Morgunblaðið - 31.08.1980, Síða 4

Morgunblaðið - 31.08.1980, Síða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1980 í þessum mánuði er níræð- ur Martinus Thomsen. Hann var af fátæku fólki kominn. fæddur í Vendsyssel á Jót- landi. I»ar var hann smali og ólst upp í skauti náttúrunn- ar. Enginn veit fóðurætt hans ok móðir hans dó þexar hann var ellefu ára. Hann naut lítillar skólaKónKU ok ólst upp hjá frænda sínum við Kuðsótta ok ástríki. Un>?ur Kerðist Martinus Thomsen starfsmaður hjá mjólkur- húum. Ilann þótti á allan hátt vcnjulesur ungur maður. samvizkusamur ok næKju- samur. UrítuKur að aldri hafði Martinus unnið sík upp í skristofumannsstarf á sínu mjólkurhúi. Þrátt fyrir hversdaKsleikann í fram- komu þessa manns, bjó ein- hver óróleiki i sálinni. Ilann fékk að láni hjá vini sinum lx')k um Kuðspeki, þar sem m.a. var jjreint frá hug- leiðslu. Eitt kvöldið situr Martinus Thomsen á stól í herberjíi sínu o>? hugleiðir efni þessarar b<')kar ok reynir að komast í „huKleiðslu- ástand". I»á gerðist undrið. Hann segir sjálfur svo frá: „Ék leit beint í ásjónu einhverr- ar veru, sem sveipuð var ein- hverskonar loga. Það var líkt og Krists mynd úr blikandi morgun- sól nálgaðist mig og breiddi faðm- inn móti mér. Ég var gjörsamlega lamaður, gat hvorki hrært legg né lið, en starði hugfanginn í ljóm- ann, sem á næsta andartaki virtist hverfa inn í vitund mína, gagn- taka hold mitt og blóð. Dásamleg sælukennd fyllti sál mína. Hið guðdómlega ljós, sem hafði tekið bústað í mér, veitti mér hæfileika til að sjá tilveruna uppljómaða í þessari birtu, sem ég hafði öðlast í vitund minni.“ Eftir þetta starfaði Martinus Thomsen ekki meir á mjólkur- búum. Hann segir í spjalli við Kristmann Guðmundsson í Mbl. 10. sept. 1952: „Árdegis næsta dag settist ég á sama stólinn og batt fyrir augu mín, því það var bjart í herberg- inu. Þá skeði það, að ég sá inn í óravíðan heim, sem varð æ bjart- ari og að síðustu sem eldhaf eitt af gullnu ljósi, og samtímis streymdi inn í huga minn víðtæk vitneskja um tilveruna og tær skilningur á fyrirbærum hennar. Allt sem ég beindi huganum að lá ljóst fyrir; ég skildi orsök og afleiðing alls. I fyrstu tók þetta mig svo öfluglega, að ég varð að stritast á móti. En síðan kom þessi æðri vitund yfir mig oftar og mér skildist að ég ætti að gera aðra þátttakandi í þeirri vitneskju sem ég fékk.“ Nú tók Martinus að lesa sér til. Hann æfði sig í ritmennsku svo að hann gæti birt reynslu sína á læsilegu máli. Sjö ár stóð þetta sjálfsnám — þá var hann tilbúinn til starfa. Hann kaus að nota fyrra nafn sitt og kallaði sig Martinus. Hann hóf að skrifa Livets bog — Bók lífsins — í sjö þykkum bindum og birti þar sannindi sín. Síðan hefur Martinus haldið fyrir- lestra og ferðast um lönd og kynnt fræði sín. Vinir hans og velunnar- ar komu á fót Martinus Institut í Kaupmannahöfn, og í hópi þeirra nýtir Martinus ellina til skrifta. Étur ekki kjöt og sat í fangelsi... I síðustu viku var staddur hér- lendis ungur maður frá Martinus Institut og flutti fyrirlestra í Reykjavík og á Akureyri. Rolv Elving heitir hann, fæddur Svíi og hefur étið grænmeti, drukkið jurtate og þess háttar síðustu tíu árin. Það kom mér því á óvart, að hann var 195 sentimetrar á hæð- ina, ef ekki hærri, og á allan hátt vel haldinn. Hann kom vel fyrir þessi Svíi; einn af þeirri gerðinni sem sjá jákvæðar hliðar á hverju máli. Hann trúði mér fyrir því að hann kúgaðist væri borið fyrir hann kjötmeti. Rolv Elving hafði sín fyrstu kynni af fræðum Martinusar 17 ára gamall. Ekki þarf að orðlengja að hann sannfærðist strax af rökvísi Danans og hóf nám við Martinus Institut í Höfn. í heima- landi sínu neitaði hann að gegna herþjónustu og sat inni heilan mánuð fyrir vikið. Ég átti tal við þennan sænska mann á heimili Finnbörns Finnbjörnssonar, mál- arameistara hér í bæ. Finnbjörn segir frá... En fyrst, tildrög þess, Finn- björn málarameistari, að þú kynntist fræðum Martinusar. — Já. Sem ungur maður heima á Isafirði hafði ég kynni af M. Simson, dönskum manni og ljós- myndara þar í bæ. Simson fannst hann vera kominn heim, þegar hann heimsótti Ísland og lifði alla tíð síðan á ísafirði. Hann var fræðimaður í sér, Simson, og mikill skógræktarmaður sem ís- firðingar þekkja. Hann hafði lesið af Martinusi og sagði mér frá hans fræðum. — Það var Simson sem skrifaði pésann „Hugleiðingar um vaxta- kerfið og hinn skynsama ótta" og ísrún gaf út á sínum tima. Þar segir Simson á einum stað: „... ég hefi fyrir sjálfstæða hugsun náð því þroskastigi, sem veitir fullan skilning á tilverunni ...