Morgunblaðið - 28.05.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.05.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1980 Mcnntaskólinn við Sund útskrifaði 181 stúdent í sl. viku. Athöfnin fór fram í Háskólabiói en mynd þessi var tekin að henni iokinni. Athugasemd um Olaf Ragnar o.fl. í rabbi síðustu Lesbókar gefur Björn Bjarnason ótvírætt í skyn, að ég hafi einkum átt við Ólaf Ragnar Grímsson, þegar ég í dagskrárgrein í Þjóðviljanum nefndi þá áráttu Alþýðubanda- lagsins að efla til áhrifa menn, sem ekki hefðu verið yfirlýstir sósíalistar. Björn er ekki einn um þessa túlkun. Ég varð fljótt munnlega var við þessa skoðun hjá furðu- mörgum, en hún sýnir einungis, hversu ofarlega Ólafur Ragnar er í hugum manna. Ég vil taka mjög eindregið fram, að ég hafði fjölda manns í huga, þegar ég skrifaði þessi orð. Það væri hinsvegar óhreinskilni að neita því, að Ólafur hefði verið þeirra á meðal. Hitt vil ég árétta, að enda þótt mér fyndist óviðeigandi aðdragandi hins skyndilega frama Ólafs Ragnars o.fl. innan Alþýðubandalagsins, þá er hann duglegur maður, sem kann að vinna, en það er meira en hægt er að segja um marga aðra. Það er ennfremur bert, að Morgunblaðið telur Ólaf Ragnar nú meðal hættulegri andstæðinga. Það er honum ákveðinn gæða- stimpill og meira virði en hót- fyndni manna af^mínu sauðahúsi. Árni Björnsson Trimmbrautir í Laugardal og skemmtanir á útivistarsvæðum Málverkasýning á Vopnafirði IIELGI Jósefsson opnaði aðra einkasýningu sína í barnaskóia Vopnafjarðar sl. föstudagskvöld. 23. maí. Helgi stundaði nám í mynd- lista- og handíðaskóla íslands veturna 1970—1974. Síðan hefur hann verið búsettur á Vopnafirði og kennt þar við grunnskólann. Helgi sýnir 47 verk sem unnin eru í pastel, vatnsliti og olíu. Á myndinni er Helgi við 3 mynda sinna, Skáldin frá Teigi, Vopna- fjarðarkirkja og Trúboðinn. Katrín. Nýkomin sending af hinum geysivinsælu LADA station Nýkomin sending af hinum vinsælu LADA station, sem hentar hvort sem er sem ferðabíll, fjölskyldubíII eða sem fyrirtækisbíll. Hann er fáanlegur í tveim útfærslum með 1200 sm3 vél eða 1500 sm3 og þá með vandaðri innréttingu. Pantið bílinn í dag áður en að hann selst upp rétt einu sinni. Síminn í söludeild er 31236. BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR Suðurlandsbraut 14, sími 38600 Söludeild 31236 ÚTISAMKOMUHALD í Laugar- dal og í Tjarnargarði í sumar. lagning trimm-. skíða- og göngu- brauta um Laugardalinn, og end- urvakning á fyrri tillögum um sjóbaðstað í Nauthólsvík, eru meðal tillagna samstarfsnefndar um „líf í borg“ og nýtingu útivist- arsvæðanna í áfangaskýrslu, sem viðkomandi nefndir eru að fá til umfjöllunar. Samstarfsnefndin var skipuð vegna tillagna borgarfulltrúa sjálfstæðismanna sl. sumar um sérstakt átak til að bæta aðstöðu til nýtingar og aukinnar athafna- semi á útivistarsvæðunum. í henni eru frá umhverfismálaráði Elín Pálmadóttir, sem er formaður og Örnólfur Thorlacius, frá íþrótta- ráði Gísli Þ. Sigurðsson og Sveinn Björnsson og frá æskulýðsráði Davíð Oddsson og Guðmundur Bjarnason. Hefur nefndin skilað áliti í þremur liðum, a) um tilraun til aukinnar athafnasemi í sumar á útivistarsvæðum, b) framtíðarnýt- ingu Öskjuhlíðar og Nauthólsvík- ursvæðisins og c) nýtingu útivist- arsvæðisins í