Morgunblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980
Fyrirspurnir og svör:
Utlendir veiðimenn í kjör-
dæmi dómsmálaráðherra
Skipulag loðnu-
löndunar
Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, svaraði í
vikunni fyrirspurn frá Helga F.
Seljan (Abl) varðandi skipulag
loðnulöndunar. Hann sagði m.a.
að ekki hefði náðst samkomulag
um að endurvekja flutningasjóð,
sem lagður var niður fyrir nokkr-
um árum. Með hliðsjón af því að
afkoma loðnuveiða sé nú stórum
lakari en áður hafi hann ekki
treyst sér til að leggja slíkt til, þ.e.
að leggja sérstakt flutningsgjald á
útgerðina sjálfa. Hinsvegar hafi
verið reynt að beita óbeinum
aðgerðum, s.s. varðandi veiðitíma.
Ráðherra greindi frá því að
hann hefði, að tillögu loðnuskip-
stjóra, skipt því magni, sem veiða
má, á 52 loðnubáta. — Samkomu-
lagi hér um hefði fylgt sú kvöð af
þeirra hálfu, að þeir mættu haga
veiðisókn og löndun með þeim
hætti, sem bezt kæmi út fyrir þá.
Þeir vildu fá að landa þar sem
styzt væri að fara með aflann,
enda olía dýr, og veiða loðnuna
þegar hún væri feitust og þar með
verðmætust. Engu að síður hefur
loðnuaflinn á sl. vertíð dreifst
furðanlega á vinnslustaði.
í umræðunni fór Matthías
Bjarnason fram á það við ráð-
herra að hann láti semja skýrslu
um rannsóknir á loðnustofninum
og leggi fyrir Alþingi. Ráðherra
hét því að svo yrði gert.
Verðtryggður
almanna líf-
eyrissjóður
Svavar Gestsson, tryggingaráð-
herra, svaraði fyrirspurn frá Al-
exander Stefánssyni um verð-
tryggðan lífeyrissjóð fyrir lands-
menn alla. Hann sagði að endur-
skoðunarnefnd almannatrygg-
ingalaga hefði undanfarið sinnt
forgangsverkefnum (fæðingaror-
lofi og skipulagsbreytingu á fram-
kvæmd almannatryggingarlaga)
en önnur verkefni, þar á meðal
lífeyrismál, orðið að bíða. Þegar
þessum forgangsverkefnum og
víðtækri endurskoðun heildarlag-
anna er lokið hef ég hugsað mér,
ef um það næst samkomulag, að
endurskipuleggja nefndina og
setja henni nýtt erindisbréf, þann-
ig að hún taki fyrir afmörkuð
Skýrsla um
loðnurann-
sóknir fyr-
ir Alþingi
verkefni almannatryggingalag-
anna. Þá vék ráðherra að starfi
„lífeyrisnefnda", sem unnið hafi
vel þó starf þeirra gangi „allt of
hægt“. Hann sagði að það ætti að
vera „kapps- og metnaðarmál að
reyna að koma á samfelldu lífeyr-
iskerfi fyrir alla landsmenn. Við
höfum til þess efnin, þar sem eru
lífeyrissjóðir í landinu og það, sem
þegar er greitt gegnum lífeyris-
kerfi almannatrygginga. Spurn-
ingin er um það, að stilla þessa
þætti saman ... verkefni sem er
engan veginn einfalt ... okkur er
skylt að reyna að taka á þessu
máli heildstætt, þannig að lífeyr-
isþegum séu tryggð betri kjör en
verið hefur."
Dvalarkostnaður
aldraðra
Sami ráðherra svaraði fyrir-
spurn frá Pétri Sigurðssyni um
dvalarkostnað aldraðra. Pétur
spurði um raunkostnað á dag fyrir
sjúklinga sem dvelja á hjúkrunar-
deild Landspítala að Hátúni 10B,
bæði hvað varðar fulla vistun og
dagvistun.
Ráðherra las upp sundurliðaðan
kostnað öldrunarlækningadeildar
árið 1979. Þar var kostnaður á
dvalardag kr. 24.500 en á dagdeild-
inni kr. 8.800.- Þá sagðist ráð-
herra hafa dreift meðal þing-
manna riti, sem sýndi ítarlegan
samanburð á öllum kostnaðar-
þáttum heilbrigðisstofnana hér á
landi. Ráðherra sagði verulegan
vanda á ferðum, varðandi skort
sjúkrarýma fyrir aldraða, en úr-
bætur í því efni væru m.a. tengdar
væntanlegri B-álmu Borgarspítal-
ans.
