Morgunblaðið - 16.07.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980
13
Kvennaráðstef na SÞ
Allt logar í
deilum í Khöfn
„DEILUR haía mjög sett svip sinn á kvennaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna hér i Kaupmannahöfn.
„Sprengjumár eins og Palestínumálið gætu orðið til
þess, að ráðstefnan leystist upp. Ég vona að svo verði
ekki, því mörg mál hér eru vel unnin,“ sagði Guðrún
Erlendsdóttir, einn af fulltrúum íslands á kvenna-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn.
„Þegar eiginkona Anwars Sad-
ats Egyptalandsforseta steig í
ræðustól í dag gengu fulltrúar
Arabaríkja af fundi í mótmæla-
skyni. Það urðu dálítil læti því
mikið klapplið var meðan hún
flutti ræðu sína.
Þá var fulltrúi Kína sífellt að
grípa fram í fyrir fulltrúa Kúbu á
meðan hún flutti ræðu sína. Þá er
enn eitt „sprengjumálið". í dönsku
blöðunum var því slegið upp í dag,
að danska sendinefndin muni
ganga af ráðstefnunni ef sam-
þykktar verði vítur á ísrael," sagði
Guðrún.
Guðrún sagði, að ræða íslands
yrði flutt á fimmtudag. Bæklingi
yrði þá dreift meðal ráðstefnu-
gesta, þar sem minnzt yrði á ýmis
málefni, sem hefðu horft í fram-
faraátt i réttindabaráttu íslenzkra
kvenna. Guðrún nefndi í þessu
sambandi þrjú mál — kvennafrí-
daginn 19/6 1975, jafnréttislög-
gjöfina og kjör Vigdísar Finn-
bogadóttur sem forseta íslands.
„Kjör Vigdísar hefur vakið óskap-
lega athygli og sífellt er verið að
spyrja okkur um Vigdísi. Það
virðast bókstaflega allir vita af
kjöri hennar og sífellt er verið að
spyrja okkur hvort Vigdís muni
ekki láta sjá sig í Kaupmanna-
höfn,“ sagði Guðrún að lokum.
Einar Ágústsson, sendiherra ís-
lands í Kaupmannahöfn, er for-
maður íslenzku sendinefndarinnar
en aðrir nefndarmenn eru: Guðrún
Erlendsóttir, Berglind Ásgeirs-
dóttir, María Pétursdóttir, Guð-
ríður Þorsteinsdóttir, Bergþóra
Sigmundsdóttir, Ingibjörg Haf-
stað, Vilborg Harðardóttir og Sig-
ríður Thorlacius.
í AP-fréttum frá ráðstefnunni
segir, að deilur Araba og ísraels-
manna hafi valdið mikilli truflun.
Margir ræðumanna hafi notað
ráðstefnuna til að koma pólitísk-
um skoðunum sínum á framfæri
þrátt fyrir yfirlýsingu um, að
ráðstefnan skuli vinna að bættum
hag kvenna — og halda sig utan
við pólitískt dægurþras.
Kínverjar réðust á Sovétríkin,
Kúba lýsti andúð á Bandaríkjun-
um. Áheyrnarfulltrúar frá PLO
notuðu hvert tækifæri til að koma
skoðunum sínum á framfæri. Full-
trúar Arabalanda og flestra
járntjaldslandanna gengu af fundi
þegar Jihan Sadat, kona Egypta-
landsforseta, steig í ræðustól.
Þrátt fyrir það sagði sendinefnd
Araba, að mótmælin beindust ekki
að Jihan persónulega heldur að
manni hennar og stefnu Egypta. í
ræðu sinni lagði frú Sadat til að
ráðstefnan gæfi frá sér yfirlýs-
ingu, þar sem þess væri krafizt að
ísraelsmenn skiluðu Aröbum aft-
ur löndum sínum, sem þeir hafa
hersetið síðan 1967. í samtali við
danskt blað vildu Israelsmenn
hvorki staðfesta né neita orðrómi
um, að Israelsmenn hygðust fara
þess á leit við Dani, að Leila
Khaleb yrði framseld í hendur
ísraelskum stjórnvöldum vegna
hlutdeildar í ráni á ísraelskri
farþegaflugvél árið 1970. Sagði
talsmaður sendiráðsins að verið
væri að íhuga aðgerðir.
Það vakti athygli, að Kínverjar
voru einu fulltrúar kommúnista-
landa, sem ekki tóku þátt í mót-
mælaaðgerðum gegn Jihan Sadat.
Að sögn talsmanns Kínverja, þá
styðja þeir málstað PLO en finnst
ráðstefnan ekki staður til mót-
mælaaðgerða.
Koma hinnar 33ja ára gömlu
Leilu Khaleb til Danmerkur hefur
vakið mikla athygli og deilur. Sagt
er að Isralesmenn muni fara fram
á framsal hennar, en hún var
viðriðin flugrán í upphafi síðasta
áratugs.
Samsæris-
menn teknir
fastir
Tel Aviv. 15. júlí. AP.
ÍSRAELSKAR öryggissveitir hafa
handtekið fjóra Palestínuaraba
frá Gaza-svæðinu, sem hafa haft í
hyggj u í meira en ár, að myrða
Ariel Sharon, landbúnaðarráð-
herra ísraels.
Fréttir í ísraelskum blöðum
hermdu, að samsærismennirnir
hafi ætlað að láta til skarar skríða
gegn Sharon innan viku.
Sharon er formaður nefndar,
sem hefur umsjón með búferla-
flutningum ísraelsmanna til
Gaza-svæðisins, en Palestínuarab-
ar líta á hann sem ógnun við
áætlun þeirra um að stofna
sjálfstætt ríki í Palestínu.
