Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 44

Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980 25 Jón Haukur sigraði í Faxakeppninni JÓN Haukur Guðlaugsson Nessklúbbnum sigraði i Faxakeppn- inni i golfi sem háð var i Eyjum um Hvitasunnuna eftir tvisýna úrsiitakeppni við Hannes Eyvindsson GR. Faxakeppnin gefur stig til iandsliðs. Leiknar voru 36 hoiur og þegar keppendur komu inn eftir siðasta hringinn kom i ljós að þeir Jón Haukur og Hannes voru hnífjafnir á 148 höggum. Urðu þeir kappar því að leika þrjár holur til úrslita. Fyrstu hoiuna fór Jún Haukur á 4 höggum en Hannes á 5, en á annari snérist dæmið algjörlega við og voru þeir þvi enn jafnir á 9 höggum þegar að siðustu hoiunni kom. Báðir komust inn á flöt á tveimur glæsilegum höggum, Jón Haukur um metra frá holu en Hannes út við jaðarinn. Púttið mistókst hjá Hannesi og tók hann þá það til bragðs að pútta frá og var Jón Haukur þar með orðinn sigurvegari i keppninni. 50 keppendur voru í Faxakeppninni þar af aðeins þrír keppendur í kvennaflokki. Úrslit í karlaflokki urðu þessi: 1.-2. Jón Haukur Guðlaugss.NK 39-37-35-37 148 1.-2. Hannes Eyvindsson GR 35-36-37-40 148 3. Sigurður Pétursson GR 38-38-39-34 149 4. -5. . Hallgrímur Júlússon GV 36-38-40-39 153 4.-5. Sveinn Sigurbergsson GK 39-36-38-40 153 Jón Haukur Guðlaugsson sigraði einnig í keppninni með forgjöf. Úrslit í kvennaflokki. 1. Jakobína Guðlaugsdóttir GV 43-45-43-42 173 2. Sjöfn Guðjónsdóttir GV 47-55-42-45 189 3. Þórdís Geirsdóttir GK 50-50-46-47 193 Þess má til gamans geta að sigurvegararnir í Faxakeppninni Jón Haukur og Jakobína eru systkini. —hkj. Jón Haukur og Hannes Eyvindsson, ísl.-meistari frá 1979, virða fyrir sér bikarana skömmu eftir að bráðabananum lauk, en þar vann Jón Haukur meistarann á þriðju holu. Systkinin Jagga og Jón Haukur óska hvort öðru til hamingju að mótinu loknu. I.josm.: Siifurx. JónaKson. Galvaskar golfkonur i upphafi siðari hrings á seinni degi í Faxakeppninni i golfi sem fram fór i Vestmannaeyjum. Ljósm. Sig.J. mm .'.-.-i isFlVOl Mynd frá hinumglæsilega Bernabeau-leikvangi Real Madrid þar sem fram fer úrslitaleikurinn í Evrópukeppni meistaraliðaí kvöld. Er það í 25. skipti sem úrslitin fara fram. Leikvangur Real Madrid rúmar 125 þúsund manns. Fyrir löngu er uppselt á leik Hamburger S.V. og Nottingham Forest. Á litlu myndunum tveimur sem felldar eru inn í stóru myndina má sjá að oft er þröngt setinn bekkurinn á vellinum og jafnframt að allar leiðireru farnartil aðkomast inn sé uppselt Úrslitaleikurinn í 25. Evrópu- meistarakeppninni í knattspyrnu í kvöld kl. 20.00 að islenskum tíma fer fram úrslitaleikurinn í Evrópumeistarakeppninni í knattspyrnu. Hamburger S.V. frá Vestur- Þýskalandi og Nottingham Forest, Englandi, núverandi Evrópumeistar- ar, mætast á Bernabeau-leikvanginum í Real Madrid. Það, sem er sögulegt við þennan leik, er að þetta er i 25. skipti sem úrslit fara fram í þessari keppni. Verður leiknum sjónvarpað beint um alla Evrópu og munu milljónir manna fylgjast með honum. Fyrir löngu er uppselt á völlinn en hann rúmar 125 þúsund áhorfendur. Það fer ekki á milli mála að knattspyrnan er langvinsælasta iþróttagreinin í heiminum í dag með flesta iðkendur og því er vel fylgst með öllu sem þar fer fram. Einn stærsti sigur, sem félagslið í Evrópu geta unnið, er að sigra í Evrópumeistarakeppninni og fylgir því jafnan mikil vegsemd og verulegar fjárhæðir bseði til leikmanna svo og þeirra félaga sem sigra. Þar sem meistarkeppninni er nú að ljúka í 25. skipti er hér lítil samantekt um leikinn í kvöld og rifjuð eru upp ýmis