Morgunblaðið - 30.03.1980, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980
25
Bretar finna nj fiski-
mið vestur af írlandi
Konuhöfuð.
andaktlega ofan fyrir listakonunni
Outi Heiskanen.
Bragi Ásgeirsson.
„VIÐ bindum talsverðar vonir
við þessi nýju fiskimið, en þótt
rannsóknir séu enn of stutt
komnar til að segja nákvæmlega
fyrir um aflamagn, þá er ljóst, að
þessi mið geta engan veginn bætt
okkur upp missi íslandsmiða,u
sagði Tim Bolding, blaðafulltrúi
í brezka sjávarútvegsráðuneyt-
inu, er Mbl. spurði hann um ný
fiskimið, sem brezk rannsókna-
skip hafa fundið vestur af
írlandi.
Á vegum brezka sjávarútvegs-
ráðuneytisins hafa tveir Fleet-
woodtogarar; Armana og Navena,
að undanförnu..leitað nýrra fiski-
miða og við makrílleit vestur af
Irlandi „duttu menn ofan á tals-
vert magn af þorski og ýsu,“ sagði
Bolding. Þessi afli kom bæði
sjómönnum og fiskifræðingum á
óvart. Bolding sagði, að brezka
sjávarútvegsráðuneytið hefði þeg-
ar tilkynnt brezkum útgerðar-
mönnum um þessi nýju mið, en
þau væru svo nýfundin, að hann
vissi ekki, hvaða undirtektir málið
fengi hjá útgerðinni. Armana og
Navena eru nú aftur farnir á
miðin vestur af írlandi, en rösk-
lega helmingur aflans í fyrstu
ferðinni voru þorskur og ýsa.
Brezka sjávarútvegsráðuneytið
vonar að mið þessi reynist svo
gjöful, að þau geti slegið eitthvað
á óánægju sjómanna og útgerð-
armanna vegna missis íslands-
miða og vöntunar á heildarfisk-
veiðistefnu Efnahagsbandalags-
landanna. Togarasjómenn höfðu
boðað fund í Aberdeen í gær til að
mótmæla sinnuleysi ríkisstjórnar-
innar í garð fiskveiðanna, en á
föstudag tilkynnti sjávarútvegs-
ráðherrann Peter Walker brezka
þinginu um þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að veita þremur
milljónum punda, jafnvirði um 2,7
milljarða króna, til aðstoðar fisk-
iðnaðinum og þar af skal einn
þriðji renna til hafrannsókna. Sú
upphæð kemur til viðbótar 400.000
punda, jafnvirði 3,6 milljóna
króna, framlagi vegna fiskimiða-
leitar Fleetwoodtogaranna
tveggja.
Unglingar
tefldu við
Sosonko og
Vasjukov
SKÁKMEISTARARNIR Sosonko
og Vasjukov tefldu fjöltefli við
fulltrúa úr tómstundahópum í
skák úr unglingastigsskólum
Reykjavikur og aðra þá er áhuga
höfðu miðvikudaginn 13. marz.
Fóru fjölteflin fram í félags-
miðstöðvunum Bústöðum og
Fellahelli.
í Bústöðum tefldi Sosonko við
38 unglinga. Fóru leikar þannig,
að hann vann 37 skákir, gerði eitt
jafntefli. Sá sem gerði jafntefli
var Jóhannes Ágústsson 13 ára úr
Æfinga- og tilraunaskóla K.H.Í.
í Fellahelli tefldi Vasjukov við
45 skákmenn. Fóru leikar þannig,
að hann vann 40 skákir, gerði 5
jafntefli. Þeri sem gerðu jafntefli
við Vasjukov voru: Hannes Hlíðar
Stefánsson 7 ára úr Fellaskóla,
Sigurður Grétarsson 14 ára úr
Breiðholtsskóla, Axel Þórhallson
59 ára og bræðurnir Jón Víðir
Jakobsson 10 ára og Hlynur
Sveinn Jakobsson 9 ára, báðir úr
Laugarnesskóla.
T-1000 VIOTÆKI (tuner). Ekki með f LB. MB og FM stereo með 7 forvölum.
ofangreindu heildarverði. Sama stærð og LED móttökustyrksmælir. Verð kr.
V-ÍOOO og i sömu litum. 3 bylgjusvið: 244.200.
Heildarverð með T-1000 kr 738.700.
ÚTBORGUN KR. 185.000 eða kr. 51.700 staðgreiðsluafsláttur.
SAMSTÆDA 1 (V-IOOO + PS-2000 '+ 2xMARANTZ 4MK2J
V-1000 EINFALDUR TRAUST-
BYGGDUR MAGNARI. 2x35W (slnus)
útgangsstyrkur við 4 ohm. Hámarksbjög-
un 0.2%. Tónsvið 10-50.000 rið. Tengi-
möguleikar fyrir plötuspilara, 2 segul-
bönd (kassettutæki). höfuðtól og 4 hátal-
ara. Silfurlitur eða málmbrúnn. Verð
kr. 175.000.
