Morgunblaðið - 16.07.1980, Page 15

Morgunblaðið - 16.07.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980 15 Glóandi hraunkvikan leit út eins og ljósadýrð stór- borgar séð úr mikilli hæð Húsavík. 15. júli — Frá Hirti Gíslasyni, bladamanni Mbl. ÞAÐ VAR stórfengleg og hrika- leg sýn, en jafnframt fögur, sem blasti við okkur. blaða- manni og ljósmyndara Mbl., er við gengum upp á Snaga, sem er rétt norðan við gosstöðvarn- ar nyrst í Gjástykki. en þar vorum við um miðnætti aðfara- nótt 15. júli. Glóandi hraun- strókar stóðu hátt i loft upp úr um 30 metra háum gíg sem myndast hafði syðst á sprung- unni sem gaus úr á fimmtudag- inn. Hraunstraumurinn hafði brotið sér leið út úr gígnum norðaustanverðum og streymdi rauðglóandi i fossum og flúðum með ógnarhraða eins og stór- fljot til norðurs og hafði þegar máð út flestar ójöfnur, og breiddi úr sér yfir hraunið sem fyrst rann í gosinu og þykknaði það óðum. Úr fjarlægð leit glóandi hraunkvikan einna helst út eins og ljósadýrð stór- borgar, séð úr mikilli hæð. Talsverðar breytingar hafa orð- ið á gosinu síðan það hófst á fimmtudag, þá gaus mestmegnis á þremur stöðum í sprungu sem lá frá norðri til suðurs og mest nyrst á móts við Snaga. Nú hafði gosið nyrst í sprungunni hjaðnað niður og krafturinn orðinn mestur syðst. Tveimur leiktækjasöl- um synjað um áfram- haldandi starfsleyfi BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum fyrir nokkru að synja tveimur leiktækjasölum um áframhaldandi starfsleyfi, en samkvæmt lögreglusam- þykkt, sem samþykkt var í borgarstjórn á sinum tima og tók gildi þann 1. júni sl„ þá er starfsemi leiktækjasala háð leyfi lögreglustjóra, að feng- inni umsögn borgarráðs. Þeir salir, sem hér um ræðir, eru Vegas, Laugavegi 92, og Jóker, Bankastræti 9. Þessir salir fengu báðir neikvæða um- sögn hjá slökkviliðsstjóra, en Vegas fékk einnig neikvæða umsögn hjá heilbrigðiseftirliti. Einn leiktækjasalur hlaut jákvæða umsögn hjá báðum þssum aðilum, en hann er að Einholti 2, og fékk hann því umbeðið leyfi. Á fundi borgarráðs í gær var ein umsókn af þessu tagi af- greidd, en það var biljarðstofa að Brautarholti 2, en hún fékk jákvæða umsögn og því starfs- leyfi. Fyrst rann hraunið bæði til norðurs og vesturs, umhverfis Snaga og til suðurs, en nú aðeins til norð-austurs. Hraunið, sem fyrst rann, hafði storknað nokkuð og mátti ganga yfir það upp á Snaga en vissara var að gæta sín vegna þess að stutt var niður í glóandi kvikuna og þaðan er líklega ekki afturkvæmt. Hraun- rennslið hefur nú verið nokkuð stöðugt síðustu daga og treysta jarðfræðingar sér nú engan veg- inn til að spá um framvindu gossins. Á meðan við nutum útsýnisins af Snaga var stöðugur fólks- straumur þar um, og lætur nærri að um 100 manns hafi verið þar á ferðinni þá stund sem við vorum þar. Það var greinilegt að fólk lét það ekki á sig fá, að hossast í bílum tímunum saman yfir veg- leysur og troðninga og ganga síðan góðan spöl til þess að sjá gosið. Meðal annarra hittum við þar konur um sjötugt og börn undir 10 ára aldri og áttu þau ekki nokkur orð til að lýsa því sem fyrir augu þeirra bar, og sáu alls ekki eftir því að hafa lagt á sig erfiða ferð, til þess að komast að gosstöðvun- um. Gigurinn sem enn er virkur í Gjástykki. Flugvél í útsýnisflugi ílýgur yfir gosstöðvarnar. — Ljósm. Mhi. Emilia O INNLENT Langstærsta hraungos á þessu svæði síðan Mývatnseldar brunnu ÞAÐ ER allt tiltölulega rólegt hér, Leirhnúkssvæði hefur sigið mjög lítið siðustu dagana. og jarðskjálftar eru nær ómerkjan- legir, sagði Eysteinn Tryggvason jarðfræðingur er við hittum hann á skjálftavaktinni i Reynihlið og báðum hann að segja okkur eitt- hvað um gosið. Okkar túlkun er sú, að kvikan komi upp í kvikuhólfi á þriggja kílómetra dýpi á Leirhnúkssvæð- inu og renni síðan neðanjarðar norður í Gjástykki þar sem hún kemur upp á yfirborðið. Hraun- streymið er mun meira en við bjuggumst við, og gosið er mjög svipað og áður en þó heldur minna og virknin hefur færst aðeins suður fyrir Snaga. Fyrsta daginn gaus á lengri sprungu en nú aðeins í syðsta hluta hennar, nú rennur hraunið eftir farvegi í norð-austur og breiðir þar úr sér ofan á það sem rann fyrsta daginn. Þetta er langstærsta hraungos á þessu svæði síðan Mývatnseldar brunnu 1724—1729. Það er að minnsta