Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
45
‘ } te 1 H í
ií i * fe l i! '»
a\ij i • i • i
ÉjT VELVAKANDI
U SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
ny ujjantPfLua'u ir
Hver munur er á þessu eða
útrýmingaræði Hitlers?
Það er einkenni kommúnista að
umhverfast í frekju, ef einhver
hefir kjark og hreinskilni til að
segja þeim sannleikann um þá
sjálfa og hina augljósu helstefnu
sem þeir kenna. En þeir sjálfir
telja sjálfsagt að draga andmæl-
endur sína niður í svað mannlegr-
ar fordæmingar með því að ausa
yfir þá þeim þeim mestu svívirð-
ingum sem málið á til. Þeir
bókstaflega ærast og tapa glór-
unni.
• Óhreint í poka-
horninu?
Einhver andmælandi Þor-
steins skrifaði að hann hefði lyft
Vigdísi í veldisstólinn á Bessa-
stöðum og mega þá ekki allir vel
við una? Auðvitað er Vigdís studd
af róttækum öflum, líkt og var við
síðasta forsetakjör. En það er
alvarlegra þegar hópar nytsamra
sakleysingja, sem þó þykjast
styðja frjálshyggju, láta ginna sig
til stuðnings við þann hóp, en það
Þessir hringdu . .
• Besta sem
ég hefi lesið
frá lækni.
María Markan hringdi.
Mínar beztu þakkir til Ingólfs
S. Sveinssonar geðlæknis vegna
innihalds greinar hans í Lesbók-
inni-síðustu, sem bar yfirskriftina
„Við erum ennþá að skipta mann-
eskjunni í sál og líkama“. Þetta er
það bezta sem ég hefi lesið á
prenti frá lækni og vil ég ráð-
leggja öllum að lesa þetta með
athygli.
Og fyrst ég er komin í samband
við Velvakanda þá langar mig að
senda sjónvarpinu okkar orðsend-
ingu. Þið sendið yfir okkur alveg
hroðalegar myndir þessa dagana,
og má þá sérstaklega nefna umtal-
aða ítalska mynd og ekki er
norska framhaldsmyndin betri.
Og mætti a.m.k. ekki vara fólk við.
Ég vona að þið farið nú að vakna
og hættið að sofa á verðinum,
ágætu sjónvarpsmenn.
SKAK
Umsjón: Margeir Pétursson
í vestur-þýzku deildakeppninni
í ár kom þessi staða upp í
viðureign þeirra Trcppner Ham-
burg, og G. Hartmanns, Núrn-
berg, sem hafði svart og átti leik.
36... Hxg2+!, 37. Kxg2 - Hg8+,
38. Kf3 - De4+, 39. Ke2 - Dc2+,
og hvítur gafst upp, því að hann er
óverjandi mát í næsta leik.
hefir oft áður gerst í fjölmörgum
málum fyrr og síðar.
í Morgunblaðið 15. maí skrifar
Helgi Hálfdanarson um „ofsóknir“
Þorsteins Sæmundssonar gegn
Vigdísi Finnbogadóttur. Eins og
ég hefi áður bent á, telst það ekki
til ofsókna að minna á staðreynd-
ir, sem flestir hafa heyrt og séð.
Ef þjóðin má ekki vita um lífsferil
frambjóðanda, þá verður manni á
að ætla að eitthvað ekki vel hreint
sé í pokahorninu. Helgi telur að
allt hefði svo sem verið í lagi að
safna nokkur hundruð eða jafnvel
þúsund undirskriftum. En að
meirihluti íslenskra kjósenda
skrifaði undir ávarp „Varins
lands" ótilneyddur og algerlega
frjáls, það var meira en breiðfylk-
ing kommúnista gat þolað.
• Kjósum þann
hæfasta — Pétur
Með tilliti til þess sem ég gat
um áður, um æðstu stöður án
þekkingar, mætti segja að á sama
stæði hver kjörinn yrði forseti, ef
allir væru jafn snauðir að þeirri
þekkingu og reynslu sem heilbrigð
skynsemi telur nauðsynlega þeim
er æðsta embætti þjóðarinnar
skipar. En því er ekki þann veg
farið nú, því hver maður veit að
Pétur Thorsteinsson ber höfuð og
herðar yfir alla hina frambjóðend-
urna hvað reynslu og þekkingu
snertir, um öll utanríkis- og inn-
lend mál, sem alvöruforseti þarf
að hafa.
Og með tilliti til hins ískyggi-
lega stjórnmálaástands sem nú
blasir við er mjög líklegt að komið
geti til kasta forseta um úrskurð í
hinum þýðingarmestu málum.
Hann hefði áreiðanlega verið
sjálfkjörinn ef ekki grúfði póli-
tískt náttmyrkur yfir þeirri
óstjórn sem nú ríkir hér á okkar
ágæta íslandi. Ég veit að það yrðu
þáttaskil til góðs ef þjóðin bæri
gæfu til að kjósa Pétur Thor-
steinsson í sæti forseta á Bessa-
stöðum.
Ingjaldur Tómasson
• Formúlan
herstöðva-
andstæðingur
Til Velvakanda
Mig langar aðeins að svara
þeim spurningum sem Þorsteinn
Hjaltason beindi að mér í Velvak-
anda þann 22. maí.
Auðvitað hefði mér ekki fundist
'það æskilegt að nasistar hefðu
hertekið landið og Island hlotið
sömu örlög og Noregur. En það
sem mér finnst leiðinlegt er það að
Bandaríkjaher varð eftir í landinu
eftir að stríði lauk, og ég var
búinn að útskýra hvernig mundi
mjög líklega fara ef Banda-
ríkjamenn eða Rússar hertækju
landið. Það kann einhver að segja
að ef herstöðin er á landinu geti
Rússar ekki hertekið landið, en ég
hef eftir talsmanni bandarísku
herstöðvarinnar að herstöðin á
Miðnesheiði geti ekki varist árás
nema í þrjá klukkutíma, og þessar
heimildir ættu að geta kallast
traustar.
I sambandi við veru kjarnorku-
vopna á Islandi, vildi ég gjarnan
fá að vita hvaðan hann hefur þær
upplýsingar að enginn kjarnorku-
vopn séu á landinu þegar virt
amerísk vísindablöð og herfræð-
ingar (kannski sálsjúkir kommún-
istar) haldi öðru fram.
Og svo vildi ég benda á, að
formúlan herstöðvaandstæðingur
= kommi er ekki alltaf rétt, það
getur verið að allir kommúnistar
séu herstöðvaandstæðingar en því
þarf ekki að vera öfugt-farið.
Kjartan P. Emilsson
Lindargötu 39.
HÖGNI HREKKVÍSI
„FGóE AÐ HANN HÉFUÍ5 LBIOT ó'E?
DEe irBý L15-LÖ^F(?££)i HG / "
SlGeA v/gga s. itLvtmi
RENNIBEKKIR
RR BYGGINGAVORUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Nýtt — Nýtt
Kjólar í stæröum 36—52.
Sokkar í stæröum 36—52.
Pils og blússur í stæröum 36—50.
Dragtir glæsilegt úrval.
Dragtin Klapparstíg 37.
SÍMASKRÁNA
íMíöarkópu!
Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra
notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr
og þá geta skapast vandræði. Forðum því.
Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin.
Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. ®
Hafið samband við sölumann.
Múlalundur
Ármúla 34 — Símar 38400 og 38401 — 105 Reykjavík
ýIaQuZ <3o0
WKl6foAN/\,<
NvíAO ÁRT/% ÁtlM,)
{ Vú ÁÍT 49 LÁfA VÁ WLAúVA