Morgunblaðið - 04.06.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980
5
HELGI Pétursson, sem gegnir ritstjórastöríum við Vikuna, skrifaði ríkissaksókn-
ara bréf í sambandi við útgáfu kosningabæklings eins forsetaframbjóðandans, sem
er sérprentun á kynningarefni um frambjóðandann, sem birtist í vikunni, og krafðist
opinberrar rannsóknar á tildrögum umrædds bæklings. Af þessu tilefni hefur stjórn
Hilmis hf., útgáfufélags Vikunnar, sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu, svo og
ritstjórinn, sem í yfirlýsingu dregur til baka kröfu sína um opinbera rannsókn.
Yfirlýsingarnar fara hér á eftir.
Ritstjóri Vikunnar opinber stuðn-
ingsmaður forsetaframbjóðanda:
Starfsheitið ritstjóri
tengdi hann við blaðið
- segir útgáfu-
stjórnin
Yfirlýsing frá stjórn Hilmis hf.
VEGNA bréfs afleysingaritstjóra
Vikunnar, Helga Péturssonar, til
ríkissaksóknara í sambandi við
útgáfu kðsningabæklings eins af
forsetaframbjóðendum vill stjórn
Hilmis hf., útgáfufélags Vikunn-
ar, taka þetta fram:
1. Það er margra ára hefð, að
fyrirtækið selji litgreiningar og
annað prentefni, þótt slíkt hafi
áður verið notað í blaðið. Öll slík
viðskipti eru jafnan gerð af
framkvæmdastjórn félagsins og
jafnan án samráðs við ritstjóra,
enda er slíkt efni ætíð notað við
gerð auglýsingaefnis.
2. í sambandi við væntanlegar
forsetakosningar var sú ákvörðun
tekin, að blaðið Vikan skyldi vera
hlutlaust og fjalla jafnt um
framboð þeirra allra, er í fram-
boði eru. Þetta var gert og þótti
felstum vel heppnað.
3. Þrír af frambjóðendum hafa
fengið það efni, sem Vikan birti.
Þar af hafa stuðningsmenn
tveggja fengið keyptar sérstak-
lega litgreiningar myndefnis.
Stuðningsmenn eins frambjóð-
anda hafa síðan tekið úrvinnslu
Vikunnar næstum óbreytta og
sérprentað sem kosningabækling.
Útgáfustjórn Vikunnar þykir
verra, að nafn blaðsins skyldi
ekki máð út, svo og að ekki skyldi
getið, að þetta væri sérprentun úr
Vikunni. Það er hins vegar mat
stjórnarinnar, að hér hafi
athugaleysi við frágang bækl-
ingsins ráðið, en að öðru leyti
hafi notkun myndaefnisins verið
heimil. Því telur stjórnin ástæðu-
laust, að félagið beiti nokkrum
aðgerðum vegna þessa máls.
4. Stjórn félagsins þótti heldur
miður, er starfandi ritstjóri Vik-
unnar gerðist opinber stuðnings-
maður eins forsetaframbjóðanda
og notaði þar starfsheitið rit-
stjóri, sem óhjákvæmilega tengdi
hann við blaðið. Það þótti hins
vegar á sínum tíma rétt að láta
kyrrt liggja, enda fullvissaði
Helgi Pétursson stjórnarformann
um, að hann mundi gæta fyllsta
hlutleysis í starfi sínu á ritstjórn
Vikunnar.
5. Stjórnin harmar, að blaðið
Vikan skuli hafa orðið tilefni
deilna í sambandi við væntan-
legar forsetakosningar.
Sveinn R. Eyjólfsson,
Benedikt Jónsson,
Jónas Kristjánsson.
Ritstjóri Vikunnar:
Afturkalla beiðni um
opinbera rannsókn
Vegna yfirlýsingar frá stjórn
Hilmis hf. um bréf mitt til
ríkissaksóknara og útgáfu kosn-
ingabæklings eins forsetafram-
bjóðandans þar sem efni og nafn
Vikunnar er notað, vil ég taka
fram eftirfarandi:
Fyrir mér hefur aðeins vakað
að standa vörð um þá grundvall-
arreglu blaðamennskunnar, að
útgefendum sé óheimilt að með-
höndla eða selja vinnu blaða-
manna að vild sinni án vitundar
og vilja ritstjóra og ábyrgðar-
manna viðkomandi útgáfu, né
víkja frá samþykktri ritstjórn-
arstefnu.
Með því að útgáfustjórn Vik-
unnar hefur viðurkennt, að henni
þyki „verra" að nafn blaðsins
skyldi ekki máð út af kosninga-
hæklingnum, svo og að þess
skyldi ekki getið, að þetta væri
sérprentun úr Vikunni tel ég að
tilgangi mínum sé náð. Fram
kemur að „athugunarleysi" hafi
ráðið en ekki ásetningur og er
skylt að taka þær málsbætur til
greina.
