Morgunblaðið - 16.07.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1980
25
fólk í
fréttum
+ Páll páfi annar hefur gert víðreistara í embættistíö sinni en nokkur annar fyrirrennara
hans. Nú er hann á ferö í Brazilíu en þar er mannamunur meiri en víöast hvar annars
staöar. Hér er páfi á tali viö brazilískan Indíána, sem er meö spjót í vinstri hendi en í þeirri
hægri er krossinn, hiö helga tákn kirkjunnar.
ÞEIM ER
FALLS VON
SEM FLASAR
+ Ofurhuginn Steve Lewis frá
Phoenix í Arizona í Bandaríkj-
unum fer hér í loftköstum af
öðrum tveggja bíla, sem geyst-
ust aö honum á ógnarhraða, á
100 mílum á klukkustund.
Steve ætlaöi aö reyna aö
stökkva yfir bílana báöa í þann
mund er þeir kæmu aö honum
og voru viðstaddir tilraunina
sjónvarpsmenn, sem eru meö
þátt, sem nefnist „Þetta er
ótrúlegt“. Eins og fyrr segir
lenti Steve á seinni bílnum og
hlaut aö launum brotna leggi
og brákuö rif.
LEITAÐ
AÐ
LÍFSMARKI
+ Fyrir nokkru vildi
það til, að japönsku
fiskiskipi hvolfdi í miklu
óveðri sem geisaöi und-
an Japansströndum.
Björgunarmenn sjást hér
klappa utan skipsskrokk-
inn í von um að heyra til
þeirra sem hugsanlega
kynnu að vera á lífi,
innilokaðir í skipinu.
Hljómsveit Ingimars Eydai.
Kátir dagar með hljóm-
sveit Ingimars Eydal
KÁTIR dagar heitir ný hljóm-
plata sem Hljómsveit Ingimars
Eydals hefur leikið á og MIFA-
tónbönd á Akureyri gefa út. Ing-
imar hefur verið með sex manna
hljómsveit í Sjallanum á Akureyri
sl. þrjú ár þar til í febrúar sl. er
hljómsveitin tók til við lausavinnu
og plötuupptöku í þrjá mánuði, en
síðan var aftur tekið til við störf í
Sjálfstæðishúsinu.
Platan Kátir dagar er að öllu
leyti unnin á Akureyri, nema
pressun, sem var gerð í Hollandi.
Upptakan fór fram í Studio Bimbo
á Ákureyri. Hljómsveitina skipa,
auk Ingimars og Helenu Eyjólfs-
dóttur, Óli Olafsson söngur,
Gunnar Gunnarsson hljómborð,
Eiríkur Höskuldsson gítar og
bassi og Jón Sigurðsson trommur.
Sumarbústaöa-
eigendur
Þessir vinsælu ofnar fást hjá okkur.
GEíSiBf