Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 17

Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980 17 í viðtali þessu segir hann að- spurður um fyrirhugað framboð sitt gegn formanni sínum: „Burt- séð frá því hvort ég gef kost á mér eða ekki, þá tel ég æskilegt af mörgum ástæðum að Einar S. Einarsson hætti nú,“ en kvaðst ekki vilja tíunda það opinberlega hverjar þær ástæður væru. Gegnir það nokkurri furðu að maður sem titlar sig með háskóla- gráðu skuli ekki vera vandaðri að virðingu sinni en svo að vilja aðeins fara með dylgjur, en ekki rökstudda gagnrýni, opinberlega. Slíkt getur og vart talist stór- mannlegt. Nú vill syo-til að dr. Ingimar hefur aldrei gagnrýnt störf mín fyrir skákhreyfinguna á stjórnar- fundum sambandsins, utan nokk- urs karps um fundarsköp og per- sónuleg mál, svo fróðlegt væri að fá upplýst hvað fyrir honum vakir, hvort það er hagur og heill skákhreyfingarinnar eða eitthvað annað. Enginn er fullkominn og vafa- laust væri hægt að tína eitthvað til, sem betur hefði mátt fara í stjórn S.í. Hins vega vil ég leyfa mér að geta þess að öll þau 5 ár sem ég hef fórnað Skáksamband- inu frítíma mínum, hef ég ævin- lega gætt þess að láta félagslega hagsmuni skákhreyfingarinnar sitja í fyrirrúmi fyrir persónu- legum sérhagsmunum einstakra stjórnarmanna eða annarra, eða pólítískum skoðunum, og kapp- kostað að sýna fulla ábyrgð í fjármálum, sem reyndar öllum málum. Það hefur glatt mig að flestir þeir, sem ég hef starfað með undanfarin ár, t.d. í sambandi við Reykjavíkurskákmótin o.fl. og nú síðast fund Framkvæmdaráðs FIDE, hafa verið ánægðir með hvernig að þeim hlutum hefur verið staðið. Ég vil og geta þess að dr. Ingimar átti sæti í bæði móts- stjórn Reykjavíkurskákmótsins í vetur og skipulagsnefnd FIDE- fundarins, en hann lét ekki svo lítið að láta sjá sig við þann undirbúning eða framkvæmdina sjálfa. Auk þess sem hann hefur látið sig vanta á 14 af 33 stjórnar- fundum sambandsins, á því starfs- ári sem nú er að ljúka. Væri ekki óeðlilegt að spyrja þá, sem styðja vilja að framboði hans, hvort slík vinnubrögð séu það sem þeir sækjast eftir hjá næsta forseta Skáksambandsins. Þar sem ég vænti þess, hr. ritstjóri, að þér munið ljá rúm í blaði yðar fyrir sjónarmið fleiri aðila en eins til þessa máls, læt ég fylgja hér með útdrætti úr nokkr- um nýlegum bréfum og blaða- greinum, ásamt ljósriti þeirra til staðfestu, þar sem álit ýmissa „málsmetandi" manna úr skák- heiminum á frammistöðu fráfar- andi forystu Skáksambands Islands kemur skýrt fram: Úr bréfi Friðriks ólafssonar, forseta FIDE, dags. 16. apríl 1980: Kæri Einar, Nú að fundi FIDE-ráðsins lokn- um, vil ég þakka Skáksambandi íslands kærlega fyrir auðsýnda gestrisni okkur til handa. Þú veist að ég tala fyrir munn allra FIDE-ráðs fulltrúanna þegar ég segi að allir nutu ánægjulegrar Einar S. Einarsson fulltrúar ráðsins látið í ljós viður- kenningu og þakklæti fyrir gest- risni þína og skipulagninguna, sem var fullkomin — Ég tek heilshugar undir orð þeirra ... Úr bréfi Florencio Campomanes, forseta Skáksambands Filipseyja og eins af varaforsetum FIDE, dags. 16. apríl 1980: Kæri Einar, Ég vil leyfa mér að þakka þér fyrir hina miklu gestrisni, sem, þú sýndir okkur á meðan á dvölinni á íslandi stóð. Skipulagning þín var góð, og ég tók eftir því að þú hafðir sjálfur umsjón með þeirri skákvinnu, sem gera þurfti, líkt og ég geri sjálfur i mínu heimalandi. Þú hefur það sem til þarf til að ná árangri í skákstarfinu ... Úr bréfi