Morgunblaðið - 28.05.1980, Síða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
Völsungar byr ja vel
VÖLSUNGAR. nýliðar í 2. deild, geta verið ánægðir með
byrjunina á hinu nýja keppnistimabili. Liðið fékk Austra frá
Eskifirði í heimsókn og sigraði með eina marki leiksins.
Heimaiiðið var vel að sigri sinum komið, það var heidur
sterkara lengst af og fékk betri tækifæri og fleiri til þess að
skora. Hápunktur leiksins var þó þegar Austfirðingarnir fcngu
vítaspyrnu, en Gunnar Straumiand, markvörður Völsunga,
gerði sér litið fyrir og varði spyrnuna. Sigurmarkið skoraði
síðan Helgi Benediktsson.
ÍBÍ sigraði Þrótt N
ísfirðingar kræktu sér heldur betur í dýrmæt stig, er liðið
brá sér austur á Neskaupstað og lék við Þrótt í 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu. Lokatölur leiksins urðu 3 — 2 ÍBÍ
i vil, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 2—1 fyrir ÍBÍ.
Tvennt vakti einkum athygli viðstaddra. Annars vegar tvær
einkennilegar vítaspyrnur sem dæmdar voru, hvor á sitt liðið. Þá
vakti það athygli, að Benedikt Valtýsson, þjálfari ÍBÍ, kappi sem
gerði garðinn frægan hjá ÍA, kom inn á sem varamaður og
skoraði glæsilega þriöja mark ÍBÍ 10 mínútum fyrir leikslok.
Hann innsiglaði sigur sinna manna, því hann kom stöðunni í 3—1.
Annars var gangur leiksins sá, að Björgúlfur Halldórsson kom
Þrótti í 1—0 eftir 13 mínútur. Andrés Kristjánsson jafnaði síðan
fyrir ÍBÍ úr einni af fyrrnefndum vítaspyrnum á 26. mínútu.
Sjálfsmark á 35. mínútu kom ÍBÍ síðan yfir fyrir hlé. Þá skoraði
Benedikt sem fyrr greinir, en lokaorðið í leiknum átti Þórhallur
Jónasson er hann sendi síðari „vítaspyrnuna" rétta boðleið.
-kj/gg,
3 mörk á 4 mínútum
afgreiddu Fylkismenn
Haukar hrepptu tvö stig í sínum fyrsta leik í 2,deild eftir eins
árs veru í 1. deild. Sigraði liðið Fylki 3—2 á malarveilinum á
Kaplakrika í merkilega fjörugum og góðum leik. Staðan í
hálfleik var 3—0 fyrir Hauka.
Það má með sanni segja, að Haukarnir hafi rotað Fylkismenn
einu sinni fyrir allt á fjögurra mínútna kafla, nánar tiltekið frá
9. mínútu til 13, minútu. Á þessu timabili skoruðu Haukar
nefnilega öll mörk sín og var því heldur betur á brattann að
sækja fyrir Fylkismenn, þó svo að þeim hafi næstum tekist að
klífa tindinn.
Ólafur Jóhannesson skoraði fyrsta markið á 9. mínútu. Hann
tók þá aukaspyrnu langt úti á vellinum og sendi háa sendingu að
marki. Ögmundur markvörður virtist hafa öil tök á að verja
léttilega, en missti síðan knöttinn einhvern veginn yfir höfuðið í
stöngina þaðan í hnakkann á sér og loks í netið. Var markið þess
eðlis, að ekki var annað en hægt að brosa að tilburðunum.
Aðeins mínútu síðar var Olafur aftur á ferðinni og þá með
mark af allt öðru sauðahúsi, þrumuskot, viðstöðulaust frá
vítateigslínu. Þriðja markið skoraði svo Sigríður Aðalsteinsson
tveimur mínútum síðar, þá opnaðist vörn Fylkis upp á gátt,
Loftur Eyjólfsson komst í gott færi, ögmundur varði vel, en
Sigurður náði að pota knettinum í netið.
Fylkismenn reyndu mjög að jafna í síðari hálfleik og tókst
næstum. Hilmar Sighvatsson skoraði laglega á 50. mínútu og
Fylkismenn voru aðgangsharðari alt til leiksloka. Þeim tókst að
skora aftur 10 mínútum fyrir leikslok, þá var Hilmar aftur á
ferðinni og skoraði úr þröngu færi.
