Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1980
29
varð á þrautunum, brá fyrir
glettni sem hún gjarnan beitti
fyrir sig til þess að létta fargi
kvíðans af uggandi ástvinum.
Þessi spegill sálarinnar lýsti innra
friði. Hún var reiðubúin að hverfa
héðan, sátt við allt og alla og
þakklát fyrir það sem lífið hafði
gefið henni, þrátt fyrir þau veik-
indi sem hún átti við að stríða.
Hún hafði ekki gengið heil til
skógar síðastliðin 20 ár. Því tók
hún með æðruleysi. Hún lét sig
aldrei vanta við afmælis- og ferm-
ingarveislur og önnur hátíðleg
tækifæri innan fjölskyldunnar,
þótt oft væri hún sárþjáð. Að
gleðjast með glöðum, að hryggjast
með hryggum. Þannig var hún,
Bergljót Guðmundsdóttir fædd-
ist að Hvammi í Lóni 18. febrúar
1906. Dóttir hjónanna Ingibjargar
Jónsdóttur og Guðmundar Jóns-
sonar. Hún var elst átta barna
þeirra hjóna. Eina hálfsystur átti
Bergljót, Magneu, þrettán árum
eldri sem látin er fyrir nokkrum
árum. Hin systkinin eru öll á lífi.
Ingibjörg og Guðmundur bjuggu
síðast á stórbýlinu Nesi í Selvogi,
sem þau keyptu.
Bergljót var við nám í alþýðu-
skólanum að Hvítárbakka í tvo
vetur og einn vetur var hún í
Kennaraskólanum. Eftir þá skóla-
göngu var hún ráðin við barna-
kennslu í Selvogi. Mikil samstaða
og sterk tengsl hafa ætíð verið
milli systkinanna frá Nesi og bera
þau sterkt svipmót hvert af öðru.
Það sem einkennir þau mest er
hógværð og ljúfmannlegt viðmót.
Arið 1936 gekk Bergljót að eiga
þann afbragðs mann, Eyþór Þórð-
arson frá Torfabæ í Selvogi, sem
reyndist henni tryggur lífsföru-
nautur. Að Torfabæ fluttist Berg-
ljót með son sinn ungan Guðmund
Pétursson, sem fæddist í Nesi.
Eyþór hafði þá keypt jörðina og
lagði í það stórræði að byggja
myndarlegt hús með ýmsum þæg-
indum sem ekki þekktust þá í
sveitinni. í Torfabæ fæddust börn-
in þeirra, Ingibjörg, Eydís, Sigríð-
ur og Þórður og þar slitu þau
barnsskónum við mikið ástríki
foreldranna.
í Torfabæ liggur aðal ævistarf
Bergljótar og Eyþórs. Við uppeldi
barna sinna og við að erja jörðina
í þessari hrjóstrugu sveit, en á
margan hátt heillandi. Sjórinn
sem brýtur á klöppunum í fjör-
unni. Brimgnýrinn og ölduniður-
inn er seiðmagnaður, og lætur vel
í eyrum þeim sem alast upp við
hann. Það var mikið starf að
byggja upp jörðina, endurnýja
útihúsin og rækta upp túnið. Eins
og gefur að skilja var í mörg horn
að líta á barnmörgu heimili og
vinnudagurinn langur. Bergljót
gekk jafnt að útistörfum sem inni.
Þegar heyskapurinn stóð yfir
þurfti oft að vaka fram eftir við að
hirða heyið og koma því í hlöðu
einkum ef rigning var í aðsigi.
