Morgunblaðið - 06.09.1980, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
35
Timburverzlunin Völundur framleiðir spónlagðar
hurðir með bezta fáanlega spæni.
Spjaldahurðir eða sléttar hurðir, eftir vali kaupandans.
Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð.
Gjörið svo vel og lítið inn í sýningarsali okkar á
Klapparstíg 1 og Skeifunni 19.
Yfir 75 ára reynsla tryggir gæðin.
Timburverzlunin Vólundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Mynd Mbl. RAX
Braeðurnir SÍRurður L., Sisvaldi ok Anton VÍKKÓsynir í hinum nýja veitinKastað — Vesturslóð.
Vesturslóð í Vesturbænum
teiknistofunni Kvaðanum. Raunar hfur yfirumsjón með þjónustu á
er þriðji bróðurinn viðloðandi borð, en Sigvaldi er þjónn að
reksturinn, Sigvaldi Viggósson mennt_
Skemmtikvöld í Ár-
túni á laugardögum
„VIÐ leggjum áherzlu á góðar
veitinKar ok þjónustu. bess
vegna höfum við aðskilið grill.
þar sem fólk getur komið. keypt
mat og tekið með sér heim. Hins
vegar verður veitingasalur. þar
sem fólk getur snætt góðan mat í
ró <>k na?ði yfir glasi af léttvíni —
laust við skarkala grillstaða."
sögðu þeir bræður. Sigurður L.
ok Anton VÍKKÓssynir, eigendur
nýs veitinKastaðar, sem opnaður
hefur verið i vesturbænum, — að
Hagamel 67.
Hinn nýji veitingastaður nefn-
ist Vesturslóð og er nafngiftin vel
við hæfi. Innréttingar eru allar
ákaflega smekklega unnar í stil
villta vestursins. Þær eru unnar af
Á lauKardaginn kemur verður
efnt til skemmtikvölds I veitinga-
húsinu Ártúni að VaKnhöfða 11.
Þar koma fram sýninKarfólk úr
Karon-samtökunum. <>k Baldur
Brjánsson töframaður. Illjómsveit-
in Aria leikur siðan fyrir dansi, í
Kömlum <>k nýjum stíl. til kl. þrjú
eftir miðnætti.
Ártún er nýr og glæsilegur veit-
ingastaður í Ártúnshöfðanum, þar
sem til skamms tíma hafa verið
haldnir almennir dansleikir. Ætlun-
in er nú að breyta til, og kemur til
greina að framhald verði á skemmti-
kvöldunum fram eftir haustinu. Að-
gangseyrir að skemmtikvöldinu
verður sá sami og að veitingahúsum
í borginni.
um málefni sem höfða meira til okkar
íslendinga um möguleika á álsteypu og
smíðum úr áli, og verða þá flutt
eftirtalin erindi:
Fiskumbúðir úr áli. — Alf Jensen,
yfirverkfræðingur, Nordisk Aluminium
a.s.
Gróðurhús úr álprófilum. — Sig
Ekström, deildarstjóri, Handelstrá-
dgárdförbundet.
Fiskibátar úr áli. — Eikeland, full-
trúi, Fjeldstrand Aluminium Yachts.
Álsteypuiðnaður, markaðir, hag-
kvæmni og stærð verksmiðja. — Magn-
ar Henriksen, sölustjóri, Fundo Alum-
inium a.s.
Á1 í varmaskipta í bílaiðnaði. —
Sigurd Stören, yfirverkfræðingur,
Norsk Hydro a.s.
Á1 og magnesíum í bandarískum
bílum. — Marian J. Krzyzowski, Rese-
arch Associate, Iðnþróunardeild, Insti-
tute of Science and Technology, The
University of Michigan.
Fundarstjórar síðari daginn verða
þeir Sigurður Briem, verkfræðingur, og
Pétur Maack, lektor.
Ráðstefnan verður haldin í Súlnasal
Hótel Sögu, en í lok ráðstefnunnar á
þriðjudag, verður ráðstefnugestum
boðið til hádegisverðar hjá íslenska
álfélaginu í Straumsvík.
Stjórnunarfélag íslands annast
framkvæmd þessarar ráðstefnu hér á
landi og má fá allar nánari upplýsingar
um ráðstefnuna á skrifstofu Stjórnun-
arfélagsins að Síðumúla 23, eða í síma
82930.
íslenzkar iðn-
aðarvörur kynnt-
ar í Færeyjum
ÚTFLUTNINGSMIÐSTÖÐ iðnað-
arins hyggst gangast fyrir kynn-
ingu á íslenzkum iðnaðarvörum í
Þórshöfn í Færeyjum um mánaða-
mótin október—nóvember nk.
Tilgangur kynningarinnar er að
kynna vöruúrval það, sem íslensk
iðnaðarfyrirtæki hafa á boðstól-
um í dag, en talið er, að góður
markaður ætti að vera fyrir ís-
lenzkar iðnaðarvörur í Færeyjum.
Vísitölubrauð
langt undir
kostnaðarverði
Bakarameistarar hyggja á aðgerðir
fáist ekki leiðrétting mála
STÓR hluti framleiðslu bakaría er
háð verðlagsákvæðum, þ.e.a.s. svo-
nefnd vísitölubrauð. Eins og þeir
aðilar flestir, sem eru svo óheppnir
að bjóða þjónustu sína eða fram-
leiðslu, er reiknast í hinni marg-
frægu framfærsluvísitölu, hafa bak-
arar fengið takmarkaða úrlausn
vegna verðhækkunarbeiðna sinna,
segir m.a. í fréttabréfi Landssam-
bands iðnaðarmanna, sem nýverið
barst Morgunblaðinu.
Ennfremur segir: Um allnokkra
hríð hefur því verðlagningu á vísi-
tölubrauðum verið svo háttað, að
smásöluverðið hrekkur ekki fyrir
hráefni og launum einum saman, að
ekki sé minnzt á aðra kostnaðarliði
eins og vexti, rafmagn og hita,
húsnæði, akstur o.s.frv.
Sýnt hefur verið fram á þessa
tapframleiðslu með óyggjandi út-
reikningum, sem verðlagsyfirvöld
hafa á engan hátt getað hrakið.
Ljóst er, að ekki gengur til lang-
frama, að bakarar greiði stórfé með
hverju vísitölubrauði. Langlundar-
geð bakarameistara er á þrotum, og
er ástæða til að ætla, að verði
sjálfsagðar kröfur þeirra hunzaðar
áfram af verðlagsyfirvöldum og rík-
isstjórn, neyðist bakarameistarar til
að grípa til eigin ráða á næstunni.
Völundar hurðir
\