Morgunblaðið - 01.11.1980, Side 21

Morgunblaðið - 01.11.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980 21 Þessa mynd tók Ragnar Axelsson Ijósm. Mbl. i Fögrubrekku í fyrradag. „Fagrabrekka fær í dag“ hljómaði í Ríkisútvarpinu Ibúar götunnar í stríði við bæjaryfirvöld Guðjón Guðnason. að vel takist til. Hvar konan fæðir, finnst mér ekki skipta meginmáli, sé aðeins vissa fengin, eftir því sem hægt er, að ekkert sé að og útlit fyrir, að væntanleg fæðing verði eðlileg. Slík vissa fæst auðvitað eingöngu og aðeins með góðu eftir- liti á meðgöngutímanum. Séu rétt- ar forsendur fyrir hendi, finnst mér þar af leiðandi, að konan eigi a.m.k. einhvern kost á að velja, hvar hún elur sitt barn — á sjúkrahúsi, á fæðingarheimili, jafnvel í heimahúsi, ef góðar að- stæður eru fyrir hendi. Nokkur orð varðandi ummæli forstöðumanns Ríkisspítalanna. Hann sér ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram rekstri Fæðingar- heimilisins óbreyttum í sama tölu- blaði Þjóðviljans, en segir í Dag- blaðinu 23. okt., að konur eigi allar að fæða á Fæðingardeild Land- spítalans og verða svo fluttar yfir á Fæðingarheimilið á 3.-4. degi sængurlegu! Síðan segir hann sem ég botna ekkert í og er jw búinn að stunda fæðingarhjálp í rúmlega 25 ár: „Það er alltaf skemmtilegt að hafa val á öllum hlutum, en ef eitthvað kemur fyrir. t.d. allt í einu þarf að taka barn með keisara- skurði, þá held ég, að flestir vilji vita af barninu lifandi, frekar en að fá það í hendurnar tveim mínútum fyrr“!?! eins ópersónulegt sem það hlýt- ur að verða. Við sem höfum unnið við fæðingar, vitum að persónulegt samband og traust á milli ljósunnar og hinnar verð- andi móður, er oft höfuðatriði, svo vel fari, og hjálpar í öllum tilfellum mikið til. Eg óttast og get ekki hugsað þá hugsun til enda, að það ástand, sem ríkti hér áður fyrr, er konur urðu að fæða á göngum og baðherbergj- um gæti komið upp aftur og vona innilega að það verði aldrei. Þetta gæti þó hugsanlega orðið á mestu annatímum. Rekstrarhalla FHR verður Reykjavíkurborg vitanlega að losna undan, en það verður fyrst og fremst að tryggja það að konur geti fætt á FHR áfram, eins og hingað til. Ég tel per- sónulega að betra samstarf mætti komast á milli þessara tveggja stofnana, sem báðar þjóna sama tilgangi og báða hafa rækt sitt starf vel í gegn um árin, svo sem að samræmd sé betur sú þjónusta sem boðið er upp á. Við Islendingar erum svo miklir einstaklingshyggjumenn að við munum aldrei sætta okkur við ópersónulegt kerfi og færibandafyrirkomulag. Við vitnum oft í frændur okkar Svía í ýmsum tilvikum. í dag eru þeir ásamt öðrum þjóðum að falla frá þessum stóru fæðingarstofnun- um og hverfa aftur til smærri og heimilislegri stofnana og telja það mun heppilegra fyrirkomu- lag. Því finnst mér það undar- legt, ef við tökum að breyta Nei, herrar mínir, nú held ég, að sé orðið tímabært að leggja spilin á boðið og láta uppi, hvað raunveru- lega fyrir ykkur vakir. Ef þið (réttir aðilar takið þetta til ykkar) eruð sjálfir ykkur samkvæmir, þá verða allar konur að fæða á Fæðingardeild Landspítalans, ekki bara af suðvesturhorni landsins, heldur af öllu landinu. Það vitið þið, að getur aldrei gengið, en erum við þá ekki rétt einu sinni enn að gera gróflega upp á miili þéttbýlis og strjálbýlis? Bull og þvaður, segið þið. Já, það er alveg