Morgunblaðið - 29.06.1980, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1980
formennsku. Annar meðlimur
safnaðarstjórnar, Björn Guð-
mundsson, baðst og undan endur-
kosningu. í þeirra stað voru kosin í
safnaðarstjórn, Ragnar Bernburg
og frú Berta Kristinsdóttir. For-
maður safnaðarstjórnar í stað ís-
aks Sigurgeirssonar var kjörinn
Þórarinn Sveinsson. Voru fráfar-
andi stjórnarmeðlimum þökkuð
ágæt störf og nýkjörnum starfs-
mönnum árnað heilla.
Meðal verkefna, sem Fríkirkju-
söfnuðurinn hefur nú á prjónunum,
er fegrun kirkjulóðarinnar og ýms-
ar endurbætur á kirkjuhúsinu.
Munu þar margir leggja hönd á
plóginn.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
hefur starfað af miklum dugnaði
að undanförnu og gefið stórgjafir
til safnaðar og kirkju. Meðal
margra velunnara og velgerðar-
manna safnaðarins má einnig
nefna Gísla Sigurbjörnsson for-
stjóra, sem árlega gefur höfðing-
legar gjafir til safnaðar og kvenfé-
lags. Er hann þar trúr minningu
afa síns og stofnanda Fríkirkju-
safnaðarins, séra Lárusar Hall-
dórssonar.
Af öllum þeim mörgu, sem starf-
að hafa við Fríkirkjuna, hefur
enginn starfað lengur en Sigurður
Frá Fríkirkjunni í Rvík
AÐALFUNDUR Fríkirkjusafnað-
arins í Reykjavík var haldinn í vor
að aflokinni guðsþjónustu í kirkj-
unni. Isak Sigurgeirsson, sem verið
hefur formaður safnaðarstjórnar
um nokkurra ára skeið, flutti
skýrslu um störf safnaðarins á
liðnu ári. Er þar margs að minnast,
því margt hefur verið unnið og vel.
Á síðastliðnu hausti minntist
söfnuðurinn þess, að 80 ár eru liðin
frá stofnun hans. í því sambandi
var efnt til happdrættis til fjáröfl-
unar fyrir söfnuðinn. Er öllum
þakkað, sem lögðu í þetta mikla
vinnu, og einnig þeim, sem studdu
söfnuðinn . með rausnarlegum
framlögum. Ýmsar ágætar gjafir
bárust söfnuðinum í tilefni afmæl-
isins, og er gefendum þakkað af
alhug.
Að lokinni skýrslu formanns, las
gjaldkeri safnaðarins, Njáll Þórar-
insson, reikninga safnaðarins fyrir
liðið ár. Fjárhagsstaða safnaðarins
er góð, þrátt fyrir miklar og
kostnaðarsamar framkvæmdir við
prestshús safnaðarins og fleira.
Þá minntist safnaðarprestur
þeirra safnaðarmeðlima, sem látist
höfðu á árinu.
Fráfarandi formaður, ísak Sig-
urgeirsson, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs í safnaðarstjórn, né til
ísólfsson, organisti. Um áratugi
hefur þessi fjölhæfi tónlistarmaður
lyft anda kirkjugesta og glatt þá
með list sinni. Var starfs Sigurðar
minnst á afmæli kirkjunnar á
síðastliðnu hausti og honum þakk-
að af alhug. Einnig hefur verið
ákveðið að gera silfurskjöld með
nafni Sigurðar og lengd starfsferils
og festa á pípuorgel kirkjunnar.
Með því vill söfnuðurinn votta
þessum síunga og frjóa tónlistar-
túlkanda þökk fyrir ógleymanlega
þjónustu hans. Vonandi fær söfn-
uðurinn enn um skeið að njóta
listar hans i Fríkirkjunni í hjarta
Reykjavíkur. Safnaðarprestur
Grindavík:
Fyrstu leigu- og
söluíbúðir bæj-
arins afhentar
Grindavik, 23. júni.
FYRSTU íhúðirnar sem byggðar
eru í Grindavík skv. lögum um
leigu- og söluibúðir á vegum
sveitarfélaga voru afhentar sl.
laugardag.
íbúðirnar eru 8 að tölu, 2
leiguíbúðir og 6 söluíbúðir, í 3ja
hæða fjölbýlishúsi við Heiðar-
hraun 30b, og er það jafnframt
fyrsta fjölbýlishúsið í Grindavík.
Áætlað kostnaðarverð söluíbúð-
anna er kr. 17 milljónir fyrir 2ja
herbergja íbúð og 24,5 milljónir
fyrir 3ja herbergja íbúð.
Byggingarframkvæmdir hófust
í byrjun árs 1979. Verktaki var
Sigurður Ólafsson byggingar-
meistari í Grindavík og Hamarinn
h.f. í Hafnarfirði.
Aðrir meistarar voru Ólafur
Sigurðsson, múrarameistari, Al-
freð Sveinbjörnsson, pípulagn-
ingameistari og Árni Sveinsson,
rafvirkjameistari, allir úr Grinda-
vík og Ólafur Már Ólafsson, mál-
arameistari, Keflavík og Steinþór
Eyþórsson, Garðabæ sá um dúka-,
flísa- og teppalagnir.
25 umsækjendur voru um þessar
8 íbúðir, sem nú voru afhentar. En
ákveðið er að byrja á byggingu 8
íbúða í framhaldi af þessum
áfanga, sem vonast er til að verði
tiibúnar til afhendingar í árslok
1981.
— Fréttaritari.
Ki. 19.30
Kl. 19.50
Ki. 20.10
Kl. 20.35
Kl. 20.55
Kl. 21.15
Kl. 21.30
Kl. 22.00
Kl. 22.00
Kl. 02.00
Hornaflokkur Kópavogs undir stjórn Björna Guðjónssonar.
Hestaíþróttir: íslenzki hesturinn sýnir listir sýnar eins og honum einum er lagiö.
Brimkló i öllu sínu veldi ásamt Björgvin og Pálma leika nokkur lög.
Fimleikasýning.
Fóstbræóur syngja nokkur lög af sinni alkunnu snilld.
Vélhjólakeppni. Ungir vélhjólakappar leiöa saman hesta stna.
Knattspyrna atvinnumanna. Leikarar og alþingismenn keppa.
Liöin skipa m.a.:
Leikarsr: Bessi Bjarnason, Randver Þorláksson, Gísli Rúnar, Gísli Altreösson, Siguröur
Skúlason, Guömundur Pálsson, Gísli Halldórsson, Þórhallur Sigurösson, o.fl.
Atþingismenn: Ellert B. Schram, Friörik Sophusson, Árni Gunnarsson, Karvel Pálmason.
Finnur Torfi Stefánsson, Siguröur Magnússon, Baldur Oskarsson og Jóhann Einvarös-
son, o.ft.
HVORT LIÐIÐ SÝNIR BETRI LEIK?
Hátíóarslit.
Lokadansieikur. Hljómsveítin Brimkló og Björgvin Halldórsson ásamt
Pálma Gunnarssyni. Kosningasjónvarp. Sjónvarpaö veröur á þremur
stööum t Höllinni frá úrslitum forsetakosninga.
Flugeldasýning.
Tökum
öll þátt
í íþrótta
hatíöin
Lokahátíð íþróttahátíðarinnar hefst kl. 19.30 á morgun sunnudag á
Laugardalsvelli, og lýkur í Laugardalshöllinni kl. 2 e.m. með
flugeldasýningu.