Tveir leikmenn báru mjög af öðrum í þessum leik, einn í hvoru
liði. Ólafur Jóhannesson var allt í öllu hjá Haukum, skoraði mörk,
skilaði knettinum vel frá sér og var sívinnandi, og góður
leikmaður fyrir 2. deild. Sama er að segja um Hilmar
Sighvatsson, miðherja Fylkis. Þaö er gæðastimpill yfir flestu sem
hann gerir á leikvellinum, auk þess sem hann er markheppinn
með afbrigðum. -gg-
Fyrsti sigur
íra í 64 ar!
Pálminn í höndum
Bayern eftir ó-
vænt tap Hamburger
NORÐUR-írar sigruðu í bresku
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu sem lauk um helgina og
er ekki á hverjum degi sem þeir
afreka það. Liðið náði árangri
sinum með-því að sigra Wales
1—0 í síðasta leik sinum, Noel
Brotherstpne skoraði sigur-
markið. írarnir höfðu áður
sigrað Skota með sömu marka-
tölu og skilið jafnir við Eng-
landl-1.
En stóri leikur þessarar
keppni var að venju leikur Skota
og Englendinga, sem fór að
þessu sinni fram á Hampden
Park í Glasgow. Þetta var
hörkuleikur, en Englendingar
unnu mjög verðskuldaðan sigur
og léku á ný eins og liðið hefur
gert síðustu mánuðina allt fram
að fyrstu leikjum meistara-
keppninnar. Trevor Brooking
skoraði fyrra mark Englands
strax á 8. mínútu.
Johnson var aftur á ferðinni
er annað markið var skorað á 72.
mínútu. Hann náði þá tökum á
skoppandi knettinum og brunaði
einn að marki. Skosku varnar-
mennirnir heimtuðu auka-
spyrnu, töldu Johnson hafa
handleikið knöttinn, en hinn
portúgalski dómari sá ekkert
athugavert. Johnson geystist því
óáreittur að marki og sendi fyrir
til Steve Coppel, sem var í
dauðafæri. Alan Rough í marki
Skota var þó vel á verði og varði
meistaralega skot Coppels, hins
vegar gat hann engum vörnum
við komið er Coppel fékk knött-
inn út aftur og sá síðarnefndi lék
þá fram hjá markverðinum og
renndi knettinum í mannlaust
markið.
Loks skulum við líta á loka-
stöðuna í meistarakeppninni.
N-írland 3 2 1 0 3—1 5
England 3 111 4—5 3
Wales 3 1 0 2 4-3 2
Skotland 3 10 2 1—3 2
Hamburger SV tapaði þegar
liðið mátti alls ekki við slíku i
vestur þýsku deildarkeppninni
í knattspyrnu um helgina. Það
var Bayer Leverkusen sem sig-
raði HSV 2—1 og með sigri
sinum svo gott sem innsiglaði
Leverkusen sigurinn í deildinni
fyrir nágrannalið sitt Bayern
Munchen, sem notaði tækifærið,
sigraði Stuttgart 3—1 á útivelli
og tók forystuna í deildar-
keppninni þegar einni umferð
er ólokið. Staðan fyrir umferð
helgarinnar var sannarlega í
járnum. Bayern og HSV voru
jöfn að stigum og með jafna
markatölu. Nú hefur Bayern
náð tveggja stiga forystu, náð
betri markatölu og á eftir
auðveldasta leik sem hugsast
getur í sínum síðasta Ieik,
Eintrekt Braunschweig, lið sem
löngu er fallið í 2. deild. Úrslit
leikja um helgina urðu annars
sem hér segir.
Bayer Leverkuson —HamburKer SV 2—1
FC Köln — Werder Bremen 5—0
Bayer UerdinKen — Eintr. Frankfurt 3—2
1860 Munchen — Kaiserslautern 3—2
Bor. Dortmund —MSV Duisburj? 3—1
Fort. Dusseldorf —Hertha 4—0
Bayern Munchen—StuttKart 3—1
Bor. MönchenKl. —BraunschweÍK 3—0
Schalke 04 — Bochum 1 —0
Herz og og Hörster skoruðu
mörk Leverkusen gegn HSV á 4.
og 37. mínútu leiksins. Inn á
milli boraði Caspar Memering
marki fyri HSV, en þrátt fyrir
örvæntingarfullar tilraunir til
þess að jafna í síðari hálfleik,
varð HSV að sætta sig við tap og
sá liðið sennilega þar með af
titlinúm. Meðan á þessu stóð,
vann Bayern mjög athyglisverð-
an sigur á útivelli gegn Stutt-
gart. 70.000 áhorfendur misstu
málið er Udo Horsmann skoraði
fyrsta mark Bayern á 45.
mínútu, eftir að heimaliðið hafði
sótt nær látlaust. Elmer skoraði
síðan eftir mikið einstaklings-
framtak á 61. mínútu, en vítasp-
yrnumark George Volkert fyrir
Stuttgart dugði skammt, því
Dieter Höness skoraði þriðja
mark Bayern á 86. mínútu.