Stundum komu nágrannarnir á
næsta bæ, sem höfðu lokið við að
koma sínu heyi inn og hjálpuðu
við að koma síðustu heyböggunum
inn svo allir yrðu jafnt búnir. Á
eftir bauð Begga í kaffi og nýbak-
aðar pönnukökur. Eyþór var í
ýmsu á undan sínum sveitungum
varðandi nýungar. M.a. keypti
hann fyrstur traktor og honum
fylgdi sláttuvél. Það var mikil
breyting frá því að slá allt túnið
með orfi og ljá. Eftir að Eyþór
fékk sláttuvélina, sló hann ekki
einungis sitt tún heldur og tún
nágrannanna. Slík var samvinnan
í Selvogi. Ég minnist þess er
Begga hafði lokið mjöltum, þá
sendi hún eitthvert okkar krakk-
anna með volga mjólk í brúsa til
gamallar einsetukonu sem enga kú
átti. Hennar ánægja fólst í því að
gleðja aðra og einkum þá sem
minna máttu sín þó ekki væru
efnin alltaf mikil í Torfabæ. Ég
átti því láni að fagna á unga aldri,
að kynnast þessari stórbrotnu
konu. Móðir mín kom með mig á
öðru ári í Torfabæ og þegar hún
hálfu öðru ári seinna fór í nám til
Reykjavíkur, varð ég eftir í Torfa-
bæ hjá Bergljótu og Eyþóri sem
komu fram við mig eins og ég væri
eitt af þeirra börnum. Þá mynduð-
ust þau tengsl sem hafa varað
síðan.
Torfabær var eins og miðstöð
sveitarinnar. Þar var bókasafnið,
en Bergljót var aðal hvatamaður
að stofnun þess. Á þeim árum var
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
móður okkar,
HELGU BJARNADÓTTUR,
Stóragerði 34.
Bjarni Gíslason,
María Gísladóttir,
Trausti Gíslason,
Emil Gíslason,
barnabörn og
Erla Þorvaldsdóttir,
Ólafur A. Ólafsson,
Svava Gestsdóttir,
Ásdis Gunnarsdóttir,
barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir tll allra nær og fjær sem sýnt hafa okkur samúö og
vináttu viö andlát og jarðarför,
HELGA H. LADXAL,
Löngubrekku 12,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til Sigmundar Magnússonar læknis, hjúkrunar-
fólks og lækna á Landspítala og Borgarspítala.
Sigurlaug Einarsdóttir,
Sigriður Laxdal,
Halldór Laxdal.
Innilega þökk fyrir auösýnda samúö viö fráfall og jaröaför,
SVAVARS GUDMUNDSSONAR
frá Sauöárkróki.
Guö blessi ykkur öll.
Sigurbjörg ögmundsdóttir,
bórn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúöar þakkir tll ættingja og vina fyrir auösýnda samúö og hlýhug
viö andlát og útför elginmanns míns og fööur okkar,
BJARNA M. GÍSLASONAR
rithöfundar
Ingar Gíslason,
Torsten Gíslason,
Jón Gíslason,
Ida Gíslason.
barnaskólinn í Torfabæ og þar bjó
kennarinn, sem var aðkomumað-
ur. Þó húsakynnin væru ekki mikil
á nútíma mælikvarða þá virtist
alltaf vera nóg rúm í Torfabæ, því
hjartarúm var mikið. Síðar meir
þegar börnin fóru að tínast að
heiman í framhaldsnám, tók Berg-
ljót að sér barnakennsluna í
Torfabæ. Það átti vel við hana að
fræða æskuna og búa hana undir
lífið.
Bergljót verður samferðafólki
sínu minnisstæð fyrir margra
hluta sakir. Hún sett’ svip á sveit
sína. Hún var góðum gáfum gædd.
Bókhneigð, ljóðelsk og hafði á
hraðbergi ljóð skáldanna okkar og
þá einkum þann kveðskap sem
draga mátti einhvern vísdóm af.
Það var ekki komið að tómum
kofanum, þegar íslenskar bók-
menntir bar á góma. Einar Bene-
diktsson var í hávegum hafður hjá
Bergljótu. Það er eins og ég héyri
hana hafa yfir þessar ljóðlínur
eftir hann, sem voru henni sérlega
hugleiknar.
