Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 24

Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980 Grafík í Norr- æna húsinu Þaö verður vart annaö sagt en aö allt Norræna húsið sé undirlagt norrænu framtaki á sviði grafík- listar. í kjallarasölum er viðamikil sýning fimmtán listamanna er nefna sig grafík-hóp listamannahússins (Konstnárshusets Grafikgrupp), sem hefur aðsetur í Stokkhólmi og mun hluti af stærri heild listamiðstöðvar borgarinnar. Það er hárrétt framtak að hópur listamanna vinni á sameig- inlegu verkstæði því að það gefur viðkomandi tækifæri til að læra hvert af öðru og skapa andrúmsloft, sem aldrei getur dafnað þar sem hver vinnur í sínu horni. Menn verða þess einnig fljótlega varir í myndum listamannanna, að hér eru engir viðvaningar á ferð tæknilega séð, — handverkið er háþróað og á breiðu sviði. Hér getur að líta steinprent, dúkristur, tréristur, tréstungur, æt- ingar, suðuristur, ætingu/akvatintur, blandaða tækni, klippimyndir m.a. Er hér þannig ekki um neina einstefnu að ræða tæknilega séð og ei heldur í útfærslu mynda því að listamennirnir eru yfirleitt gjörólíkir innbyrðis. Þó einkennir þessa sýningu óvenju mikil litagleði en menn fara þó einnig hér sínar eigin leiðir. Þau skipti er ég skoðaði sýninguna punktaði ég ýmis- legt athyglisvert niður og uppgötva nú er ég rita um sýninguna, að ég hef punktað við hvern einasta sýnanda og yrði það löng og eintóna upptalning í dagblaði en ætti fyllsta rétt á sér í listtímariti. Ég sleppi því allri upp- talningu hér en vil undirstrika að sýningin er af háum gæðaflokki og verð allrar athygli. Hvet ég sem flesta til að skoða sýninguna en henni lýkur nú um helgina. Á efri hæð hússins er mjög sérstæð Listamannahópurinn „Konstnarhusets Grafikgrupp“. sýning finnskrar listakonu er Outi Heiskanen nefnist. Er hér um mjög lærdómsríka sýningu að ræða því að hér kemur það ótvírætt fram hve frumleg listgáfa ber af allri tækni þegar rétt er á haldið. Ekki svo að skilja að listakonan ráði ekki yfir mikilli tækni en tækni hennar er annars eðlis en þeirra er rembast sem rjúpa við staur við að „brillera" á tæknisviðinu og vilja þá verða við- skila við sjálfan lífsneistann. Hinar litlu og innilegu myndir Heiskanen minna stundum á sjálfan snillinginn Marc Chagall en í þeim býr þó ríkur persónulegur tónn, en hins vegar er hér ekki ieiðum að líkjast. Listakonan leitar fanga á líkum sviðum og Chagall, þ.e. í mannlífinu, náttúr- unni, þjóðsögum, hjátrú og dulspeki. Menn breytast að hálfu í dýr eða öfugt en neistinn í myndunum er fyrst og fremst mannlífið allt um kring í nekt sinni, barnslegum ein- faldleika, föiskvaleysi og djúphugs- aðri munúð. Hér er það upprunaleik- inn sem höfuðmáli skiptir og tjáning- in er órafjarri prjáli, táli og yfir- borðslegum glaumi samtímans. Fyrir þessum staðreyndum tekur maður V ALLTIEINU NESCOBEKI ALLT í EINU þarftu ekkí að greíða aUt f eí nti! Þú greíðír | út og afgangínn á 4 mántiðum Combi Mark 2 Combi Mark 3 ALLTÍEINU NESCOtæki: Combi Mark 2. Sjónvarps-, útvarps-, og kassettutæki. kr. 269.500. Combi Mark 3. Sjónvarps-, útvarps-, og kassettutæki. kr. 295.000. Einnig: Go mark 2. Útvarps og kassettutæki kr. 52.500,- Go mark 3. Útvarps og kassettutæki kr. 98.500.- NESCO taekí-Fermí ngargjöf frá allrí fjölskyldunni Fallegur grípur og fYrirferðarlítfll Laugavegí 10 sími 27788 Iðnráð Reykjavíkur: Tryggvi Bene- diktsson kos- inn formaður AÐALFUNDUR Iðnráðs Reykja- víkur var haldinn nýlega á Hótel Esju. Innan Iðnráðs Reykjavíkur eru fulltrúar 36 iðngreina, 2 íyrir hverja iðngrein — annar fulltrúi sveina, hinn fulltrúi meistara. A aðalfundinum flutti Tryggvi Benediktsson skýrslu fram- kvæmdastjórnar síðustu fjögurra ára, og samþykktir voru reikn- ingar sama tímabils. Kjörin var ný framkvæmda- stjórn til næstu fjögurra ára og stija í henni Tryggvi Benediktsson formaður og aðrir í stjórn Lúther Jónsson, Ólafur Jónsson, Sigur- björn Guðjónsson og Sigurður Hallvarðsson. Tvö ný frímerki TVÖ ný frímerki í flokknum „Frægir menn“ verða gefin út 28. april n.k. A frímerkjunum verða myndir af Jóni Sveinssyni og Gunnari Gunnarssyni og eru verðgildin 140 og 250 krónur. Þröstur Magnússon teiknaði merkin. Merkin eru sólprentuð í Sviss.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.