Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
21
Kemur Asgeir ekki
í landsleikinn?
„ÞAÐ urðu okkur mikil von-
brigði að tapa undanúrslita-
leiknum í belgísku bikarkeppn-
inni gegn Beveren 1—0 á
heimavelli okkar,“ sagði Ásgeir
Sigurvinsson er Mbl. ræddi við
hann í gærkvöldi.
„Það var troðfullur leikvangur
hjá okkur, 40.000 áhorfendur og
við áttum allan leikinn, sóttum
án afláts án þess að okkur tækist
að skora. Standard var með sitt
besta lið og við gerðum allt sem
við gátum til þess að sigra, en án
árangurs. Við áttum góð mark-
tækifæri í leiknum, en snilldar-
markvarsla landsliðsmarkvarð-
ar Belgíu, sem leikur með Bever-
en kom í veg fyrir að við
skoruðum.
— I lok leiksins lögðum við
allt í sóknina og tíu mínútum
fyrir leikslok náði Beveren
skyndisókn og tókst að pota inn
slysalegu marki.
„Eg varð síðan fyrir því
óhappi þegar sjö mínútur voru
eftir af leiknum, að fá slæmt
spark í ökklann, snerist illa og
varð að yfirgefa völlinn. Eg er
mjög bólginn á fætinum og fer í
myndatöku og meðferð lækna á
morgun. Þá fæ ég úr því skorið
hvort ég verði nægilega góður til
að fara heim og leika með
íslenska landsliðinu gegn Wales
2. júní,“ sagði Ásgeir Sigurvins-
son.
Lið Beveren hefur komið mjög
á óvart í belgísku bikarkeppn-
inni og slegið út m.a. Lokeren og
FC Brugge. Mætir liðið Wat-
erschei í úrslitunum.
-þr.
• Ásgeir Sigurvinsson meidd-
ist illa á fæti í gærkvöldi. Er
ekki vist að hann geti lcikið
með landsliðinu gegn Wales af
þeim sökum. Úr því fæst skorið
i dag eða á morgun.
Urslitaleikur HM
verður í Madrid
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu verður haldin á Spáni árið
1982, nánar tiltekið dagana 13. júní til 22. júlí. Spánverjar eru
þegar farnir að leggja nótt við dag í undirbúningi sínum fyrir
keppnina. Fleiri eru farnir að hugsa sér gott til glóðarinnar og má
þar nefna, að ferðaskrifstofan Útsýn hefur þegar tryggt sér
einkaumboð til þess að flytja íslenska knattspyrnuáhugamenn á
keppnina og má vænta þess að þeir verði nokkrir sem bregði sér
suður til Spánar í þeim erindagjörðum að horfa á knattspyrnu.
Fyrsta umferðin á HM fer Madrid og Barcelona undanúr-
fram í borgunum Zaragoza,
Valadolid, Alicante, Vigo,
Oviedo, Gijon, Elche, Bilbao,
Valencia, Malaga og Sevilla.
Önnur umferðin fer síðan fram í
slitin í Sevilla og Barcelona og
loks fer sjálfur úrslitaleikurinn
fram i Madrid, þá væntanlega
Santiago Beroebau-leikvangin-
um, heimavelli Real Madrid.
• Óskar er að komast í fremstu röð í kúluvarpi.
Styttist í 20 metra
múrinn hjá Óskari!
— Varpaöi kúlunni 19,82 metra
á móti í Texas um helgina
„ÞAÐ er heldur betur farið að
styttast í 20 metrana,“ sagði
Óskar Jakobsson gaivaskur í
viðtali við Mbl. í gær, en hann
varpaði kúlu 19,82 metra á móti
einu stóru í Texas um helgina.
„Við eigum eftir eina keppni
hérna vestra áður en ég kem
heim og það er aldrei að vita
hvað gerist, með sama áfram-
haldi geri ég mér vonir um að
ná 20 metra múrnum,“ bætti
Óskar við.
Árangur Óskars á móti þessu
sýnir, að hann er óðum að skipa
sér á bekk með bestu kúluvörp-
urum heims og áður en langt um
líður, mun það heyra sögunni til,
að Hreinn Halldórsson geti bók-
að sér sigur á öllum kúlumótum
þar sem Islendingar einir keppa.
Hreinn keppti einnig á um-
ræddu móti í Texas, en náði sér
ekki vel á strik, varpaði kúlunni
aðeins 19,47 metra, sem er langt
frá hans besta. Varð Hreinn að
gera sér þriðja sætið á mótinu að
góðu, en Óskar varð hins vegar
annar. Sá er sigraði varpaði
kúlunni 19,85 metra. „Hreinn er
slæmur í olnboga og það háði
honum að þessu sinni. Hann átti
nokkur mun lengri köst í upphit-
uninni," sagði Oskar. Það þarf
vart að taka fram, að 19,82
metra kast Óskars er hans besti
árangur. Framfarir hans hafa
verið stórstígar, hans besti ár-
angur fram að þessu var 19,68
metrar.