Laugardal. Skemmtanir í Laugardal og Hljómskálagarði Tilraunina með skemmtanir á tveimur stöðum í sumar munu þeir Gestijr Ólafsson og Kristinn Ragn- arsson, sem hafa góða reynslu af skipulagi á útimarkaði, sjá um, og er þetta þegar í undirbúningi. Er Hljómar og Bubbi Morthens á SATT- kvöldi i kvöld I Morgunblaðinu laugardaginn 24. maí birtist frétt um SATT- kvöld sem haldið verður í Klúbbn- um, en þar koma fram hljómsveit: in Hljómar og Bubbi Morthens. í fréttinni segir að umrætt SATT kvöld verði þann 24. júní, en það er ekki rétt. SATT kvöldið verður í kvöld, 28. maí. Morgunblaðið biður hlutaðeig- andi velvirðingar á þessum mis- tökum. þar annars vegar um að ræða útiskemmtun í Laugardal í sam- vinnu við frjáls félög í nærliggj- andi hverfum, og munu félögin hafa þar svigrúm fyrir sína starf- semi. Hins vegar er skipulögð útiskemmtun í Hljómskálagarðin- um með dansi og skemmtiatriðum og miðað við að það sé regluleg fjölskylduskemmtun fyrir borgar- búa. En þeir Gestur og Kristinn munu reisa þar þjóðhátíðartjaldið, sem þeir keyptu af borginni. Ekki er búið að dagsetja þessar skemmtanir. Margvísleg starfsemi í Laugardal Laugardalssvæðið allt var tekið fyrir og endurmetið með tilliti til nýrra og gamalla hugmynda, og nýtingarþörf. Telur nefndin aug- ljóst að þörf verði fyrir allt svæðið í framtíðinni til íþrótta og útivist- arathafna í framhaldi af því sem þegar er áætlað. Hafa íþrótta- fulltrúi og garðyrkjustjóri gert áætlun um mislangar göngu- og trimmbrautir um dalinn, sem eitt fyrsta verkefnið og hefur íþrótta- ráð lýst áhuga sínum. Síðan er minnt á framtíðarverkefni, sem þar eigi heima eða geti átt heima, svo sem minigolf, fleiri knatt- spyrnuvelli, skautahöll, skauta- braut, squashaðstöðu, íþróttaað- stöðu fyrir fatlaða og lamaða, tennisvelli, aðstöðu fyrir lyft- ingamenn (gamla þvottalaugahús- ið er að fara undan átökunum) glíma, blak, og fleiri innanhús- greinar, íþróttahús fyrir ÍBR, auk- ið landrými fyrir TBR, íþróttahús fyrir ÍSI, aukin aðstaða fyrir ÍSÍ vegna námskeiða, æfinga o.fl. auk- in bílastæði vegna vaxandi starf- semi. Þá þarf í Laugardal að koma upp sýningarhúsi vegna grasa- garðs og ýmiss konar aðstöðu fyrir ræktunarstöðina o.m.fl. Þá er fjallað um skipulag, stjórnun, fjár- mögnun og stefnumörkun fyrir Laugardalssvæðið. Sjóbaðstaður í Nauthólsvík Þriðji liðurinn í áfangaskýrslu samstarfsnefndarinnar er fram- tíðarnýting útivistarsvæðisins í Öskjuhlíð og Nauthólsvík og teng- ing þess. Er lagt til að fyrri hugmyndir um sjóbaðstað í Naut- hólsvík, þar sem yfirfallsvatn úr hitavatnsgeymum hlýjar sjóinn, verði aftur upp teknar, nú með viðhlýtandi hreinlætisaðstöðu, baðstrandasandi, volgri sjólaug og veitingaaðstöðu. Að athafnasemi Æskulýðsráðs til siglinga verði þar við hliðina á og gert við gömlu bryggjuna, og að strandlengjan verði gerð aðgengilegri með stígum, útiborðum og bekkjum o.fl. Þá er gert ráð fyrir að sem minnst verði hróflað við landslags- einkennum Öskjuhlíðar, sern nýt- ist til almennrar útivistar, og verði áfram í umsjá Skógræktarfélags Reykjavikur og garðyrkjustjóra, skv. áætlun sem samþykkt var í borgarráði 1972, að tillögu þáver- andi náttúruverndarnefndar. 1200 kr. 3.960.000.- 1500 kr. 4.300.000.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.