Heildarverð kr. 494 500
ÚTBORGUN KR. 124.000
PS-2000 HÁLFSJÁLFVIRKUR
PLÖTUSPILARI með rafeindastýrðri
hraðastillingu. Beinn tónarmur og auð-
stillt þyngdarstilling. Hámarksbjögun
0,08%. Mjög gott tónhöfuð. Silfurl/tur.
Verðkr. 185.000.
4MK2 FYRIRFERDALITLIR HÁ TAL-
ARAR FRA MARANTZ. Hámarksstyrkur
50 W við 50-18.000 rið og 8 ohm Val-
hnota. Verð kr. 67.000 stykkið.
eða kr. 34.600 staðgreiðsluafsláttur.
SGK átelur harð-
lega drátt á
samningaviðræð-
um við BSRB
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi ályktun frá Sam-
bandi grunnskólakennara:
Fundur fulltrúaráðs Sambands
grunnskólakennara haldinn í
Reykjavík sunnudaginn 23. mars
átelur harðlega þann drátt sem
orðið hefur á því af hálfu ríkis-
valdsins að taka upp samninga-
viðræður við samninganefnd
BSRB um kaup og kjör opinberra
starfsmanna.
Fundurinn minnir á, að kjara-
samningar þessara aðila runnu út
1. júlí 1979, en samt hefur samn-
inganefnd ríkisins ennþá ekki
fengið fullnægjandi umboð frá
ríkisvaldinu til að ganga til al-
mennrar viðræðu um kröfugerð
BSRB.
GRUNDIG SAMSTÆOA 2 (R-IOOO + PS-2000 + 2 x MARANTZ 4MK2)
R-1000 NÝTÍSKULEGUR UT-
VARPSMAGNARI. 2x35W (sínus) við
4 ohm. Hámarksbjögun 0,2%. 3 bylgju-
svið: LB, MB og FM stereo. Fast stöðva-
val fyrir 7 stereo móttökur. Tónsvið 10-
80.000 rið. Sjálfvirk tíðnistilling (AFC).
LED móttökustyrksmælir og Linear stillir
(loudness). Silfurlitaður eða málmbrúnn.
Verð kr. 319.500.
Heildarverð kr. 639.000
PS-2000 hAlfsjálfvirkur
PLÖTUSPILARI með rafeindastýrðri
hraðastillingu. Beinn tónarmur og auð-
stillt þyngdarstilling Hámarksbjögun
0,08%. Mjög gott tónhöfuð. Siffurlitur
Verðkr. 185 000.
4MK2 FYRIRFERDAUTLIR HÁTAL-
ARAR FRÁ MARANTZ. Hámarksstyrkur
50W við 50-18.000 rið og 8 ohm. Val-
hnota Verð kr. 67.000 stykkið.
UTBORGUN Kfí. 160.000 eða kr 44.700 staðgreiðsluaffláttur.
GRUNDIG MINI SAMSTÆÐA 3 (MR-100 + MCF-100 + 2xCLARION GS-502E)
MR-100 LÍTILL ÚTVARPSMAGN-
ARI. 2x25W (slnus) við 4 ohm. Hámarks-
bjögun 0,1%. 3 bylgjusvið: LB, MB og FM
stereo. Tengimöguleikar fyrir plötuspil-
ara, 2 segulbönd og 2 hátalara. Verð
kr. 282.100.
MCF-IOO FULLKOMIO KASSETTU-
TÆKI. Sama stærð og útvarpsmagnar-
inn. Tekur 3 tegundir kassetta: normal,
CR02 og FE-CRO. Sjálfvirk upptöku-
stilling. Tíðnisvið 30-16.000 rið (FE-
CRO). Hámarksbjögun 0,15%. Verð
kr. 253.800.
GS-502 LITLIR HÁTALARAR FRÁ
CLARION. Sérstök hljómgæði. Hámarks-
styrkur 25W við 4 ohm og 80-20.000 rið.
Sérstilling fyrir hátíðnishljóm. Auðveld
uppsetning með alhliða festingum.
Verð kr. 63.900 stykkið.
Heildarverð kr. 663.700
UTBOfíGUN Kfí. 166.000 eða kr. 46.500 staðgreiðsluafsláttur.
Fundurinn telur það hart að-
göngu, ef grípa þarf til verkfalls-
aðgerða til þess eins, að viðræður
hefjist. Þess vegna skorar full-
trúaráðsfundurinn á ríkisvaldið
að veita samninganefnd ríkisins
fullt umboð til að ganga þegar til
samningaviðræðna við BSRB um
þá kröfugerð sem það hefur sett
fram.
Grundig setur gæóin á oddinn
LAUGAVEG110 SÍMI 27788