minnisverð atvik frá þvi að keppnin hófst árið 1956. „Við sigrum,“ segir Kevin Keegan. Hann átti stórleik er lið hans, Liverpool, sigraði Borussia 3—1 i Róm árið 1978. Hann er sá eini i liði HSV er hlotið hefur Evrópumeistaratitil félagsliða i knattspyrnu. Leikurinn í kvöld Þýska liðið Hamburger S.V. telja flestir sigurstanglegra í leiknum í kvöld en engin skyldi þó afskrifa sjálfa Evrópumeistarana, Nottingham Forest. Þeir hafa orðið fyri því óláni að einn þeirra • Fyrirliði Nottingham Forest John McGovern tekur á móti Evrópubikarnum í fyrravor í Mtinchen.Hampar hann hikarnum aftur í kvöld? besti leikmaður, Trevor Francis, getur ekki leikið með í kvöld vegna meiðsla, en það var einmitt millj- ón punda leikmaðurinn Francis sem tryggði Forest sigurinn í síðasta úrslitaleik með glæsilegu skallamarki á móti sænska liðinu Malmö FF. Leiðin á Bernabeau hefur verið ströng og erfið fyri bæði liðin. Forest hefur til dæmis slegið út Englandsmeistara Liverpool og Hamburger ekki lakari lið en Real Madrid. Einum leikamnni Ham- burger S.V. hefur tekist að verða Evrópumeistari áður. Það er Kev- in Keegan er sigraði með Liver- pool árið 1977 í Róm. Keegan er sannfærður um að lið hans, Ham- burger, sigri Forest. „Þetta verður erfiður leikur en við göngum með sigur af hólmi," segir Keegan. Framkvæmdastjóri Forest, Brian Clough, er ekki á sama máli. „Við eigum eftir að koma á óvart þrátt fyrir að við leikum án Trevor Francis," segir hann. En hver svo sem úrslit leiksins verða er fullvíst, að góð knattspyrna verður leikin og leikurinn verður spennandi og erfitt er að spá um úrslit. Lið Hamburger átti valkostinn með búninga og valdi að leika í alhvítum búningum. Hvítar peys- ur, hvítar buxur, hvítir sokkar. Hvers vegna hvítum? Jú, lið Real Madrid leikur ávallt í hvítum búningum á heimavelli og fram- kvæmdastjóri Hamburger S.V. Gúnter Netzer, sem á sínum tíma lék með Real Madrid er þess fullviss að áhorfendur styðji frek- ar það liðið sem leikur í hvítum búningi. Þá heldur Netzer því fram að liðið, er sló Real Madrid út úr keppni, fái meiri stuðning frá áhangendum þess en mótherj- arnir. Lið sem sigrar Real Madrid og slær það út úr Evrópukeppn- inni er verður Evrópumeistari. Real Madrid hefur oftast sigrað Það lið er hefur oftast sigrað í Evrópumeistarakeppninni í knattspyrnu í þau 24 ár sem keppt hefur verið er Real Madrid. Alls sex titlar hafa hafnað hjá liðinu. Þar af sigraði Real Madrid í fyrstu fimm skiptin sem keppninn fór fram. Sá leikmaður sem oftast hefur orðið Evrópumeistari með liði sínu er Spánverjinn Francisco Gento sem lék á vinstri kantinum hjá Real Madrid öll þau ár sem liðið sigraði í keppninni. Knattspyrnusnillingurinn Al- fredo Di Stefano skoraði hvorki meira né minna en 49 mörk með Real Madrid í Evrópumeistara- keppninni og það met stendur enn. Di Stefano var með Real Madrid er liðið sigraði í fyrstu keppninni og skoraði þá úrslitamarkið. Hann átti eftir að skora í öllum úrslita- leikjum liðsins. Árið 1960 skoraði hann þrennu á Hampden Park í Glasgow á móti Eintracht Frank- furt. Di Stefano sem af mörgum er álitinn einn besti knattspyrnu- maður fyrr og síðar kom til Real Madrid frá Millionarios í Kól- umbíu, og setti strax mikinn svip á spænska knattspyrnu. Di Stef- ano varð fyrstur til að skora úr vítaspyrnu í úrslitaleik keppninn- ar. Það var árið 1957, á Berna- beau-ieikvanginum, er Real Mad- rid mætti Fiorentia í úrslitaleik og sigraði 2—0. Síðan Di Stefano hætti að leika knattspyrnu hefur hann þjálfað meðal annars FC Valencia á Spáni. Ýmsir punktar um keppnina Alls hafa verið