Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
29
Biskup íslands. séra Sigurbjörn Einarsson blessar yíir leiði séra Þórarins í Garðakirkjugarði. Séra Bragi
Friðriksson sóknarpresfuí við enda grafreitarins, honum á vinstri hönd er Úlfhildur Kristjánsdóttir, sem lagði
biómsveiginn á leiðið, þá eiginmaður hennar og að baki biskups forseti íslands, Kristján Eldjárn og frú Halldóra
Eidjárn.
Safnaðarheimilið er mikil bygging, staðsett á Hofsstaðahæð og er útsýni
fagurt úr byggingunni. Á myndinni má sjá forseta íslands og frú,
biskupinn og hans frú ásamt fleiri gestum. Mikið fjölmenni var við
hátiðarhöldin í safnaðarheimilinu.
Helgi K. Hjálmsson heldur hér á
númeratöflunum. sem bárust Garða-
kirkju að gjöf frá Ilafnarfjarðarsókn.
Á bak við helga er formaður sóknar-
nefndar Ilafnarfjarðar.
Ljósmynd Mhl. Július.
■
Ljósmyndari Mbl. Júlíus.
Janúar-apríl:
V öruskiptajöf nuður-
inn óhagstæður um
niu milljarða króna
FYRSTU fjóra mánuði ársins
voru fluttar út vörur fyrir alls
tæplega 12 milljarða króna, en á
sama tíma á sl. ári nam útflutn-
ingurinn alls tæplega 75 miiljörð-
um króna. Innflutningurinn nam
hins vegar tæplega 121 milljarði
króna fyrstu fjóra mánuðina, en á
sama tíma í fyrra nam hann um
69 milljörðum króna. Viðskipta-
jöfnuður landsmanna var því
óhagstæður fyrstu fjóra mánuði
þessa árs um nær 9 milljarða
króna, en var hagstæður um
rúmlega 6 milljarða á sama tíma í
fyrra.
I aprílmánuði einum nam út-
flutningurinn alls 38,4 milljörðum
króna, en innflutningur hins vegar
aðeins 29,5 milljörðum. Á sama
tíma í fyrra voru fluttar inn vörur
fyrir tæplega 16 milljarða króna,
en út var flutt fyrir rúmlega 24
milljarða króna.
Af útflutningi nam ál og ál-
melmi um 14,6 milljörðum króna,
en kísiljárn um 1,4 milljörðum
króna, en útflutningur kísiljárns
var ekki hafinn.
Af innflutningi má nefna að
vörur fyrir íslenzka járnblendifé-
lagið voru að verðmæti tæplega 2,8
milljarðar króna, vörur fyrir
íslenzka álfélagið fyrir um 9.2
milljarða króna og vörur fyrir
Landsvirkjun fyrir tæplega 550
milljónir króna.
Við sámanburð við utanríkis-
viðskiptatölur 1979 verður að hafa
í huga, að meðalgengi erlends
gjaldeyris í janúar-apríl 1980 er
talið vera 28.8% hærra en það var
sömu mánuðina 1979.
Þakplötur
fuku á bíla
í HVASSVIÐRINU í Reykjavík í
gær fauk þakjárn af húsinu
Smiðshöfða 8.
Það var um klukkan hálftíu í
gærmorgun sem þakplöturnar
byrjuðu að fjúka og lentu þær
meðal annars á tveimur kyrrstæð-
um bifreiðum í nágrenninu.
Skemmdust báðar bifreiðarnar
töluvert.
Landakirkja í
Vestmannaeyj-
um 200 ára
BISKUPINN yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, prédikaði
á hátíðarguðsþjónustu i Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum á
hvítasunnudag í tilefni 200 ára
afmæjis Landakirkju. Séra Kjart-
an Örn Sigurbjörnsson Eyja-
klerkur þjónaði fyrir altari og
Kirkjukór Vestmannaeyja söng
undir stjórn Guðmundar H. GuÁ
jónssonar organista. Landa-
kirkja var þéttsetin og meðal
gesta voru gestir af fastalandinu,
sem sóknarnefndin hafði boðið.'
í tilefni afmælisins flutti
Kirkjukór Vestmannaeyja há-
tíðarmessu eftir Haydn og hljóð-
færaleikarar úr Sinfóniuhljóm-
sveit Islands aðstoðuðu. Var kór-
verkið flutt tvívegis á hvítasunnu-
dag fyrir fullsetinni kirkju og var
gerður góður rómur að flutningi
kórsins.
Landakirkju bárust nokkrar
gjafir, er þar um að ræða há-
tíðarhökul og nýtt altarisklæði,
sem Kvenfélag Landakirkju gaf,
en bæði hökullinn og altarisklæðið
var unnið af frú Unni Ólafsdóttur.
Þá gáfu hjónin Ágúst Karlsson og
Jensína Guðjónsdóttir kirkjunni
ræðupúlt skorið út af feðgunum
Halldóri Sigurðssyni og Hlyni
Halldórssyni frá Miðhúsum á
Héraði.
Hátíðarhöldin þóttu takast hið
bezta, en síðar á árinu verða svo
fleiri samkomur í tilefni 200 ára
afmælisins.
