Morgunblaðið - 06.09.1980, Síða 48
Síminn á afgreiðslunni er ^ <w
83033 Mnmiwpmpnp
IDvraimblnbib ^
JHvrennblnbib
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980
IMMWMNNMÍÍCSfe
Síminn
‘ á afgretösiunni er
830331
Jflorcunblebib
■— _ K'
Fundur starfsfólks í flugi:
Nýtt flugfélag um
Atlantshafsflugið?
HÓPUR fólks, sem starfar að
fluitmálum, hélt I uar fund á
Kjalarnesi þar sem rætt var um
stóAu islenskra flugmála. framtið
AtlantshafsfluKsins ok m.a. hu«s
anleKa stofnun nýs fluKfélaK-s.
Fundinn sátu m.a. forystumenn
ýmissa stéttarfélaKa, sem starfa að
fluKmálum. Tuttugu til þrjátíu
manns sátu fundinn og var ákveðið
að fylgjast vel með framvindu og
gangi mála. I samtali við Mbl. í
gærkvöldi sagði Baldur Oddsson
formaður Félags Loftleiðaflug-
manna, sem var einn fundarmanna,
að fólk óttaðist mjög framtíð Atl-
antshafsflugsins og teldi að það
mætti alls ekki leggja niður, því það
væri svo snar þáttur í atvinnulífi
landsins.
„Það vilja allir", sagði Baldur, „að
þetta flug haldi áfram, þótt tap sé á
því sem slíku um sinn, því það er
ljóst að það er þjóðhagslega hag-
kvæmt að það haldi áfram og'hlýtur
að rofa til í þeim efnum. Það eru svo
ótal margir þættir, sem spinnast
inn í Atlantshafsflugið, ekki aðeins
flugfólk og beint starfslið Flugleiða,
heldur hundruö og þúsundir ann-
arra borgara þessa lands. Fyrir
utan það, að tengjast Fríhöfn,
íslenskum markaði og mörgum
fyrirtækjum þá snertir þessi rekst-
ur beiniínis og óbeinlínis þá fjöl-
mörgu, sem vinna að ferðamálum,
bílstjóra, ferðaskrifstofur, hótel-
rekstur og fleira.
Það er ljóst, að detti þetta flug
niður, verður ekki hægt að taka
þráðinn upp aftur og því er mikil-
vægt, að þeir, sem láta sig málið
varða, leggi á það áherslu, að kynna
ríkisstjórninni vilja fólksins í þess-
um efnum, að starfsmenn í flugi,
blaðamenn og stjórnmálamenn taki
höndum saman í þessum efnum",
sagði Baldur Oddsson að lokum.
VSÍ leitar hófanna
um sérviðræður
Vinnuveitendasamband íslands
hefur orðað við a.m.k. eitt sérsam-
band innan Alþýðusambands ís-
lands, hvort sérsambandið væri
tilbúið i sérviðræður um kjara-
samning. Sérsamband þetta. sem er
Uandssamhand iðnverkafólks.
hafnaði þessari málaleitan og er nó
viðræðunefnd ASÍ kunnugl um
þessa málaleitan. svo og sáttasemj-
ara ríkisins. Fleiri sérsambönd
munu bíða átekta um þróun samn-
ingamálanna. en þau munu þess
alls ekki fráhverf. að athugað
verði, hvcrt sérviðræður myndu
leiða.
Fundur var í fyrradag milli Iðju í
Reykjavík og Félags íslenzkra iðn-
rekenda, þar sem fulltrúar Vinnu-
veitendasambandsins voru við-
staddir. Þar var þessari hugmynd
um sérviðræður fleygt af fulltrúa
VSÍ, en viðbrögð fulltrúa Iðju muuu
hafa verið mjög neikvæð. Undanfar-
ið hafa átt sér stað óformlegar
viðræður milli Guðmundar J. Guð-
mundssonar og Þorsteins Pálssonar
um launaflokkaskipan fyrir Verka-
mannasamband íslands, en helzta
deilumál aðila hefur einmitt verið
um þessa flokkaskipan. Hafa þessar
viðræður farið fram með vitund
Guðlaugs Þorvaldssonar, sáttasemj-
ara ríkisins.
Talið er, að forystumenn sérsam-
banda vilji bíða og sjá hvað setur um
framvindu þessara óformlegu við-
ræðna, áður en sérsambönd hefji
viðræður við sérsambönd innan VSI,
sem alls ekki virðast útilokaðar,
a.m.k. við sum sérgreinasambönd,
bregðist sú von, að unnt verði að ná
sameiginlegum heildarsamningum
milli ASÍ og VSÍ.