Pétur Sigurðsson sagði að
daggjaldanefnd hefði verið svelt í
þýðingarmiklu starfi. Þar hefði á
stundum verið á ferð greiðslu-
frestun af hálfu ríkisins til að láta
reikninga ríkissjóðs líta betur út.
Hann sagði að við byggjum við
neyðarástand í þessum málum.
Aðalkeppikeflið væri máski ekki
að leita eftir spítalastofnunum,
heldur heimilum fyrir aldraða,
þar sem þeir geta búið með aðstoð
og við hjúkrun á ævikveldi.
Fuglaveiðar
útlendinga
Friðjón Þórðarson, dómsmála-
ráðherra, svarði fyrirspurn frá
Stefáni Jónssyni, varðandi fugla-
veiðar útlendinga. Hann las upp
reglugerð, sem fjallar um leyfis-
veitingar til handa útlendingum
(nr. 16/1978), gat allra skilyrða
hér að lútandi og þess, að lög-
reglustjórinn í Reykjavík gæfi út
þessi leyfi. — Ráðherra sagði að í
skrá, sem hann hefði í höndum,
um þessi leyfi, sýndi, að alls 6
einstaklingar hefðu fengið sam-
tals 10 leyfi.
Stefán Jónsson sagði, að ís-
lenzkir ríkisborgarar, að því er
virtist með aðstoð embætt-
ismanna, e.t.v. með hæpnum
reglugerðum, sem væru til þess
sniðnar að hægt væri að ganga
fram hjá íslenzkum lögum, iðkuðu
það sér til atvinnubóta, að greiða
fyrir fuglaveiðum útlendinga.
Hann sagði hér um að ræða mun
fleiri aðila, en skýrsla ráðherra
greindi, og að þessir útlendingar
notuðu byssur, sem ekki þættu
Fjölbreytileg þingmál:
Tilraunir með klak
og eldi nytjafiska
Tómas Árnason, viðskiptaráðherra, í hópi nokkurra þingmanna
Sjálfstæðisflokksins: Matthiasar Bjarnasonar, Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar og ólafs G. Einarssonar.
Meðal þingmála, sem lögð hafa
verið fram á Alþingi síðustu ilaga,
eru þessi:
Launasjóður rithöfunda
llalldnr Blondal (S). Guðmundur G.
Þórarinsson (F). Birgir fsl. Gunn-
arsson (S). Gunnar Már Kristó-
fersson (A). Salóme Þorkelsdóttir
(S), Árni Gunnarsson (A). Friðrik
Sophusson (S). Davíð Aðalsteinsson
(F) og Sverrir Hermannsson (S)
hafa lagt fram þingsályktunartil-
lögu um launasjóð rithöfunda. Til-
lagan gengur út á það að mennta-
málaráðuneyti skipi nefnd til að
athuga og endurskoða lög um laun-
asjóð rithöfunda og reglugerð þeim
lögum samkvæmt. Nefndin skal
skipuð samkvæmt tilnefningu þing-
flokka og skila áliti fyrir næsta þing.
Tillögunni fylgir ítarleg greinargerð.
Tilraunir með klak
<>K eldi nytjafiska
Magnús H. Magnússon (A)og
Árni Gunnarsson (A) flytja frum-
varp til breytinga á lögum um
rannsóknir í þágu atvinnuveganna.
Þar segir:
„Tilraunir með klak og eldi
þorsks og annarra nytjafiska með
það fyrir augum. að seiðum verði
sleppt i stórum stil þegar þau hafa
náð þeim aldri að þau leita til
botns, u.þ.b. 5 mánaða gömul.
Seiðunum verði sleppt í hafið um-
hverfis landið og þar sem vaxtar-
skilyrði þeirra eru talin bezt.“
í greinargerð er m.a. vikið að
árangri fiskræktar með öðrum þjóð-
um.
Sveijíjanlejíur
vinnutími
Þrír sjálfstæðisþingmenn, Friðrik
Sophusson. Salóme Þorkelsdóttir
og Ragnhildur Helgadóttir flytja
þingsályktunartillögu, svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að: 1) láta kanna, að
hve miklu leyti sé hægt að koma við
sveigjanlegum vinnutíma starfs-
manna ríkisfyrirtækja og ríkis-
stofnana og 2) koma slikri vinnutil-
högun á, þar sem slíkt þykir
henta.“
Aldurshámark
ríkisstarfsmanna
Þrír sjálfstæðisþingmenn, Birgir
ísl. Gunnarsson. Salóme Þorkels-
dóttir og Albert Guðmundsson
flytja þingsályktunartillögu um
endurskoðun lagareglna um aldurs-
hámark starfsmanna ríkisins. Skal
sú endurskoðun unnin í samráði við
samtök ríkisstarfsmanna og mark-
mið hennar vera það að kanna, hvort
ekki sé rétt að hækka aldursmörk
þau, sem nú er við miðað, gera
reglurnar sveigjanlegri, svo og að
setja fastari reglur um möguleika
eldri starfsmanna til að gegna hluta-
starfi, ýmist á sínum gamla vinnu-
stað eða í Oðrum stofnunum.