rétt, finnst flestum, en samkvæmt ykk- ar kenningum hlýtur fæðingar- hjálp úti á landsbyggðinni að vera vægast sagt mjög gamaldags. Ég læt þetta nægja. Margt er ósagt, sem ég sagt hefði viljað — ýmislegt sagt, sem ekki er víst að öllum líki. Það verður að hafa það. Ég get líka bætt því við, að starfsfólk Fæðingarheimilisins hefur unnið störf sín samvisku- samlega, eða hvað segja ársskýrsl- ur? Tölur ljúga ekki. Á þessum 20 árum hafa fæðst tæplega nítján þúsund börn hjá okkur, sem þýðir með öðrum orðum, að á þessu tímabili hefur fjórða hvert barn af öllum börnum fæddum hér á landi séð fyrst dagsins ljós á Fæðingar- heimili Reykjavíkur. Jafnframt hefur ungbarnadauðinn verið svo ótrúlega lágur eða örlítið brot af því sem við missum af börnum í og eftir fæðingu á öllu landinu árlega. (T.d. sé tekið meðaltal sl. 10 ár þá eru tölurnar fyrir allt landið um 1,6%, en hjá okkur 0,3%.) Var ekki einhver einhvern tíma að tala um öryggisleysi í sambandi við fæð- ingar utan gjörgæslu? Útlendir fæðingarlæknar, sem hingað koma, trúa vart ofangreindum tölum, aftur á móti er ekki minnst einu orði á þessa hlið málsins af „kaup- endum“ handan götunnar. Að lokum þetta. Tökum nú með alvöru og festu upp nánari sam- vinnu. Bætum enn mæðraeftirlitið og fæðingarhjálpina á „okkar" svæði. Fáum í sameiningu ennþá betri árangur í mæðra- og barna- vernd um allt land. Reykjavik, 29. okt. 1980, Guðjón Guðnason, yfirlæknir Fæðingarheimilis Reykjavikur. þessu nú, þar sem reynsla ann- arra hefur sýnt hið gagnstæða. Fæðing er sem betur fer í flestum tilfellum eðlilegur hlut- ur en ekki sjúkdómur. Með góðu eftirliti á meðgöngu er nær oftast hægt að sjá fyrirfram þá erfiðleika, sem kunna að koma upp í fæðingunni, með undan- tekningum þó, sem alltaf hljóta að verða og enginn mannlegur máttur né tæki geta sagt fyrir um. Því á ekki að vera þörf á að allar konur fæði í gjörgæslu, heldur geti þær ef þær vilja fætt á minni og að margra mati heimilislegri stofnunum. Þar sem visst öryggi er auðvitað líka fyrir hendi, eins og er á Fæð- ingarheimilinu. Ég vona og trúi því að lausn þessa máls í borgarstjórn feli það í sér að konur fæði börn sín áfram á Fæðingarheimili Reykjavíkurborgar. Það væri ekki óeðlilegt né ósanngjörn tillaga í þessu máli að borgar- stjórn Reykjavíkur leiti samráðs við nágrannasveitarfélög sín, Hafnarfjörð, Kópavog, Mos- fellssveit og Seltjarnarnes, sem öll hafa notið góðs af starfsemi Fæðingarheimilisins, þar sem engar fæðingarstofnanir eru lengur til staðar á þessum stöðum, ef daggjaldanefnd reyn- ist ófáanleg til að breyta afstöðu sinni. Við skulum heldur ekki gleyma því áð fæðingum fer aftur fjölgandi og munu halda því áfram. Lausn þessa máls er ekki einkamál kvenna heldur varðar það okkur öll. „VIÐ tókum okkur til, þegar vegheíill birtist í götunni — okkur til mik- illar undrunar — fyrir einum og hálfum mánuði og settum auglýsingu til bifreiðaeigenda í útvarpið, þar sem tilkynnt var að austurhluti Fögrubrekku væri fær öllum bifreiðum,“ sagði Kristján Tryggva- son, einn af forsvars- mönnum íbúa við Fögru- brekku í Kópavogi, en ibúarnir við austurhluta götunnar eru orðnir æði langeygir eftir varanlegri gatnagerð á götu sinni. Sl. vor héldu % hluti íbúanna fund og var þá sent bréf til bæjarstjórnar Kópavogs þar sem bent var m.a. á að Fagra- brekka er ein af