Kaiserslautern hékk í fjórða
sætinu þrátt fyrir tap gegn 1860
Munchen. Þar skoraði Scheller
sigurmark 1860 á síðustu mínútu
leiksins. Það var svekkjandi
fyrir leikmenn Kaiserslautern,
því liðið var lengst af sterkari
aðilinn á vellinum og var yfír í
SPÆNSKU meistararnir Real
Madrid eiga nú stórgóðan
möguleika á því að vinna tvö-
falt, þ.e.a.s. bæði deild og bikar.
Liðið tryggði sér um hclgina
rétt til að leika til úrslita um
spænska bikarinn með því að
sigra nágrannaliðið Atletiko
Madrid 5—4 eftir æsispennandi
vítaspyrnukeppni.
Staðan eftir venjulegan leik-
tíma var 1—1, Juanito skoraði
fyrst fyrir Real, en bakvörðurinn
Ruiz jafnaði síðan óvænt fyrir
Atletico þegar aðeins fimm
mínútur voru til leiksloka.
Real mætir í úrslitunum 2.
deildar liðinu Castilla, sem er í
raun og veru hálfgert varalið
Real. Castilla er nánast opinber
uppeldisstöð Real og dótturfyr-
irtæki. Þykir mörgum það held-
hálfleik 2—1. Gaye skoraði bæði
mörk Kaiserslautern, á 15. og 24.
mínútu leiksins. Keller hafði þó
náð forystunni fyrir 1860, en
Hedity jafnaði 2—2.
Sá leikmaður sem stal senunni
í þýsku knattspyrnunni var þó
án nokkurs vafa Englendingur-
inn Tony Woodcock, sem skoraði
fjögur mörk fyrir lið sitt FC
Köln gegn Werder Bremen, auk
þess sem hann átti allan heiður-
inn af fimmta markinu sem
markakóngurinn Dieter Muller
skoraði. Woodcock skoraði mörk
sín á 17.,66.,74. og 87. mínútu
leiksins, en Muller laumaði inn
sínu á 50. mínútu. Fall blasir nú
við Werder Bremen, liðinu sem
ætlaði sér að næla í Teit Þórðar-
son í vetur...
Ef rennt er yfir aðra leiki, þá
skoruðu þeir Christian Kulik,
Carsten Nielsen og Edward
Lienen mörk Mönchengladbach
gegn botnliðinu Braunschweig
og mörk þeirra Zewe, Klaus
Allofs, Seel og Wenzel sendu að
öllum líkindum Herhtu niður í 2.
deild.
1860 og Uerdingen björguðu
sér hins vegar þó ekki sé það
endanlega öruggt, mörk Uer-
dingen gegn Frankfurt skoruðu
þeir Funkel (2) og Mattson.
Lotterman og Nickel svöruðu
fyrir Frankfurt skömmu fyrir
leikslok. Þessi lið, ásamt Duis-
burg geta enn fallið niður, en
Duisburg bætti ekki stöðu sína
með því að tapa fyrir Dortmund.
Manfred Burgsmuller skoraði öll
mörk Dortmund en Rudi Seliger
skoraði eina mark Duisburg.
Staðan þegar ein umferð er eftir
er sem hér segir.
Bayern Munehen 33 21 6 6 82:32 48
Ilamburger SV 33 19 8 6 82:35 46
VFB Stuttgart 33 17 7 9 73:49 41
l.FC haiserlautcrn 33 18 4 11 73:51 40
l.FCKöln 33 13 9 11 71:55 35
Borussia Dortmund
33 14 7 12 62:54 35
Bor. MOnchelgl. 33 11 12 10 57:58 34
FC Scalke 04 33 12 9 12 40:47 33
Bayer Levcrkusen 33 12 8 13 43:57 32
Eintracht Frankfurt
33 15 1 17 64:60 31
VFL Bochum 33 12 6 15 36:42 30
Fortuna Dusseldorf 33 12 6 15 60:72 30
1860 Munchen 33 10 9 14 41:52 29
MSV Duisburg 33 11 7 15 43:55 29
Baycr Verdingen 33 12 5 16 43:60 29
Hertha BSC 33 10 7 16 37:59 27
WerderBremen 33 11 3 19 50:88 25
Eintr. Braunschweig
ur nöturlegur úrslitaleikur: Real
Madrid A-Real Madrid B!