(Ljósm. ÓI.K.Mag.)
Skólarnir eru víst byrjaðir. Ætli það sé ekki ástæðan fyrir einbeitingunni i svip þessara stallsystra,
sem stikuðu um Austurstrætið með skólatöskurnar í haustblíðunni i gær.
Launahækkun verzlunar-
og skrifstofufólks um 2,5%
ÚTREIKNINGAR á tilboði Vinnu-
veitendasambands íslands til Al-
þýðusambands íslands, sem gerðir
hafa verið gagnvart verzlunar-
mönnum sýna, að tilboðið er mjög
langt frá þvi að tryggja verzlun-
armönnum, sem eiga sambærilega
starfsfélaga innan BSRB, jafn-
háar kauphækkanir og opinberir
starfsmenn fá. Samkvæmt upplýs-
ingum Magnúsar L. Sveinssonar,
formanns Verzlunarmannafélags
Reykjavikur eru þessir verzlun-
armenn tæplega hálfdrættingar á
við opinbera starfsmenn i kaup-
hækkunum.
Magnús L. Sveinsson kvað tilboð
VSÍ hafa í för með sér um 7 þúsund
króna kauphækkun á mánuði að
meðaltali hjá verzlunar- og skrifst-
ofufólki á launabili, þar sem sam-
bærilegir starfsmenn innan BSRB
fá 14 þúsund krónur. „Það er því
hyldýpi milli verzlunarmanna og
opinberra starfsmanna, hvað þetta
varðar," sagði Magnús L. Sveinss-
on, og bætti við: „Við getum ekki
skrifað undir samning, nema hann
sé í takt við samning opinberra
starfsmanna, enda er það yfirlýst
af framkvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambandsins, að eðlilegt sé að
Þorsk- og ýsuárgangar
virðast í góðu meðallagi
FYRSTU niðurstöður liggja nú fyrir úr leiðangri fiskifræð-
inga, sem farinn var í siðasta mánuði, til að kanna fjölda og
ástand fiskseiða. Samkvæmt þeim eru árgangar þorsks og
ýsu frá 1980 í meðallagi og jafnvel aðeins fyrir ofan það.
Loðnuárgangurinn er ekki líkt því eins stór og árgangarn-
ir frá 1972—1976, en hins vegar mun betri en árgangurinn
frá 1978 og virðist hrygning og klak loðnunnar hafa tekizt
með ágætum í vor. Fjöldi karfaseiða var hins vegar lítill og
útlit er fyrir lélegan árgang. Morgunblaðið ræddi í gær við
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðing, um niðurstöður þessa
leiðangurs.
— Það var byrjað á þessum
athugunum árið 1970 þannig að
þetta er ellefta árið sem svona
könnun er gerð, sagði Hjálmar. —
Henni er ætlað að veita fyrstu
upplýsingar um hvers megi vænta
af árgangi þess árs af hinum
ýmsu tegundum nytjafiska hér
við land. Það hefur komið í ljós,
að það eru aðallega fjórar tegund-
ir, sem gagnlegar upplýsingar
fást um, þ.e.a.s. þorsk, ýsu, loðnu
og karfa.
Friðriksson þar
leiðangursstjóri.
var sömuleiðis
hætti og áður.
— í þessum leiðangri núna voru
tvö hafrannsóknaskip, Bjarni
Sæmundsson, þar sem Vilhelmína
Vilhelmsdóttir var leiðangurs-
stjóri, og Árni
sem ég var
Verkaskiptingin
með svipuðum
Bjarni var mest á Grænlandshafi,
við Austur-Grænland, á Dohrn-
banka og hérna Suðvestanlands.
Við vorum fyrst og fremst útaf
Norðvestur-, Norður-, Austur- og
Suður-landi. Við könnuðum þó
einnig sundið milli Vestfjarða og
Grænlands og þar nokkuð vestur
eftir, þannig að svæði skipanna
sköruðust dálítið.
— Við erum að vinna úr
gögnum, en það má segja að við
séum komin með helztu niður-
stöðurnar í hendurnar, þó svo að
enn eigi eftir að gaumgæfa athug-
anir og niðurstöður betur. Að því
er varðar svæðið, sem Árni Frið-
riksson kannaði, þ.e. íslenzka
svæðið, þá er svo að sjá, að
þorskur og ýsa séu meðalárgang-
ar. Tölunni fyrir þorskinn svipar
mjög til meðaltals, en þorskseiðin
voru hins vegar vel á sig komin og
betur en oft áður. Því má ætla að
fjöldinn skili sé vel og árgangur-
inn frá 1980 gæti því orðið í góðu
meðallagi.
