Morgunblaðið - 06.09.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
13
■v.
ar nefndir eru einnig þess eðlis
að þær starfa stutt, eða eðli
verksins er þannig að það ónýt-
ist eftir ákveðinn tíma.
• Margs konar
starfssviö nefnda
Það dæmi um nefnd, sem að
framan var tekið, er einkennandi
fyrir nefnd sem hefur það hlut-
verk að vera hjálpartæki við-
komandi stjórnvalds við stefnu-
mótun og ákvarðanatöku. Það
eru hins vegar margar annars
konar nefndir, t.d. fastanefndir
sem starfa óháðar ráðherra, t.d.
í stjórn lífeyrissjóðs ríkisins og í
stjórnum ýmissa fyrirtækja. Þá
má nefna nefndir sem hafa það
starfssvið að undirbúa laga-
frumvörp, nefndir sem móta
stefnu um ótal atriði eftir að lög
hafa verið sett og taka til
framkvæmdarinnar á lögunum.
t Hverjir veljast
til nefndarstarfa?
Oft er sagt að nefndir séu til þess
eins að vera bitlingar leiðitamra
embættismanna, en þegar
skyggnst er bak við töidin kemur
það brátt í ljós að til nefndar-
starfa eru kvaddir menn úr
öllum þjóðfélagshópum og úr
mörgum starfsgreinum. í flestar
mikilvægar nefndir virðist vera
valið með það að leiðarljósi að
starf nefndarinnar verði sem
árangursríkast þótt ekki fari hjá
því að ýmsar nefndir verði að
teljast bitlingar fyrir þá sem í
þeim sitja.
t Akvörðun um þóknun
vegna nefndarstarfa
Hér á landi sitja tveir menn í
svokallaðri þóknunarnefnd og
þeir ákveða hversu háar upp-
hæðir skuli greiddar fyrir laun-
uð nefndarstörf. Greiðsla vegna
nefndarstarfa er ætíð innt af
hendi eftir að nefnd hefur lokið
störfum og er gangurinn sá, að
viðkomandi ráðuneyti sendir
þóknunarnefnd erindi þess efnis
að nefnd hafi skilað áliti og lagt
niður störf. Ef þóknunarnefnd-
armönnum finnast ekki nægjan-
legar upplýsingar vera fyrir
hendi kalla þeir á sinn fund
nefndarmenn og fá nánari upp-
lýsingar um störf nefndarinnar,
en ákvarða að öðrum kosti
greiðslu til nefndarmanna. Við
mat á greiðslum er reynt að
meta þá yfirvinnu sem lögð er
fram við ákveðið nefndarstarf og
taka þóknunarnefndarmenn
einnig tillit til mætinga á fundi.
Það er ljóst, að það er ekki
auðvelt verk að ákveða laun
vegna nefndarstarfa og sú stað-
reynd að embættismenn sinna
oft nefndarstörfum í vinnutíma
sínum gerir málið enn erfiðara
við að eiga. Yfirleitt fá allir
nefndarmenn jafnmikið greitt
fyrir störf sín, án tillits til
vinnuframlags, en þó fá formenn
nefnda 25—50% hærri greiðslur
en aðrir enda feli formanns-
starfið í sér meiri vinnu. Um
tíma var farið út á þá braut að
greiða embættismönnum lægra
kaup en einkaaðilum, en hæsta-
réttardómur kvað upp úr með
það fyrir fáum árum að slíkt
væri ólöglegt.
Reglan er sú, að fyrir nefndarstörf
er greitt yfirvinnukaup sam-
kvæmt 16. launaflokki, þriðja
þrepi og fer upphæðin eftir því
hve nefndin telst vera margar
nefndareiningar.
í íslenska stjórnkerfinu eru starf-
andi mjög margar nefndir sem
hafa margvísleg áhrif og snerta
marga aðila. Þær kosta skatt-
borgarana drjúgan skilding og
það ætti því alltaf að vera
sjálfsögð krafa að stjórnvöld
leitist við að endurmeta störf
allra nefnda með reglulegu
mí llibili.
Gerningar
og uppákomur
t umsögn Ólafs M. Jóhannes-
sonar um nýlist eða tilrauna-
myndlist („Gerningar og uppá-
komur“), sem birtist hér í blað-
inu síðastliðinn þriðjudag,
brenglaðist textinn verulega.
Þetta er einskonar tæknileg upp-
ákoma í nýlistarstíl og skrifar
höfundur undir það.
Hjúkrunarfélag íslands:
Uppfyllir mennt-
unin þær kröfur
sem gerðar eru?
— Umræðuefni á
norrænum fulltrúa-
fundi sem haldinn
verður hérlendis
Árlegur fulltrúafundur
Samvinnu hjúkrunarfræðinga
á Norðurlöndum, fer að þessu
sinni fram á Hótel Loftleiðum
dagana 9.—11. september nk.
Aðalumræðuefni verður:
Menntun hjúkrunarfræðinga
á Norðurlöndum og uppfyllir
menntunin þær kröfur sem
gerðar eru til hjúkrunarfræð-
inga.
Fyrirlesarar verða frá öllum
Norðurlöndunum. Jafnframt
fara fram umræður í hópum.
Fundinn sitja 85 þátttakend-
ur, en samvinnan hefur um
170 þúsund hjúkrunarfræð-
inga innan sinna vébanda.
Á þessu ári er Samvinna
hjúkrunarfræðinga á Norður-
löndum 60 ára og verður þess
minnst með hófi að Hótel
Sögu.
Suimr éldavélar frá ELECTROIUX
eru auðvitaö með Iðlástursafni, tölvustýringu
temaospJatu, sjálívirkum steikarmoeli
og hitaskáp.
Electrolux eldavélarnar eru
meðal þeirra þekktustu í heimi.
Fyrst og fremst vegna gæða- og
svo auðvitað vegna tækni-
nýjunga. Electrolux hefur oftast
verið á undan samtíðinni í eld-
hústækni.
Þegar þú velur Electrolux eldavél
geturðu valið eldavélagerð, sem
hentar plássi og pyngju. Úrvalið
og möguleikarnir eru margvís-
legir.
Electrolux
3
o
Aðrorekki.
Kynningarbæklingur ókeypis.
Það er óráðlegt, að kaup eldavél
án þess að kynna sér vandlega
hvaða möguleikar standa til
boða.
Vörumarkaðurinn sendir þér í
pósti ókeypis, litprentaðan
mynda- og upplýsingabækling.
Sendu okkur nafn þitt og
heimilisfang, eða hringdu í
Electrolux deildina, simi: 86117
og við sendum þér bækling um
hæl.
ARMULA 1a
- F.F.