Morgunblaðið - 16.07.1980, Page 2

Morgunblaðið - 16.07.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1980 Buslað í baði. Ragnar Arnalds, f jármálaráðherra: Síðasta gagntilboð BSRB er gersamlega út í hött „VIÐ HÖFUM að undan- förnu fjallað um með ágæt- um árangri hina ýmsu fé- lagslegu þætti málsins og ég taldi að samningar væru komnir nokkuð á veg þegar síðasta gagntilboð BSRB kom um 19—27% hækkun. Þetta tilboð er hins vegar alveg gjörsamlega út í hött frá okkar sjónarmiði séð og við gátum þvl ekki annað en hafnað því og þannig standa málin í dag,“ sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, er Mbl. innti hann álits á stöðunni í kjaradeilu ríkis- ins og BSRB. Enn í lífshættu MAÐURINN sem slasaðist alvar- lega á Vesturlandsvegi í fyrra- dag er enn i lífshættu. samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. fékk i gær. Heilsu hans hrakaði í fyrrinótt og þurfti að gera aðra höfuðaðgerð á honum í gær. Vörubifreiðin sem steinninn féll af hefur ekki fundizt þrátt fyrir mikla eftirgrennslan í gær. I fyrstu var haldið að hún hefði numið staðar en haldið síðan á brott en í ljós hefur komið að þar var um aðra bifreið að ræða. Skorar Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði á ökumann vörubif- reiðarinnar að hafa sem fyrst samband við lögregluna. Líðan unga parsins, sem slasað- ist í árekstri á Hafnarfjarðarvegi við Miklatorg í fyrradag var eftir atvikum góð í gær. Pilturinn fór í mikla aðgerð í gær, en hann var brotinn og skaddaður innvortis, m.a. á lunga. Öll þrjú liggja á gjörgæzludeild Borgarspítalans. Þorskveiðitakmark- anir í gildi í dag AÐ GEFNU tilefni vill sjávarútvegsráðuneytið vekja athygli á eftirgreindum ákvæðum reglugerðar frá 19. maí 1980, um veiðitakmarkanir í maí — 15. ágúst 1980. 1. Á tímabilinu frá og með 16. júlí til og með 15. ágúst eru þorskveiðar bannaðar í þorskfisknet. 2. Á tímabilinu frá og með 26. júlí til og með 4. ágúst eru skipum öðrum en skuttogur- um og togskipum 39 metra og lengri bannaðar allar þorskveiðar. 3. Á tímabilinu frá og með 20. júlí til og með 4. ágúst eru skuttogurum og togskipum 39 metra og lengri bannaðar allar veiðar í 5 daga samfellt. Athygli er vakin á, að bönn samkvæmt 1. og 2. tl. hér að ofan, taka aðeins til þorskveiða og er því heimilt að stunda aðrar veiðar enda sé hlutfall þorsks í afla undir 15% af heildarafla hverrar veiðiferðar, en bann samkvæmt 3. tl. tekur til veiða á öllum fiskstofnum og ber hverjum skuttogara og togskipi 39 metra og lengra að láta af öllum veiðum í 5 daga samfellt á tímabilinu 20. júlí — 4. ágúst. (FrHtatilk.) JNNLENT Urskurður Hæstaréttar: Atkvæðin 205 verða talin Fresta hækkun á svínaafurðum HÆSTIRÉTTUR úrskurðaði i gær að talin skyldu utankjörstaðaat- kva'ði þau er fundust i Kópavogi eftir að talningu var lokið i Reykjaneskjörda'mi eftir forseta- kosningarnar 29. júní. Að sogn —y-------------------- Islandsmet í svifflugi •SLANDSMET í markflugi tram og til baka var sett á Svifflugmóti íslands á mánu- daginn, en mótið stendur yfir á Hellu um þessar mundir. Svifflugurnar áttu að fljúga frá Hellu að Búrfelli og til baka aftur, alls 88,8 km leið. Ellefu svifflugur lögðu af stað og tókst tveimur svifflugmönnum að fljúga alla leið og þar með lengra en áður hefur þekkst í slíkri keppni. Þeir eru Garðar Gíslason tannlæknir og Sigurð- ur Benediktsson verkfræðingur. Svifflugmótið hófst á laugar- daginn en ekki var hægt að keppa tvo fyrstu dagana vegna þess að veður var óhagstætt til keppni. * Askorun bæjar- ráös Sigluf jarðar: Ríkisstjórnin láti athuga atvinnumálin BÆJARRÁÐ Siglufjarðar lýsti á fundi sínum fyrir helgina áhyggjum yfir því ástandi í atvinnumálum bæjarins sem nú ríkir vegna stöðv- unar hraðfrystihúsanna og greiðslu- erfiðleika Lagmetisiðjunnar. Er skorað á ríkisstjórnina að hún sendi þegar fulltrúa til Siglufjarðar til að athuga atvinnumál staðarins, en ríkissjóður á m.a. hlut í hraðfrysti- húsunum þar. Var samþykkt fund- arins og áskorun til ríkisstjórnar- innar send Gunnari Thoroddsen forsætisráðherra. Guðjóns Steingrimssonar for- manns yfirkjörstjórnar er stefnt að talningu þeirra í dag. Guðjón Steingrímsson sagði að umboðsmaður Vigdísar Finnboga- dóttur hefði skotið málinu til Hæstaréttar og umboðsmaður Pét- urs Thorsteinssonar stutt það, en umboðsmenn hinna frambjóðend- anna hefðu ekki haft afskipti af málinu. Kvað Guðjón stefnt að talningu í dag ef tækist að ná saman yfirkjörstjórn og umboðs- mönnum. Aðspurður um hver ætti næsta leik, sagði Ragnar það ljóst, að meðan BSRB-menn væru að gæla við þessar tölur væri ekki um neinn samnings- grundvöll að ræða. — „Það er alveg ljóst, að við munum ekki semja um launakjör við starfs- menn ríkisins, sem eru allt önnur og hærri, en líkur eru á, að samið verði um við starfs- menn á hinum almenna vinnu- markaði. Við myndum torvelda mjög alla samningagerð ASÍ og VSI með því móti,“ sagði Ragnar ennfremur. