Morgunblaðið - 30.03.1980, Qupperneq 32
T ÆftkTr a.r
hitakostnaðinn
SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980
PIERPOnT
QUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu úr
fást hjá flestum úr-
smiöum.
Dregst í nokkra
mánuði að jarðstöð-
in komist í gagnið?
SVO KANN að fara að Skyggnir. nýja jarðstöðin við Úlfarsfell í
Mosfellssveit verði ekki tekin í notkun fyrr en nokkrum mánuðum
seinna en fyrst var áætlað.* Er ástæðan sú að einangrun á
afisingarútbúnaði loftnetsins hefur ekki reynzt jafn góð og krafizt er.
Að sögn Gústavs Arnars yfir-
verkfræðings hjá Pósti og síma
eru kolefnisþræðir í loftnetinu,
sem hitaðir eru upp til þess að
bræða ís og snjó, sem sest á
loftnetið. Þessir kolefnisþræðir
eru einangraðir með fiberglasplöt-
um. Þegar hinn erlendi verktaki
gerði mælingar á loftnetinu fyrir
skömmu kom í Ijós að hiuti af
einangruninni stóðst ekki þær
kröfur sem gerðar voru.
Sagði Gústav að nú væri í
.athugun hvað bezt væri að gera.
Mikilvægt væri að fá einangrun-
ina í lag áður en rekstur stöðvar-
ínnar hæfist, svo hún yrði ekki
fyrir rekstrartruflunum. Sagði
hann að tveir menn frá Pósti og
síma hefðu farið til Kanada í
síðustu viku til þess að ræða við
framleiðanda jarðstöðvarinnr og
yrði væntanlega ljóst þegar þeir
kæmu aftur hvort seinkun yrði á
því að stöðin kæmist í gagnið, en
áformað var að taka hana í notkun
í vor.
Jarðstöðin var nýlega skírð og
hlaut hún nafnið Skyggnir. Valdi
Þórhallur Vilmundarson prófessor
nafnið og mun það dregið af
örnefni í grennd við stöðina.
Þorskveiðibann
báta hófst í gær
A HÁDEGI í gær áttu allir bátar
að vera búnir að taka upp net sín
en þá gekk í gildi þorskveiðibann
hjá bátunum, sem standa mun til
hádegis 8. apríl. Landhelgisgæzi-
Klessu-
keyrðu
fjölskyldu-
bílinn
TVEIR UNGIR piltar sluppu
með skrekkinn i fyrrinótt. þeg-
ar þeir óku Cortinu bifreið á
Ijósastaur á mótum Suður-
strandar og Lindarbrautar á
Seltjarnarnesi.
Piltarnir höfðu tekið bil fjöl-
sk.vldu annars þeirra í óleyfi um
nóttina og lagt af stað í ökuferð.
Báðir voru ölvaðir og annar
réttindalaus að auki. Ökuferðin
endaði á ljósastaurnum um fjög-
urleytið. Piltarnir sluppu
ómeiddir en bíllinn er stór-
skemmdur.
an mun fylgjast nákvæmlega með
því að bannið verði haldið og mun
flugvél Gæzlunnar íljúga eftirlits-
flug yfir miðin um helgina.
Togararnir munu halda áfram
þorskveiðum, svo framarlega sem
þeir eru ekki að taka út 27 daga
veiðibannið, sem þeim ber að taka
á tímabilinu frá 1. febrúar til loka
apríl. Einnig er erlendum veiði-
skipum við landið heimilt að
stunda veiðar, en nú eru 10 færeysk
veiðiskip, 3 norsk og 2 belgísk á
veiðurn við landið.
Jarðstöðin Skyggnir við Úlfarsfell.
Ljósm. Kristján Eliasson.
Erfið fæðing fiskverðs:
Ríkisstjórnin frestaði fundi
yfimefndar á siðustu stundu
FUNDI yfirnefndar Verðlagsráðs
sjúvarútvegsins, sem boðaður
hafði verið í gærdag klukkan 14 til
þess að úkvarða fiskverð, var
frestað á síðustu stundu eftir
ríkisstjórnarfund í gærmorgun.
Gert hafði verið ráð fyrir því, að
unnt yrði að afgreiða fiskverð á
þeim fundi og að það hækkaði um
4%. Einhverjar efasemdir munu
hins vegar hafa vaknað með rúð-
herrum og var því fundi yfirnefnd-
arinnar frestað og er hann boðað-
ur i dag, sunnudag. Búizt er við
því, að hækki fiskverð um 4%,
verði að koma til gengislækkun
eða mjög hratt gengissig, sem
nemur 7 til 8%.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi:
Erfið ákvörðun, hvort
nýta beri 12. prósentið
„ENGIN ákvörðun hefur verið
tekin um það, hvort við nýtum
heimildina um hækkun útsvars i
12,1%,“ sagði Björgvin Guð-
mundsson, borgarfulltrúi Al-
þýðuflokksins i samtali við Morg-
unbiaðið i gær. Björgvin kvað
þetta mál ekki komast á ákvörð-
unarstig, fyrr en Ijóst væri, að
Alþingi samþykkti heimildina
sem lög. Það kvað hann geta
orðið á mánudag eða þriðjudag
og myndu því málin skýrast upp
úr helgi. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
borgarfulltrúi kvað hér verða um
mjög erfiða og vandasama
ákvörðun að ræða i borgarstjórn,
þar sem Iítið svigrúm yrði til
hækkunarinnar, en þörf borgar-
sjóðs á auknum tekjum væri
ótvíræð.