Zenko Suzuki
kosinn
formaður
FRJÁLSLYNDI flokkurinn í
Japan kaus i dag Zenko Suzuki
formann flokksins eftir lát
Ohira, og mun hann taka við
stöðu forsætisráðherra síðar i
vikunni.
Suzuki er 69 ára gamall og
varð nýlega formaður fram-
kvæmdanefndar flokksins. Hann
þykir góður samningamaður og
hefur oft greitt úr ágreiningi
innan flokksins. Hann er litt
þekktur af almenningi og hefur
aldrei gefið opinberar yfirlýs-
ingar um umdeild atriði eins og
útgjöld til hermála eða hlutverk
Japans sem vaxandi efnahags- og
stjórnmálaveldis i heiminum.
Hreinsanir
í Kóreu
Seoul, 15. júlí — AP.
YFIRVÖLD í Suður-Kóreu til-
kynntu í dag að 4.760 opinber-
Veður
Akureyri 10 skýjaö
Amsterdam 18 skýjaó
Aþena 35 heiöskírt
Berlfn 20 skýjaó
BrUssel 19 skýjað
Chicago 36 heiðskírt
Feneyjar 25 þokumóða
Frankfurt 17 rigning
Ftereyjar 10 skýjað
Genf 20 rigning
Jerúsalem 28 heiöskírt
Jóhannesarborg 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Lissabon 28 heiöskírt
London 18 skýjaö
Los Angeles 30 skýjað
Madríd 33 heiðskírt
Malaga 26 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Miami 34 skýjað
Moskva 14 heiðskírt
New York 33 heiðskírt
Ósló 20 skýjað
París 20 ríqninq
Reykjavík 10 rigning
Rómaborg 28 heiöskírt
Stokkhólmur 20 skýjað
Tel Aviv 30 heiðskírt
Tókýó 29 heiðskírt
Vancouver 18 heiðskírt
Vínarborg 19 skýjað
um embættismönnum hefði ver-
ið sagt upp störfum, en í fyrri
viku var 232 háttsettum emb-
ættismönnum vikið úr starfi,
og hafa því 4.992 opinberir
starfsmenn orðið fyrir barðinu
á hreinsunum í stjórnstofnun-
um landsins.
Talsmaður stjórnarinnar
sagði, að þessar hreinsanir væru
liður í þeirri viðleitni yfirvalda
að útrýma spillingu og ótryggð
úr embættismannakerfinu.
Hann sagði að aðgerðunum væri
ætlað að endurvekja traust al-
mennings á yfirvöldum.
1969 — Apollo 11 skotið frá
Kanaveralhöfða með fyrstu menn-
ina sem eiga að ienda á tunglinu.
1962 — Úrskurðað í Norður-
Rhódesíu að um slys hafi verið að
ræða þegar Dag Hammarskjöid
fórst með flugvél.
1951 — Leopold III Beigakonung-
ur leggur niður vöid.
1949 — Kínverskir þjóðernissinn-
ar stofna æðsta ráð undir forystu
Chiang Kai-shek og brottflutning-
ur til Taiwan hefst.
1945 — Fyrsta kjamorkusprengj-
an springur í Nýju Mexíkó og
kjarnorkuöid hefst.
1925 — Fyrsta þjóðkjörið þing í
írak kemur saman.
1918 — Nikulás II Rússakeisari
myrtur — Grikkir sigra Tyrki við
Kutania í Tyrklandi.
1855 — Brezka þingið samþykkir
að ríkin í Ástralíu nema Vestur-
Ástralía fái sjálfstjórn.
1809 — Uppreisn hefst í Efri-Perú
gegn stjórn Spánverja.
1649 — Mananiello, ieiðtogi upp-
reisnar í Napoli gegn Spánverjum,
ráðinn af dögum.
1537 — Jacques Cartier kemur úr
annarri iandafundaferðinni í vest-
urveg.
622 — Múhameðskt tímatal hefst.
Afmæli. Sir Joshua Reynolds,
enskur listmálari (1723—1792) —
Roald Amundsen, norskur land-
könnuður (1872-1928) - Trygve
Lie, norskur stjórnmálaieiðtogi
(18%—1968) — Ginger Rogers,
bandarísk leikkona (1911—).
Andlát. 1216 Innocentius páfi III
— 1828 Jean Antoine Houdon,
myndhöggvari — 1953 Hilaire
Beloc, rithöfundur.
Innlent. 1627 Tyrkir ræna Vest-
mannaeyjar — 1874 Ráðgjafi
skipaður fyrir ísland (C.S. Klein)
— 1885 Fensmark bæjarfógeta á
ísafirði vikið frá fyrir sjóðþurrð —
1889 Hið íslenzka náttúrufræðifé-
lag stofnað — 1932 Bruggunar-
verksmiðja finnst í Reykjavík —
1945 útför Guðmundar Kamban —
1953 Alþingiskosningar — 1968
Fernt fórst með Piper Cherokee —
1970 Útför Bjama Benediktssonar
— 1973 Hannibai Vaidimarsson
biðst lausnar og Björn Jónsson
tekur við — 1974 Geir Hallgríms-'
son óskar viðræðna um samstöðu
til lausnar efnahagsvanda — 1863
f. Sigurður Thoroddsen.
Orð dagsins. Stjórnmálamaöur er
maður sem fylgir stefnu, sem þú
ert ósammála; ef þú ert sammála
honum er hann stjórnvitringur —
David Lloyd George, brezkur
stjórnmálaieiðtogi (1863—1945).
ámánudag
ÍSAFJARÐAR - AKUREYRAR - HÚSAVÍKUR
Vörumóttaka í A-skáia til kl. 15°° á föstudag
Hafóu samband
EIMSKIP
SIMI 27100