Morgunblaðið - 28.05.1980, Síða 5

Morgunblaðið - 28.05.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAI1980 5 Sumarið ’80: Margt um mann- inn um helgina Einn sýningarbásanna á sýningunni. Ljósmynd Mbl. Kristinn. SÝNINGIN Sumarið ’80, úti- vera, sport, íerðalög, var opn- uð sl. íimmtudag í Sýningar- höllinni Ársölum á Ártúns- höfða. þar sýna og kynna um 50 innlend fyrirtæki vörur sínar, er samræmast heiti sýn- ingarinnar. Á sýningunni eru t.d. ferða- bílar, sumarhús, hjólhýsi, felli- hýsi, tjöld, garðhúsgögn og ýmiss konar viðlegubúnaður svo að eitthvað sé nefnt. Sýningin er opin virka daga frá klukkan 16.00—22.00 og um helgina verður hún opin frá 14.00—22.00, en henni lýkur 2. júní nk. Margt var um manninn um helgina á sýningunni. Tízkusýningar eru daglega á sýningunni og var þessi mynd tekin á einni þeirra um helgina. Ljósmynd Mbi. Guðjón. Maður með hauspoka brýst inn til stúlku UM helgina var brotist inn í hús við Hverfisgötu. Var þar á ferð- inni maður með poka á höfði og fór hann inn í herbergi hjá stúlku, sem þar býr. Stúlkunni tókst að komast út og gera lögreglunni aðvart, en þegar lögreglan kom á staðinn var. maðurinn á bak og burt. Ekki er vitað í hvaða erindagjörðum maðurinn var. Undirrita Jan Mayen samningana SAMNINGAR íslendinga og Norð- manna í Jan Mayen-málinu verða undirritaðir. í Reykjavík í dag, en þeir hafa þegar hlotið samþykki þjóðþinga landanna. Undirritunin mun fara fram á hádegi í utanríkisráðuneytinu og fyrir íslands hönd mun Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra undirrita þá, en Anna Marie Lor- entsen, sendiherra fyrir hönd Norð- manna. Sigriður Guðmundsdóttir. Magnús Hallgrímsson. íslenskur hjúkrunar- fræðingur til flótta- mannabúða í Thailandi NÝLEGA hélt Sigríður Guðmunds- dóttir hjúkrunarfræðingur áleiðis til flóttamannahúðanna Kao-i-dang í Thailandi. þar sem hún mun starfa í 3 mánuði á vegum Alþjóða Rauða krossins. Þegar hún lýkur starfs- tima sinum er ætlunin að annar hjúkrunarfræðingur héðan leysi hana af. Hinn 25. júní nk. fer svo Magnús Hallgrimsson verkfræðing- ur til Tanjung Pinang i Indonesiu. Mun hann verða við skipulagsstörf vegna bátafólks 'f 3 mánuði á þcssum slóðum. Efling og samræming lífsorkunnar GEIR Viðar Vilhjálmsson sálfræð- ingur heldur fyrirlestur á vegum Samtaka um svæðameðferð og heilsuvernd í kvöld, miðvikudags- kvöld 28. maí, kl. 20 og er viðfangs- efnið „Efling og samræming lífsorkunnar“. Meðal þess sem fjallað verður um er samspil andlegra, félagslegra og líkamlegra áhrifa í lífi mannsins og afleiðingar þess fyrir heilsuna. Rætt verður um ýmsar kenningar um lífsorkukerfi mannsins, þar á meðal nálarstungubrautir, orku- stöðvar og rafeindakerfi líkamans ásamt því, hvernig beita má slíkum kenningum til heilsuverndar og með- höndlunar. Eftir að íslenski hópurinn sem fór til Thailands í desember kom heim aftur hafa komið nokkrar fyrir- spurnir um fleira fólk héðan til hjálparstarfa í S.A. Asíu. Hópur Islendinga var tilbúinn til brottfarar upp úr sl. áramótum og var Sigríður ein úr þeim hópi. í þetta sinn voru Norðurlöndin beðin um að kosta sameiginlega sendingu á 13 manna hóp lækna og hjúkrunarfræðinga og tekur Sigríður sæti í þeim hóp. Magnús Hallgrímsson er hins vegar einn úr hópi Islendinga sem fengið hafa þjálfun til almennra sendi- mannastarfa hjá Alþjóða Rauða krossinum. Var sérstaklega óskað eftir honum í þetta verkefni. Hjálparsjóður RKÍ hefur að und- anförnu lagt mikið fé í erlend hjálparstörf og er fé það sem sér- staklega var safnað til aðstoðar við flóttafólk í S.A. Asíu á síðasta hausti upp urið. Þar sem Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gaf nýlega til hjálparstarfsins kr. 2.362.000, eða kr. 1.000 á hvern félaga, er nú hægt að kosta þetta hjálparstarf áfram. Einnig barst gjöf frá Elíasi Dav- íðssyni í sama tilgagi. Heilbrigðis- ráðuneytið, fyrir hönd ríkisstjórnar- innar mun taka þátt í hluta af kostnaði vegna starfs Sigríðar Guð- mundsdóttur. Fyrir allt þetta þakkar stjórn RKI um leið og hún árnar þessum fulltrúum Islendinga í hjálp- arstarfinu heilla í þessum mikilvægu verkefnum. (Frá RKÍ)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.