Morgunblaðið - 06.09.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
Samningamál ASÍ og VSÍ:
Lognið á und-
an storminum?
MIKIL kyrrð ríkir nú við samn-
inKaborðin í húsakynnum sátta-
semjara ríkisins, enda hefur ekki
verið haldinn sáttafundur milli
ASÍ og VSÍ i viku tíma, en
viðrseðuslit urðu fostudaKÍnn i
fyrri viku. í gær kom þó viðræðu-
nefnd ASÍ saman á enn einn
fundinn til þess að fjalla um stöðu
samningamála. Niðurstaða fund-
arins var að nefndin kæmi aftur
saman á mánudag og aftur á
miðvikudaK. fyrir o(? eftir fund
Gervasoni
kominn til
Islands
FRAKKINN Garvesoni, sem
beðið hefur um hadi á Islandi
sem pólitiskur flóttamaður, er
kominn hinuað til lands frá
Danmörku til þess að reka á
eftir erindi sinu.
Baldur Möller ráðuneytis-
stjóri i dómsmálaráðuneytinu
staðfesti i samtali við Mbl. i
Kærkvöldi að Garvesoni hefði
komið til landsins á þriðjudax-
inn mcð ferjunni Smyrli.
Lögfræðingur hans hefur sett
sig í samband við íslenzk
stjórnvöld og ítrekað þá ósk
Frakkans að hann fái hér hæli
sem pólitískur flóttamaður.
Voru skýrslur teknar af Gar-
vesoni í gær og mun ráðuneytið
taka mál hans til meðferðar
eftir helgina.
Garvesoni er landflótta frá
Frakklandi og hefur undanfarið
búið í Danmörku. Mál hans
hefur verið til athugunar hjá
dómsmálaráðuneytinu um
nokkra hríð, „enda óvenjulegt
að beðið sé um pólitískt hæli
bréflega", eins og Baldur Möller
sagði í gærkvöldi.
43ja-mannanefndar ASl, sem boð-
uð hefur verið til fundar á þriðju-
dag.
Alþýðusambandið bíður nú eftir
niðurstöðum í allsherjaratkvæða-
greiðslu Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, en gangi allt að
óskum um söfnun kjörgagna, verð-
ur talið um helgina, í kvöld eða
fyrramálið. Nokicur félög innan
Alþýðusambandsins hafa þegar
aflað sér verkfallsheimildar og má
þar sérstaklega nefna Verkalýðsfé-
lagið Vöku i Siglufirði og Einingu á
Akureyri. Bíða félögin nú ákvörð-
unar 43ja-manna nefndar ASÍ um
framhald og aðgerðir, en búizt er
við því, að nefndin óski eftir
verkfallsheimild aðildarfélaganna
og að jafnvel verði ákveðinn boðun-
ardagur verkfalla í lok september
eða byrjun okóber.
Því getur verið, að kyrrðin við
samningaborðið nú sé aðeins lognið
á undan storminum.
Kvíabryggja:
Maður brenn-
ist illa
VISTMAÐUR á Kvíabryggju á
Snæfellsnesi brenndist illa s.l.
miðvikudag. er hann var að
brenna rusli. Maðurinn, sem er
um tvítugt, var fluttur samdæg-
urs til Reykjavikur og liggur
hann nú á gjörgæzludeild Borg-
arspitalans. Hann er ekki talinn i
lifshættu.
Maðurinn var að brenna rusli
þegar logi gaus upp og læsti sig í
manninn. Atvik eru óljós en eftir
því sem blaðið kemst næst mun
eldur hafa læst i föt mannsins auk
þess mun hann hafa brunnið í
andliti. Tveir starfsmenn Rann-
sóknarlögreglu ríkisins fóru í gær
vestur að Kvíabryggju til að rann-
saka þetta mál.
Stöðva sölu tóbaks og áfeng-
is til flugáhafna á útleið
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ til
kynnti i gær að ákveðið væri að
stöðva alla sölu á áfengi og
tóbaki til flugáhafna á leið út úr
landinu. Ilafa flugáhafnir haft
heimild til slikrar verzlunar eins
og aðrir á leið út úr landinu
hingað til.
Kristján Pétursson deildarstjóri
Tollgæzlunnar á Keflavíkurflug-
velli sagði að ástæöan fyrir þessu
væri sú að bæði Fríhöfnin og
flugliðar hefðu ekki virt þær
eftirlitsreglur sem tollgæzlan
hefði í þessum efnum þótt beiðnir
um slíkt hefðu verið ítrekaðar. Þá
sagði Kristján að þetta væri gert
til þess að koma í veg fyrir að
áfengi lenti eftir ólöglegum leið-
Myndasögur Moggans á Heimttissýningunni:
Högni og kattabandið á fullri ferð
KATTABAND Morgunblaðsins
hefur skemmt gestum heimilis-
sýningarinnar undanfarna daga
og er ávallt fjöldi fólks, bæði
barna og fullorðinna, sem fylgist
með þeim félögum sprella í
sýningarbás Morgunblaðsins.
