. B/ackEL Decker HEIMSINS STÆRSTI FRAMLEIÐANDI RAFMAGNSHANDVERKFÆRA G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON HF. ÁRMÚLA 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 85533 Furulús. Skaðvaldar á furu og greni Sigurgeir ólafsson, plöntusjúkdómafræðingur hjá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins hefur skrifað fyrir þáttinn grein þá sem hér fer á eftir og ekki er að efa að hún komi lesendum að góðu gagni. Hér verður sagt stuttlega frá 3 meindýrum, sem valdið geta skaða á furu og greni; furulús, sitkalús og barrkönguling. Furulús (Pineus pini) Hennar varð fyrst vart á Hallormsstað upp úr 1940 og varð síðan það mikið vandamál á skógarfuru, að uppeldi og inn- flutningi fræs af skógarfuru var hætt upp úr 1955. Hún fer einnig á bergfuru, fjallafuru og stafa- furu, en veldur þar ekki jafn miklum skaða og á skógarfuru. Lúsin hefst að á stofni, greinum og nálum og sýgur til sín nær- ingu. Hún gefur frá sér hvítt vaxkennt efni, sem hylur hana svo mest líkist hvítum vatt- hnoðrum (sjá mynd). Geta stofn- ar orðið alsettir slíkum hnoðr- um. Varnir: Erfitt getur reynst að drepa hana, vegna þess hversu vel hún er varin. Ef menn úða sjálfir, má benda á efnin: lindan (Lindasect), dimethoat (Rogor) og malathion. Sitkalús (Lioso- maphis abietina) Ekki liggur ljóst fyrir, hvaða lúsategundir finnast hér á greni, en það er fyrst og fremst á sitkagreni, að þær valda skaða. Auk sitkalúsar hef ég fundið stóra, brúnleita lús á sitkagreni á Suðurnesjum, Cinara piceae. Sitkalúsin fór að valda skaða hér um 1960 og hefur síðan verið kennd við dauða margra trjáa. Eg tel að skaðsemi hennar geti að einhverju leyti verið ofmetin og henni kennt um skaða, sem fyrst og fremst á sér veðurfars- legar orsakir, en hugsanlegt er, að dauðinn stafi af samverkun beggja þátta. Sitkalúsin er 1—2 mm löng, græn og með 2 dökkar línur á sitt hvorri hlið. Hún sýgur sérstaklega á eldri nálum og einkum á greinum, sem eru í skugga. Mjög erfitt er að koma auga á þær og gott getur verið að hrista greinar yfir hvítu blaði og athuga, hvort þær falla á það. Fullorðin kvendýr lifa af vetur- inn og því er það einkum eftir milda vetur og hlý vor, að hún veldur mestu tjóni. Sog hennar veldur visnunareinkennum á nálunum og nálarfalli hjá sitka- greni, en rauðgreni virðist þola hana betur. Varnir: Forðist að planta of þétt. Úðið snemma vors með dimethoat (Rogor), lindan (Lindasect) eða mala- thion. Barrköngulingar (Oligonychus ununguis) Þetta er 0,2—0,3 mm langur áttfætlumaur, sem einkum veld- ur skaða í þurrum, hlýjum sumr- um. Getur fjöldinn orðið mikill og spinnur hann þá vef og fá greinar og jafnvel allt tréð gulbrúnan og óhreinan blæ. Get- ur ásótt ýmsar grenitegundir (Picea). Varnir: Úðun með vatni reglulega, en sérstaklega eggin þola illa bleytu. Úðun með sér- hæfðu mauraeitri dicofol (Keth- ane), Pentac eða tetradifon (Ted- ion) og malathion. Ef garðyrkjumenn úða nota þeir að öllum líkindum para- thion, sem ætti að slá á bæði lýsnar og maurinn. Eitri skal úða á hlýjum, skýjuðum og þurrum degi. Efnin virka yfir- leitt betur við hátt hitastig og úðun í sólskini getur leitt til sviðnunar. Rétt er að endurtaka úðun 2—3 vikum seinna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.