Morgunblaðið - 29.06.1980, Síða 32
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
FUrjjunblabifc
SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
JHerjjunblabib
Frambjóðendur
til forsetakjörs
Albert
Guðmundsson
ALBERT Sigurður Guð-
mundsson er fæddur í
Reykjavík 5. október 1923.
Foreldrar hans voru Guð-
mundur Gíslason, gullsmið-
ur í Reykjavík og Indíana
Katrín Bjarnadóttir. Eftir
lát föður síns ólst Albert að
mestu upp hjá ömmu sinni
Ingibjörgu Guðmundsdótt-
ur í Reykjavík. Albert lagði
stund á nám við Samvinn-
uskólann og lauk þaðan
prófi 1944, en hélt þá utan
til Glasgow og lauk prófi í
verslunarfræðum frá
Skerry’s College 1946. Að
því búnu lagði hann stund á
framhaldsnám í London.
Albert varð fyrsti atvinnu-
maður Norðurlanda í
knattspyrnu í Bretlandi,
Frakklandi og Ítalíu, en í
þessum löndum var hann
búsettur um árabil. Þegar
Albert snéri heim 1956
stofnaði hann sína eigin
heildverslun, sem nú er
rekin af sonum hans. Auk
þess starfaði hann í stjórn-
um ýmissa íþróttafélaga og
var m.a. formaður Knatt-
spyrnusambands íslands á
árunum 1968—1974. Albert
er umboðsræðismaður
Frakklands í Hafnarfirði
og ræðismaður Frakklands
í Reykjavík. Albert hefur
átt sæti í borgarstjórn
Reykjavíkur í fjölda ára og
verið þingmaður Reykvík-
inga frá 1974.
Aibert Guðmundsson er
kvæntur Brynhildi Jó-
hannsdóttur úr Reykjavík
og eiga þau þrjú börn, þau
Helenu Þóru, Inga Björn og
Jóhann Halldór.
Vigdís
Finnbogadóttir
VIGDÍS Finnbogadóttir er
fædd í Reykjavík 15. apríl
1930. Foreldrar hennar voru
Finnbogi Rútur Þorvaldsson
hafnarverkfræðingur og
prófessor við Háskóla ís-
lands, og Sigríður Eiríks-
dóttir, hjúkrunarkona. Vig-
dís átti einn bróður sem lést
af slysförum.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykja-
vík 1949, en stundaði síðan
nám í frönsku og frönskum
bókmenntum, með leikbók-
menntir sem sérgrein, í hálft
fjórða ár við háskólann í
Grenoble og Sorbonne í Par-
ís. Þegar heim kom starfaði
Vigdís í 5 ár sem bókavörður
og ritstjóri leikskrár í þjóð-
leikhúsinu og annaðist hún
einnig blaðakynningar fyrir
leikhúsið. Þá stundaði hún
nám við Háskóla íslands í
ensku og enskum bókmennt-
um og hélt áfram námi í
frönsku og frönskum bók-
menntum. Vigdís stundaði
einnig nám við Háskólann í
Kaupmannahöfn og í Sví-
þjóð. Hún starfaði síðan hjá
þjóðleikhúsinu á ný og
kenndi jafnframt við Mennta-
skólann í Reykjavík 1962—
1968, og síðar við Mennta-
skólann í Hamrahlíð þegar
hann var stofnaður. Síðan
1972 hefur Vigdís verið leik-
hússtjóri hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í Iðnó, en sagði
því starfi lausu sl. haust.
Vigíds hefur frá 1976 starfað
í ráðgefandi nefnd um menn-
ingarmál á Norðurlöndum,
kennt stundakennslu við Há-
skóla íslands og gegnt marg-
víslegum trúnaðarstörfum.
Vigdís Finnbogadóttir á
eina kjördóttur, Astríði sem
er sjö ára.
Guðlaugur Pétur J.
Þorvaldsson Thorsteinsson
GUÐLAUGUR Þorvalds-
son er fæddur 13. október
1924. Foreldrar hans voru
Þorvaldur Klemensson og
Stefanía Tómasdóttir, út-
vegsbændur að Járngerð-
arstöðum í Grindavík
Guðlaugur var einn
fimm systkina. Hann fór
13 ára gamall í Flensborg-
arskólann í Hafnarfirði og
þaðan í Menntaskólann á
Akureyri, þar sem hann
lauk stúdentsprófi árið
1944. Hann kenndi árið
eftir við Héraðsskólann að
Núpi í Dýrafirði, en hóf
síðan nám við viðskipta-
deild Háskóla Islands og
lauk þaðan prófi í við-
skiptafræðum 1950. Guð-
laugur starfaði á Hagstofu
íslands í 15 ár og síðan í
fjármálaráðuneytinu, þar
sem hann var m.a. ráðu-
neytisstjóri eitt ár. Árið
1967 tók Guðlaugur við
prófessorsstöðu við Há-
skóla íslands, og starfaði
hann sem prófessor allt
fram til 1973 þegar hann
var kjörinn rektor háskól-
ans. Guðlaugur gegndi
starfi rektors Háskóla ís-
lands þar til að á sl. ári að
hann var skipaður ríkis-
sáttasemjari. Guðlaugur
hefur auk þessara starfa
gegnt fjölda trúnaðar-
starfa á mörgum sviðum.
