Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
Grenivík:
Tveir alvar-
lega slasaðir
eftir bílveltu
TVEIR piltar slösuðust alvarlega
er bíll þeirra valt við bæinn Ystu-
Vík í Grýtuhakkahreppi við Eyja-
fjörð sl. föstudagskvöld. Þriðji pilt-
urinn í bílnum slasaðist lítilleKa.
Tildrög slyssins voru þau að pilt-
arnir þrír, sem eru frá Grenivík,
voru að koma frá Akureyri, þegar
þeir komu í krappa beygju við
Ystu-Vík og ökumaðurinn missti
stjórn á bílnum og fór hann þrjár
veltur.
Piltarnir voru í fyrstu fluttir á
sjúkrahúsið á Akureyri en síðan var
einn þeirra fluttur með sjúkraflug-
vél til Reykajvíkur. Hann liggur nú á
gjörgæzludeild Borgarspítalans
mjög mikið slasaður.
— Vigdís.
Tvcir bílar «'»ku saman á gatnamótum Ilringhrautar og
NjarAargotu á mánudaKskviild. Annar (ikumaðurinn ók á burt af
slysstaðnum on náðist síðar. Myndin or af hinum hílnum.
I.jósm. Mbl. ÓI.K.MaKn.
Báðir ökumennirnir
grunaðir um ölvun
ÁREKSTUR varð milli
tvoKgja bifroiða á gatnamót-
um IlrinKbrautar og Njarð-
argotu um klukkan 20 á
mánudagskviild.
Ráðir iikumonnirnir oru
INNLENT
Krunaðir um iilvun við akst-
ur on annar þoirra ók burt af
slysstaðnum on hinn sat oftir
moð minniháttar moiðsl.
' Ökumaðurinn, sem ók á
brott af slysstaðnum náðist
inn undir Grensásvegi en veg-
farandi, sem varð vitni að
árekstrinum, fylgdi honum
eftir.
Þegar ökumaðurinn ætlaði
að yfirgefa bíl sinn, yfirbug-
aði vegfarandinn, sem hafði
veitt honum eftirför, hann og
hélt honum þar til lögreKlan
kom á staðinn.
Borgarafundur
um sjónvarpskerfi
í fjölbýlishúsum
„UNDIRBÚNINGSNEFND að
stofnun félags um írjálsan út-
varpsrokstur hefur ákvoðið að
boða til almenns borgarafundar í
framhaldi af rannsókn yfirvalda
á sjónvarpskerfum i fjölbýlishús-
um. Verður fundurinn haldinn
laugardaginn 31. maí n.k. kl. 14 á
Hótel Borg.
I fréttatilkynningu frá undir-
búningsnefndinni segir meðal
annars:
„Undirbúningsnefndin hefur
áhyggjur af því að yfirvöld séu
með þessari rannsókn, og kröfu
um að tæki verði gerð upptæk, að
seilast inn á friðhelgi heimilanna.
Nefndin bendir á að uppsetning
sjónvarpskerfa í fjölbýlishúsum er
aðeins eðlileg viðbrögð fólks sem
býr við einokun á útvarpi og
sjónvarpi.
A borgarafundinum n.k. laugar-
dag verður rætt um þróun þessa
máls, og eru allir áhugamenn um
það hvattir til að koma.“
Framsögumenn á fundinum
verða Markús Örn Antonsson út-
varpsráðsmaður, frá undirbún-
ingsnefnd félags um frjálsan út-
varpsrekstur, og Sigurður G. Ól-
afsson útvarpsvirki, frá húsfélag-
inu Krummahólum 4.
Fundarstjóri verður dr. Jónas
Bjarnason, varaformaður Neyt-
endásamtakanna, og fundarritari
Ragnar Magnússon, frá Félagi
farstöðvaeigenda.
Langferðabíll valt á Vaðlaheiði:
Fjórtán manns í sjúkrahús
með minni háttar meiðsl
Akureyri. 27. maí.
TUTTÚGU og scx manna fjalla-
bill með 20 farþegum i valt í
vestanverðri Vaðlaheiði klukkan
17.30 í ga-r. Fjórtán farþegar
urðu fyrir meiðslum og voru
fluttir í sjúkrahús til athugunar
og aðgerða en þeir reyndust ekki
alvarlcga meiddir. Öllum var leyft
að fara heim að læknisaðgerð
lokinni nema þremur, sem leyft
var að fara heim í kvöld.
Bíllinn var að koma austan úr
Herðubreiðarlindum með hóp fólks
úr Ferðafélagi Akureyrar. Þegar
bíllinn nálgaðist efri Svalbarðseyr-
arvegamótin í Vaðlaheiði fór
hægra framhjólið undan bílnum og
skoppaði um 200 metra leið niður
eftir hlíðinni. Við þetta valt bíllinn,
fyrst á vinstri hlið síðan á þakið og
stöðvaðist loks á hægri hlið og
snerist við og hafnaði að mestu
leyti utan vegarins.
