Morgunblaðið - 16.07.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.07.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980 Kirkjukór Akraness Kannski vita þeir meira um okkur pn ÁAur Fráferö cii duur KirkjUkórs Berlín (Eyjaborgin) Til Berlínar komum við er kvelda tók, laugardaginn 31. maí. Fengum við nærri ofbirtu er við litum hótelið sem var það glæsi- legasta sem þessi hópur hafði áður séð. Þetta hótel heitir Palashótel og kafnar ekki undir nafni, enda 5 stjörnu hótel. Þetta er ævintýra- lega falleg bygging. Fórum við þarna á skemmtistað í kjallara hótelsins um kvöldið og var hann ólíkur öllum slíkum stöðum sem við höfum séð. Þetta hótel er hannað af Svíum. Skammt frá hótelinu er gríðarlegur útsýnis- turn á þriðja hundrað m hár. Við fórum þó aðeins í 200 m hæð með lyftu og litum þar yfir hina miklu en tvískiptu borg Berlín. Það er ömurlegt að hugsa um alla þá sorg sem þessi skipting hefur skapað. Að morgni sunnudags 1. júní skoðum við Pergamon safnið, sem er safn fornra minja. Hér er hið fræga Pergamon altari, en eins og víðar er hér alltof margt að sjá á of stuttum tíma. Minnistæðust verður mér héðan gatan og borg- arhliðið frá Babýlon sem hér stendur í fullri stærð, Nebúkad- nesar II hefur greinilega verið smekkmaður hvað sem öðru líður. Hér í Berlín er betra loft. Er hér aðallega véla- og rafmagnsiðnaður svo og postulínsverksmiðjur. Við ökum um borgina áður en við yfirgefum hana. Hér sjáum við barnaleikvöll með ýmsum ævin- týrapersónum, barnakaffihús og vöruhús þar sem fullorðnir fá aðeins aðgang í fylgd barna. Auvitað er hér fullt af íþróttavöll- um, skautahöll einnig. Við sjáum hér næstelstu kirkju í Berlín, byggða 1295 og Dómkirkjuna, geysifallega byggingu. Franska dómkirkjan stendur hér öll sund- urskotin hið ytra, samt eru fluttar þar guðsþjónustur. Það er undar- legt að sjá tré tekin að vaxa á sundurskotnum veggjum sumra húsanna. Kannski táknrænt um sigur lífsins yfir dauðanum. Við kveðjum Ingiborgu Með hálfgerðri tregðu yfirgef- um við þetta luxushótel. Við skilj- um nú líka við leiðsögukonu okkar Ingiborgu og mann hennar. Þessi ágætu hjón tárast, er þau eru kvödd af hópnum með gjöfum og söng. Og það veit ég að við munum fús verða við þeirri beiðni þeirra að hugsa til þeirra síðustu mínútu þessa árs og þá fyrstu þess næsta. Ég er sannfærð um að söngur og tónlist er þess megnugri en nokk- uð annað að sameina hjörtu manna hvar í heiminum sem er. Ég vona líka að með þessari ferð höfum við lagt okkar litla lóð á vogarskál bættrar sambúðar og skilnings í heiminum og ef svo er getum við vel við unað. Komið til Hamborgar Okkur brá nokkuð í brún er við komum í hótel það í Hamborg sem við skyldum dvelja á. Ekki var þarna sturta eða bað finnanlegt utan 2 herbergi sem reyndust innihalda þennan lúxus. Ég held að þetta hótel mundi flokkað undir farfuglaheimili hér. En kannski hentar það þó bezt fugl- um himins, að minnst kosti hið efra. Var svo lágt til lofts þar að það var haft að gamanmálum að menn gætu ekki greitt sér utan að beygja höfuð sín. En auðvitað var þessu öllu slegið upp í grín, því það var skapgott fólk í þessari ferð. 2. júní var æfing í Nikolaikirkj- unni. Fórum við öll með neðan- jarðarlest. Á eftir var farið í skoðunarferð um borgina. Það var stór munur hvað hér var betra loft en á hinum stöðunum. Hér var jafnvel dálítil gola. Þetta er geysi- lega falleg borg. Um 50 prósent vötn og skógar. Verzlun og sigling- ar ráða hér ríkjum svo sem allir vita. Við