Morgunblaðið - 30.03.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980
31
Tískusýningar á Ilótol Loftleiöum i sumar:
Sérstök
áhersla
lögðá
lopa
í ár
í GÆR hófust að nýju á
Hótel Loftleiðum viku-
legar tískusýningar sem
þekktar hafa orðið á síðari
árum víða um heim. Á
tískusýningum þessum
hefur einkum verið lögð
áhersla á að sýna fatnað
úr íslenskri ull, og einnig
íslenska skartgripi. Þá
hafa sýningarnar verið
nokkuð breytilegar frá ári
til árs, og í ár verður til
dæmis lögð sérstök áhersla
á lopa.
Það var fyrir sjö árum síðan að
hugmyndinni um tískusýningarn-
ar skaut fyrst upp kollinum og þau
Haukur Gunnarsson í Ramma-
gerðinni, Unnur Arngrímsdóttir
hjá Módelsamtökunum og Gerður
Hjörleifsdóttir í íslenskum heim-
ilisiðnaði tóku höndum saman við
Emil Guðmundsson Hótel Loft-
leiðum um að hrinda í fram-
kvæmd. Síðan hafa tísku-
sýningarnar orðið fastur liður og
frá því í endaðan mars og fram á
haust standa þær í Blómasal í
hverju föstudagshádegi.
Sú nýjung verður nú tekin upp,
að auk þess að sýna íslenska
tískuvöru og skartgripi Jens Guð-
jónssonar, verða sýndir íslenskir
þjóðbúningar frá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur
Eins og undanfarin ár ipun frú
Unnur Arngrímsdóttir og hennar
fólk úr Módelsamtökunum sjá um
tískusýningarnar en flugfreyjur
frá Flugleiðum annast kynningu.
Kappkostað verður að hafa ný
atriði á hverri sýningu. Næsta
sýning verður föstudaginn 7. apríi
og síðan á hverjum föstudegi upp
frá því þar til seint í september.
Tískusýningarnar hafa verið
kynntar á ensku, en nú er ákveðið
að þær fari einnig fram á fleiri
tungumálum. Þá munu flugfreyj-
urnar kynna kalda borðið og
sérstaka rétti þess.
Allt frá því Hótel Loftleiðir var
opnað árið 1966 hefir gestum verið
boðið upp á kalt borð sem sam-
anstendur af um 70 réttum í
hádeginu. Meginuppistaða rétta
hefir verið hin sama frá upphafi,
en ávalt bætist eitthvað nýtt við.
Á Hótel Loftleiðum er kalda
borðið á sérstöku víkingaskipi en
annað minna er einnig í salnum.
Nú verður boðið upp á nýjan rétt á
kalda borðinu á hverjum föstudegi
en að auki verða sérréttir á litla
víkingaskipinu, eða Silfurvagn-
inum. Þar munu matsveinar
skammta gestum sérréttina. Ekki
er ofsögnum sagt af vinsældum
hins margréttaða kalda borðs
meðal gesta. Enda þótt frændur
okkar á Norðurlöndum teljist upp-
hafsmenn slíkra borðsiða, hefir
reyndin orðið sú, að hér á landi
hefir kalda borðið fyrst og fremst
orðið sýningarbás íslensks matar
af ýmsu tagi, allt frá skyri og
hákarli til hangikjöts og reykts
lax.
Nú er boðið upp á sérrétti auk kalda borðsins af sérstðkum silfur-
vagni eða silfurborði, en þess má geta að hann kostaði á sinum tima
jafnmikið og nýr Volkswagen!
Frá tiskusýningunni á Hótel Loftleiðum i gær.
Austurstræti 22. Sími frá skiptiboröi 85055.