kosti 10 sinnum stærra en önnur gos sem verið hafa á þessu svæði að undanförnu. Hraun- straumurinn er enn verulega mik- ill, sem dæmi má nefna, að hann er mun meiri en í Vestmannaeyjagos- inu þegar það hafði staðið í svipaðan tíma og þetta. Hraun- straumurinn er svipaður að magni og rennsli Laxár í Aðaldal og hraunið orðið að minnsta kosti 5 ferkílómetrar. Þetta gos er dæmigert sprungu- gos, mjög svipað Mývatnseldunum og mjög eðlislíkt gosunum sem hér hafa orðið að undanförnu. Við getum mjög lítið sagt um framtíð þessa goss, því allt getur gerst. Ef það minnkar verulega, gæti gosrásin stíflast, en það er ekkert sem bendir sérstaklega til þess, svo það gæti því alveg eins haldið áfram í einhverja daga, viku eða jafnvel enn lengur. Kosturinn við þetta hraungos er sá, að það lendir á besta stað, langt frá byggð og auk þess í lægð, sem safnar hrauninu í sig, svo það rennur ekki langt og af því stafar lítil hætta, enn sem komið er að minnsta kosti, sagði Eysteinn Tryggvason að lok- um. Eysteinn Tryggvason. jarðfræð- ingur. I.jósm. Arnór. Hörkuárekstur varð á Hringbrautinni í Keflavik rétt fyrir hádegi í gær. Skullu þar saman Vauxhall- og Subaru-bif- reiðir með þeim afleiðingum að báðar bifreiðirnar lentu inn á lóð fjölbýlishúss sem stendur skáhallt á móti Sparkaup. Gngin slys urðu á fólki en ekki mátti miklu muna því að bílarnir fóru sinn hvoru megin við Ijósastaur sem stendur á gatnamótunum. Fær LÍÚ að reisa sum- arhús „UPPIIAF þessa máls er það að við kaupum jörðina Skjaidartröð á Hellnum árið 1978 með það i huga að byggja þar sumarhús fyrir starfsfólk LIÚ og útvegsmenn, eins og önnur félagasamtök hafa gert i rikum mæli að undanförnu." sagði Kristján Ragnarsson for- maður LÍÚ i samtali við Morgun- blaðið. en eins og kunnugt er af fréttum þá hefur nokkur styrr staðið um þessar byggingafram- kvæmdir. „í upphafi sýndi hreppurinn áh- uga á að nýta sér forkaupsrétt, en gat ekki keypt jörðina, því festi LÍÚ kaup á þessari jörð. Það var gert eftir samningaviðræður við sveitar- stjórnina, sem óskaði mjög eindreg- ið eftir því að jörðinni yrði haldið í byggð, en LÍÚ hafði í sjálfu sér ekki áhuga á að fara að reka neinn búrekstur á jörðinni. En vegna þessara eindregnu tilmæla var jörðin leigð ungum hjónum til lífstíðar, og var þá ákveðið að hvammur, sem stendur undir hraunkanti, austast á Helinum, á eigin yrði tekinn frá til að byggja þar á þessi hús. Þetta var öllum kunnugt og sveitarstjórnin var þessu með- mælt og einnig var heimamönnum þetta kunnugt," sagði Kristján. „Við höfum síðan undirbúið að reisa á jörðinni sumarhús og höfum fengið samþykki skipulagsstjórnar ríkisins og sveitarstjórnar og einnig hefur félagsmálaráðuneytið úr,- skurðað um það að okkur sé heimilt að byggja á þessum stað. í síðustu viku var mælt fyrir húsunum af byggingarfulltrúa á þessu svæði. Við teljum því að við höfum öll þau gögn í höndunum sem við þurfum til þess að hefja þarna bygginga- framkvæmdir. Það hefur komið fram ákveðin andstaða íbúa á Hellnum, þar sem þeir ímynda sér að þarna muni verða um mikla umferð að ræða og mikla áníðslu á þeirra heimabyggð, sem við teljum vera fjarri lagi, því þetta er í landi sem LÍÚ er eigandi að og við hljótum að ætlast til að geta fengið að nýta þennan jarðar- hluta að þessu marki. landi? Það sem gerðist síðan var það að fulltrúi sýslumanns óskaði eftir að við hæfum ekki framkvæmdir fyrr en eftir nokkra daga meðan þetta mál yrði athugað. Núna er það í athugun og við teljum sýnt að við höfum öll tilskilin leyfi til að hefja þessar framkvæmdir. Það sem heimamenn bera fyrir sig er það að landbúnaðarráðuneytið hafi ekki samþykkt að taka þetta land undan landbúnaðarnotum. En hér er að- eins um að ræða hálfan hektara lands sem ekki hefur verið nýttur til landbúnaðar og við höfum jafn- framt boðist til að rækta tvisvar sinnum stærri hluta á okkar kostn- að og bæta við túnið á Skjaldartröð, ef það gæti orðið til þess að leysa málið. Það hefur ekki leystst ennþá en við gerum ráð fyrir að reisa þessi hús alveg á næstunni. Við væntum þess að góð samvinna takist við heimamenn og munum leitast við í einu og öllu að verða ekki til þess að raska þeirra högum á einn eða annan hátt,“ sagði Kristján Ragn- arsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.