Morgunblaðið - 16.07.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.07.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980 31 ■r ^ J A \ mm ... SyJ JC- Wk [V | * I f L j|íf® Hip> ÉL J M 1JB -M Æ 1 I L fjlííU Wwáfj mm mmjgþj mJI fiZMj JjraM • Reykjavikurmeistarar Vikings 1980. Fremri röð frá vinstri: Þórður Marelsson, Jóhannes Bárðarson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Diðrik Olafsson, fyrirliði, Heimir Karlsson og ómar Torfason. Efri röð frá vinstri: Youri Sedov, þjálfari, Ragnar Gislason, Magnús borvaldsson. Lárus Guðmundsson, Helgi Helgason. Gunnar Gunnarsson og Hinrik Þórhailsson. Ljosm. Mbi. Krístínn Víkingar meistarar VÍKINGAR urðu í gærkvöldi Reykjavíkurmeistarar i knatt- spyrnu er þeir unnu Þrótt 2:1. Þessi siðbúni úrslitaleikur fór fram á Laugardalsvellinum i heldur leiðinlegu veðri, rigningu og dumbungi. Þróttararnir voru mun meira með knöttinn en sókn þeirra var fremur bitlaus. Hins vegar áttu Vikingarnir mörg hættuleg upphlaup og tvö glæsi- mörk Lárusar Guðmundssonar tryggðu þeim titilinn. Þróttararnir voru mun spræk- ari í fyrri hálfleik en Víkingarnir óvenju daufir og reyndar oft á tíðum aðeins áhorfendur að því sem fram fór. En þrátt fyrir yfirburði úti á vellinum gekk Þrótturunum erfiðlega að skapa sér færi, enda má segja að Vík- ingsvörnin hafi verið þétt fyrir. Á fyrstu mínútu seinni hálfleiks skoruðu Víkingarnir fallegt mark. Knötturinn var gefinn út á kant- inn til Hinriks Þórhallssonar, sem sendi laglega sendingu fyrir markið til Lárusar Guðmundsson- ar og hann skoraði með viðstöðu- lausu skoti. Fallegt mark. Og á 15. mínútu seinni hálfleiks bættu Víkingarnir við öðru marki og var það sérlega glæsilegt. Þeir léku þá vörn Þróttar sundur og saman, Hinrik, Ómar Torfason og Heimir Karlsson, og að lokum var það Heimir sem sendi laglega send- ingu á Lárus. Hann lék mjög laglega á Jón markvörð og sendi boltann af öryggi í netið. Eftir þetta mark drógu Vík- ingarnir sig aftar á völlinn og þyngdist þá sókn Þróttar mjög. Sóttu þeir svo að segja án afláts en tókst aðeins að skora eitt mark þrátt fyrir mýmörg tækifæri. Var Diðrik markvörður oftast sá klett- ur, sem sóknirnar strönduðu á. Á 25. mínútu komst Páll Ólafsson í dauðafæri. Diðrik varði skot hans en boltinn barst út í teiginn til Jóhanns Hreiðarssonar, sem sendi hann framhjá varnarmönnum Víkings og í markið. Fleiri urðu mörkin ekki og Víkingarnir hrós- uðu sigri, sínum fjórða í Reykja- víkurmótinu frá upphafi. í leikslok afhenti Egill Skúli Ingibergsson Diðrik Ólafssyni fyrirliða Víkings sigurlaunin.—SS. 2 breytingar a íslenska liðinu Þór tók 2 stig Akureyrar-Þór gefur ekkert eftir í toppbaráttu 2. deildar, en liðið sótti ísafjörð heim í gær- kvöldi. Vann Þór öruggan sigur og hefur tekið beina stefnu á 1. deildina. Þórsarar skoruðu tví- vegis í gærkvöldi, en ÍBÍ náði hins vegar ekki að svara fyrir sig. Bæði mörkin voru skoruð i fyrri hálfleik. Hafþór Helgason skoraði fyrra mark Þórs og áður en langt um leið hafði Guðmundur Skarphéð- insson bætt öðru marki við. Úr því sem komið var, freistuðu Þórsarar þess að halda fengnum hlut og tókst það með ágætum, ekki er hægt að segja annað. sor/gg. Haukar sterkari Frá Þórarni Ragnarssyni, fréttaritara Mbl. í Halmstad: íslenska