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi orðsending frá Svinaræktarfélagi íslands: Laugardaginn 12. júlí kom fé- lagsráð Svínaræktarfélags íslands saman til fundar til að ræða þau vandamál sem skapazt hafa vegna kjarnfóðurgjaldsins. Fundarmenn voru sammála um að hækka þyrfti svínaafurðir um ca. 19% til að mæta fóðurbætisgjaldinu, en ákveðið var að fresta þeirri hækk- un þar til séð verður fyrir endann á því hver endanleg fóðurhækkun verður og leitað er allra leiða til að fá gjaldið lækkað eða afnumið með öllu. Gísli Halldórsson, formaður íslenzku ólympíunefndarinnar: „Þarf meira en innrás í land til að hætta þátttöku“ ísland eitt fjögurra V-Evrópulanda, sem gengur undir þjóÖfána sinum inn á leikana „ÞAÐ ÞARF meira til en inn- rás í eitt land. til að ástæða sé til að hætta þátttöku.“ sagði Gísli Halldórsson, formaður is- lenzku olympíunefndarinnar, þegar hann var spurður að þvi hvort ekki væri ástæða til að mótmæla athæfi Sovétmanna nú á meðan á undirbúningi Olympiuleikanna stendur. „Eg tel rangt að nota iþróttamenn til að mótmæla. Það eru stjórn- völd sem eiga að gera það. Þau gætu kallað sendiherra sinn heim eða hætt viðskiptum. Framkvæmdanefndin var sammála um, að Islendingar gengju undir eigin þjóðfána inn á leikvanginn og fáni Islands mun blakta þar meðan á leikun- um stendur. Auk íslendinga munu, samkvæmt erlendum fréttastofufregnum, Svíar, Finn- ar og Grikkir ganga undir sínum þjóðfánum inn á leikvanginn. Austurríkismenn hafa ekki enn tekið afstöðu, en aðrar þjóðir munu ganga undir Olympíufán- anum. Gísli sagðist telja það sjálfsagt, að íslendingar gengju undir sínum fána, hann væri stolt okkar á erlendum vett- vangi, og á Olympíuleikunum 1912 hefðum við ekki gengið inn á leikvanginn vegna þess að þá máttum við ekki ganga undir eigin fána. Aðspurður kvaðst Gísli telja, að Sovétmenn blönd- uðu saman íþróttum og pólitík, allar einræðisþjóðir gerðu það, en íslendingar væru ekki með sinni þátttöku að gera slíkt hið sama. Varðandi það atriði, að hluti leikanna færi fram í Tallin í Eistlandi, kvaðst hann ekki telja þátttöku okkar viðurkenn- ingu á hernámi landsins þó vera mætti að sovézka stjórnin teldi það viðurkenningu. Gísli sagði það skoðun sína að í framtíðinni færi bezt á því að leikarnir yrðu haldnir á þremur til fjórum stöðum í einu. Ekki væri skyn- samlegt að flytja leikana til Grikklands. Það væri fátækt land, og öll lönd yrðu þá að taka höndum saman til að það yrði hægt. Ennfremur væri stutt síðan Grikkland hefði verið ein- ræðisland og gæti allt eins orðið það aftur. Islenzki hópurinn mun halda til Moskvu á fimmtu- dagsmorgun. Samtals eru það fjórtán menn sem fara: Sveinn Björnsson, aðalfararstjóri, Bragi Kristjánsson, fulltrúi olympíu- nefndarinnar, Viðar Guðjohn- sen, flokksstjóri júdómanna, Sigurður Björnsson, flokksstjóri frjálsíþróttamanna, Guðmundur Þórarinsson, flokksstjóri lyft- ingamanna. Þeir, sem keppa á leikunum eru, eins og áður hefur komið fram: frjálsíþróttamenn- irnir Hreinn Halldórsson, Óskar Jakobsson, Oddur Sigurðsson og Jón Diðriksson, júdómennirnir Halldór Guðbjörnsson og Bjarni Friðriksson og lyftingamennirn- ir Birgir Þór Borgþórsson, Guð- mundur Helgason og Þorsteinn Leifsson. Sigurður Magnússon, út- breiðslustjóri ÍSI og ritstjóri Iþróttablaðsins, hefur þegið hoð APN-Novosti fréttastofunnar sovézku að fara til Moskvu og dveljast þar í níu daga á meðan á Olympíuleikunum stendur. Boð þetta barst íþróttablaðinu og var upphaflega ráðgert að Stein- ar J. Lúðvíksson, ritstjóri færi en þar sem hann kemst ekki fer Sigurður í hans stað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.