Morgunblaðið - 29.06.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.06.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980 23 voru ýktar, en enginn möguleiki var að ná nákvæmum tölum um fjölda. Afleiðingin var sú, að meiri matvæli fóru inn í landamærabúð- irnar, einkum Mak Mun og Samet, en fólkið sem þar bjó þurfti til matar. Og afganginn af birgðun- um seldu hermenn Rauðu kmer- anna fólki, sem kom innan úr landi í fæðuleit. Féð sem þannig kom inn hjálpaði til við að halda hreyfingu Rauðu kmeranna gang- andi. En matvælin, sem þannig flæddu inn í Kambodíu gegn um búðir flóttafólksins áttu stærstan þátt í að draga úr hungurdauða í vesturhéruðum landsins. í ör- væntingarfullri tilraun til að koma matvælum til hungraðs og deyjandi fólks innan landamær- anna var í fyrstu litið framhjá þeirri staðreynd, að matvæli voru seld við landamærin strax eftir að alþjóðlegar hjálparstofnanir höfðu afhent þau. Hvaða aðferð sem var, virtist leyfileg í þessu augnamiði. Þegar smám saman dró úr hungurdauðanum, varð sífellt meira aðkallandi að koma ein- hvers konar stjórn og aðhaldi á matvælagjafirnar. Til að komast fram hjá hrísgrjónasölu var opnuð ný dreifingarstöð í Nong Chan, 3 km suður af Mak Mun. Þar var úthlutunin undir ströngu eftirliti Rauða krossins og fulltrúa hans, og engum hermönnum var hleypt inn í búðirnar. Óvopnaðir lögregluþjónar sjá um öryggis- vörslu og stjórnun. Hver mann- eskja, sem kemur frá Kambodíu fær 20 kg af hrísgrjónum og ber þau með sér til baka, allt að 150 km leið inn í Kambodíu. í upphafi voru ýmis ljón á veginum, en kerfið hefur smám saman batnað, svo að nú er hægt að úthluta þannig 300 tonnum af hrísgrjón- um til 15000 manna á hálfum öðrum klukkutíma. Eftir að dreif- ingaraðferðir bötnuðu, var hægt að bæta í úthlutunina öðrum fæðutegundum. Fram að þessu hefur verið hægt að dreifa að auki matarolíu og fiski í dósum, og hefur reynst vel. Óhætt er a fullyrða að þúsundir hefðu dáið, ef þeir hefðu ekki fengið hrísgrjónin, sem reyndist unnt að koma inn í Kambodíu, annað hvort gefin í Nong Chan eða seld af Rauðu kmerunum. Eftir þessa „fyrstu hjálp" er nú nauðsynlegt að breyta til. En eins og ástandið er í Kambodíu verður ákaflega erfitt að standa að full- kominni dreifingu þar og eftirliti með birgðum. Samt er hægt að úthluta á landamærastöðum eins og Nong Chan til fólks, sem kemur frá fjölda þorpa vestast í Kambo- díu, ókeypis matvælum. Best væri ef hægt væri að láta ganga fyrir útsæðishrísgrjón, grænmetisfræ, haka og fiskinet. Verði mögulegt að senda slíkt inn í landið í einhverjum mæli, þá hefði fólkið í Kambodíu ef til vill möguleika á að hjálpa sér sjálft og verða sjálfu sér nægt. En verði ekki hægt að senda fræ og áhöld inn í landið, þá verður ástandið á landamærum Kambodíu og Thailands áfram svona." — E.Pá. Robert Ache, sem er 26 ára gamall. er af samstarfs- fólki sínu álitinn dugmesti og færasti stjórnandi hjáiparstarfsins á landa- mærum Thailands og Kam- bodiu. segir í frétt frá AP í gær, en frá sl. hausti hefur hann stjórnað samstarfi hjálparstofnananna fyrir alþjóða Rauða krossinn. Robert Ache með flóttafólki í húðunum við landamæri Thailands. Nytjajurtir Sjöundi hluti Fjölmargar íslenskar villt- ar jurtir eru góðar lækninga- jurtir og jafnframt það fal- legar að þær eru vel þess virði að rækta þær í görðum. ÞRÍLITA FJÖLAN er auð- ug af C-vítamínum og góð við höfuðverk, hálsbólgu og harð- lífi. BLÁKOLLAN vex hér villt. Hún er góð við sárum í hálsi og er græðandi. GULMAÐRAN er falleg jurt. Notuð í te, 1 matskeið í 250 gr. af vatni. Lagar melt- ingaróreglu. VALLHUMALL er gam- alkunn lækningajurt gegn kvefi og inflúensu, nýrna- kvillum o.fl. Vallhumall er einnig varnarplanta gegn skordýrum. bragðbætt með t.d. svolitlum púðursykri, eplabitum og rjóma eða matarolíu. Þau eru auðug af snefilefnum og A-vítamíni. ARFI. Bæði HJARTARF- INN og HAUGARFINN eru fullir af vítamínum og hollir til átu, en ekki er arfinn að sama skapi bragðgóður. Þó má gjarnan hafa ögn af honum með öðrum salatjurt- um. Hjartarfinn er gömul lækningajurt og þótti góður við ýmsum kvillum. Að lokum vangaveltur um tvö vandamál sem oft mæta ræktendum. í erlendu tíma- riti las ég um' ráð gegn SPUNAMAUR á plöntum, en ég veit að hann er víða ágengur við inniblóm. Þetta er einfalt ráð, sem fullyrt er Fjóla Tvær tegundir inniblóma ætla ég að nefna hér, því mér finnst þau þess virði að gefa þeim gaum: LAVANDER er ilmandi jurt. Blöðin af lavander eru notuð í ilmvötn og til varnar gegn mölflugu í húsum inni. CHILE PIPAR er auð- ræktaður sem inniblóm og þroskar mikið af pipar. Pip- arhylkin eru tekin af plönt- unni þegar þau eru farin að þorna á henni, síðan full- þurrkuð og mulin í duft (möluð). Þá er kominn Chile- pipar sem er mjög bragð- sterkt krydd, sem nota þarf með gætni, en hefur þann eiginleika, að sagt er, að koma blóðþrýstingi manna í rétt jafnvægi. Fáeinum orðum vil ég eyða á alþekkt illgresi, sem hefur þó til síns ágætis nokkuð: FÍFILL. Fíflablöð eru ágæt í salat, einkum á vorin. Þau eru bæði góð og holl, skorin eða niðurklippt og að gefist vel, en ekki hef ég reynt það. Takið 3 matsk. af áfum og 2 bolla af hveiti og hrærið út í vatni kekkjalaust. Bætið síðan í þetta ellefu lítrum af vatni og jafnið vel. Notið þessa blöndu á plönt- urnar, það drepur maurinn. SNIGLAR eru oft til mik- illa óþæginda í görðum. Gott er að setja ösku, sót, grófan skarpan sand eða slökkt kalk í kringum beðin, sem þeir sækja í. Einnig má setja spýtu, votan vettling eða ann- að slíkt hjá beðunum yfir nóttina. Að morgni má þá oft ganga að sniglunum og tor- tíma þeim því þeir sækja undir spýtuna eða annað það sem liggur hjá beði yfir nótt. Að loknu þessu spjalli vona ég að vel gangi með ræktun- ina hjá okkur öllum á sumr- inu og að við eigum eftir að eiga ánægjulegar stundir í garðinum okkar. Sigurlaug Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.