Morgunblaðið - 06.09.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
15
Jóni Nordal líkt
við Síbelíus
+ ISLENSKIR tónlistarmenn
létu í sumar að sér kveða á
tónlistarhátíð, sem haldin var i
borginni Manchester i Vermont i
Bandaríkjunum. Þar var verk
Jóns Nordals, „TvísOngur", flutt
og var mjög vel tekið ef marka
má blaðadóma. Þeim Mark Reed-
Jón Nordal Gnðný Guð-
mundsdóttir
man og Guðnýju Guðmundsdótt-
ur var boðið til Bandarikjanna
til þess að leika allar fiðlusónöt-
ur Beethovens. og var mikið lof
borið á flutning þeirra. í tengsl-
um við hátiðina var námskeiða-
hald og voru alls á milli 40 og 50
manns á námskeiðunum og
þeirra á meðal fimm íslendingar:
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleik-
ari, Ásdis Valdimarsdóttir á lág-
fiðlu, Gréta Guðnadóttir á fiðlu
og Steinunn Þorvarðsdóttir á
pianó. Þau eru öll nemendur i
Tónlistarskóla Reykjavíkur. Þá
var Þórhallur Birgisson fiðlu-
leikari i Manchester en hann
stundar nám i Bandarikjunum.
Flutningur verks Jóns Nordals
mæltist mjög vel fyrir eins og
áður sagði og í Manchester Ver-
mont Journal birtist gagnrýni
eftir Wallace Scudder, og bar
hann mikið lof á verkið. Þau Mark
Reedman og Guðný Guðmunds-
dóttir voru einleikarar. „Tvísöng-
ur“ Jóns Nordals var frumfluttur í
Málmey í byrjun árs og í Reykja-
vík var verkið flutt í mái. En
gefum Scudder orðið:
„Að loknu hléi var „Tvísöngur"
Jóns Nordals fluttur í fyrsta sinn í
Bandaríkjunum. Verkið er fyrir
fiðlu, lágfiðlu, strengjahljómsveit,
píanó og slagverk. Jón Nordal er
eitt helsta tónskáld íslendinga og
hann samdi verkið árið 1979 og á
íslandi var það flutt undir stjórn
Gilberts Levine (hann stjórnaði
einnig í Vermont). Jóni Nordal er
á íslandi líkt við Síbelíus hinn
finnska. I „Tvísöng" gætir áhrifa,
svipað og í „Tapíólu“ Síbelíusar.
Þjóðlagið er báðum þessum tón-
skáldum hugleikið og í tónlist
þeirra eimir mjög af sérkennilegri
norrænu — saga fólksins eins og
hún kemur fram í gömlu þjóðlög-
unum, — landslagsins, fjallanna,
íssins.“
Lágmyndin í garðshorninu, sem sýnir gamla bæinn að Snússu.
(Ljósm. Sig. Sigm.).
Bærinn að Snússu
í Ásatúnsgarði
óskar Indriðason við störf i
garðinum að Ásatúni.
Á BÆNUM Ásatúni í Hruna-
mannahreppi búa systkinin Lauf-
ey, Hallgrímur og Óskar Indriða-
son og þykir snyrtimennsku
þeirra við brugðið. Þau hafa á
síðari árum nokkuð dregið sam-
an seglin i búskapnum, en sem
fyrr vekur athygli hversu mynd-
arlegt er að koma heim að
Ásatúni og garðurinn við heimili
þeirra er bæði fallegur og vel
hirtur.
í garðshorninu hafa þau komið
upp lágmynd af gamla bænum í
Ásatúni, sem Axel Helgason mód-
elsmiður gerði. Gamla hluti er
einnig að finna í þessu horni
garðsins, t.d. myliusteina, hlóð-
arpott og upp úr myndinni er
stuðlabergssúla úr landareigninni.
Bærinn í Ásatúni hét Snússa fram
til ársins 1937. Bærinn, sem lág-
myndin er af, var byggður árið
1903 og þar eru systkinin þrjú
fædd ásamt stórum systkinahópi.
Nýr bær var byggður að Snússu
árið 1929 og árið 1968 var byggt
nýtt einbýlishús úr steini að
Ásatúni.
50 ára og fær í flestan sjó! Afmælisbarnið i sínu rétta umhverfi eða á heimavelli í Hellisey.
(Ljósm. Sigurgeir).
Hálfrar aldar afmæli
hátíðlegt í Hellisey
ÞAÐ ER ekki venja
Morgunblaðsins að greina frá
fimmtugsafmælum. en Illað-
varpanum finnst tilhlýðilegt að
gera á þessu eina undantekn-
ingu. Páll Steingrímsson. kvik-
myndagerðarmaður úr Eyjum.
varð fimmtugur á dögunum og
þar sem afmadisdagur hans. 25.
júlí. er einmitt um það leyti.
sem lundaveiðitíminn er í há-
marki. sá Páll sér ekki annað
fa-rt. en bjóða gestum til sín út í
Ilellisey. Páli fannst fráleitt að
yfirgefa eyjuna sína á hávertíð-
inni til þess eins að fagna hálfri
öld. Þá var skynsamlegra að
bjóða Eyjamönnum til sín í
eyjuna.
Páll hefur Heliisey á leigu
ásamt þremur bræörum sínum
og þangað sækja þeir ýmis
fjörefni, þ.á m. egg og lunda.
Þetta tvennt var einmitt uppi-
staðan í veizlukostinum, sem
upp á var boðið í afmælinu, en
einnig síld, hákarl og annað
fiskmeti að úteyjasið. Eitthvert
lítilræði var síðan haft með til
að skola þessu niður. Veðurguð-
irnir léku við Pál og gesti hans
þennan dag og svo stillt var um
kvöldið að ekki blakti hár á
höfði. Jafnvel var hægt að hafa
logandi á kertum í brekkunni
fyrir ofan skála Helliseyinga.
37 manns sóttu hófið og marg-
ir þeirra mæta sjálfsagt aftur S
Hellisey að 10 árum liðnum, en
Einar Sveinbjörnsson fær sér
maður fylgist með borðhaldinu.
Páll hefur þann sið að halda upp
á stórafmæli í Hellisey. í þessar
veizlur mæta menn ekki fljúg-
andi, akandi eða gangandi, held-
ur tuðrandi eins og einhver
gestanna orðaði það. Hátíðabún-
lundasmakk, en Siggi loftskeyta-
ingurinn er mjög mismunandi,
sumir mæta í sínum hvunndags-
fötum, en aðrir með sluffu og
tilheyrandi, þó svo að sá útbún-
aður sé ekki keyptur í kuffffé-
laginu.
Álseyingur ásamt Adda Suðureying. Eins og sjá má er afmælisklæðnaðurinn marghreytilegur,
þverslaufur. gúmmistigvél og ofanigirt. enda þurftu flestir að koma í hoðið á gúmmituðrum.