Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 20

Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1980 fftngpm Útgefandi nliffifrtfe hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.800.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 240 kr. eintakið. Neikvæð afstaða Alþýðusambandsins Þróun þeirra kjaraviðræðna, sem nú standa yfir að nafninu til að minnsta kosti, verður ávallt einkennilegri með hverri vikunni sem líður eða hverjum mánuðinum sem líður hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. En félagsmenn þeirra samtaka geta bráðum haldið upp á ársafmæli „viðræðna" forráðamanna sinna við ríkisvaldið um nýja kjarasamninga. Greinilegt er, að sú ríkisstjórn „hinna vinnandi stétta", sem nú situr að völdum í landinu, hefur engin tök á því að greiða fyrir gerð kjarasamninga. Hún lætur ekki einu sinni svo lítið að svara kröfugerð viðsemjenda sinna, hið eina sem hún aðhefst spillir frekar fyrir kjaraviðræðunum en hitt og félagsmálaráðherrann Svavar Gestsson bjástrar við að deila út gömlum félagsmála- pökkum, sem voru forsendur þess, að kjarasamningar tókust einhvern tíma í fyrndinni. A föstudaginn í síðustu viku lagði Vinnuveitendasamband Islands fyrir viðræðunefnd Alþýðusambandsins ítarlegar tillög- ur, sem miða að því að einfalda launakerfið og hafa í för með sér, að launaflokkar verða 30 í stað 600. Vinnuveitendasamband- ið kallar það kerfi, sem mælt er með í tillögum þess „kjarasamning" og notar þar að hluta til hugmynd frá Verkamannasambandi Islands. Vill Vinnuveitendasambandið láta á það reyna með tillögu sinni, hvort Alþýðusambandið hafi umboð til að gera þann heildarkjarasamning, sem í þessu nýja kerfi felst eða hvort nauðsynlegt sé að ganga til samninga við hvert einstakt sérsamband. Viðbrögð Alþýðusambandsins voru ekki efnisleg við þessari tillögu um einföldun launakerfisins heldur sakaði það vinnuveitendur um að tefja fyrir samningum og kallaði saman fund í samninganefnd sinni í þessari viku til að kanna umboð sitt til að gera heildarkjarasamning. Um langt árabil hefur verið um það rætt, þegar lokið er samningalotu aðila vinnumarkaðarins, að hinar og þessar breytingar séu nauðsynlegar við eða fyrir næstu kjaraviðræður. Eitt af þeim atriðum, sem þá hefur einna oftast verið nefnt er einföldun samninganna og fækkun kauptaxta. Greinilegt er af viðbrögðum Alþýðusambandsins við þeim tillögum, sem vinnu- veitendasambandið hefur nú sett fram um þetta efni, að forystumenn launþega telja hér alls ekki um brýnt viðfangsefni að ræða. Þó er einhver vafi í þeirra huga, því að þeir treysta sér ekki til annars en kalla alla samninganefnd ASÍ saman til umræðu um málið. Kristján Thorlacíus formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hafði orð á því í útvarpinu fyrir skömmu, að óeiningar gætti innan Alþýðusambandsins. Þörfin fyrir fund í samninga- nefnd ASI í þessari viku á ef til vill ekki síst rætur að rekja til þessarar óeiningar. Verkamannasamband Islands hefur verið að móta sér aðra stefnu til dæmis varðandi verðtryggingu launa en forysta Alþýðusambandsins. Vinnuveitendur hafa því ekki gjörla vitað fram til þessa við hverja þeir ættu að ræða hjá Alþýðusambandinu um fyrirhugaðan kjarasamning og því virðist nú ofar á dagskrá en oft áður, að taka upp viðræður við sérsamböndin innan þess. Afgreiðsla Alþýðusambandsins á hygmyndum vinnuveitenda um „kjarasamning" mun leiða samstöðuna innan þess í ljós. Það er furðulegt, að forysta Alþýðusambandsins skuli saka gagnaðila sinn að kjaraviðræðunum um að draga þær á langinn því að síðustu kröfur Verkamannasambandsins éru nýlega komnar fram og svo er komið í herbúðum ASÍ, að þar er hver höndin upp á móti annarri og óvissa um samningsumboð. Má segja, að Alþýðusambandið leiki í almennu kjaraviðræðunum hlutverk ríkisstjórnarinnar í viðræðunum, sem forystumenn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja segjast hafa verið að reyna að koma á um sín mál. Ríkisstjórnin hefur nú þvælst fyrir samningaviðræðum í tæpt ár, kannske ætlar ASÍ forystan að reyna að slá það met til að veita ráðherrum Alþýðusambandsins syndakvittun. í þessu sambandi má hún þó ekki gleyma því, að Alþýðusambandsþing verður háð næsta haust. Viðbrögð forystumanna Alþýðusambandsins við tillögum vinnuveitenda einkennast af hræðslu við hinar minnstu breytingar. Þau eru í ætt við neikvæðar upphrópanir verkalýðs- leiðtoga, þegar því er hreyft, hvort ekki megi breyta einhverjum ákvæðum vinnulöggjafarinnar og færa þau í nútímalegra horf. Vissulega vekur það í senn undrun og umhugsun, ef sú stefna ræður ferðinni hjá Alþýðusambandi -Islands, að við engu megi hrófia, er að því sjálfu lýtur, en allt annað skuli breytingum undirorpið. Garðakirkja 100 ára: Safnaðarheimilið á Hof- staðahæð tekið í notkun Á ANNAN dag hvítasunnu var þess minnst í Garðasókn, að 100 ár eru liðin frá því að séra Þórarinn Böðvarsson prófastur lét byggja þar nýja kirkju. Lagð- ur var blómsveigur að leiði séra Þórarins og konu hans, hátíðar- guðsþjónusta var í Garðakirkju, þar sem biskupinn yfir íslandi. séra Sigurbjörn Einarsson pré- dikaði og einnig var tekinn í notkun við hátíðlega athöfn fyrsti hluti hins nýja safnaðar- heimilis Garðasafnaðar á Hof- staðahæð. Viðstaddir hátíðar- höldin voru forseti íslands, Kristján Eldjárn og frú, biskup- inn yfir íslandi og hans frú ásamt fleiri góðum gestum. Athöfnin hófst eins og áður segir, með því að frú Ulfhildur Kristjánsdóttir lagði blómsveig á leiði prófastshjónanna í Garða- kirkjugarði. Frú Ulfhildur var upphafsmaðurinn að því við stofnun Kvenfélags Garðahrepps, að Garðakirkja var endurreist. Þá gengu gestir til kirkju, þar sem biskup Islands prédikaði og sókn- arpresturinn séra Bragi Frið- riksson þjónaði fyrir altari. Þá söng Garðakórinn undir stjórn Þorvaldar Björnssonar organista. Skátar stóðu heiðursvörð bæði í kirkjugarðinum og við guðsþjón- ustuna. Mikið fjölmenni var við athöfnina og kirkjan troðfull út úr dyrum. Að kirkjuathöfninni lokinni var haldið í hið nýja safnaðarheimili á Hofstaðahæð þar sem fjölbreytt dagskrá og kaffiveitingar í boði kvenfélagskvenna biðu gesta. Flutti þar ávarp Helgi K. Hjálms- son form. sóknarnefndar, Guð- mundur Benediktsson ráðuneytis- stjóri flutti minni séra Þórarins og konu hans. Þá tók til máls forseti bæjarstjórnar og til- kynnti, að bæjarstjórn hefði ákveðið að leggja varanlegt slit- lag á bifreiðastæði utan Garða- kirkju í tilefni afmælisins. Af- komendur séra Þórarins og konu hans gáfu kirkjunni veglega pen- ingagjöf. Fulltrúar sóknarnefnda Hafnarfjarðarsóknar og Kálfa- tjarnarsóknar færðu Garðasókn kveðjur og gáfu Garðakirkju veg- legar afmælisgjafir. Hafnfirð- ingar færðu Garðakirkju gamla kirkjumuni, sem talið er að hafi upphaflega verið í kirkjunni, sem séra Þórarinn lét reisa en verið fluttir til Hafnarfjarðar þegar sóknirnar voru sameinaðar 1914. Þá bárust einnig fleiri góðar gjafir, m.a. frá Kvenfélagi Garða- bæjar. Garðakórinn ásamt hljóðfæra- leikurum fluttu hátíðartónlist. í lok athafnarinnar flutti séra Bragi Friðriksson þakkarorð og gestir stóðu upp í lokin og sungu „ísland ögrum skorið." í tilefni af afmælinu hafa verið gefnir út veggplattar með mynd af Garðakirkju. Aðeins eru fram- leiddir 200 tölusettir plattar og er hægt að nálgast þá í blómabúð- inni Fjólu í Garðabæ og í Frímerkja- og myndasölu Magna að Laugavegi 15, Reykjavík. Hér má sjá hluta hátíðargesta við Garðakirkju. U«»m. Mhi. Frífla Proppó. Rally Cross á Kjal- arnesi Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur gekkst fyrir rally-cross keppni á Kjalar- nesi í gærdag og var margt manna að fylgjast með þrátt fyrir mikið rok og sandfok. Engin alvarleg óhöpp urðu vegna mjög strangra öryggis- reglna. Tvær veltur urðu þó í keppninni, auk smávægilegra pústra. Það voru Volkswagen- bifreið og BMW-bifreið sem ultu. Það var Jón S. Halldórsson á BMW bílnum sem sigraði nokkuð örugglega. Omar Ragnarsson, rall- kappi, sá um að lýsa keppn- inni. MaitalendinK Jón S. Halldórsson, sigurvegari, á fullri ferð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.