Rjúpnaveiðimálið:
Héraðsdómur ómerkt-
ur í hæstarétti
í GÆR var kveðinn upp í Hæsta-
rétti dómur í svonefndu rjúpnaveiði-
máli en málið var höfðað af ákæru-
valdinu gegn Friðriki Björnssyni og
Árna Péturssyni Lund. og var þeim
gefið að sök að hafa laugardaginn
30. október 1976 verið að ólöglegum
rjúpnaveiðum í svonefndum Sauða-
fellsmúla i Öxarfjarðarheiði. 1 hér-
aði voru Friðrik og Árni hvor um
sig dæmdir í 7.000 króna sekt en
Ilæstiréttur ómerkti héraðsdóminn
vegna galla á rannsókn málsins og
dómprófunum. Var málinu þvi visað
heim í hérað til löglegrar meðferðar
og dómsálagningar að nýju.
Meirihluti Hæstaréttar tekur fram
að rannsókn málsins og dómprófun
hafi meðal annars verð áfátt vegna
þess að ákærðu hafi komið saman
fyrir dóm en eigi hvor í sínu lagi eins
og lög bjóða. Ekki sé skráð í þingbók
að athygli þeirra hafi verið vakin á
því, hvort þeir væru yfirheyrðir sem
vitni eða grunaðir um refsivert brot.
Þá hafi þeir ekki heldur verið
yfirheyrðir sjálfstætt og hvor í sínu
lagi um ýmis atriði. Meirihluti
Hæstaréttar finnur einnig að nokkr-
um fleiri atriðum við rannsókn og
dómprófun málsins.
Einn hæstaréttardómarinn, Sigur-
geir Jónsson, skipar minnihluta
Hæstaréttar og tekur hann fram í
sératkvæði sínu, að hann telji rann-
sókn málsins ekki fullnægja skilyrð-
um laga til málshöfðunar eins og á
stóð, og ákæra að því er brotastað
varðar sé ekki í samræmi við gögn
máls, er hún var gefin út. Niðurstaða
Sigurgeirs, er að hinn áfrýjaði dómur
skuli vera ómerkur, og ákæru í
málinu vísað frá héraðsdómi.
Úrval bréfa til
Jóns Sigurðssonar
HIÐ íslenska þjóðvinafélag efnir
nú á vegum Bókaútgáfu Menn-
ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins
til útgáfu úrvals bréfa til Jóns
Sigurðssonar, og er fyrsta bind-
ið nú komið út. Með útgáfunni er
minnst aldarártíðar Jóns hinn 7.
desember 1979.
Bókmenntafélagið gaf út á
sínum tíma eitt bindi bréfa hans
sjálfs, og 22 árum síðar, 1933,
gekkst Bókadeild Menningarsjóðs
fyrir útgáfu nýs safns bréfa Jóns
Sigurðssonar. í báðum bindunum
eru alls 453 bréf Jóns til nær 50
viðtakenda.
I 1. bindi úrvals bréfa til Jóns
Sigurðssonar eru bréfritarar
fjórir: Sveinbjörn Egilsson kenn-
ari á Bessastöðum og síðar rektor
í Reykjavík, Gísli Hjálmarsson
læknir í Múlaþingi og Austur-
Skaftafellssýslu og Þingey-
ingarnir Sigurður Guðnason,
Ljósavatni, og sr. Þorsteinn
Pálsson, Hálsi.
Samkvæmt skrá sem Páll
Bjarnason cand. mag. tók saman
og Landsbókasafn gaf út í Árbók
safnsins 1973, eru í Landsbóka-
safni og Þjóðskjalasafni varðveitt
rúm 830 bréf Jóns Sigurðssonar
til nálægt 140 viðtakenda og að
auki hvorki meira né minna en
yfir 6000 bréf til Jóns Sigurðsson-
ar frá um 870 bréfriturum. í
formála 1. bindis hinnar nýju
útgáfu er sú skýring gefin, „að
Jón hélt öllu saman, slíkur hirð-
maður sem hann var, en tilviljun
réð, hvað varð um bréf hans
sjálfs".
Stjórn Þjóðvinafélagsins hefur
í hyggju að gefa út eitt eða helst
tvö bindi til viðbótar með úrvali
bréfa til Jóns Sigurðssonar.
Bjarni Vilhjálmsson, Finnbogi
Guðmundsson og Jóhannes Hall-
dórsson önnuðust útgáfu þess
bindis sem nú er komið út.
í formála sínum segja þeir
félagar:
„Allmikill fjöldi manna á bind-
in tvö með bréfum Jóns Sigurðs-
sonar sjálfs, og hljótum vér að
ætla að óreyndu, að þeir muni nú
bera sig eftir þessum bréfum til
hans, auk þess sem bréfasöfn,
sem einhver veigur er í, eiga í
rauninni erindi til allra, sem
unna sögu þjóðarinnar og kynn-
ast vilja ævikjörum og lífsvið-
horfum liðinna kynslóða."
Jón Sigurðsson: „ ... tilvilj-
un réð hvað varð um bréf
hans sjálfs“.