skoruð 86 mörk í þeim 24 úrslitaleikjum sem fram hafa farið. Flest mörkin voru skoruð árið 1960 á Hampden Park í Glasgow er Real Madrid sigraði Frankfurt 7—3. Þá var einnig sett aðsóknarmet, 135 þúsund áhorf- endur sáu ieikinn. Það met hefur ekki enn verið slegið. Brasilíumaðurinn Jose Altafini skoraði 14 mörk í Evrópukeppn- inni fyrir lið sitt A.C. Milan árið 1958. Ungverjinn Ferenc Puskas er sá eini sem skorað hefur fjórum sinnum í úrslitaleik. Hann skoraði fjögur af sjö mörkum Real Madrid á Hampden Park 1960. Puskas skoraði svo þrennu árið 1962 er Real Madrid tapaði 5—3 fyrir Benfica í Amsterdam. Pierino Pratti skoraði þrennu í úrslitaleik árið 1969 er lið hans A.C.Milan sigraði í keppninni og vann Ajax í Madrid 4—1. Keppnistímabilið 1959/60 voru áhorfendur á leikjum í meistara- keppninni til jafnaðar 51 þúsund á 52 kappleikjum sem fram fóru. Samantekt — þr. Úrslitaleikir frá upphafi HÉR á eftir fara úrslitin i öllum úrslitaleikjum Evrópumeistara- keppninnar í knattspyrnu frá því að hún hófst árið 1956. Fyrir aftan úrslit leiksins er tala áhorfenda. 1956: Parít Raal Madrid — Stada da Raima 4—3 38.000 1957: Madrid Raal Madrid — Fiorantina 2—0 124.000 1958: Bruxallaa Raal Madrid — AC Milan 3—2 67.000 1959: Stuttgart Raal Madrid — Stada da Raima 2—0 80.000 1960: Glaagow Raal Madrid — Eintracht Frankfurt 7—3 135.000 1961: Barn Banfica — FC Barcalona 3—2 28.000 1962: Amatardam Banfica — Raal Madrid 5—3 65.000 1963: Wombley AC Milan — Banfica 2—1 45.000 1964: Wian Intar — Raal Madrid 3—1 74.000 1965: Milano Intar — Banfica 1—0 80.000 1966: Bruxallaa Raal Madrid — Partizan Baograd 2—1 55.000 1967: Liaaabon Caltic Glaagow — Intar 2—1 56.000 1968: Wamblay Manchaatar Unitad — Banfica 4—1 100.000 1969: Madrid AC Milan — Ajax Amatardam 4—1 50.000 1970: Milano Fayanoord — Caltic Glaagow 2—1 50.000 1971: Wamblay Ajax Amatardam — Panathinaikoa 2—0 90.000 1972: Rottardam Ajax Amatardam — Intar 2—0 67.000 1973: Baograd Ajax Amatardam — Juvantua 1—0 93.500 1974: Bruxallaa Bayarn MUnchan — Atlatico Madrid .1—1 65.000 Bruxallaa Bayarn MUnchan — Atlatico Madrid 4—0 65.000 1975: Paria Bayarn MUnchan — L'aada Unitad 2—0 50.000 1976: Glaagow Bayarn MUnchan — AS St. Etianna 1—0 54.854 1977: Rom Livarpool — Bor Mönchangladbach 3—1 57.000 1978: Wamblay Livarpool — Club BrUgga 1—0 92.000 1979: MUnchan Nottingham Foraet — Malmö FF 1—0 57.500 Þrivegis hefur þurft að framlengja leik og árið 1974 þurfti að fara fram nýr leikur þar sem úrslit fengust ekki i fyrsta leiknum. Liðin sem leika í kvölcf Liðin sem leika á Estadio Santiago Bernabeu leikvanginum i kvöld verða skipuð eftirtöldum leikmönnum. Dómari verður Antonio Da Silva frá Portúgal. Hamburger SV Nottingham F. Rudi Kargus Peter Shilton Manfred Kaltz Viv Anderson Ivan Buljan Larry Lloyd Peter Nogly Kenny Burns Peter Hidien Frank Gray Casp. Memering John McGovern Dietmar Jakobs Stan Bowles Felix Magath Ian Bowyer Kevin Keegan Martin O’Neil Horst Hrubesch Gary Birtles Willi Reimann John Robertson Júrgen Stars Ian Bowyer H. Hieronymus David Needham Jimmy Hartwig Gary Mills Jurgen Milewski John O’Hare Brian Clough til vinstri á myndinni er maðurinn á bak við velgengni Forest. Hann á örugglega eftir að láta í sér heyra á vellinum í kvöld. Með honum er aðstoðarþjálfarinn Peter Taylor. Lið Péturs Péturssonar Feyenoord sigraði í keppninni árið 1970. Sigurmark liðsins skoraði sænski framlínumaðurinn Ove Kindvall. Hann sést til hægri á myndinni vera að skora sigurmarkið framhjá markmanni Celtics Williams.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.