Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.06.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980 15 Sprenging í Mílanó Mílanó. 3. júní — AP. SENDIFERÐABlLL sprakk í loft upp fyrir framan aðalstöðvar lögreglunnar í Mílanó í nótt. 10 kílóum af TNT-sprengiefni hafði verið komið fyrir í bilnum. Sprengingin var mjög öflug. Fjöl- margir bílar i nágrenninu gjör- eyðilögðust, rúður i gluggum brotnuðu og hundruð ibúa i nágrenni flýðu á götur út. Ein af hurðum bilsins fannst upp á 7. hæð fjölbýlishúss i nágrenninu. Það þykir mikil mildi að enginn slasaðist. „Það var aðeins vegna þess, að enginn var nálægur þegar sprengingin átti sér stað,“ sagði lögreglumaður. Sprengingin í Mílanó kemur aðeins nokkrum dögum eftir að hermdarverkamenn myrtu þekkt- an blaðamann í borginni, Walter Tobagi. Hann hafði getið sér gott orði í baráttunni gegn hermdar- verkamönnum á Italíu. Morð hans var hið 21. sem Rauðu herdeildirn- ar hafa framið í ár. Bandaríkin vilja Sihanouk aftur til valda i Kambódiu WashinKton. 3. júní. AP. SAWESILA Sitthi. utanrikisráð- herra Thailands, er nú í Wash- ington til viðræðna við Edmund Muskie, utanrikisráðherra Bandaríkjanna. Bandarískir embættismenn sögðu i dag, að ríkin myndu styðja þá lausn Kambódiudeilunnar, að Sihan- ouk prins kæmi aftur til valda. Bandarískir embættismenn sögðu í einakviðtölum við blaða- menn, að hvorki stjórn Heng Samrins, lepps Víetnama, né Pol Pots, fyrrverandi einræðisherra, væri Bandaríkjunum og ríkjum S-Asíubandalagsins þóknanleg. Muskie lýsti því yfir í dag, að hann myndi fara til fundar við utanríkisráðherra bandalagsríkj- anna undir lok júnímánaðar. Hann sagði, að aukin samstaða væri meðal bandalagsþjóðanna um, að varanleg lausn Kambód- íumálsins yrði að finnast. ísraelskt herlið bældi niður mót- mæli á vesturbakka Tcl Aviv 3. júni. AP. ÍSRAELSKT herlið neyddi i dag arabíska verzlunareigendur á vesturhakka Jórdanár til að hætta mótmælaverkfalli. Hópur þjóðernissinnaðra Gyð- inga lýsti ánægju sinni með sprengjutilræði á mánudag þegar tveir borgarstjórar á vesturbakk- anum og ísraelskur lögregluþjónn særðust. Palestínskir kaupmenn lýstu yf- ir þriggja daga verkfalli eftir Veður víða um heim Amsterdam 10 skýjað Aþena 12 skýjað Barcelona 21 heiðskírt Berlín 8 rigning BrUssel 9 skýjað Chicago 15 rigning Feneyjar 21 heiðskírt Frankfurt 8 skýjað Færeyjar 10 rigning Genf 8 skýjað Helsinki 15 heíðskírt Jerúsaiem 15 heiðskírt Jóhannesarborg 4 skýjað Kaupmannahöfn 12 rigning Las Palmaa 25 heiöskírt Lissabon 17 heiðskírt London 15 bjart Loa Angeies 14 heiðskfrt Madríd 9 heiöskírt Malaga 25 skýjað Mallorca 23 heiðskírt Miami 26 heiðskírt Moskva 16 rigning New York 20 skýjað Ósló 11 skýjað París 15 skýjað Reykjavík 7 skýjað Rio de Janeiro 19 skýjað Rómaborg 11 heiðskírt Stokkhólmur 11 heiðskírt Tel Aviv 20 heiöskírt Tókýó 20 skýjað Vancouver 9 rigning Vfnarborg 9 rigning sprengingar í fjórum bæjum á vesturbakkanum sl. mánudag. ísraelskir hermenn bældu fljótt niður öll mótmæli með því að brjótast inn í verslanir og neyða kaupmennina til að opna aftur. I Hebron, 20 mílur suður af Jerúsalem, tóku um 35 ísraelskir hermenn þátt í minningarguðs- þjónustu þar sem 30 dagar voru liðnir frá því að 6 ísraelar voru skotnir úr launsátri í Hebron. Öfgafullir Gyðingar hótuðu hefndum eftir morðin. ERLENT FORSETINN Á HAITI, Jean-Claude Duvalier, gekk nýlega að eiga Michele Bennett, fráskilda dóttur auðugs iðnrekanda í Port-au-Prince eftir hálfs mánaðar þjóðhátið sem áætlað er að hafi kostað rúmlega fimm milljarða ísl. króna. Paul McCartney: Neitaði BBC um að senda út viðtal London, 3. júni. AP. BÍTILLINN fyrrverandi, Paul McCartney, neitaði breska sjón- varpinu BBC um að senda út viðtal sem sjónvarpið hafði átt við hann. Átti útsendingin að fara fram í kvöld. Með þessu vildi McCartney sýna samstöðu með breskum tónlistarmönnum sem síðan á sunnudag hafa neitað að spila fyrir BBC og þannig mótmælt fyrirhuguðum uppsögnum tónlistarmanna, sem starfa fyrir stofnunina. 