“ Er það svo með þig? — Já, fræði Martinusar urðu mér strax hugstæð. Hann færir rök fyrir öllum hlutum og skýrir lífgátuna — hann skýrir tilveruna eins og hún leggur sig, og það hefur aldrei verið gert fyrri. Mér varð strax ljóst að Martinus fór með sannindi, hann færir það skýr rök fyrir öllu sem hann staðhæfir, og einmitt það gerir hann að vísindamanni. Þetta er ekki trúar- söfnuður, Martinus segir ekki: Fylgið mér! Hann veit, að þeir sem hafa til þess þroska þeir skilja hann og skynja sannindi hans, hina skortir frekari reynslu. Mart- inus þarf þess vegna ekki að biðja fólk að fylgja sér, því hann fer með hin eilífu sannindi. Að þessu öllu víkjum við síðar. En semsé, Martinus færir rök fyrir öllum hlutum. — Það er einmitt það. Þú munt, Finnhjörn. hafa kafað djúpt í fræði Martinusar — Eru fleiri islenzkir kunnugir þeim fræðum? — Já, já. Fjöldi íslendinga þekkir til Martinusar. Og Martin- us hefur verið þýddur á íslenzku. Leiftur gaf út fyrir fáum árum nokkra fyrirlestra hans í tveimur bindum: „Leiðsögn til lífsham- ingju“ I og II, og ennfremur tvær bækur — táknmyndabækur — viðauka við Bók lífsins. Og Mart- inus hefur komið hingað til lands fimm sinnum, síðast 1970 og eignast hér marga vini. En ætli ég sé ekki eini núlifandi íslendingur- inn, sem hef lesið Martinus allan. Vignir heitinn Andrésson, íþróttakennari, var fróðastur ís- lenzkra manna um Martinus. Ég hef nú tekið við af Vigni, sem einskonar tengiliður milli íslands og Martinus Institut í Kaup- mannahöfn. Sendi þeim t.d. allt sem skrifað er um Martinus hér- lendis og segi fréttir af gengi Martinusar hér. — Þú og fjölskylda þin, Finn- björn, voruð úti í Danmorku i sumar, og heimsóttuð Martinus, ekki satt? — Það er akkúrat. Reyndar áttum við ekki að fá að sjá Martinus, hann einangrar sig orð- ið, hann á mikið starf eftir enn. En svo fór að við sáum Martinus, og eyddum einni og hálfri klukku- stund af hans dýrmæta tíma. Og hún var í einu orði sagt stórkost- leg þessi stund. Það lýsa henni engin orð, hún var einstæð lífs- reynsla. Ég flutti Martinusi kveðj- ur af íslandi og honum þótti vænt um þær. Martinusi er annt um ísland. Hann bað að heilsa íslend- ingum. Jú, sjáiði til. Fyrsta utanlands- ferð Martinusar var hingað til lands. Árið 1952 var það, að hann kom hér á vegum Grétars og Sólveigar Fells, og hélt fyrirlestra í Guðspekifélagshúsinu. Nú 20 árum síðar kemur einn helzti lærisveinn hans til íslands, líka í sinni fyrstu utanlandsferð og stendur á sama palli í Guðspekifé- lagshúsinu og segir af fræðum Martinusar. Fyrir Martinusi er ísland framtíðarland. Og í þriðju heimstyrjöldinni, sem við víkjum að síðar og verður rétt fyrir næstu aldamót, þá heldur forsjónin verndarvæng sínum yfir íslandi. Ef t.a.m. herveldi sendir hingað sprengju, þá bilar hún á leiðinni o.s.frv. íslendingar eru með þrosk- uðustu þjóðum heims og þess vegna heldur forsjónin verndar- væng sínum yfir okkur, því okkar hlutverk er mikilvægt í þeim heimi mannúðar sem mun rísa úr rústum þess ægilega heims, sem við lifum nú í. Við íslendingar höfum þolað svo mikið gegnum aldirnar og þess vegna erum við andvígir vopnaburði. — Ertu viss um, nema þessi þjóð væri með mestan her, hefði hún til þess bolmagn? — Já ég er viss um að Islend- ingar eru friðelskandi þjóð. Island er t.a.m. eina landið í heiminum, þar sem ekki er dagleg- ur lögregluvörður hjá forseta landsins, þar sem ráðherrar geta spókað sig á götum úti á lífvarða. Og Martinus elskar ísland, þetta tæra loft og þessa fögru náttúru. Martinus og kristnin Nú sneri ég mér að Svíanum, Rolv Elving, og spurði: Hvers vegna kemur Martinus i heiminn nú? — Sjáðu til. Mannfólkið er vaxið upp úr trúarbrögðunum, þeirra kenningum og hugsjónum. Við sjáum það allsstaðar, að trúin er ekki söm og áður, sífellt fleiri stólar standa auðir við guðs- þjónustur. Það er staðreynd að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.