Óskar keppti einnig í kringlu-
kasti á umræddu móti í Texas og
kastaði kringlunni 62,54 metra,
hörkugóður árangur það og
greinilegt að Óskar hefur aldrei
verið betri.
„Ég kem heim 14. júní og ætla
mér að keppa á Reykjavíkurleik-
unum 19. júní. Hreinn er vænt-
anlegur heim 8. júní og eftir því
sem ég best veit ætlar hann
einnig að keppa á leikunum,“
sagði Óskar Jakobsson að lokum.
- gg-
Trausti Haraldsson skoraði eina mark Fram á móti Þrótti um helgina. Á myndinni má sjá hvar
Trausti fagnar marki sinu um leið og boltinn smellur í netinu. Sjá leiki helgarinnar á bls. 22 og 23.
Ljósm. Július.
Heimsmetið
í hástökki
HEIMSMETIÐ í hástökki var
bæði bætt og síðan nýja metið
jafnað um helgina. Eitthvað
hefur gengið á. Hasarinn byrj-
aði í Heilbronn í Vestur-Þýzka-
landi, þar sem Pólverjinn Jacek
Wszola vippað sér yfir 2,35
metra.
Það var strax í fyrstu tilraun
að Wszola flaug yfir gamla
metið. Það átti Sovétmaðurinn
Vladimir Jaschtschenko og
hljóðaði upp á 2,34 metra. Var
það met sett á móti í Tblisi
1978.
Síðan gerðist það um helgina,
að Vestur-Þjóðverjinn Dietmar
Moegenburg gerði sér lítið
fyrir og stökk einnig yfir 2,35
metra og jafnaði þar með rúm-
lega sólarhrings gamal heims-
met pólska piltsins.
Rússar lögðu Frakka
RÚSSAR sigruðu Frakka í
vináttulandsleik í knatt-
spyrnu sem fram fór í Sovét
um hclgina. Eina mark
leiksins og sigurmark Rússa
skoraði Fedor Cherenkov
þegar aðeins 6 mínútur voru
til leiksioka.
Beckenbauer
gekk frá
sínum málum
FRANZ Beckenbauer. eða
„Keisarinn“ eins og hann er
gjarnan kallaður. skrifaði
um helgina undir samning
við vestur þýsku meistarana
Hamburger SV. Er samning-
urinn til tveggja ára. en
síðustu árin heíur Becken-
bauer leikið knattspyrnu
með bandaríska stórliðinu
New York Cosmos. IIve mik-
ið IISV greiddi íyrir Becken-
bauer var ekki látið uppi.
Capes ekki
undir 21 m
GEOFF Capes, breski kúiu-
varparinn kunni er í mikl-
um ham um þessar mundir
og varpar kúlunni hvað eftir
annað yfir 21 metra. Úm
helgina varpaði hann kúl-
unni 21,03 metra á frjáls-
iþróttamóti í Birmingham.
sama móti og Sab Coe náði
þeim árangri sem greint er
frá á öðrum stað hér í
biaðinu.
Schneider
með
heimsmet
PETRA Schneider frá Aust-
ur Þýskalandi setti heims-
met i 400 metra fjórsundi á
móti í Magdeburg um helg-
ina. Kom hún í mark á
4:38,44 minútum. Eldra met-
ið átti hún sjálf og hljóðaði
það upp á 4:39.96.
.. » »-»
Heimsmet í
100 m baksundi
HIN 16 ára gamla austur
þýska stúlka Ute Gcweniger.
setti um helgina nýtt heims-
mct í 100 metra baksundi
kvenna, er hún kom í mark á
1:10,20 sekúndum. Gerðist
þetta á móti einu í heima-
Íandi Ute.
Boro vann
MIDDLESBROUGH sigraði
japanska landsliðið i
knattspyrnu 2—1 á meiri
háttar móti sem haldið er í
Tokíó. David Hodgeson skor-
aði bæði mörk Boro. Meðal
annara félaga á móti þcssu
keppa Espanol frá Spáni,
Argentínos Jouniors frá
Argentinu og iandslið Kína
og Japan.
Coe fer
sér rólega
HLAUPARINN kunni. Seh-
astian Coe. náði næst besta
tíma ársins í 800 metra
hlaupi er hann hijóp vega-
lengdina á 1:45,4 minútum á
móti í Birmingham um helg-
ina. Hann sigraði auðvitað
aí öryggi í hlaupinu. var 20
metrum á undan næsta
manni. Hann meira að segja
hægði greiniiega á sér á
lokasprettinum og hljóp
ekki af þeim krafti sem
hann er fær um. Timi hans í
Birmingham var um 3 sek-
úndum iakari heldur en
heimsmet hans í greininni.