Morgunblaðið - 16.07.1980, Side 32

Morgunblaðið - 16.07.1980, Side 32
Síminn á afgreiðslunni er 83033 Síminn á ritstjórn og skrifstohi: 10100 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1980 Banaslys í Sundahöfn Frá slysstaðnum í Sundahöfn í gær. uosm. Mbi. rax Saltfiski fyrir 33 milljarða afskipað ENN VARÐ banaslys í gær. llnnið var að uppskipun úr ms. Dettifossi í Sundahöfn þe>{ar kranabóma brotnaði. Féll hún á bryKKjuna ok á tvitujían verka- mann. sem þar var við vinnu. Hann var fluttur i skyndi á slysadeild BorRarspitalans en lézt þar skömmu síðar. Ekki er unnt að birta nafn hans að svo stoddu, þar sem ekki hefur náðst til allra aðstandenda. Slysið varð um klukkan 14 í j;ær. Verið var að hífa stóran krana upp úr lest ms. Dettifoss og voru notaðir til þess tveir kranar. Þegar þeir höfðu lyft krananum upp og færa átti hann yfir á bryggjuna gaf bóma annars kran- Beint samband við Þýskaland í september? I jarðstöðinni Skyggni í Mosfells- sveit eru nú í gangi prófanir og lagfæringar á síðustu hlutunum er skipta þarf um áður en stöðin verður tekin i notkun, sem nú er ráðgert að verði í september. Um svipað leyti verður tilbúin ný sjálfvirk símstöð og geta simnot- endur þá hringt beint til nokkurra landa i Evrópu. Fyrst í stað verður hægt að hringja beint til Þýskalands og nokkurra landa sunnan þess, en síðar í haust verður hægt að hringja beint til Norðurlandanna og kringum áramótin beint til Bretlands. Gústaf Arnar yfirverk- fræðingur sagði að brýnast væri að lagfæra símasamband milli íslands og landa í Mið- og Suður-Evrópu þar sem illa hefði gengið að undan- förnu að hringja þarna á milli og oft löng bið eftir símtölum. Höfum „Á FJÁRLÖGUM þessa árs er gert ráð fyrir því að verja 24,5 milljörðum króna til niður- greiðslna, en i lok júnimánaðar var búið að verja til þessara mála um 11,5 milljörðum króna. Það er því ljóst, að við höfum varið töluvert lægri fjárhæðum til niðurgreiðslna á fyrrihluta árs- ins en ráð var fyrir gert. Þvi skapast nú nokkurt svigrúm til þess að auka niðurgreiðslur um næstu mánaðamót." sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra er Mbl. innti hann eftir þvi hvernig fjármagna ætti auknar niður- greiðslur um næstu mánaðamót til þess að milda áhrif verðhækk- ana i vísitölunni. „Síðar má gera ráð fyrir, að bæði tekjur og gjöld fari eitthvað fram úr áætlun, vegna þess að verðbólgan er heldur meiri en ráð var fyrir gert þegar fjárlögin voru sett saman og er það ekki í fyrsta sinn. Það mun því ekki valda ans sig og brotnaði. Féll bóman á bryggjuna og lenti á manninum. Hann hlaut mikil meiðsli og lézt af völdum þeirrá skömmu eftir að komið var með hann á slysadeild- ina. Jólabókin í 15 þús- und kr? ÚTLIT cr fyrir að verð á jólahókunum i ár verði miili 10 og 20 þúsund krónur sé gert ráð fyrir 40— 50% hækkun frá í fyrra. Þýddar bækur af ódýrari gerðinni kostuðu i fyrra kring- um 7 þúsund, en meiriháttar bækur, t.d. islenskar ævisögur, kostuðu kringum 15—16 þús- und og má því gera ráð fyrir að verðið í ár verði frá 10 og upp í 20—25 þúsund krónur. Oliver Steinn Jóhannesson, formaður Félags ísl. bókaútgef- enda, kvað útgefendur enga við- miðun hafa aðra en verðbólguna þegar fjallað væri um hugsan- legt bókaverð í ár. Taldi hann ólíklegt annað en bækur hækk- uðu sem henni næmi. — Annars eru það eingöngu bjartsýnis- menn sem fást við útgáfu, sagði Oliver, — við vinnum yfirleitt 2 ár fram í tímann og erum þegar farnir að fjárfesta vegna bóka sem koma eiga út haustið 1981. Bókaútgefandinn er því nánast varnarlaus fyrir því sem kann að gerast í fjármálum á þessum tíma sem líður frá því að útgáfa bókar er afráðin þar til hún kemur út og má því kannski segja að bókaútgáfa sé ekki minna happdrætti en síldveiðar hafa verið. neinum halla á ríkisrekstrinum þó svo þessi fjárlagatala fari lítils- háttar fram úr áætlun í árslok, t.d. um hálfan milljarð eða svo. Við höfum því nokkurt svigrúm til þess að auka niðurgreiðslur um