elztu götum bæjarins, sem ekkert hefur verið gert fyrir og er ástand götunnar í DAG kl. 14 hefst að Hallveigar- stöðum hinn árlegi basar Kvenfé- lags Háteigssóknar. Allt frá stofnun Kvenfélags Há- teigssóknar hefur félagið verið einn af hyrningarsteinum safnað- arstarfsins. í félags- og líknarmál- um hefur félagið unnið mjög þarft og gott starf, sem ekki verður að sögn íbúanna vægast sagt hörmulegt, hola við holu. Allt í kring hafa götur verið malbikað- ar og gengið hefur verið frá lýsingum við þær og sumar hverjar hafa fengið viðurkenn- ingu frá bæjaryfirvöldum fyrir góða umhirðu. „í framhaldi af því að auglýs- ingin kom í útvarpinu, hittust íbúarnir og ákveðið var að senda þriggja manna sendinefnd á fund bæjarráðs, sem við og gerðum. Bæjarráð hafði harla léttvæg rök fyrir þessum drætti, en þeir lofuðu okkur skriflegu svari þegar þeir hefðu athugað málið. Það svar barst og hljóðar á þá leið, að þeir lýsa vilja sínum til að lagt verði slitlag á austur- hluta götunnar á næsta sumri, en vísa málinu að öðru leyti til gerðar fjárhags- og fram- kvæmdaáætlunar. Mér finnst hálf undarlegt, að þeir skuli vísa málinu til eigin gjörða, en þann- ig er það. Við höfum tvisvar komist inn á þessa áætlun, þ.e. fjárhags- og framkvæmdaáætl- metið eða vegið nema af þeim, sem þess hafa notið. Það verður seint fullþakkað. Það sem öllum má ljóst vera hins vegar er sá stóri þáttur, sem félagið á í uppbyggingu og aðbúnaði Háteigskirkju. Átti félag- ið t.d. sinn þátt í því, að ráðist var í kaup á kirkjuklukkunum, sem nú hljóma svo fagurlega um sóknina við helgar tíðir. Nú verður farið að vinna að því að koma upp altarismynd í kirkj- unni, og ætlar kvenfélagið að styðja það verkefni af sama mynd- arskap og það hefur sýnt við önnur tækifæri. Á basarnum á laugardaginn verður margt góðra og eigulegra muna. Ég hvet því sóknarfólk og aðra velunnara Háteigskirkju til að fjölmenna og kaupa á góðu verði það, sem á boðstólum verður á Hallveigarstöðum, og styrkja þannig félagið við að búa Háteigs- kirkju sem bezt og fegurst til að þjóna því hlutverki að vera tignar- legur og aðlaðandi helgidómur Há- teigssafnaðar. Tómas Sveinsson, sóknarprestur. un, en ekkert orðið úr fram- kvæmdum, þannig að það er engu að treysta." Kristján sagði lýsingu götunn- ar og rafleiðslur vera í gömlum rafmagnsstaurum og einnig sagði hann ástand götunnar koma niður á fasteignaverði, frágangi garða o.fl. • • Ofl gegn ölvunar- > akstri ÖLVUN við akstur er verulegt og vaxandi vandamál í umferð- inni. Enda þótt vænta megi að fólk geri sér grein fyrir þeirri hættu, sem af sliku atferli stafar, og öllum muni Ijóst að það varðar við lög, hafa undan- farið verið teknir yfir tvö þúsund ökumenn á ári hverju grunaðir um ölvun við akstur. Arið 1979 voru þeir 2.609. Nokkur félagasamtök og stofnanir hafa tekið saman höndum undir samheitinu „Öfl gegn ölvunarakstri" um að koma á framfæri og vekja athygli á staðreyndum um ölv- un við akstur svo að landsmenn geti sameiginlega komið þess- um málum til betri vegar. Umferðarráð og Áfengis- varnaráð hafa í því skyni látið prenta veggspjald og bækling sem íslenskir ungtemplarar og lögreglumenn munu dreifa á Stór-Reykjavíkursvæðinu en Slysavarnafélagið annarsstaðar á landinu. ribandakeríi Basar Kvenfélags Háteigskirkju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.