ókum m.a. um auðmanna- hverfi þar sem hver fermetri í lóð kostar 5000 mörk. „Dýr mundi Hafliði allur". Hér er allt gert til að stemma stigu við mengun. Auðvitað hafa Arabar haslað sér völl hér í hverfinu og meðal annars byggt sér „Mosku". Tónleikar í Nikolaikirkjunni 3. júní eru tónleikar í Nikolai- kirkjunni. Það er mjög gaman að syngja þarna og okkur er vel tekið (sjá gagnr.). Okkur var boðið heim til kórfólks sem gist hefur Akran- es. Það var verulega gaman að koma svona í heimahús og mót- tökur allar rausnarlegar eins og allsstaðar. Á heimleiðinni hendir nokkur okkar það ævintýri að vera keyrð heim af „strætó" sem fram- takssömum ferðafélaga okkar tókst að stoppa á götunni. Söng bílstjórinn með okkur fullum hálsi Lorelei og Góða tungl. Auðvitað sungum við á okkar beztu þýzku fyrir manninn, sem keyrði okkur heim á hótel. Kannski maður fari að reyna þetta í Reykjavík. Kannski sú fegursta í Liibeck 4. júní skoðum við Lúbeck. Ræðismaðurinn kemur til móts við okkur og fer með okkur um borgina. Hér sjáum við heilar götur frá dögum Hansakaup- manna. Ég held að þessi borg sé sú fegursta ef frá er talin Dresden, en um það má lengi deila. Það sem vekur sérstaka athygli er hversu húsnæðismál aldraðra hafa verið leyst hér á skemmtilegan hátt. Aldrað fólk býr hér í gömlu hverfi með þröngum göngugötum. Húsin eru allar götur frá 1600 sum hver og líkjast ævintýrahúsum. Þessar götur eru svo lokaðar frá strætum borgarinnar og skarkala heimsins með hurðum. Þetta er lítil paradís. Heimur út af fyrir sig. Öll húsin Akraness um Þýzkaland hafa lítinn reit til ræktunar blóma eða annars. Okkur er boðið í kaffi og heimabakað hjá gæðakonum í söfnuði Dómkirkjunnar í Lúbeck. Þar höldum við tónleika um kvöld- ið við góðar undirtektir (sjá gagnr.). Um kvöldið sitjum við veizlu í Ráðhúskjallaranum, í boði sendiráðsins, að sjálfsögðu er sungið fyrir fóikið þarna. Þetta var mjög skemmtileg kvöldstund, og elskulegar móttökur sem við fengum þarna. Ókeypis bað og óvænt 5. júní eru flestir uppteknir af að skoða sig um. Búðargluggarnir eru líka stútfullir af hverskyns freistingum, dýrum sem ódýrum. Enda hefur hlaupið slík gróska í farangurinn að engu er líkara en um offjölgun sé að ræða hjá töskunum. Eru strákagreyin sem keyra bílana hugsandi yfir þessum ósköpum. Nú fer að líða að lokum hér í Hamborg og það er farið út að borða á Zillertal. Reynast þar landar fyrir allfjölmennir. Eins og allir ferðalangar erum við forvitin og höldum nokkur saman út að skoða hina frægustu af öllum frægum götum þessarar borgar. Þarna er okkur kvenfólkinu fylli- lega bætt upp sturtuleysið á hótel- inu með hressandi baði. Var synd að segja að dömur götunnar drægju af sér við að baða okkur úr hinum ólíklegustu ílátum. Einn orðheppinn ferðafélagi sagði þetta vera verkakvennafélagið á staðn- um og væru þær að verja sinn óskoraða rétt. Taldi hann þó að þær væru öllur herskáari en meðlimir í Verkakvennafél. Akra- ness. 6. júní er ekið langleiðina til Bonn og gist þar í geysilega huggulegu hóteli. Þarna er sund- laug, grasfletir og tennisvellir. Sumir skella sér strax í sund og svo er það sólbaðið. Fleiri láta sér þó nægja þann lúxus að hafa aftur bað. Rínarsigling 7. júní er Bonn skoðuð. Þarna ber fyrir augu þinghúsið og aðset- ur kanslarans. Beethoven-húsið er heimsótt og flutt þar eitt af verkum hans. Svo er ekið upp með Rínarfljóti. Þetta er sá hluti ferðarinnar sem margir hafa beð- ið eftir spenntir. Enda er þetta eins og kóróna ferðarinnar. Við