Högni er að sjálfsögðu í aðal-
hlutverkinu og fisksalinn, Sonja
og villikötturinn láta ekki sinn
hlut eftir liggja. Þeir félagar
spila á ýmis hljóðfæri, spjalla
við krakkana og rífast innbyrðis
á viðeigandi hátt. Högni er
sjálfur all aðsópsmikill eins og
lesendur blaðsins þekkja hann á
síðum Morgunblaðsins, en þeir
félagar koma fram kl. 3, 6 og 9 í
sýningarbás Morgunblaðsins í
Laugardalshöllinni.
„Luxair taldi áhætt-
una vera of mikla“
segir Sigurður Helgason forstjóri
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú fengíð
greinargerð þá sem hún bað stjórn
Flugleiða um varðandi stöðu og
fjárhag fyrirtækisins, en í samtali
við Sigurð Helgason forstjóra
Flugleiða sagði hann að meginatr-
iðin sem þar komu fram hafi birst
í Morgunblaðinu i viðtölum og
fréttum. Aðspurður um ástæðuna
fyrir þvi að slitnað hefði upp úr
viðræðum milli Luxair og Flug-
leiða um samvinnu á Norður-
Atlantshafinu sagði Sigurður að
það væri sitt mat að Luxair hafi
talið áhættuna of mikla á þessum
rekstri, of vafasama eins og á
sta^ii án þess að meira kæmi til.
Sigurður sagði að í greinargerð-
inni til ríkisstjórnarinnar væri
fjallað um þessar samningaumleit-
anir sem hófust fyrir tilstilli ríkis-
stjórnarinnar, síðan hafi fulltrúar
flugfélaganna rætt málin, þá hafi
Flugleiðir skilað áliti til ýmissa
aðila og samgönguráðherra hafi
ávallt fylgst með málinu og síðan
hafi niðurstaðan hjá Flugleiða-
mönnum orðið sú að ekki hafi verið
unnt að komast lengra með málið
án frekari aðgerða.
Leitt að sjá fram á
að Flugleiðir hætti
f lugi til Luxemborgar
— YFIRVÖLD Luxemborgar hafa
skýrt málin frá sinni hlið og telja
ekki grundvöll fyrir því að ganga
til samstarfs við Flugleiði með þeim
fjárhagsskuldbindingum, sem það
hefði í för með sér. sagði Einar
Ólafsson forstjóri Cargolux í sam-
tali við Mbl. í gærkvöld. er hann var
spurður um stöðu Flugleiða 1 Lux-
emborg.
Mörgum nýjum þáttum frestað
vegna seinagangs í afgreiðslu
VETRARDAGSKRÁ Sjónvarpsins var til umræðu á fundi Ctvarpsr
ráðs í gær og samþykkti Útvarpsráð fyrir sitt leyti þá áætlun, sem
Sjónvarpið lagði fram. Ilins vegar er ólíklegt að þessi áætlun
komist til framkvæmda að öllu leyti í vetur, þvi mikill dráttur varð
á afgreiðslu dagskrárinnar. Morgunblaðið ræddi í gær við Hinrik
Bjarnason, forstöðumann Lista- og skemmtideildar, og spurðist
fregna um helztu nýmæli í dagskrá vetrarins.
skaup, sem hér hafa verið gerð,
taka þaðan beztu atriðin og búa til
nokkra þætti með því efni. Ég geri
ekki ráð fyrir að það verði í vetur,
því þetta átti að vinnast á haust-
mánuðum. fslenzk söngvakeppni,
sem á milli 4—500 lög komu í,
frestast af sömu orsökum, því
mikla forvinnu þarf til aðþað megi
fara sæmilega fram. Á næstu
dögum tökum við afstöðu til þess
hvenær hægt verður að fram-
kvæma hana.
— Spurningakeppni geri ég ráð
fyrir að verði eins og áætlað er, þ.e.
að hún fari fram einhvern tíma í
vetur. Fyrirhugað er að gera sex
þætti þar sem verða spurninga-
leikir eins og áður hefur verið gert,
— Þessi áætlun Lista- og
skemmtideildar um fasta innlenda
dagskrárliði í haust og vetur var
lögð fram í útvarpsráði 20. júní og
frá henni loksins gengið núna,
þ.e.a.s. afgreiðslu á þessum liðum,
en sumir þerra eru þess eðlis, að
þeir munu óumflýjanlega raskast
vegna þess langa tíma, sem þetta
hefur tekið, sagði Hinrik.