Varnir jfCffn snjóflóöum
oj? skriðuföllum
Þingmenn úr öllum þingflokkum,
Helgi Seljan (Abl), Árni Gunnars-
son (A), Stefán Valgcirsson (F),
Sverrir Hermannsson (S) og Stefán
Jónsson (Abl) flytja tillögu um
undirbúning heildarlöggjafar, skipu-
lags og varna vegna hættu af
snjóflóðum og skriðuföllum. I tillög-
unni er nákvæm sundurliðun á,
hvern veg skal að þessum undirbún-
ingi staðið.
Takmarkaður aðgangur
herskipa og herflu>?véla
Benedikt Gröndal (A) flytur
þingsályktunartillögu, þess efnis, að
ríkisstjórnin láti undirbúa setningu
nýrrar reglugerðar um aðgang er-
lendra herskipa og herflugvéla að 12
mílna landhelgi Islands til að tak-
marka svo sem framast verður unnt
þann aðgang. Reglugerðin verði í
samræmi við væntanlegan hafrétt-
arsáttmála og gefin út sem fyrst
eftir að hann verður undirritaður. I
greinargerð er m.a. vikið að því slysi,
er eldur kom upp í sovéskum kjarn-
orkukafbáti skammt frá Okinawa í
Japan, og hugsanlegu tjóni í slíkum
tilfellum á fiskimiðum.
Opinber stefna
í áfengismálum
Árni Gunnarsson (A) og fleiri
þingmenn Alþýðuflokks flytja þings-
ályktunartillögu um mörkun opin-
berrar stefnu í áfengismálum. Þar
segir m.a.:
Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að láta nú þegar undirbúa
tillögur að stefnu hins opinbera í
áfengismálum, sem byggist á þeim
grundvallaratriðum:
• aðdregið verði úr heildarneyslu
vínanda;
• aðstórauka skipulagða fræðslu og
upplýsta umræðu um áfeng-
ismálastefnu;
• að skilgreina eðlilega uppbygg-
ingu „meðferðarkeðju" og auka
stuðning við
áhugamannasamtök;
• að verslun ríkisins með áfengi
leggi ríkisvaldinu þær skyldur
á herðar að vinna gegn
ofneyslu vínanda með fyrir-
byggjandi starfi og fræðslu-
starfsemi og skyldi jafnframt
hið opinbera til að liðsinna
þeim, er eiga við áfengisvanda-
mál að stríða.
Eftirgjöf síma-
gjalda öryrkja
Guðrún Helgadóttir (Abl) og Al-
bert Guðmundsson (S) flytja þings-
ályktunartillögu þar sem svo er
kveðið á að samgönguráðherra feli
Pósti og síma aðframkvæma reglu-
gerð frá 1978 um eftirgjöf síma-
gjaida þann veg, að íbúar allra
„sérbyggðra íbúða fyrir aldraða og
öryrkja njóti umræddrar eftirgjafar,
ef þeir uppfylla skilyrði reglugerðar-
innar að öðru leyti".
Bygging útvarpshúss
Markús Á. Einarsson (F) flytur
þingsályktunartillögu þar sem Al-
þingi lýsir vilja sínum, ef samþykkt
verður, að Ríkisútvarpinu sé heimilt
að hefja að nýju framkvæmdir við
byggingu útvarpshúss í Reykjavík.
Strandstöð og f jar-
skiptaþjónusta á
Snæfellsnesi
Skúli Alexandersson (Abl) og
Pétur Sigurðsson (S) flytja tillögu
um starfrækslu strandstöðvar til
fjarskiptaþjónustu á Gufuskálum á
Snæfellsnesi.
Jarðhitaleit á
Vestfjörðum
Finnbogi Hermannsson (F) hefur
flutt tillögu um frekari jarðhitaleit á
Vestfjörðum. Tillagan felur í sér að
„kanna til hlítar, hvort virkjanlegan
jarðhita sé að finna í nánd þéttbýlis-
staða á Vestfjörðum" og hlutdeild
Orkusjóðs í slíkri leit.
Launasjóð- Herskip Bygging Afurðalán og Aldurshá-
ur rit- og útvarps- útflutnings- mark ríkis-
höfunda landhelgi húss bætur búvöru starfsmanna