Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 39

Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1980 47 Hermenn bera burt lík uppreisnarmanns sem íéll í skotbardaRa í Kwangju þegar borginni var náð úrhöndum uppreisnarmanna. Pakistan: Ákvæði her- laga hert Islamahad. 27. maí. AP. Herforingjastjórn í Pakistan hefur hert ákvæði herlaganna. sem í gildi eru í landinu. og héðan í frá er heimilt að hand- taka án skýringa hvern þann sem „telst ögrun við þjóðaröryggi“ og hafa hann í haldi svo lengi sem þurfa þykir án þess að hann sé ákærður eða honum gefinn kost- ur á að svara til saka fyrir rétti. Þá hefur stjórn Zia Ul-Haqs áréttað fyrri yfirlýsingar um að þeir sem ekki virði til fullnustu það bann við stjórnmálaafskiptum sem í gildi. er í landinu eigi yfir höfði sér allt að 14 ára fangelsis- dóm. Ýmsir telja þetta fyrirboða þess að þekktir stjórnarandstæðingar verði handteknir á næstunni, en á fimmtudaginn var náinn vinur Bhutto-fjölskyldunnar handtek- inn fyrir að dreifa áróðri. Bugojno: Rpffin p’pHp hrpvt- Kurpov sigruöi M. T IIEIMSMEISTARINN í skák, Ana- 5,5 vinningar, Kuraica, Ivkov, ^ ^ ^ tnlv Kitrnnv trvirirAI viirnr á 11 *. c : ir l~l. * . ingar á st jórn sinni Jerúsalom, 27. maí. AP. MENACHIM Begin, forsæt- isráðherra Israels gerði í dag breytingar á stjórn sinni í kjölfar afsagnar Ez- er Weizman, varnarmála- ráðherra um helgina. Að sögn heimilda í Israel þá verður Yitzhak Shamir, utanríkisráðherra, varn- armálaráðherra í stað Weizman. Shamir fylgir svipaðri stefnu og Begin í málefnum herteknu svæð- anna. Yitzhak Modai, sem gegnt hefur embætti orku- málaráðherra, verður utan- ríkisráðherra. Eftirmaður hans hefði ekki verið út- nefndur. Wéizman sagði af sér embætti varnarmálaráðherra í mótmæla- um verður áfram haldið. Klerkum sleppt úr haldi í S-Afríku skyni við stefnu Begins í málefn- um herteknu svæðanna. Hann ásakaði Begin um óbilgirni og að hafa „glatað stórkostlegu tæki- færi“ til að semja um frið. „Leiðin að friði er greið — en enginn velur þá leið,“ skrifaði Wizman í afsagn- arbréfi sínu. Begin ásakaði Weizman um að reyna að koma sér úr embætti. Vantrauststillaga var borin fram á ísraelska þinginu í dag en hún var felld með 51 atkvæði gegn 5 — 25 þingmenn sátu hjá. Frestur sá, sem saminn var um í Camp David samkomulaginu, um samkomulag um lausn Palestínu- vandamálsins, rann út í gær. Ekkert samkomulag er í sjónmáli og Weizman ásakaði Begin um að láta tækifærið um friðarsamning renna úr greipum sér. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær viðræð- Ezer Weizman HuKojno. 24. mái. ÁP. IIEIMSMEISTARINN í skák, Ana toly Karpov, tryggði sér sigur á alþjóðaskákmótinu í Bugojno i Júgóslaviu með því að sigra í fimm síðustu skákum sínum — hreint ótrúlegt afrek í jafn sterku móti en styrkleikagráða mótsins í Bugojno var 15. Karpov sigraði Júgóslavann Gligoric í síðustu umferð mótsins og tryggði sér með því efsta sætið en Bent Larsen, sem hafði forustu lengst af, varð að gera sér annað sætið að góðu. Ilann gerði jafntcfli við Júgóslavann Ljubojevic eftir 96 leiki — náði ekki að knýja fram sigur. Urslit í síðustu umferð urðu: Tal, Sovét — Ivkov, Júgóslavíu, jafntefli, Timman, Hollandi —Hort, Tékkó- slóvakíu, jafntefli, Kavalek, Banda- rikjunum — Polugaevsky, Sovét, jafntefli, Larsen, Danmörku — Ljubojevic, Júgóslavíu, jafntefli, Karpov Sovét, — Gligoric, Júgó- slavíu 1—0, Kuraica, Júgóslavíu — Anderson, Svíþjóð 1—0. Lokastaðan í mótinu varð: Karpov 8 vinningar, Larsen 7,5 vinningar, Trimman 6,5 vinningar, Ljubojevic, Polugaevsky, Anderson 5,5 vinningar, Kuraica, Ivkov, Tal, Hort, 5 vinningar, Kavalek 4 vinn- ingar, Gligoric 3,5 vinningar. Ungverji í sovésku geimfari Moskvu, 26. maí. AP. SOVÉTMENN skutu á loft mönnuðu geimfari í dag. Um borð eru tveir geimfarar, Sovétmaðurinn Valery Kubasov og Ungverjinn Bertalan Farkas. Kubasov er í sinni þriðju geimferð. TASS-fréttastofan skýrði frá förinni og sagði, að geimfar þeirra félaga hefði verið tengt við geimstöðina Salyut 6. Þar eru fyrir tveir sovéskir geimfarar, Leonid Popov og Valery Ryumin, en þeir fóru á braut um jörðu 9. apríl síðastliðinn. ERLENT JóhannesarhorK. 