Guðlaugur Þorvaldsson er
kvæntur Kristínu H.
Kristinsdóttur úr Reykja-
vík og eignuðust þau fjóra
syni, en einn er látinn.
Hinir eru Steinar Þór,
Þorvaldur Óttar og Styrm-
ir.
PÉTUR J. Thorsteinsson er
fæddur í Reykjavík 7. nóv-
ember 1917, en hann ber
nafn afa síns Péturs J.
Thorsteinssonar sem um
langt skeið rak útgerð og
fiskverkunarstöð á Bíldudal
við Arnarfjörð.
Pétur lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1937, viðskipta-
prófi frá Háskóla íslands
1941 og lögfræðiprófi 1944,
og hefur frá þeim tíma
helgað starfskrafta sína
utanríkis- og viðskiptamál-
um íslands. Pétur starfaði í
Sendiráði íslands í Moskvu
1944—1947, og var formaður
samninganefnda um við-
skipti við Sovétríkin 1946 og
1947. Árin 1947—1953 vann
hann að útflutningsmálum í
utanríkisráðuneytinu í
Reykjavík, en var þá skipað-
ur sendiherra við sendiráðið
í Moskvu, þegar sendiráðið
var opnað þar að nýju.
Pétur var sendiherra þar til
1961, í Bonn var hann sendi-
herra 1961-1962, í París
1962—1965, og í Washing-
ton 1965—1969. Samtímis
var hann sendiherra í mörg-
um öðrum löndum og hjá
alþjóðastofnunum.
Hann var ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytis-
ins 1969—1976 og jafnframt
ritari utanríkismálanefndar
Alþingis, en frá 1976 hefur
Pétur verið sendiherra ís-
lands í Kína, Japan, Ind-
landi og fleiri Asíulöndum,
með aðsetri í Reykjavík.
Pétur J. Thorsteinsson er
kvæntur Oddnýju Thor-
steinsson og eiga þau þrjá
syni, þá Pétur Gunnar,
Björgúlf og Eirík.
Kristján
í Scala
í kvöld
KRISTJÁN Jóhannsson sönjfvari
frá Akureyri syngur í kvöld i
hinni frægu Scala-óperu i Mílanó,
en hún ásamt Vínaróperettunni
og Metropolitan eru frægustu
sönghús i heimi.
Kristján er fyrsti íslendingur-
inn sem syngur í Scala, en Sigurð-
ur Dements Fransson söng þar oft
áður en hann flutti til Islands.
Morgunblaðið ræddi við Kristján í
gær, en að undanförnu hefur hann
ferðast um Ítalíu í tónieikaferð
með 9 öðrum söngvurum sem
unnu Verdi keppni 117 söngvara.
Þá mun Kristján syngja á næst-
unni aftur í Mílanó á Mariu Callas
tónleikum þar sem hann er í
úrslitum með 25 söngvurum af alls
340 sem spreyttu sig. Þá hefur
Kristján nýlega gert samning við
Svissneska sjónvarpið um söng-
þátt og sitthvað fleira „skemmti-
legt er á döfinni," sagði Kristján
um leið og hann bað fyrir kveðjur
heim.
Sláttur hafinn
víða um land
SLÁTTUR er nú almennt að hefjast
viða á landinu en grasspretta er þó
misjöfn eftir byggðarlögum. í lág-
sveitum á Suðurlandi eru bændur
víða byrjaðir að slá en lengst mun
sláttur vera kominn undir Eyja-
fjöllum. t uppsveitum á Suðurlandi
er sláttur hafinn á stöku bæ.
í nágrenni Reykjavíkur eru bænd-
ur víða búnir að slá en í Borgarfirði
eru einstaka bændur byrjaðir að slá,
en þegar vestar kemur, svo sem á
Mýrar og Snæfellsnes, er spretta
minni og fæstir byrjaðir að slá.
Ekki er vitað til að sláttur sé hafinn
í Dölum eða á Vestfjörðum og það
sama er að segja um Hrútafjörð. í
Húnavatnssýslu eru einstaka bænd-
ur byrjaðir að slá.
Við utanverðan Eyjafjörð er víða
kal í túnum og einnig í Þingeyja-
sýslum og er ekki vitað til, að
sláttur sé hafinn hjá bændum þar,
en í innanverðum Eyjafirði hófst
sláttur fyrir nokkru.
Á Upp-Héraði og í nágrenni
Egilsstaða er. sláttur hafinn á ein-
staka bæ. Sömu sögu er að segja úr
Hornafirði, en annars staðar á
Austfjörðum er ekki vitað til að
sláttur sé hafinn.
Hvalvertíð
gengur vel
127 hvalir eru komnir á land í
Hvalstöðinni í Hvalfirði síðdegis í
gær og hefur vertíðin gengið mjög
vel það sem af er. 125 langreyðar
hafa fengist og 2 búrhveli. Um 100
manns starfa nú í Hvalstöðinni.
Kosninga-
handbókin
KOSNINGAHANDBÓKIN fyrir
forsetakosningarnar er í Mbl. í
dag á bls. 38 og 59. Kosninga-
handbókin er þannig sett upp, að
lesendur geta tekið hana i einu
iagi út úr blaðinu og hafa þá
samfellda opnu tii að skrá á
kosningatölur og úrslit.
V