Ökumaður hrökk út úr bílnum,
sennilega gegnum framrúðuna og
Þykkvibær:
Kartöflur
settar niður
mánuði fyrr
en í fyrra
Kartöflubændur í Þykkva-
bæ luku fyrir hvítasunnu-
helgina við að setja niður
kartöflur í garða sína. Að
sögn Yngva Markússonar í
Oddsparti var byrjað að
setja niður 13. maí og luku
þeir síðustu niðursetningu á
föstudag. „Þetta er heldur í
fyrra lagi miðað við meðalár
og mánuði fyrr en í fyrra,
sem var einstakt harðinda-
vor,“ sagði Yngvi.
Yngvi sagði að kartöflu-
bændur í Þykkvabænum
hefðu nokkrar áhyggjur af
norðaustan hvassviðrinu nú
þessa dagana, en enn hefðu
þó ekki orðið skaðar svo vitað
væri.
Garðarnir hefðu verið
vel rakir áður en hvessti og ef
hvassviðrið varði lengur en 2
til 3 daga, gætu þeir þornað
og þá fokið ofan af útsæðinu.
tvær stúlkur lentu að nokkru leyti
út um brotna glugga og festust
undir bílnum. Þeir sem ómeiddir
voru reyndu að lyfta bílnum ofan
af þeim en tókst illa þar til aðrir
bílar komu að. Þá var hægt að
tjakka bílinn upp og losa stúlkurn-
ar.
Sjúkrabíll frá Húsavík, sem var
á heimleið frá Akureyri eftir að
hafa flutt þangað mann úr þessum
sama ferðamannahópi, en sá hafði
veikst í Mývatnssveit, kom að
slysstað rétt eftir að bíllinn valt og
um talstöð hans var gert viðvart og
kallað á Akureyrarradíó. Lög-
reglubíll frá Akureyri var að til-
viljun staddur skammt frá slysstað
og kom hann þangað von bráðar og
auk þess komu þangað tveir
sjúkrabílar frá Akureyri um fimm-
tán mínútum síðar. Þess vegna var
hægt að koma hinum slösuðu undir
læknishendur tiltölulega mjög
skjótt.
Sv.P.
Mótmæla starfsað-
ferðum við Víðsjá
STUÐNINGSMENN Péturs
Thorsteinssonar hafa ritað
fréttastjóra ríkisútvarpsins
bréf þar sem þeir mótmæla
þeim starfsaðferðum, sem
beitt var við gerð og útsend-
ingu þáttarins Víðsjár í gær-
kvöldi, þar sem lagðar voru
spurningar fyrir þrjá af fjór-
um frambjóðendum tii for-
setakjörs. Rætt var við þá
Albert Guðmundsson, Guð-
laug Þorvaldsson og Pétur
Thorsteinsson, en tilkynnt, að
Vigdís gæti ekki tekið þátt í
viðræðum þar sem hún væri á
kosningaferðalagi úti á landi,
en viðtal við hana yrði birt
n.k. föstudagskvöld.
í bréfi segir að það séu í
hæsta máta óréttlátar og óeðli-
legar starfsaðferðir, að einn
frambjóðandinn skuli tekinn
sérstaklega út úr. Þegar það er
haft í huga að boðað var til
viðtalsins með viku fyrirvara.
Nú hafi hann forskot á hina
frambjóðendurnar, þar sem
hann hafi hlustað á svör þeirra
við hinum ýmsu spurningum,
en þeir voru spurðir hver í sínu
lagi, heyrðu ekki spurningar
hvors annars. í bréfi sínu fara
stuðningsmenn Péturs enn-
fremur fram á, að viðtalið
verði ekki birt við Vigdísi á
föstudag.
Tveir ungir menn
létust í bílslysi i
Gnúpverjahreppi
TVEIR ungir menn úr Reykjavík
létu lífið i bílslysi á hvítasunnu-
dagsmorgun við Kálfárbrú
skammt vestan við samkomuhús-
ið Árnes í Gnúpverjahreppi og
tveir sluppu lítt meiddir. Þeir
sem létu lífið voru Ólafur ólafs-
son, Hamrahlíð 33, 23 ára, og
Hafsteinn Sigurðsson, Safamýri
38,18 ára.
Að sögn lögreglunnar í Árnes-
sýslu mun slysið hafa orðið um
sex leytið á hvítasunnudagsmorg-
un. Ökumaðurinn mun hafa misst
stjórn á bílnum, sem er af Pont-
iacgerð, rétt áður en hann kom að
brúnni og lenti á handriði hennar.
Hægri hlið bílsins fór hreinlega úr
honum, en þeir sem létust sátu
hægra megin í honum.
Handrið brúarinnar sópaðist af
við áreksturinn og bíllinn stöðvað-
ist ekki fyrr en við vestur enda
brúarinnar. Bifreiðin mun vera
gjörónýt.
Þá kom það fram hjá lögregl-
unni, að ekki lægi fyrir hvort um
ölvun við akstur hafi verið að
ræða.