— Hið sama gildir um ýsuna,
niðurstöðutalan þar er ákaflega
svipuð flestum tölum í athugun-
um okkar frá 1970, að undanskild-
um árunum 1976 og 1978, en þá
tókst ýsuklak sérlega vel. Seiðin
voru vel á sig komin og þessi
árgangur gæti orðið aðeins fyrir
ofan meðallag.
— Um loðnuna er það að segja,
að seiðafjöldinn er ekkert nálægt
því, sem hann var þegar mest var
um loðnuseiði, þ.e.a.s. á árabilinu
1972—1976. Hann er hins vegar
verulega miklu meiri en árgang-
urinn frá 1978, en þá mældist
minnsti fjöldi loðnuseiða í þessum
rannsóknum okkar og það er sá
árgangur, sem bera mun uppi
veiðina í haust og næsta vetur.
Loðnuseiðin voru tiltölulega stór
og útbreiðslusvæði þeirra nokkuð
víðáttumikið, þannig að mér lízt
ekki illa á árganginn. Ég er satt
að segja alveg hissa á því hvað
komið hefur út úr hrygningunni í
vor, en sennilega er skýringuna að
finna í því góðæri, sem verið
hefur í sjónum í ár, þannig að það
sem hefur farið í sjóinn virðist
hafa skilað sér mjög vel, sagði
Hjálmar Vilhjálmsson.
Eins og áður sagði kannaði
Vilhelmína Vilhelmsdóttir á
Bjarna Sæmundssyni einkum út-
breiðslu og fjölda karfaseiða.
Niðurstöður hennar athugana
munu vera þær, að þessi karfa-
árgangur sé slakur og fjöldi seiða
annar minnsti frá því að athugan-
irnar hófust árið 1970. Karfinn
hefur þá sérstöðu, að hann er
hægvaxta og kemur ekki inn í
veiði fyrr en um eða eftir 12 ára
aldur. Því hafa fiskifræðingar
ekki samanburð á seiðatalningu
og fjölda nýliða.
þessar launahækkanir séu sambæ-
rilegar. VSÍ telur sig hafa boðið
6,25% að meðaltali, en það sem að
verzlunarmönnum snýr er um
2,5%.“
Samkvæmt útreikningum á til-
boðinu til verzlunarmanna nemur
prósntuhækkunin á lægsta taxta
verzlunarmanna 3,5%. A 10. taxta,
þar sem t.d. er afgreiðslufólk, sem
lokið hefur grunn- eða gagnfæð-
askóla og samsvarar 4. flokki í
gamla launaflokkakerfinu er kaup-
hækkunin á hluta starfsmanna
aðeins 4.888 krónur eða 1,6%.
Reiknað hefur verið út að meðal-
talshækkun verzlunarmanna sé á
bilinu 2,5 til 2,9% eftir því, hver
fjöldi manna í hverjum flokki er.
Hæsta prósentutala, sem unnt er
að finna er á 8. flokk í samræmda
skalanum eða 2. flokk í hinum
gamla. í honum er afgreiðslufólk
og skrifstofufólk í 3 mánuði. Pró-
sentan í þeim flokki er 4,9%.
Nautakjöt
hækkar um
12 til 13V2%
SEXMANNANEFND hefur náð
samkomulagi um bráðabirgðaverð
á nautakjöti og hækkar smásölu-
verð á nautakjöti samkvæmt þvi um
12 til 13'/2% að meðaltali.
Þetta nýja verð tekur ekki gildi
fyrr en ríkisstjórnin hefur staðfest
samkomulag nefndarinnar og er
talið líklegt að nýja verðið komi til
framkvæmda eftir helgina.
Nýja verðið er bráðabirgðaverð,
hliðstætt því verði sem nú er í gildi á
mjólk og kartöflum, og gildir aðeins
þar til sexmannanefnd hefur náð
samkomulagi um nýjan verðlags-
grundvöll. Verð á nautakjöti til
bænda hækkar vegna þessa bráða-
birgðasamkomulags um 11% en ekki
mun gert ráð fyrir breytingum á
niðurgreiðslum vegna nýja verðsins.