stígum um borð í glæsilega ferju sem siglir með okkur upp hinn töfrandi Rínardal. Við verðum sannarlega ekki fyrir vonbrigðum með fegurðina hér. Auðvitað sung- um við Lorelei á spari-þýzkunni okkar er við fórum fram hjá Lorelei-klettinum. Þarna er annar kór, frá Arkansas, og við skipt- umst á við þau að syngja. Gist er skammt frá Frankfurt. Að morgni 8. er svo haldið í „stríð" við töskur og pinkla. Það er ánægt fólk sem setzt upp í lífs- reynda íslenzka flugvél á leið heim. Því alltaf er nú heimkoman bezti hluti hverrar ferðar, þótt góðar séu. Sjón er sögu ríkari. Kannski vitum við nú flest svolítið meira en áður um þessa duglegu þjóð í þessu tvískipta en fagra landi. Kannski vita þeir líka sumir meira um okkur en áður. Að endingu vil ég nota tækifær- ið og þakka öllum ferðafélögunum ánægjulega samveru og sérstak- lega vil ég þakka þeim sem gerðu þessa ferð mögulega. Sjáumst seinna. Þórey Jónsdóttir Skólaðar raddir frá Yfirskrift gagnrýninnar t Lúbeck- er Nachrichten hófst á oröunum: „Frábærlega skólaðar raddir frá íslandl". Kirkjukór Akraness bauð í fyrra- kvðld upp á sérstæöan samsöng (kórkonsert) í Dómkirkjunni. Þaö sérstæöa var í því fólgiö aö fyrri hluta tónleikanna flutti þessi 50 manna kirkjukór frá íslandi nær eingöngu verk eftir íslensk tón- skáld sem hér eru óþekkt, s.s. Leif Þórarinsson, en kantata hans, „Rís upp, ó Guö", var hápunktur tón- leikanna fyrir hlé. í byrjun flutti þetta ágætlega skólaöa söngfólk rólega lofsöngva og sálmaútsetningar sem hæföu vel kyrrlátri kvöldstemmningunni og kom jafnvægiö milli kvenna- og karlaradda þægilega á óvart. Athyglisverö tengsl áttu sér staö þegar Antonio Corveiras lék á Marcussenorgeliö orgelforspll Brahms, „O, Welt, ich muss dich lassen", en í beinu framhaldi af því söng kórinn fjórraddað kórverk Bach, „Nun ruhen alle Wálder". Nýtízkulegar hljómmyndir kváöu viö eyrum áheyrenda í kantötu fyrir kór, einsöngvara og orgel eftir Leif Þórarinsson. Hauki Guölaugssyni, sem stjórnaö hefur kórnum í tutt- ugu ár, tókst meö öryggi aö halda saman kórköflum meö flókinn hljómgang og oft mjög óreglulegan takt, djúpum orgelhljómum, sem minna á túbu, og einsöngsþáttum sem sungnir voru uppi á orgelloft- inu. Til aö draga úr áhrifum slíkrar innsýnar í tónlist samtímans feng- um viö eftir hlé aö heyra Ave verum corpus eftlr Mozart, sem flutt var meö ró og nánast hlédrægni. Síðari hluti tónlelkanna náöi hámarki meö Requiem eftir Gabriel Fauré, sem samiö var 1887. Aö sjálfsögöu viröist hljómsveitarútsetningin ólíkt veigameiri en sú sem íslensku gestirnlr vöidu, meö hreinum orgel- undirleik. Þaö er nú einu sinni svo aö erfitt er aö bæta upp missi trompetanna í Sanctus. Þrátt fyrlr þaö tókst Kirkjukór Akraness aö túlka þetta erfiöa verk á sannfær- andi hátt og hvftdi túlkunin á traustum grundvelli. K.D. íslandi Die Welt segir m.a.: Mlð- Evrópubúar eiga erfitt meö aö venjast þeirri hugsun aö oröiö „menning" (Kultur) sé einnig til í útjaöri álfunnar og þar lifi fólk menningarlífi. ísland, þar sem alls búa 200.000 manns, sannar þetta og smábærinn Akranes, sem hefur 5.000 íbúa, staöfestir þá fullyrö- ingu. Kirkjukór þaöan var í helm- sókn í St.-Nikolaikirkjunni viö Klosterstern og var þar á feröinni söngflokkur sem fiutti fjölbreytta efnisskrá meö kunnáttu atvinnu- kóra. í lokin segir, aö gestirnir úr norörinu kalda hafi sungiö vel, meö skólaöri tækni undir vandaöri stjórn Hauks Guölaugssonar. H.O.S.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.