Með tiiliti til þeirra úrslita sem
ég tel að felist í yfirlýsingu
stjórnar Hilmis hf. hef ég ákveðið
að afturkalla beiðni mína til
ríkissaksóknara um opinbera
rannsókn á tildrögum umrædds
kosningabæklings.
Það er von mín að þessi við-
skipti mín og útgáfustjórnar Vik-
unnar verði ekki með öllu þýð-
ingarlaus fyrir blaðamannastétt-
ina og þau geti stuðlað að því að
skapa fordæmi fyrir réttum og
eðlilegum samskiptum útgáfuað-
ila og ritstjóra.
Að endingu vil ég taka það
skýrt fram, að ég harma ef þessi
deila hefur á einhvern hátt skað-
að forsetaframboð Alberts Guð-
mundssonar, en af minni hálfu
hefur á engan hátt verið vefengt
að stuðningsmenn hans hafi sýnt
rétta framkomu í alla staði.
Deilan var hins vegar óhjá-
kvæmileg, þar sem hún snerist
um grundvallaratriði í blaða-
mennsku.
Helgi Pétursson
ritstjóri.
Áætlaður kostnaður við
myndina um Snorra
Sturluson 230 millj. kr.
SAMKVÆMT kostnaðaráætl-
un, sem gerð var um miðjan
mái sl. var áætlað að gerð
myndarinnar um Snorra
Sturluson, sem sjónvarpið vinn-
Gunnar baðst
undan setu í
sáttanefnd
VEGNA fréttar um skipun sátta-
nefndar í deilu ASÍ og VSÍ í
sunnudagsblaðinu, skal þess getið
að Gunnar G. Schram baðst undan
því að taka sæti í sáttanefndinni,
þar sem hann gegnir störfum
sáttasemjara í flugmannadeil-
unni.
ur nú að kosti 230,8 milljónir
ísl króna.
Að sögn Helga Gestssonar,
framkvæmdastjóra myndarinn-
ar, hefur launahækkun sú, sem
varð 1. júní sl. og nam 11,7%,
ekki verið reiknuð inn í kostnað-
aráætlunina.
Helgi sagði, að samkvæmt
áætluninni væri útlagður kostn-
aður við gerð myndarinnar um
157 milljónir króna og fastur
kostnaður sjónvarpsins um 73
milljónir króna. Myndin er gerð í
samvinnu við norska og danska
sjónvarpið og bera þeir rétt
tæpan þriðjung af útlögðum
kostnaði eða um 50 milljónir ísl.
króna.
Hlutverk í myndinni eru lið-
lega 40 en auk þess starfa beint
að gerð hennar 20 starfsmenn
sjónvarpsins.
Aukin þátt-
taka í alt-
arisgöngu
í NÝLEGU fréttabréfi biskups-
stofu kemur fram, að mikil aukn-
ing hefur orðið á þátttöku í
altarisgöngum og kemur þar enn-
fremur fram að 3—4 komi með
hverju fermingarbarni til altaris.
Fyrir nokkrum árum komu að-
eins foreldrar barnanna eða jafn-
vel barnið eitt.
Ofvitinn til
Akureyrar
Leikfélag Reykjavíkur mun i
næstu viku sýna Ofvitann á
Akureyri og verður fyrsta sýn-
ingin mánudaginn 9. júni i sam-
komuhúsinu.
Mjög mikil aðsókn hefur verið að
þessari sýningu í vetur og eru
áhorfendur nú orðnir yfir 20 þús-
und. Leikstjóri er sem kunnugt er
Kjartan Ragnarsson, en hann gerði
jafnframt leikgerðina eftir sögu
Þórbergs Þórðarsonar. Alls koma
16 leikarar fram í sýningunni.
Á meðan Leikfélag Reykjavíkur
sýnir fyrir norðan kemur Leikfélag
Akureyrar suður og sýnir „Fyrsta
öngstræti til hægri“ eftir Örn
Bjarnason og „Beðið eftir Godot“
eftir Samuel Beckett, en það verk
flutti LR fyrir réttum tuttugu
árum. Sýning Leikfélags Akureyrar
á þessu fræga verki verður þluti
listahátíðar. Sýningarnar á báðum
verkunum verða í Iðnó.
BRXTTAKtA
Jón Hjartarson. Valgerður Dan,
Emil Guðmundsaon og Soffía
Jakobsdóttir i hlutverkum ainum
i Ofvitanum.
Austurstræti 10
sími: 27211
TOMBOLUVERÐ
12.500.-
Seljum í dag og næstu daga stök númer í Brittania-
flauelsbuxum á aöeins 12.500.- krónur.