„Eitt bros — gctur dimmu í dagsljós broytt.
som dropi broytir voík hoillar skáiar.
bol xrtur snúist við atorð oitt.
AAgát skal höfð í nærvoru sálar.
Svo oft loyndist stron^ur í brjósti som brast
viÖ biturt andsvar Krfiö án saka.
Hvo iðrar marKt líf oitt auKnakast.
som aldroi vorður tokið til baka.
Bergljót var félagslynd í eðli
sínu og átti gott með að umgang-
ast fólk og ef með þurfti að bera
klæði á vopnin. Bergljót var trú-
rækin kona og kenndi hún okkur
börnunum bænir og vers. Hún var
ákaflega gestrisin. Eftir messu í
Strandakirkju var ætíð boðið upp
á kaffi í Torfabæ og var þá oft
margt um manninn. Augljóst má
vera þvílíkur ábætir það var ofan
á annir og skyldur sem stóru
heimili fylgdi. Sveitungarnir
treystu húsmóðurinni í Torfabæ
best í þeim efnum sem öðrum.
Hún kunni sannarlega að taka á
móti gestum, skemmtileg í sam-
ræðum, hnyttin í svörum með ríka
frásagnargáfu.
Bergljót var glæsileg kona, fríð
sýnum, há og grönn með tígulegt
fas. Öll hennar framganga var
með miklum þokka, ásamt hóg-
værð og hlýju. Hún skipaði aldrei,
heldur bað. Maður hlaut að líta
upp til þessarar konu enda er mér
óhætt að fullyrða það að ekki
aðeins fjölskylda hennar og systk-
ini gerðu það heldur og allir sem
henni kynntust. Eftir að við
krakkarnir vorum farin að heiman
í skóla, var hvert tækifæri notað
til þess að komast í Torfabæ og
það voru ekki amalegar móttök-
urnar, þá færði Begga okkur
rjúkandi kaffið í rúmið með
heimabökuðu brauði, kökum og
ekki sist skonsunum hennar vin-
sælu. Þetta bakaði hún allt á
gömlu kolavélina sína. Eyþór og
Bergljót brugðu búi upp úr 1960 og
fluttust þá til Reykjavíkur. Síð-
ustu árin hafa þau búið með
dóttur sinni Eydísi að Hraunbæ
56.
Bergljót hélt andlegu þreki til
hinstu stundar. Ég hitti hana
síðasta daginn sem hún lifði. Þar
sem hún lá í rúminu farin að
kröftum óskaði hún mér til ham-
ingju með nýfæddan dótturson
minn og spurði um líðan móður og
barns. Þannig var hún til hinstu
stundar. Lifði og hrærðist í sínum
nánustu.
Ég finn það nú þegar leiðir
skiljast, hversu mikið ég á henni
að þakka. Allt sem hún geri fyrir
mig fyrr og síðar. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast
þessum góðu hjónum og fengið að
alast upp með börnunum þeirra,
sem eru öll góðar manneskjur og
mikið hæfileikafólk, hvert á sínu
sviði.
Eyþóri, börnunum, tengdabörn-
um, barnabörnum, barnabarni og
systkinum hennar votta ég mína
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Lilly.
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Steinsmiðja okkar hefur áratuga reynslu við gerð
allskonar legsteina og minnismerkja.
Við bjóðum legsteina í miklu úrvali.
Stærðir, tegundir og verð eftir vali hvers og eins.
Efnið er margskonar. íslenskt sem innflutt.
Grásteinn, blágrýti, gabbró, líparít, marmari, granit og
fleiri gerðir.
Vönduð vinnubrögð.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val
legsteina.
_________________Pantiö tímanlega. ____________'
ÍjB S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
■ SKEMMUVEGI 48-SÍMI 76677
Legsteinn
er varanlegt minnismerki
fers-.- m. . .