knattspyrnulandsliðið kom hingað til Halmstad i Svíþjóð í gær og annað kvöld mætir liðið Svíum i landsleik. Ferðin frá Osló tók 3 klukku- stundir og voru menn dálítið þreyttir. Janus Guðlaugsson kom til móts við hópinn í Stokkhólmi og Ásgeir var vænt- anlegur á hverri stundu. Guðni Kjartansson landsliðs- þjálfari tjáði Mbl. að hann myndi gera tvær breytingar á íslenska liðinu, Ásgeir og Janus myndu byrja inn á . Ekki vildi Guðni tjá sig nánar um breyt- ingarnar, en reikna má með því að þeir félagarnir komi inn í liðið í stað Árna Sveinssonar og Magnúsar Bergs. Tveir leikmenn íslenska liðsins, þeir Örn Óskarsson og Þorsteinn Ólafs- son, leika sem kunnugt er með sænskum liðum. Báðir telja þeir að leikurinn gegn Svíum verði erfiðari heldur en leikurinn gegn Noregi. Svíar leika markvissari knattspyrnu og eiga sterkari einstaklinga heldur en Norð- menn. Landsliðsþjálfari Svía, Lars „Laban" Arneson, var meðal áhorfenda að landsleik íslands og Noregs. í viðtölum við sænsk blöð er haft eftir honum, að Svíar geti engan veginn leyft sér að leika einhverja „sumarleyf- isknattspyrnu" gegn íslending- um. Segir Arneson að íslenska liðið hafi komið á óvart fyrir getu sakir og auk þess bætist nú í hópinn tveir sterkustu atvinnu- manna liðsins. Arneson sagði þá Pétur Ormslev og Sigurlás Þor- leifsson hafa staðið sig manna best í íslenska liðinu og það yrði að hafa góðar gætur á þeim. Þá sagði einvaldurinn að þeir Mar- teinn og Trausti hafi einnig verið mjög sterkir. Tveir atvinnumanna Svía munu mæta íslendingum. Þeir eru Hasse Borg sem leikur með vestur- þýska liðinu Eintrakt Braunschweig og Ralf Edström, sem er félagi Ásgeirs Sigur- vinssonar hjá Standard. Selfyssingar máttu þola tap á heimavelli sinum gegn Haukum í gærkvöldi, er liðin áttust við i 2. deild íslandsmótsins i knatt- spyrnu. Lokatölur leiksins urðu 3—1 fyrir Hauka. eftir að staðan í hálfleik hafði verið jöfn, 1 — 1. Það sem helst setti mark sitt á leikinn var óhemju þungur og slæmur völlurinn á Selfossi. Var leikurinn fyrir vikið frekar slakur. En Haukarnir áttu sigurinn skilið, þeir voru sterkara liðið, fljótari í knöttinn og ákveðnari. Loftur Eyjólfsson skoraði fyrsta mark Hauka strax á 1. mínútu. Kom markið eftir hrikaleg varn- armistök hjá Selfossi. 20 mínútum síðar jöfnuðu heimamenn með marki Ámunda Sigmundssonar. Kristján Kristjánsson kom Hauk- um yfir á nýjan leik á 65. mínútu, er hann potaði knettinum í netið eftir að þvaga hafði myndast við mark Selfyssinga. Fimm mínútum fyrir leikslok innsiglaði Ólafur Jóhannesson sigurinn með marki úr vítaspyrnu. Voru heimamenn ekki ýkja ánægðir með þann dóm. kp/gg. Léttur sigur KA Heimsmetsjöfnun KA nældi sér i tvö auðveld stig i 2. deild íslandsmótsins i knattspyrnu í gærkvöldi, er Völs- ungur sótti liðið heim. Er nú svo komið, að KA og Þór, sem vann einnig i gærkvöldi, eru langefst í 2. deild og stefnir allt í að bæði Akureyrarliðin flytjist i 1. deild. KA vann Völsung 4—0, staðan í hálfleik var 2—0. Eyjólfur Ágústsson skoraði fyrsta markið úr víti á 31. mínútu, brotið var gróflega á Elmari innan vítateigs. 