11 hljómsveitir starfa fyrir BBC en ráðgert er að fækka þeim um 5. Er það liður í áætlun fyrirtækis- ins um að spara sem svarar 13,8 milljörðum ísl. króna á tveimur árum. Fari svo að uppsagnir þessar komi til framkvæmda missa 170 tónlistarmenn at- vinnu sina. SAS dregur samanseglin Stokkhólmi 3. júni AP. SKANDINAVÍSKA flugfé- lagið SAS tilkynnti í dag. að fækkað yrði í starfsliði fyrir- tækisins um 10% á næstu tveimur árum. Auk þess að fækka starfsliði þá mun flug- félagið hætta að fljúga á nokkrum flugleiðum og selja eitthvað af flugflota sínum, en ekki var skýrt frá hve miklu það næmi. Nú starfa um 17 þúsund manns hjá SAS. „Við vonumst til að fækka starfsliði með því að ráða ekki í stað þeirra, sem fara á eftirlaun," sagði Asbjörn Eng- en, einn af forstjórum félags- ins í Stokkhólmi. „En við útilokum ekki þann mögu- leika, að segja verði upp starfsfólki ef sparnaðarráð- stafanir bera ekki árangur." Hagnaður SAS hefur minnkað verulega með aukn- um kostnaði, einkum í olíu- verði en einnig hafa vinnudeil- ur í Svíþjóð og Noregi komið illa við félagið. Þá hefur far- þegum á mikilvægum leiðum fækkað á sama tíma og olíu- verð hækkaði um 130% á síðasta ári. Fundinn sekur um stuðning við skæruliða Jóhannesarhorg. 3. júni. AP. OXFORDMENNTAÐUR vísindamaður, dr. Renfrew Christie, var í dag sekur fund- inn um að styðja skæruliða- samtök við að steypa stjórn S-Afríku. Christie er ásakaður Nýju-Suðureyjar: Bretar og Frakkar lýsa and- stöðu við byltingarmenn London, 3. júnl — AP. STJÓRNIR Bretlands og Frakklands tilkynntu i dag að þær hygðust koma frá völdum byltingarmönnunum. sem náðu á sitt vald Kyrrahafseyjunni Espiritu Santo í Nýju-Suður- eyjaklasanum fyrir viku siðan. Ekkert var látið i ljósi um hvaða aðgerðum yrði beitt en sagt að stjórnirnar ákvæðu það sameiginlega. Hernaðarleg ihlutun hefur ekki verið útilok- uð ef samningar nást ekki og hafa hernaðarráðgjafar þegar verið sendir til eyjanna. Byltingarsinnar hafa með stuðningi bandarískrar hægri- sinnaðrar stofnunar komið á fót bráðabirgðastjórn á eynni og hefur leiðtogi byltingarinnar, Jimmy Stevens, verið skipaður forsætisráðherra. Nýja stjórnin tilkynnti, að á fimmtudaginn yrðu farnar fjöldagöngur víða um eyjarnar til stuðnings bylt- ingunni. Hin löglega stjórn eyjanna sem er studd af % kjósenda, hefur þrýst á Breta og Frakka um að koma aftur á lögum og reglu á eynni og hótað að ella muni hún sjálf senda liðsafla úr hópi pólitískra stuðningsmanna sinna, til að ráða niðurlögum byltingarmanna. Hún tiltók þó ekki nánar hvernig að því yrði staðið. I dag stóð enn yfir brott- flutningur á fólki frá eynni. Yfir 1200 manns hafa þegar verið fluttir brott, þar af um 100 Evrópubúar, aðallega Bretar og Frakkar, en einnig Ástralir og Nýsjálendingar. Um 400 eyja- skeggjar bíða enn brottflutn- ings. um að hafa komið upplýsingum til skæruliða um olíuhreinsun- arstöðvar í landinu. Dómur í máli Christie fellur á föstudag. Hann var tekinn fastur í októ- ber skömmu eftir að hann lauk doktorsvörn sinni í Englandi. Hann hefur lýst því yfir að hann sé saklaus. Hann á yfir höfði sér dauðadóm. Dr. Christie var ekki dæmdur fyrir þátttöku í skemmdarverk- unum í olíuhreinsunarstöðvun- um. Hins vegar kom fram í réttarhöldum yfir honum, að hann hafi þekkt í Lundúnum þekkta andófskonu, sem er í tengslum við Afríska þjóðarráð- ið, er lýsti yfir ábyrgð á hendur sér vegna skemmdarverkanna. Dagblað skýrði frá því að Christie hafi fengið greiðslur fyrir upplýsingar og kom fram að fé hafi verið lagt inn á bankareikning hans. Til átaka kom í dag skammt frá Stilfonteinnámunni þegar blökkumenn reyndu að bera eld að byggingum. Þá neituðu um 4500 námuverkamenn í Klerk- dorp að fara til vinnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.