Morgunblaðið - 16.07.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980
27
Fullbúið 116 fm hús
á 22,7 millj. kr.
Tvílyft 212 fm timburhús fullbúin á 41 millj. kr.
frá Trésmiðju GunnarsrHelgasonar í Vestmannaeyjum
Suður (>k vesturtíafl 212 (crmetra hússins.
Vestur ok norðurKafl tvílyfta timburhússins frá Trésmiðju Gunnars
Helgasonar í Vestmannaeyjum. en það kostar fullbúið 11 millj. kr.
Ljósmyndir Mbl. Si>?urgcir.
TRÉSMIÐJA Gunnars Helgason-
ar í Vestmannaeyjum hefur hafið
fjöldaframleiðslu á tvílyftum
timburhúsum jafnhliða fram-
leiðslu á einnar hæðar húsum úr
timbri. Fyrsta tvílyfta verk-
smiðjuframleidda timburhúsið á
landinu var reist fyrir skömmu í
Eyjum, en á næstunni verða sams-
konar hús reist víða um land.
Húsin eru frá 116—212 fermetrar
að stærð, ýmist á einni eða
tveimur hæðum, en tveggja hæða
húsin eru með háu risi. Um 10
menn vinna á verkstæði Gunnars í
Eyjum, en það tekur um eina viku
að koma húsinu upp, fokheldu með
hurðum og tvöföldu gleri.
Tvílyfta timburhúsið sem var
reist fyrir skömmu í Eyjum er alls
217 fermetrar að stærð og var því
skilað fokheldu með tvöföldu gleri
og útihurðum.
Trésmiðja Gunnars Helgasonar
miðar byggingu húss við fjögur
stig, fokhelt í fyrsta lagi, með
klæðningu og einangrun í öðru
Gunnar Helgason.
lagi, með milliveggjum í þriðja
lagi og með innihurðum og inn-
réttingum öllum í fjórða lagi. Á
116 fm húsi er verðið 11,8 millj. kr.
uppsett, 15,2 á öðru stigi, 17,6
millj. á þriðja stigi og 22,7 millj-
ónir króna kostar húsið fullbúið.
Fullbúið 212 fermetra hús kost-
ar 41 milljón króna. Geta kaup-
endur valið um það á hvaða
byggingarstigi þeir taka við hús-
inu. Þá framleiðir trésmiðjan
einnig sumarhús og sér um upp-
setningar á þeim.
Nýkomin sending af
hinum geysivinsælu
LADA
station
1200 kr. 4.110.000-
1500 kr. 4.520.000.-
Nýkomin sending af hinum vinsælu LADA station, sem hentar hvort
sem er sem ferðabíll, fjölskyldubíll eða sem fyrirtækisbíll. Hann er
fáanlegur í tveim útfærslum með 1200 sm3 vél eða 1500 sm3 og þá
með vandaðri innréttingu. Pantið bílinn í dag áður en að hann selst
upp rétt einu sinni. Síminn í söludeild er 31236.
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
lilMÍLi Suðurlandsbraut 14, sími 38600
Söludeild 31236
i
Kliibburinn
SATT-KVÖLD ER í
KLÚBBNUM í KVÖLD!
„Chaplin” frá Borgarnesi
hljómsveit, sem vakti mikla athygli fyrir frá-
bæra framistöðu í Laugardalshöllinni á 17. júní
„Instrumental Tríó”
Tríóið skipa: Stefán S. Stefánsson, Brynjólfur Stefánsson,
og Eyjólfur Jónsson. Þessir hressu menn koma fram
i fyrsta sinn meö þetta Trió i kvöld hjá okkur!
STÓRVIÐBURÐUR..!
„HLJÓMAR”
FRÁ KEFLAVÍK
Viðburður sem enginn má missa af — ATH. Miðar frá
siðustu skemmtun gilda við innganginn.
S.A.T.T.
UTANGARÐSMENN
Hótel Borg
Hljóm-
leikar
ísbjarnar-
blús, gú-
anórokk
og ný lög
af vænt-
anlegri
hljóm-
plötu.
miðvikudagskvöld 16. júlí kl. 11—01. Rokkótekið
hitar upp frá kl. 10 meö lögum af nýjustu plötum
Stones, Kinks, Dylans, Clash o.fl.
18 ára aldurstakmark.
Borð ekki frátekin. Utangarðsmenn