27. maí. AP. S-AFRÍSKA lögreglan sleppti í dag úr haldi 53 kirkjunnar mönnum eftir að hafa haldið þeim í fangelsi í sólarhring. Hins vegar var 56 mönnum, þar á meðal háskólakennurum, kenn- urum og ncmendum haldið í fangelsi eftir að hafa verið teknir fastir á mánudag. Fjölmargir klerkar fóru í mótmælagöngu á mánudag vegna handtöku klerks- ins John Thorne, en hann hafði lýst yfir stuðningi við mótmæla- aðgerðir skólanemenda undan- farið. Meðal hinna handtekni voru 35 hvítir menn. Hópur fólks safnaðist saman fyrir utan dómshúsið þar sem klerkunum var haldið og söng sálma. Lögreglan dreifði hópnum og skömmu síðar var klerkunum sleppt úr haldi. Víða kom til mótmælaaðgerða í S-Afríku í dag. Stjórnvöld tilkynntu í dag, að nemendur yrðu ekki reknir úr skóla þó þeir hafi tekið þátt í mótmælaaðgerðum undanfarið. Þetta þykir benda til þess, að stjórnvöld vilji koma nokkuð til móts við kröfur um réttlátara menntakerfi. Sem fyrr mættu sárafáir nem- endur af lituðum kynstofni til skóla. Þeir krefjast þess, að menntastofnanir þeirra sitji við sama borð og hvítra. Stjórnvöld eyða nú um 800 dollurum á hvern hvítan nemenda, en aðeins 200 á hvern kynblending og 100 dollur- um á hvern blökkumann. Áhrifamesti trúarleiðtogi blökkumanna, Desmond Tutu biskup, var meðal þeirra sem voru handteknir. Hann hélt blaða- mannafund eftir að honum var sleppt úr haldi. Hann sagði, að klerkarnir sem tóku þátt í mót- mælaaðgerðunum hafi verið með- limir SÁCC, en það eru samtök 15 milljóna blökkumanna og kyn- blendinga. Pólland: Áttatíu andófs- menn handteknir Varsjá, 27. maí. AP. LÖGREGLAN í Sandomierz handtók um 80 andófsmenn. scm voru að mótmæla fangels- un bónda nokkurs. Flestir and- ófsmanna voru handteknir á föstudaginn var þar sem þeir voru að dreifa hæklingum á almannafæri. Eftir tvo sólar- hringa í gæzluvarðhaldi var þeim flestum sleppt. en margir voru handteknir aftur á mánu- dag. Meðal hinna handteknu voru tveir félagar í andófsmanna- hreyfingunni KOR, þau Jan Joz- ef Lipski, rithöfundur og Halina Mikolajska, sem er leikkona. Eftir handtökuna á mánudag voru þau send til Varsjár, en andófsmenn telja að um 30 manns hafi setið í gæzluvarð- haldi samfleytt frá því á föstu- daginn. Kozlowski heitir bóndinn, sem mótmælaaðgerðirnar hafa snúizt um, en fjöldi andófs- manna kom til Sanomierz að vera við réttarhöld í máli hans. Hann var á sínum tíma dæmdur í tveggja ára fangelsi, fyrir að hafa barið mann, sem andófs- menn segja alræmdan fyrir of- beldi, en Kozlowski hefur nú áfrýjað máli sínu og fellur dóm- ur í því á fimmtudaginn kemur. Kreisky varar við frejsari þvingunum á hendur írönum Tcheran. WashinKton. Aþenu. 27. maí. AP. BRUNO Kreisky, kanslari Austurríkis, sagði í Aþenu í dag, að ný viðskiptabönn og þvinganir á hendur íran, myndu einungis hafa í för með sér, að lausn gíslamálsins drægist enn á langinn. Jimmy Carter, forscti Bandaríkjanna, ihugar nú að fá Sameinuðu þjóðirnar til að samþykkja viðskitabann á íran. „Ef til kæmi. myndi það einungis skapa nýja erfiðleika,“ sagði Kreisky í Aþenu á leið til Vínarborgar frá Teheran. Kreisky var í Teheran ásamt þeim Olof Palme, leiðtoga jafnað- armanna í Svíþjóð, og Felipe Gonzales, leiðtoga sósíalista á Spáni. Gonzales tók í sama streng og Kreisky við komuna til Madríd. Þeir Kreisky, Palme og Gonzales ræddu við Bani-Sadr, forseta Irans, Sadegh Ghotbzadeh, utan- ríkisráðherra og meðlimi íranska byltingarráðsins. „Gíslamálið var eitt af mörgum málum til umræðu í Teheran," sagði Kreisky við fréttamenn í Aþenu. Hann sagði, að þeim félögum hefði virst sem írönskum stjórnvöldum væri í mun að leysa deilu sína við Bandaríkin. Bandaríkin íhuga nú að leggja deilu sína við íran fyrir Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar úrskurð- ar Alþjóðadómstólsins í Haag um að írönum beri að skila gíslunum. Warren Christopher, aðstoðarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í Washington í dag, að það væri vísbending um breytta stefnu Sovétmanna, að fulltrúar Sov- étríkjanna og Póllands í Alþjóða- dómstólnum hefðu báðir greitt atkvæði með því, að írönskum stjórnvöldum beri að skila gíslun- íranska fréttastofan PARS skýrði frá því í dag, að átta írakar hefðu verið teknir höndum í borg- inni Ilam. Þeir voru með sprengi- efni og vopn í fórum sínum. íröhsk C-130 flutningavél flaug í dag lágt yfir bandaríska skipinu La Salle á Persaflóa. Flugvélin sneri fljótl- ega til baka. Atvikið er hið fyrsta sinnar tegundar í flóanum. Talið er að íranir hafi verið að mynda La Salle.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.