Morgunblaðið - 29.06.1980, Síða 1
144. tbl. 67. árg.
SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980
Prontsmiðja Morgunhlaðsins.
Bessastaðir LJósm ói. k.m
KJORSTAÐIR vegna forsetakjörs verða opnaðir í dag ýmist
kl. 9 eða 10 og verða opnir til kl. 23 í kvöld. í flestum stærri,
kaupstöðum verða þeir opnaðir kl. 9, en í síðasta lagi kl. 10. í
hreppum má í síðasta lagi byrja að kjósa kl. 12.
Reykjavík
í Reykjavík verður kosið á
15 stöðum og hefst kjörfund-
ur kl. 9 og lýkur kl. 23. Kosið
verður í Álftamýrarskóla,
Árbæjarskóla, Austurbæj-
arskóla, Breiðagerðisskóla,
Breiðholtsskóla, Fellaskóla,
Langholtsskóla, Laugar-
nesskóla, Melaskóla, Mið-
bæjarskóla, Sjómannaskóla,
Ölduselsskóla, Elliheimilinu
Grund, Hrafnistu (D.A.S.) og
í Sjálfsbjargarhúsinu Há-
túni 12.
Seltjarnarnes
Kjörfundur hefst kl. 9 og
stendur til kl. 23 í nýja
Mýrarhúsaskólanum.
Kópavogur
Kjörfundur stendur frá kl.
9 til kl. 23 og verður kosið í
Kársnesskóla og Víghóla-
skóla.
Garðabær
Kosið verður í Flataskóla
og hefst kjörfundur uppúr kl.
9 og stendur til kl. 23.
Hafnarfjörður
Kosið verður í Lækjarskóla
og Víðistaðaskóla frá kl. 9 til
kl. 23.
Suðurnes
í kaupstöðum á Suðurnesj-
um hefst kosning á mismun-
andi tímum eftir stöðum, en
þó alls staðar frá kl. 9—10
eins og lög gera ráð fyrir.
Kjörfundi lýkur alls staðar
kl. 23. í Keflavík og Grinda-
vík er kosið í barnaskólan-
um, í Njarðvík er kosið í
félagsheimilinu Stapa, (litla
sal).
Akureyri
Kjörfundur hefst kl. 9 og
stendur til kl. 23 og verður
kosið í 8 kjördeildum í
Oddeyrarskóla.
Á öllum kjörstöðum eru
nákvæmár upplýsingar um
kjörsvæða- og kjördeilda-
skiptingu, og minna má á að
heimilisfang 1. desember
1979 ræður kjörstað.
Brak og 15 lík
úr DC-9 fundin
Róm, 28. júni AP.
LEITARMENN fundu í dag brak úr DC-9 flujfvél ítalska
fluKfélagsins Alitalia og lík nokkurra farþega á floti i hafi um
hundrað og fimmtiu kílómetra suðvestur af Napóli.
Þegar síðast fréttist höfðu
fimmtán lík komið í leitirnar
ásamt broti úr stéli vélarinnar.
Um þrjátíu og þrír kílómetrar
skildu á milli líkanna og braksins
og gátu talsmenn flugfélagsins
þess til að vélin hefði sprungið í
tætlur og hlutar flaksins dreifst
yfir stórt svæði. Bentu þeir á að
hugsanlegt væri að hryðju-
verkamenn hefðu komið
sprengju fyrir í vélinni, en þó
hefði enginn lýst sig ábyrgan til
þessa.
Leitarmenn á gúmmbátum og í
þyrlum komu einnig auga á
björgunarvesti og leifar öryggis-
útbúnaðar á úfnum sjó þar sem
sézt hafði olíubrák áður.
„Annað hvort hefur vélin
sprungið á lofti eða stungist á
bólakaf í hafið“ sagði starfsmað-
ur á Palermo flugvelli.
Farþegavélin hvarf með átta-
tíu og einn mann innan borðs á
leið frá Boogna til Palermo á
Sikiley aðfaranótt laugardags.