7 mínútum síðar bætti Gunnar Gíslason öðru markinu við með hörkuskalla. Þriðja mark- ið skoraði Eyjólfur Ágústsson á 78. mínútu, hann fylgdi þá fast eftir skoti óskars Ingimundar- sonar sem Gunnar markvörður Straumland hálfvarði. Potaði Eyj- ólfur í netið. Nokkru síðar rak Óskar sjálfur endahnútinn á allt saman, er hann einlék í gegnum vörn Völsunga og skoraði laglega. sor/gg. BREZKI stórhlauparinn Steve Ovett jafnaði heimsmet landa síns, Sebastian Coe, í 1500 metra hlaupi i Osló i gærkvöldi, hljóp á 3:32,1 minútu. A siðustu metrun- um gaf Ovett sér góðan tíma til að veifa til áhorfenda og varð þar með af mctinu. Mjög góður ár- angur náðist í 1500 metra hlaup- inu, og einnig i 5000 metra hlaupi. Stefán Hallgrimsson UlA keppti á mótinu og hljóp 400 metra grindahlaup á 52,75 sek- úndum. Sigurvegari varð Banda- rikjamaðurinn Edwin Moses, sem hljóp á 48,36 sekúndum. Sovéskur sigur SOVÉTMENN sigruðu Dani 2—0 í vináttulandsleik i knattspyrnu sem fram fór á Lenin-leikvanginum í Moskvu um helgina. Rússarnir höfðu allan tímann mikla yfirburði og gat sigurinn þess vegna hæg- lega orðið enn stærri. Þeir skoruðu hins vegar ekki fyrr en i síðari hálfleik. Fydir Cherin- kov braut isinn á 58. minútu og skömmu siðar skoraði Valery Gazzeya annað mark. Heimsmet Sovéska stúlkan Tatiana Byriulina setti um helgina nýtt heimsmet í spjótkasti. Átti at- vikið sér stað á umfangsmiklu frjálsíþróttamóti í Moskvu. Tatiana kastaði spjótinu 70.08 metra. Austur-þýska stúlkan Ruth Fuchs átti eldra heims- metið. Það hljóðaði upp á 69,96 metra og setti hún það met fyrr á þessu sumri. Forest á eftir Brady Framkvæmdastjórar enska stórliðsins Notthingham For- est. þeir Brian Clough og Peter Taylor, staðfestu um helgina. að þeir væru á höttunum eftir Liam Brady. miðvallarleik- manninum frábæra hjá Arsen- al. Samningur Brady hjá Arsen- al er útrunninn og hefur kapp- inn látið í það skina að hann verði ekki lengur í herbúðum Arsenal. Brady haföi hins vegar látið hafa eftir sér að hann hygði á knattspyrnu á Spáni. á ltaliu eða í Vestur-þýskalandi. Brady er metinn á rúmar tvær milljón- ir sterlingspunda og enn hefur ekkert erlent félag falast eftir honum. Það hefur hins vegar enska liðið Manchester Utd. gert og eins og dæmið er í dag. þykir líklegast að Brady hafni þar. Brady myndi þar væntan- lega taka stöðu Mick Thomas. sem örvfættur tengiliður. Mætti þá ætla að United myndi tefla fram sterku liði á næsta keppn- istímabili. með þá Ray Wilkins. Steve Coppell, Sammy McIIroy og Liam Brady á miðjunni. Standard sigraði Standard Liege, lið Ásgeirs Sigurvinssonar. gerði jafntefli við svissneska liðið Neuchatel. 2—2. í smámóti sem haldið er í Liege um þessar mundir. Neu- chatel komst í 2—0 með mörk- um Lutri og Dullivard. Stand- ard svaraði tvívegis fyrir sig snemma i síðari hálfleik. V«H>r- deckers og Vandermissen skor- uðu mörkin. Tahamata til Standard ÁSGEIRI Sigurvinssyni og fé- lögum hans hjá Standard Liege mun bætast góður liðsauki á næstunni, því Standard er um þessar mundir að ganga frá kaupum á hollenska landsliðs- manninum Simon Tahamata frá Ajax. Eins og knattspyrnuunn- endur muna eflaust frá Laugar- dalsvelli í fyrra er Tahamata framherji í fremstu röð, smá- vaxinn en afar fljótur og leikinn. Honum gekk mjög illa í lok sl. keppnistímabils og missti þá stöðu sína hjá Ajax. Er það talin ástæða þess að hann vill nú leita á ný mið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.