— Þeir föstu þættir, sem verið
hafa í Sjónvarpinu, verða áfram,
þ.e. Stundin okkar, Vaka og Skon-
rokk geri ég ráð fyrir og vildi
gjarnan að hægt væri að ná
innlendum atriðum inn í það og
það verður athugað. Við gerðum
tillögu um skemmtiþætti og höfum
hug á að fara yfir þau áramóta-
en ekki er ákveðið hver stjórnar
þeim. Fyrirhugað er að hafa með
ákveðnu míliibili, viku- eða hálfs-
mánaðarlega, stuttan þátt, sem
héti Kvæði. Leikari flytur kvæði,
það verður myndskreytt með ýms-
um hætti og í þessu yrði farið yfir
breitt svið, allt frá fyrri öldum til
nútíðar. Væntanlega gerum við
tilraun með þetta í fyrsta skipti í
október eða nóvember. Þá höfðum
við gert ráð fyrir nokkru, sem gæti
heitið Mynd dagsins og þar yrði
stutt kynning á myndlistarverki í
tengslum við fréttir, en í augna-
blikinu er óljóst hvenær okkur
tekst að koma þessu i kring.
— Við höfðum gert ráð fyrir að í
desember yrðu 13 5 mínútna þætt-
ir, sem yrðu sendir út strax að
loknum fréttum á komudögum
jólasveinanna og hétu Jólasvein-
arnir. Þá er þáttur, sem á að heita
Tónskáld eða Tónlistarmaður
mánaðarins og þar gerum við ráð
fyrir að gera skil verkum einstakra
tónskálda eða tónlistarmanna,
flytja verk eftir hann eða af
tónlistarmanninum og kynna í 40
mínútna þætti. Þetta get ég ekki
sagt hvenær hefst, því það er háð
þeim vinnuáætlunum, sem við get-
um núna gert.
— Um erlenda þætti er það að
segja, að við höfum sett inn á
október-drög upphafið að þáttum,
sem heita „Tinker, tailer, soldier,
spy“. Alec Guinnes leikur aöalhlut-
verkið og fyrst og fremst er fjallað
um viðskipti brezkrar leyniþjón-
ustu við rússneska. Ég á von á að
þarna sé gott efni á ferðinni.
Sápuna fær fólk aftur að sjá við
tækifæri, þegar Shelley lýkur í
þessum mánuði. Nýi þátturinn með
Guinnes kemur í staðinn fyrir Kaz
í október. Líka verður á ferðinni
danski þátturinn „Vores vár“, sem
er skrifaður af Klaus Rifbjerg og
við gerum ráð fyrir að hann hefjist
síðari hluta október, en þetta eru 4
þættir, sem fjalla um sjöunda
áratuginn.
— Eðlilega er mikið talað um
Flugleiði hér um þessar mundir,
þetta hefur verið stórt nafn hér í 25
ár og okkur þykir leitt að sjá jafnvel
fram á það, að félagið hætti flugi
hingað, eins og fram hefur komið,
sagði Einar ennfremur. Þá sagði
hann útilokað að aðilar í Luxemborg
væru reiðubúnir að taka við af
Flugleiðum ef það hætti nú, þar yrði
að koma til samvinna við önnur félög
og því væri ekki fráleitt að möguleiki
yrði á samstarfi við Luxemborgara í
einhverri mynd. Ekki kvað Einar
líklega samvinnu Cargolux og Flug-
leiða um farþegaflutninga.
Hjá Boeing verksmiðjunum í
Seattle í Bandaríkjunum er nú að
verða tilbúin ný flutningaþota af
gerðinni B-747, sem Cargolux hefur
keypt og verður hún afhent 8.
október. Sagði Einar þotuna vera
sambærilega við fyrri B-747 þotu
félagsins, nema hún væri burðar-
meiri og sparneytnari. Þá sagði
Einar að mikið framboð væri nú í
heiminum á fragtvélum og hörð
samkeppni í þessari atvinnugrein, en
Cargolux er nú fjórða stærsta fyrir-
tækið í heiminum, sem annast ein-
göngu vöruflutninga.
Tæplega 66%
sögðu já
TALIÐ var í atkvæðagreiðslu
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar um samkomulagið við borg-
ina í gærkvöldi. 2121 var á kjörskrá
og greiddu 1041 atkvæði eða 49.08%,
686 sögðu já eða 65.89%, nei sagði
331 eða 31.79%. 24 seðlar voru auðir.
í gær voru einnig talin atkvæöi
hjá Starfsmannafélagi Akureyrar-
bæjar, en þar voru 477 á kjörskrá.
Atkvæði greiddu 196 eða 41%. Já
sögðu 156 eða 79.6%, nei sögðu 37 og
3 seðlar voru auðir og ógildir.