Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980 27 Margir sjúkling- ar hafa þörf fyrir slíka heilsu- bótaraðstöðu í Suðurlöndum - segir Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs skoða hvernig tekst til um þetta í hinum ýmsu þjóðlöndum og reyna að samræma skoðanir á því hvern- ig beri að standa að verki til að sem bestur árangur náist. Það er því fróðlegt að skoða hvernig við íslendingar stöndum að vígi í rannsókna- og þróunar- starfi (r og þ) í þessu alþjóðlega samhengi. Rannsóknaráð ríkisins hefur annað hvert ár gert könnun á því, hve miklu fjármagni við verjum til rannsókna- og þróunarstarfs og hve margir taka þátt í slíkum störfum. Nú liggja fyrir upplýs- ingar um þetta fyrir árið 1977, sem byggðar eru á víðtækri könn- un hjá fyrirtækjum og stofnunum í samræmi við skilgreiningar sem settar eru fram af OECD og í tengslum við samskonar athugan- ir í öðrum löndum. Helstu niðurstöður könnunar- innar eru sýndar á neðstu línunni á mynd I. Arið 1977 vörðu íslend- ingar þannig 2585 millj. kr. til hreinna rannsókna- og þróunar- starfsemi, sem var 0.71% af vergri þjóðarframleiðslu það ár. Við rannsóknastörf voru unnin sem svarar 631 ársverki, sem er 0.63% af þeim ársverkum sem unnin voru það ár. Til samanburðar eru í efri línunum sýndar tölur fyrir nokkur undanfarin ár þegar slíkar athuganir voru gerðar. í samanburði við önnur OECD- lönd (mynd 2) erum við í 4.-5. lægsta sæti þegar miðað er við fjármagn til rannsókna sem hundraðshluta þjóðartekna. Ein- ungis Portúgal, Spánn og Tyrk- land eru lægri. Samanburðurinn er hagstæðari þegar litið er á mannaflann, en þar erum við með svipað hlutfall og Danir og Finn- ar. Á heildina litið sýnist (mynd 3) þó heldur þokast í áttina hjá okkur í alþjóðlegum samanburði frá því sem verið hefur, sérstak- lega þegar miðað er við mæli- kvarðann mannafla við rann- sóknastörf. Hér vantar okkur þó sambærilegar upplýsingar frá öðrum löndum árið 1977. Tiltölulega ör vöxtur hefur orðið í mannafla við r og þ störf á undanförnum árum. Tvöföldun á árabilinu 1971—1977. Sérstaklega ör var vöxturinn milli 1973 og 1975. Yfirlit um fjármagnið til þess- ara mála sem hlutfall af þjóðar- tekjum er sýnt á mynd 4 til samanburðar. Þar eru hlutfalls- legar breytingar minni og raunar hefur orðið samdráttur frá 1975 til 1977. Brotna línan sýnir hér fjár- magnið þegar ekki er talin með óvenjumikil fjárfesting sem varð árið 1975 í rannsóknaskipi, o.fl. Það er eftirtektarvert að horfa á hinar ört hækkandi línur fyrir V-Þýskaland og Japan, sem eru einmitt þau lönd sem best hafa komið út úr samkeppnis- og efna- hagsvanda í kjölfar orkukrepp- unnar, þótt hvorugt landið fram- leiði eigin olíu. Fróðlegt er að skoða hvernig hlutfall helstu þátta r og þ starfs hafa breyst á undanförnum árum (mynd 6). Við tökum árin 1961, 1971 og 1977 til samanburðar. Þannig hefur hlutur háskólans (í súluriti undir heitinu „æðri menntastofnanir") í heildarfjár- magni til rannsókna aukist úr tæplega 16% árið 1961 í 22% árið 1971 og 26% árið 1977. Hlutur rannsóknastofnana atvinnuveg- anna varð mestur 48% árið 1971, en hefur síðan dregist hlutfalls- lega saman og varð 39% árið 1977. Hlutur sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í dálkunum tveim lengst til hægri í myndinni virðist fara vaxandi hin síðari ár, eða frá 1% 1971 upp í 4-5% árið 1977 í hvoru tilviki. Á mynd 5 er starfslið við rannsóknastörf mælt í ársverkum sýnt á súluritum fyrir árin 1971, 1975 og 1977. Sést þar að nokkuð örar breytingar hafa orðið á mannafla á öllum sviðunum á þessu tímabili. Ef mannaflatölur 1975 og 1977 eru bornar saman (mynd 7) sést að á milli þessara ára hefur í heild orðið 24% aukning á starfsliði við rannsóknastörf mælt í mannárum eins og neðsta línan í þessari mynd sýnir. Vöxturinn hjá háskól- anum hefur hins vegar verið mun örari en þetta, eða 40%, en hjá rannsóknastofnunum atvinnuveg- anna 19%. Sýnir þetta án efa þá þróun að háskólakennarar taka nú í vaxandi mæli að stunda rann- sóknir eftir að uppbyggingu há- skólakennslunnar um og upp úr 1970 er að mestu afstaðin. Hjá atvinnufyrirtækjum hefur starfs- liði við rannsóknir fjölgað úr 6,5 mannárum 1975 í 11,1 árið 1977 og er það rúmlega 70% aukning, sem vissulega er ánægjuleg þróun þrátt fyrir það að þetta séu enn lágar tölur á heildina litið. Þetta vona ég þó að sé vísir að meiri þátttöku fyrirtækja í r og þ starfi, þar sem opinber fjármögnun og