næstu mánaðamót. Ef greiðslur yrðu svipaðar út árið eins og þær STEYPUSTÖÐV ARN AR, kvik- myndahús og niðursuðuverk- smiðjan ORA hafa ákveðið að hækka þjónustu sina um 9%. Höfðu þessir aðilar fengið sam- þykkta hækkun Verðlagsráðs í síðasta mánuði, steypustöðvarnar AFSKIPANIR á saltfiski hafa gengið sérstaklega vel það sem af er þessu ári að því er fram kemur í nýlegu fréttabréfi, sem Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda hefur sent frá sér. Af því tilefni hafði Morgunblaðið sam- band við Sigurð Haralds- son skrifstofustjóra SÍF, sem veitti blaðinu eftirfar- andi upplýsingar um framleiðslu og afskipanir. hafa verið myndu fara 23 milljarð- ar til niðurgreiðslna. Ég reikna því með, að til niðurgreiðslna um næstu mánaðamót verði varið þeim eina og hálfa milljarði króna, sem þarna ber á milli, að viðbætt- um nokkur hundruð milljónum króna,“ sagði Ragnar Arnalds. 10% og hinir tveir aðilarnir 12%, en ríkisstjórnin hafnaði siðar á fundi sínum þessum hækkunar- beiðnum og ákvað að leyfa ekki hækkanir sem væru umfram 9%. Flugleiðir, sem einnig höfðu fengið 12% hækkun innanlands- Framleiðsla vetrarvertíðar er talin vera tæp 40 þúsund tonn, þar af rúm 36 þúsund tonn þorskur. Til samanburðar má geta þess að framleiðslan allt árið 1979 var um 41.500 tonn. Öll framleiðslan á vetrarvertíðinni nú er seld og hefur afskipun gengið mjög vel eins og fyrr er sagt. Frá áramótum til miðs júlí hefur verið afskipað um 29 þús- und tonnum af söltuðum þorski, þar af 15.000 tonnum til Portúgal, tæplega 7 þúsund tonnum til Spánar og um 5.200 tonnum til Ítalíu. Heildarverðmæti fram- leiðslunnar sem þegar er búið að afskipa nemur um 33 milljörðum króna. Aðspurður um afkomuna á vetrarvertíð sagði Sigurður að hún væri í heildina tekið mjög viðunandi hjá öllum þorra salt- fiskframleiðenda og mætti aðal- lega þakka það tvennu. í fyrsta lagi hefðu afskipanir gengið trufl- unarlaust fyrir sig, sem þýddi mun minni birgða- og vaxtakostn- að, sem enn væri þó hár og í öðru lagi hefði náðst nokkur markaðs- verðhækkun í samningunum við helstu kaupendur sl. vetur. Ljóst væri þó, að hin góða afkoma byggðist einnig á verulegum greiðlsum úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins. Sigurður sagði að lokum að helsta ástæða þess að afskipanir fargjalda samþykkta hjá Verðlags- ráði, höfðu fyrr hækkað gjöldin um 9%, en Tómas Árnason kvað það myndu látið óátalið þótt félagið hækkaði upp í 9%. Nú hafa áður- greindir aðilar, að fengnu fordæmi Flugleiða, ákveðið að hækka einnig þjónustu sína í 9%. hefðu gengið svo vel sem raun bæri vitni væri sú, að þetta vor hafi verið hið fyrsta í fimm ár, sem afskipanir eru ekki stöðvaðar eða truflaðar með verkföllum, útflutningsbanni o.þ.h. aðgerðum. Lánuðu bílinn og sáu hann ekki meir LÖGREGLAN í Reykjavík leit- ar nú að jeppa i dýrasta verðflokki, sem hjón í Reykja- vík lánuðu ókunnu fólki í stutta ferð sl. föstudagskvöld, en bifreiðin kom aldrei aftur úr þeirri ferð. Málavextir eru þeir að hjónin brugðu sér á skemmtistað í borginni s.l. föstudagskvöld og fóru akandi á jeppanum. Þar fengu þau sér í glas og þegar halda skyldi á brott vildu þau ekki sem löghlýðnir borgarar aka bílnum undir áhrifum áfengis. í þann mund bar að ungt par, sem aðspurt kvaðst reiðubúið að aka bílnum. Stúlk- an ók bílnum og var ekið um borgina og um síðir staðnæmst við annan skemmtistað. Þegar þangað var komið spurði parið hvort það gæti ekki fengið jeppann lánaðan í smástund og var það auðsótt mál en með þeim skilyrðum þó, að þau kæmu að skemmtistaðnum eftir ákveðinn tíma. Það brást hins vegar og urðu hjónin að fara heim án bílsins. Þau bjuggust við því, að hann myndi skila sér fljótlega, en á mánudagskvöld var þeim ekki farið að lítast á blikuna og kærðu bílhvarfið til lögreglunn- ar. SYÍgrúm til að auka niðurgreiðslur — segir Ragnar Arnalds, f jármálaráðherra Hækkuðu einnig um 9% að fengnu fordæmi Flugleiða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.