A Alþingi hafa þingmenn Al-
þýðuflokksins allir, nema Magnús
Magnússon, greitt atkvæði gegn
frumvarpi til laga um heimild til
hækkunar útsvars upp í 12,1%.
Björgvin Guðmundsson sagði að
flokkurinn á Alþingi væri þó
sammála því að sveitarfélögin
þyrftu auknar tekjur og Jóhanna
Sigurðardóttir hefði flutt tillögu
um aukna hlutdeild sveitarfélaga í
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hér
væri því um að ræða spurningu
um hvaða form yrði haft á öflun
teknanna. í vinstri stjórninni kvað
Björgvin þingflokk Alþýðuflokks-
ins hafa samþykkt að heimila ætti
12. prósentið, ef verðbólga hefði
verið yfir 30% undafárna 12 mán-
uði, enda hefði Magnús H. Magn-
ússon sem félagsmálaráðherra
barizt fyrir því.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir kvaðst
ekki tilbúin að lýsa því yfir, hvort
hún myndi standa að ákvörðun um
að nýta þessi 12%, fyrr en ljóst
yrði, hvort þau hlytu samþykki á
Alþingi. Hins vegar minnti hún á,
að í borgarstjórn hefði hún svarað
því til, er Davíð Oddsson hefði um
þetta spurt og bent á að aðstöðu-
gjöld og fasteignagjöld hefðu
hækkað mjög, að undanfarið hefði
borgarsjóður haft mun minni tekj-
ur en síðasta árið sem Sjálfstæðis-
flokkurinn fór þar með völd. Þá
benti Sjöfn á, að fjármálaráð-
herra, Ragnar Arnalds, hefði lýst
því yfir, að ekki væri svigrúm til
grunnkaupshækkana á þessu ári
og að í fjárlagafrumvarpi kæmi
fram, að ríkið yki skattheimtu
sína. „Er því ljóst," sagði Sjöfn,
„að sveitarfélögunum verður mjög
erfitt um vik að auka álögur sínar,
þó að hinu sé ekki að leyna að
þörfin fyrir þetta 12. prósent hafi
aldrei verið meiri en einmitt nú
vegna langvarandi óðaverðbólgu.
Því tel ég þetta mjög erfiða og
vandasama ákvörðun, sem við
þurfum að taka í borgarstjórninni,
ef Alþingi samþykkir heimildina.
Verður þá að taka ákvörðun um,
hvort nýta beri slíka heimild."
Þær hugmyndir voru innan ríkis-
stjórnarinnar í gærmorgun, að af-
greiða fiskverðið með því að taka
helming þeirra 5%, sem útgerðin
fær nú í bætur vegna olíuverðs-
vandans inn í hlutaskipti, þannig að
olíustyrkurinn yrði ekki nema
2Vz%. Þá myndi fiskvinnslan bæta
þar við l‘/2%, sem þýddi, að fisk-
verð til sjómanna hækkaði um 4%,
en til útgerðarinnar yrði hækkunin
um 0,6%. Þessu munu útgerðar-
menn hafa mótmælt mjög í gær-
morgun, en þeir hafa haldið því
fram, að útgerðin þurfi á ári að
greiða óbætt í hækkaða olíu um 105
til 110 milljónir króna á hvern
meðalskuttogara. Þau 5%, sem
komið hafa á móti, hafa bætt um 35
milljóna króna olíuútgjöld. Heild-
arkostnaðarauki vegna olíuhækk-
unar á meðalskuttogara á síðast-
liðnu ári var þannig um 140 millj-
ónir króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, mun ríkisstjórnin nú vera
að freista þess að ná samkomulagi
við útgerðarmenn um það, að þeir
standi að verðákvörðun með fisk-
vinnslunni, en talið er, að útgerð-
armenn geti sætt sig við minni
hækkun en fulltrúi sjómanna. Þó er
alls kostar óvíst, að samstaða náist
og fiskverð náist ekki fram, nema
með atkvæði oddamanns og fulltrúa
fiskvinnslunnar. Fiskvinnslan hef-
ur krafizt 12% lækkunar á fisk-
verði, en sjómenn hafa krafizt
’ 6,67% hækkunar fiskverðs.