opinber framkvæmd rannsókna er annars alls ráðandi, eins og ég kem nánar að á eftir. „ÞETTA mál er enn á frum- stigi og það er því óljóst enn með hvaða hætti þessi heilsu- bótaraðstaða yrði nákvæm- lega, ef af verður,“ sagði Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs i Reykja- vík og Iiafnarfirði, er hann var spurður nánar út í ráða- gerðir Sjómannadagsráðs um að koma upp heilsubótarað- stöðu í Portúgal i samvinnu við fleiri islenska aðila. Pétur greindi nokkuð frá samþykkt aðalfundar Sjómannadags- ráðs um þetta mál i viðtali i Morgunblaðinu á sunnudag. Pétur sagöi að einkum hefði verið rætt um að hafa samráð um þetta mál við Öryrkjabandalagið og einnig yrði málið rætt við aðila í verkalýðshreyfingunni, hags- muna- og góðgerðarsamtök. „Við munum að sjálfsögðu einnig leita ráða hjá forystumönnum Sölu- sambands íslenskra fiskframleið- enda, en á þeim hefur hvílt meginþungi þess að halda uppi viðskiptum okkar við Portúgal. Þeir eru því manna best kunnugir öllum aðstæðum þarna. Þá hefur Tryggingaráð þegar viðurkennt þörfina á slíkri heilsubót með því að greiða kostnað við sólarferðir eins hóps sjúklinga, sem þarf á sól að halda sér til lækninga. Við munum einnig ræða við fulltrúa í Tryggingaráði um þetta mál,“ sagði Pétur. Fram kom hjá Pétri að fulltrúar í Sjómannadagsráði hefðu haldið einn fund til að ræða þetta mál og hefðu þeir skipt á milli sín að hafa samband við þá, sem kynnu að hafa áhuga á þessu máli. Ekki sagðist Pétur neitt geta sagt til um, hversu mikil eða stór þessi heilsubótaraðstaða yrði, ef ráðist yrði í að koma henni upp, en ljóst væri að til þess að hún ætti að koma að fullum notum þyrfti að vera starfandi þar íslenskt starfs- Vilja rannsókn á ásökunum dr Sidney Holts MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá félaginu Skuld, félagi áhuga- manna um hvalavernd: Þann 1. júní s.l. var haldinn fundur í Ásmundarsal við Freyju- götu í félaginu SKULD, félagi áhugamanna um hvalavernd. Til umræðu var m.a. sú frásögn dr. Sidney Holts í Þjóðviljanum 30. maí, að umboðsmaður íslendinga í vísindanefnd hvalveiðiráðsins, Jón Jónsson, forstjóri Hafrannsókna- stofnunar, hefði nánast aldrei sést á fundum nefndarinnar. Fundarmenn lýstu áhyggjum sínum yfir þessu og samþykktu að beina þeim tilmælum til sjávar- útvegsráðherra að rannsakað yrði, hvað hæft væri í ásökunum dr. Sidney á hendur Jóni Jónssyni. Á fundinum kom fram, að dr. Sidney muni vera sá vísinda- maður, sem lengst af öllum hafi starfað í vísindanefnd hvalveiði- ráðsins. fólk, svo sem hjúkrunarlið og læknar. „Það er búið að vera lengi í loftinu, að þörf væri á að íslend- ingar kæmu sér upp slíkri heilsu- bótaraðstöðu þarna syðra. Sjálfur hef ég þá trú að þetta nái langt að þessu sinni og annaðhvort verði ráðist í þetta nú eða hugmyndin verður lögð á hilluna. Ég nefni í þessu sambandi viðurkenningu Tryggingaráðs á þörf tiltekins hóps sjúklinga fyrir að leita sér lækninga með því að fara til sólarlanda. Það eru margir sjúkl- ingar, sem hefðu þörf fyrir að eiga kost á slikri heilsubótaraðstöðu i suðuriöndum og þar má nefna sjúklinga, sem þjást af psoriasis, exemi, asma, gigt og einnig þá sem þurfa á almennri endurhæfingu að halda meðan þeir eru að ná sér eftir veikindi. Við megum heldur ekki gleyma því að ákveðinn þáttur í slíkri lækningu er sálar- leg upplyfting, sem getur oft skipt miklu máli fyrir viðkomandi sjúkling," sagði Pétur. GLÆSILEGIR ■ STERKIR - HAGKVÆMIR Lítum bara á hurðina: Fœranleg fyrlr hœgri eða vinstri opnun, frauðfyllt og niðsterk - og í stað fastra hillna og hólfa, brothœttra stoða og loka eru færanlegar fernu- og flöskuhillur úr mólmi og laus box fyrir smjör, ost, egg, álegg og afganga, sem bera má beint Dönsk gæði með VAREFAKTA, vottorðl dönsku neytendastofnunarinnar DVN um rúmmál, einangrunargildi, kæli- svið, frystigetu, orkunotkun og aðra eiginleika. Margar stærðir og litir þeir sömu og á VOSS eldavélum og viftum: hvítt-gulbrúnt-grænt-brúnt. Einnig hurðarammar fyrir lita- eða viðarspjöld að eigin vali. GRAM BÝÐUR EINNIG 10 GERDIR AF FRYSTISKÁPUM OG FRYSTIKISTUM /FQ mx HÁTUNI 6A • SÍMI 24420 RANNS.ST. MYNO 5 ATV BRCYTINGAR A MANNAFLA TIL RANNSOKNA □ m m 1971 1975 1977 ÆDRI MENNTAST. OF!NR SJALFSEIG STOFN. FYRIR- TÆKI MLUTFALLSLEG SKIRTING FJARMAGNS TIL RANNSÖKNA 1961 1971 1977 □ RANNS ST ATV ÆORI MENNTAST AORAR OPIN8 sjAlfseign STOFN FYRIR TÆKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.