En engum blöðum er um það
að fletta, að Castilla er vel að
sæti sínu í úrslitunum komið.
Liðið sló út nokkur 1. deildar lið
á leið sinni í úrslit, þar á meðal
Sporting Gijon í undanúrslitum,
en Sporting var í þriðja sæti
spænsku deildarinnar. Sporting
vann heimaleik sinn gegn Cast-
illa 2—0 og virtist því stefna i
úrslit. En leikmenn Castilla gáf-
ust ekki upp, þeir burstuðu lið
Gijon í síðari leiknum, heima-
leiknum sem fram fór á Santiago
Bernebau leikvanginum í Madr-
id. Lokatölur leiksins urðu 4—1
fyrir Castilla, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 3—0. Paco,
Lorenzo, Cido og Gallego skor-
uðu mörk Castilla, en Joaquin
svaraði fyrir Gijon.
Tulsa
í ham
JÓHANNESI Eðvaldssyni
og féiögum hans hjá Tulsa
Roughnecks gengur allt I
haginn þessa dagana. Liðið
vann enn einn sigurinn um
helgina, lagði Dallas Tor-
nado að velli og er sem
stendur efst i sínum riðli.
Alan Woodward skoraði
bæði mörk Tulsa í 2—1 sigri
liðsins, fyrra markið úr
vítaspyrnu og það siðara
með 30 metra þrumuskoti.
Cosmos
lagöi
FC Roma
GIORGIO Chinaglia skoraði
þrennu er New York Cosmos
sigraði italska liðið FC
Roma 5—3 í „Trans Atlant-
ic“ bikarkeppninni sem
stendur yfir i New Jersey
um þessar mundir. NYC
mætir Vancouver Whitecaps
i úrslitaleik áður en langt
um liður, en Roma og
Manchester City leika um
þriðja sætið i keppninni.
- klp fór holu
í höggi í
fjórða sinn
KJARTAN L. Pálsson, kylf-
ingur og blaðamaður með
meiru, varð svo frægur að
slá holu i höggi suður i
frlandi um hvitasunnuna, en
þar var hann staddur ásamt
einum 60 islenskum kylfing-
um öðrum. Slógu þeir upp
móti og Kjartan gekk á
lagið og sló holu i höggi.
Þetta var i f jórða skiptið
sem — klp fer holu í höggi
og skipaði hann sér þar með
á bekk með þeim Þorbirni
Kjærbo og Júliusi R. Július-
syni, sem höfðu báðir slegið
holu i höggi fjórum sinnum.
Uppgjörinu í
Grikklandi lokið
OLYMPIAKOS Pireus varð
griskur meistari í knatt-
spyrnu um helgina, liðið
lagði Aris Salonika að velli
2—0 og varð þar með meist-
ari. Liðin voru efst og jöfn
eftir hinar 34 umferðir sem
leiknar eru í Grikklandi og
varð því að snara á umrædd-
um aukaleik. Lcikurinn
þótti afar jafn og mörkin tvö
voru ckki skoruð fyrr en
rétt fyrir leikslok. Annað
þeirra skoraði Svíinn Al-
ström, síðara markið, en
hafði áður brennt af fjórum
dauðafærum.
Á sama tíma varð Kastor-
ia bikarmeistari, sigraði Ir-
akles mjög óvænt 5—2. Ir-
akles er eitt af sterkari
liðum Grikklands og úrslitin
komu á óvart vegna þess að
Kastoria slapp naumlega við
fall eftir veturinn og þótti
ekki líklegt til stórræðanna.
EÓP-mótiö
á fimmtudag
HIÐ árlega EÓP-mót í frjáls-
um íþróttum fer fram næst-
komandi fimmtudag á Laug-
ardalsvellinum og hefst kl.
20.00. Keppt verður meðal
annars í 110 m grinda-
hlaupi, 100 m hiaupi, 1500 m
hlaupi og stangarstökki
karla. Kringlukasti og
spjótkasti, 100 og 1500
metra hlaupi karla og 100
og 300 m hlaupi kvenna.
33 6 8 19 31:62 20
Real Madrid mætir
B-liðinu í úrslitum!