LR. Prof. Kurt Jung- wirth, forseta Skáksambands Au8turríkis og eins af varaforset- um FIDE, dags. 27. apríl 1980: Kæri Einar, Heimkominn til Graz vil ég leyfa mér að þakka þér enn á ný fyrir hinar dásamlegu móttökur, sem við urðum aðnjótandi í Reykjavík, opinberlega af hálfu skipulagsnefndar FIDE-fundar- ins, sem og persónulega að heimili yðar ... Hvað skákina varðar tel ég að fundur okkar hafi orðið árangursríkur. Umfram allt fannst mér mikið til um hið góða starf, sem Skáksamband þitt stendur fyrir og ég óska þér áframhaldandi velgengni ... Úr bréfi Evilien Dirksen, aðstoð- arritara FIDE, dags. 6. maí 1980: Kæri hr. Einarsson. ... Þakka þér fyrir að bjóða mér til íslands og leyfa mér að kynnast landi og þjóð ... Ég vil þakka þér fyrir einn þann léttasta fund síðan ég hóf störf hjá FIDE, mér fannst þetta vera líkara því að vera í fríi, enda þótt nóg væri að starfa og væri starfað ... Úr grein Knut J. Helmers, al- þjóðlegs skákmeistara, eins af þátttakendunum i IX. Reykja- víkurskákmótinu si. vetur., (Norsk Sjakkblad maj 1980) ... Mótið var stórkostlegt á alla lund ... skipuleggjendurnir, með Einar S. Einarsson, forseta Skák- sambands íslands, í fararbroddi, gerðu allt sem í þeirra valdi stóð og það segir ekki lítið. Allt var fullkomið — nema heilsa mín!... Úr grein í Tidskrift För Schack, sænska skákblaðinu, marshefti 1980: Aðstaðan fyrir Stór- meistaramótið í Reykjavík var 511.600 RAFIÐJAN KIRKJUSTRÆTI V/AUSTURVÖLL. SÍMI 19294 m SJONVAL Vesturgötu 11 Reykjavík sími 22600 Vandaðai inmcltingai Norema innréttingar hafa nokkra kosti umfram aðrar tegundir eldhúsinnréttinga. 1. Mjög sterkt efni, vandaður frágangur. 2. Allar hurðir opnast 170°, ekki bara 90°. 3. Stærri og rúmmeiri skápar, allt að 40% meira pláss. Nú getið þér valið um 11 gerðir eldhúsinnréttinga og skoðað flestar þeirra í rúmgóðum sýningarsal okkar að Háteigsvegi 3. Við veitum yður allar ráðleggingar varðandi innréttingar, og gerum yður tilboð að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringið eða skrifið og fáið heimsendan bækling. STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI, 1 Vz-2 mánuðir. Innréttingahúsið Háteigsvegi 3 Verslun simi 27344 geta þess, sem þú sem nýr forseti hefur þegar gert til að auka veg Skáksambands Norðurlanda og gefa sambandinu meira gildi, en það hefur annars haft á síðari árum. Greinargerðin til FIDE- landanna var mjög góð, sömuleiðis afmælisfáninn. Hið vel gerða sam- bandsmerki mun ég kynna í næsta tölublaði af Norsk Sjakkblad, ásamt frásögn um hina nýju sókn, sem getur fært Skáksambandi Norðurlanda aftur mikilvægi sitt, sem þýðingarmikils sambands ... Einar S. Einarsson forseti Skáksambands Islands: Lengi skal manninn reyna Heiðraði ritstjóri. Laugardaginn 24. maí sl. birtist í blaði yðar frétt um fyrirhugaðan aðalfund Skáksambands íslands hinn 31. maí nk. ásamt viðtali við núverandi varaforseta þess, dr. Ingimar Jónsson, sem vegur þar að mér persónulega. dvalar í Reykjavík. Það að fundir okkar gengu mjög greiðlega fyrir sig, er að þakka hinum góða og ítarlega undirbúningi þínum og félaga þinna í skipulagsnefndinni, þetta auðveldaði mjög öll störf okkar ... Við ýmis tækifæri hafa prýðileg að Hótel Loftleiðum, og mótið var mikill uppsláttur (succé) fyrir mótshaldarana, með Einar S. Einarsson í broddi fylk- ingar ... Úr bréfi Öystein Brekke, rit- stjóra Norsk Sjakkblad, 10. nóv. 1979: Kæri skákvinur. ... Það er mjög ánægjulegt að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.