Morgunblaðið - 01.11.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
11
Skemmtilegt framtak
BÖRN
ÚtKpfandi: Menntamálaráðu-
neytið 1980.
Bókin Börn er gefin út af
menntamálaráðuneytinu í tilefni
af barnaári. Efni hennar er ein-
göngu eftir grunnskólanema, sög-
ur, frásagnir og myndir.
Birgir Thorlacius ráðuneytis-
stjóri ritar formála fyrir bókinni
og birtist hann á fjórum tungu-
málum.
Börnin, sem eiga efni í bókinni,
eru úr öllum aldursflokkum
grunnskólans. Þar getur að líta
litlar hugleiðingar og einnig sög-
ur, stórar í sniðum, ennfremur
ljóð.
Mesta prýði bókar þessarar eru
að mínu mati myndir barnanna,
engar þeirra eru svo fátæklegar í
formi sínu, að ekki megi lesa úr
þeim lífssögu úr heimi okkar allra
séðum með barnsaugum. Sumar
þeirra kalla áberandi á athygli og
skilning.
Sögurnar eru misjafnar að vöxt-
um og gæðum, alveg eins og hjá
þeim fullorðnu, þótt úrval sé.
Að mínu mati eru það atburðir,
sem börnin hafa sjálf upplifað og
síðan fest á blað, sem eru áberandi
bestu textarnir í bókinni. Þar
koma þau sjálf eins og þau eru.
Skáldlegar sögur í bókinni eru
að efni til úr hugarheimi barns og
unglings en bera keim af hand-
bragði þroskaðra, við því er ekkert
að segja nema gott eitt ef vel er á
haldið. I bókinni virðist mér það
ekki fara út fyrir þau takmörk
sem óeðlileggeta talist. í ljósi þess
er fengur að þessum sögum í
bókina. Ljóðin eftir Kristínu
Benediktsdóttur vöktu athygli
mína. Það er mikið framtak hjá
menntamálaráðuneytinu að gefa
út bók í tilefni af barnaári.
Það er alltaf erfitt verk og
meira að gera en segja það að
velja slíkt efni. Mér sýnist það vel
valið, enda ágætt fólk þar að
verki.
Ekki hef ég kynnt mér hvernig
foreldrar og skólar í landinu hafa
Bókmenntir
eftir JENNU
JENSDÓTTUR
tekið bók þessari. En eftir lestur
hennar þykir mér sem foreldrar
— og þeir grunnskólar, sem láta
hana ólesna, hafi ekki mikinn
áhuga fyrir því að verða sér úti
um skemmtilegan þverskurð af
bókmenntalegri iðju grunnskóla-
nema. Því vona ég, að sem flestir
lesi þessa bók fyrir sjálfa sig og
aðra og skólarnir láti ekki þetta
tækifæri fram hjá sér fara. — Og
umfram allt gaumgæfa skemmti-
legar myndir.
ISLAND
ICELAND
ISLANDIA
BÖRN
í góðri trú
HALLDÓRSKVER
SÁLMAR OG KVÆÐI
eftir Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli.
Þjóðsaga.
Guðjónó hf. Rvik. 1980.
Halldór Kristjánsson hefur
lengi skrifað bókmenntagagnrýni.
En þó hann hafi þannig gagnrýnt
annarra verk — og stundum hitt
naglann á höfuðið, vantar nokkuð
á sjálfsgagnrýnina — að senda frá
sér kveðskapinn í þessu kveri.
Hugsjónahiti og mælska Halldórs
nýtist ekki í bundnu máli. Glíman
við rím og ljóðstafi setur honum
svo harða kosti að einlægur mál-
flutningur hans tapar reisninni,
mælskan og hugsjónahitinn kafn-
ar í innihaldslausum glamuryrð-
um. Þetta er hefbundinn kveð-
skapur eins og kallað er. En þar að
auki er þetta að talsverðu leyti
tækifæriskvæði sem kunna að
hafa hæft tiltekinni stund og stað
— flutt þar sem ávörp — en
sýnast hér harla munaðarlaus,
rúin þeirri stemmningu sem lífleg
samkoma veitir áheyrilegum
flutningi. Maður hlýtur líka að
efast um að Halldór hafi frá
upphafi ætlað sér að láta þetta
koma fyrir almenningssjónir í
bók. Til þess eru yrkisefnin bæði
of stað- og tímabundin. Ég nefni
kvæði eins og Á aldarafmæli
Holtskirkju i (inundarfirði, Tiu
vísur, eftir tiu ár (»Ég ætla að
minnast á ungmennafélögin/ ön-
firzku í þessum brag,« stendur
þar) og Áttræðiskveðja til sr.
Sigtryggs Guðlaugssonar á Núpi
að ógleymdri Framboðsræðu
stjórnarandstöðunnar, ortri 1973.
í síðast nefnda kvæðinu virðist
mér Halldór leitast við að blanda
saman gamni og alvöru. Alvaran
lætur honum vel. En skopskyn er
honum ekki gefið.
Kunnur er bindindisáhugi Hall-
dórs. Hugvekjur hans um þau efni
hygg ég að margur lesi með
athygli enda er Halldór bæði
rökfastur og fylginn sér í mál-
flutningi. Þegar hann tekur að
predika sama efni í ljóði sýnist
mér allt standa valtari fótum.
Best virðist mér Halldóri takast
upp þegar hann kveður styst og
predikar minnst, þá getur hann
slegið á ljóðrænan streng þar sem
Bókmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSON
mannbóta- og trúarsjónarmið
hans slævast ekki við nálægð
ljóðrænnar hrynjandi. Ég tek sem
dæmi kvæðið Áð kvöldi dags:
Af himni daxur horfinn er.
að hondum nótt uk myrkur ber.
<>lí þreyttu hoffti hallar þú
á hvildarbeð i von ok tru.
Ok vær ok koó þér verði nótt,
þór veiti hvildin nýjan þrótt
svo nýjum morKni mætir þú
með meiri duK <>K betri trú.
Þér verndarenKÍar vaki hjá
uk visi láKum hvotum frá
en heÍKÍ sál ok hjartastrenK
þeim huK er sæmir Kóðum drenK.
Halldór lýkur bókinni með eftir-
mála þar sem hann segir meðal
annars: »Kverið er gert og gefið út
í þeirri von að það verði nokkrum
vinum mínum til ánægju.« Sé litið
á útgáfuna með það sjónarmið eitt
í huga er tilganginum vafalaust
náð. Með hliðsjón af útlitinu er
þetta líka afar fallegur og eigu-
legur gripur. Útlit og frágangur er
hvort tveggja verk Hafsteins Guð-
mundssonar og er óhætt að taka
undir það sem Halldór segir í
eftirmálanum að »lofar verkið
meistarann*.
POTTAPLONTU
útsala
Allt að 50% afsláttur
Um helgina verður okkar ár-
lega pottaplöntuútsala, þar sem
við bjóðum 10—50% afslátt af
öllum pottaplöntum.
Heimsækid
GRJENA
TORGI
> ) um helgina
gróðurhúsinu
v/ Sigtún
S. 36770. 86340.